Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 10

Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ EVRÓPURÁÐSTEFIMA NORÐURLAIMDARÁÐS Evrópuráðstefna tækifæri Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. til að kynna sjónarmið EVROPURAÐSTEFNA Norður- landaráðs um ríkjaráðstefnu Evr- ópusambandsins 1996 er fyrsta samkoma ráðsins eftir að breyttir starfshættir voru teknir upp og kemur í stað Norðurlandaráðs- þings, sem venjulega var haldið um þetta leyti. Nýskipanin hefur mælst vel fyrir og sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið að ráð- stefnan hefði reynst betur en hann hefði þorað að vona og þátttaka verið góð, bæði af hálfu þing- manna og ráðherra. Aukinn sveigjanleiki ESB Halldór sagði að ráðstefnan hefði verið gagnleg, því þar hefði gefist tækifæri til að átta sig á áherslu- atriðum norrænu ESB-landanna þriggja og gefið íslendingum og Norðmönnum tækifæri til að tjá sig um áhugamál sín. Ljóst væri að löndin þijú vildu gjarnan hafa samráð um ESB-mál við löndin tvö, sem ekki væru í ESB. Hvað ríkjaráðstefnuna varðaði hefði hún áhrif á ísland, meðal annars af því að allar ákvarðanir um stækkun hefðu áhrif á ísland sem EES-land. ísland væri ekki eingangrað frá þessari þróun og þótt íslendingar væru aðeins áhorfendur hefðu breytingar á ESB áhrif á þá. Halldór benti á að mikil óvissa væri um niðurstöðu ríkjaráðstefn- unnar og þar væri ýmislegt uppi, sem vart væri að skapi íslendinga eins og aukið yfirþjóðlegt vald. Þótt ekkert yrði fjallað um yfir- stjórn auðlinda væri það fróðleg vísbending að Þjóðveijar og Frakkar hefðu nú lagt til aukinn sveigjanleika á sviði öryggis- og varnarmála, þannig að löndin gætu verið. aðilar að ákvörðunum á því sviði eftir því hvort þau teldu hagsmunum sínum borgið þar eða ekki. Hvað hér væri átt við væri ekki gott að segja, en ef þetta þýddi að einstök lönd gætu al- mennt staðið utan við sumt og verið með í öðru væri komin upp ný staða, sem þyrfti að taka af- stöðu til. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og annar tveggja varaformanna í Evrópu- nefnd Norðurlandaráðs er stóð að undirbúningi ráðstefnunnar, tók til máls á þinginu og gerði varnar- samstarfið og yfirþjóðlega stefnu ESB að umræðuefni. í samtali við Morgunblaðið sagði hún að hug- myndir um innlimun Vestur-Evr- ópusambandsins í ESB væru áhyggjuefni fyrir íslendinga og Norðmenn, því þar með yrði staða þeirra óljós. Norðmenn og Islend- ingar hefðu á sínum tíma kosið að vera með í NATO og Finnar og Svíar að standa utan þess. Nú væru þessi tvö lönd hins vegar gengin í ESB, en íslendingar og Norðmenn væru utan þess. Norræn samvinna gagnleg svo langt sem hún nær NORÐMENN hafa ekki á tilfinning- unni að þeir hafi mikil áhrif á gang mála innan Evrópusambandsins að sögn Torbjorns Jaglands formanns norska Verkamannaflokksins. Aðal- áhugamál varðandi ríkjaráðstefnuna er hver verði þróun Vestur-Evrópu- sambandsins, sem Norðmenn eru aukaaðilar að eins og Islendingar. Að sögn Gunnars Berge norræns samstarfsráðherra Norðmanna nýt- ist norræn samvinna Norðmönnum vel, en kemur ekki í veg fyrir vand- ann sem hlýst af því að standa utan ESB. Jagiand sagði í samtali við Morg- unblaðið að einu leiðir Norðmanna til að hafa áhrif innan ESB væru annars vegar í gegnum norrænt samstarf og hins vegar með þátttöku í evrópsku flokkasamstarfi. Á þann hátt væri hugsanlegt að hafa óbein áhrif, en aldrei gæti orðið um mikil áhrif að ræða, meðan landið væri ekki aðili að ESB. VES verði áfram sjálfstætt Fyrir ríkjaráðstefnuna hafa Norð- menn annars vegar reynt að koma að sjónarmiðum sínum í gegnum norrænt samstarf, en hins vegar innan embættismannasamstarfsins í Brussel. Jagland sagði að helsta áhugamál Norðmanna væri þróun evrópsks varnarsamstarfs og Vest- ur-Evrópusambandsins. Ef svo færi að VES yrði hluti af varnarsam- starfi ESB takmarkaði það áhrif Noregs og því væru Norðmenn áhugasamir um að VES yrðu áfram sjálfstæð samtök. Sem stæði virtist stefna í þá átt, síðast vegna aukins áhuga Frakka á þátttöku í NATO og um leið minni áhuga á að innlima VES í ESB. Ef þróunin yrði hins vegar í hina áttina sagði Jagland að Norðmenn yrðu að freista þátt- töku í varnarsamstarfi ESB. Ólíkir fiskveiðihagsmunir Jagland sagðist ekki eiga von á að niðurstöður ríkjaráðstefnunnar breyttu neinu um afstöðu Norð- manna til ESB-aðildar. Norsk aðild ætti langt í land að komast aftur á dagskrá. Það yrði vart fyrr en stækkun ESB væri orðin að veru- leika og breytingar hefðu orðið á landbúnaðar- og fiskveiðistefnu ESB í átt að norðlægum sjónarmiðum. Á þessu sviði gætu Islendingar og Norðmenn ekki unnið saman, því eins og kunnugt væri, færu hags- munir þeirra ekki saman á fiskveiði- sviðinu. í samtali við Morgunblaðið sagði Gunnar Berge að Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin gögn- uðust Norðmönnum vel sem vett- vangur til að fylgjast með og koma að sjónarmiðum sínum á Evrópumál- unum. í gegnum samstarfið ættu Norðmenn óformlegan aðgang að undirbúningi mála innan ESB, en það kæmi auðvitað ekki í veg fyrir þann vanda, sem stafaði af því að Norðmenn væru ekki aðilar að ESB og gætu því ekki haft bein áhríf þar. 555-1500 Garðabær Stórás Gott ca 200 fm einbhús auk 35 fm bílskúrs. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti mögul. á 3ja herb. íbúð. Reykjavík Baughús Glæsil. ca 90 fm 3ja herb. íb. í tvíbýli með góðu útsýni. Áhv. ca 2,8 millj. húsbr. Verð 8,5 millj. Kóngsbakki Mjög góð 3ja herb. íb. ca 80 fm á 3. hæð. Áhv. ca 3,1 millj. Verð 6,5 millj. Hafnarfjörður Sóleyjarhlfð Góð 3ja herb. ca 92 fm íb. Ath. tilb. u. trév. Laus strax. Verð 6.450 þús. Áhv. 2,9 millj. Miðvangur Gott raðhús ca 150 fm + 38 fm bílsk. Möguleiki á 4 svefnh. Skipti mögul. á minni eign. Álfaskeið Einb. á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Lítið áhv. Ath. skipti á lítilli íb. Höfum kaupanda að þjónustuíbúð á Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Höfum kaupanda að eldra einbýlishúsi í Hafnar- firði. Vantar eignir á skrá. FASTEIGNASALA, Strandgötu 25, Hfj., éF ÁrniGrétarFinnssonhrl., “■ Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl. Atvinnustefna ESB er próf- raun á hvort ESB lifir af NÝTT samfélagskerfi, sem tekur tillit til atvinnusköpunar og um- hverfis, er það sem Evrópa þarf. Andlegur skyldleiki Jacques Delors, fyrrum formanns framkvæmda- stjómar Evrópusambandsins, og norrænna jafnaðarmanna leyndi sér ekki, þegar formaðurinn fyrr- verandi lýsti því yfir að framtíð ESB væri undir því komin að því tækist að ná tökum á atvinnuleysi átján milljóna Evrópubúa. Jafn- framt sagðist hann vona að sömu kraftar yrðu lagðir í að ráða bót á atvinnuleysinu og að hrinda evr- ópska myntkerfinu í framkvæmd. Delors var framsögumaður á Evróþuráðstefnu Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn á mánudag, þar sem hann ræddi atvinnustefnu ESB. Hann sagði atvinnuleysi helstu vá, sem steðjaði að ESB, þar sem það græfí undan sameiningu og þjóðfélagslegum stöðugleika. Evrópa þyrfti að ákveða hvort hún ætlaði að lifa af, eða stefna í hnign- un. Hann sagðist ekki vilja vera með neina óðasvartsýni, en spurn- ingin um þróun Evrópu væri háð því hvernig tækist til um atvinnu- sköpun. Þótt Evrópa hefði breyst héfðu f EIGNAMCÐLUNIN Y - Ábyrg |)jónu8ta í áratugi. H Sími: 588 9090 Síðumúla 21 2ja-3ja óskast. Góö 2ja-3ja herbergja íbúð meö góöu aðgengi fyrir fatlaöa óskast strax, helst miösvæöis. Traustar og góöar greiÖ3iur í boöi. Uppl. veitir Björn Þorri á-skrifst. íbúðarhæö óskast. Höfum kaupanda aö góöri vandaöri sórhæö í Reykjavík (inn- an Elliðaáa). Æskileg stærö væri um 150 fm. Bílskúr. Traustur kaupandi. Iðnaðarpláss óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 300-500 fm íönaöarplássi meó góðri lofthæð. íbúð í Fossvogi Óskast. Trausturkaupandihefurbeðiðokkuraðútvega2ja-3ja herb. íb. m. góöum bllskúr. Æskileg staösetning: Fossvogur, Smáíbúöahverfi eöa Háaleiti. Uppl. veitír Sverrír Krístinsson Iðnaðar- og lagerpláss óskast. Traustur kaupandi hefur beðiö okkur aö útvega 800-1.200 fm plássm. 4-7 m lofthæö. Upplýsingar gefur Sverrír Kristinsson. Einbýli á Seltjarnarnesi óskast - traustur kaupandi. Áweð- irm Kaupandi ðskar nú þegar ettir 150-250 fm einbýlishúsi á Seltj.n. Gúðar greiðslur I boði. Uppl. veitir Sverrir Kristinsson. AÁ...A aðrir heimshlutar þróast hraðar. Ekki væri um að kenna þunglama- legu félagslegu kerfi í Evrópu og þar mætti ekki skera niður, því það héldi þjóðfélaginu saman. Hins vegar væri mikilvægt að horfast í augu við staðreyndirnar og átta sig á að gullöld sjöunda áratugarins væri liðin og ekki þýddi lengur að lifa í fortíðinni. . Vinna í stað bóta Að sögn Delors þarf Evrópa á virkri atvinnusköpun að ræða, þar sem mikilvægt væri að nýta fé til að skapa atvinnu í stað þess að halda fólki uppi á bótum, eins og nú væri mest um. Hér þyrfti einka- geirinn einnig að koma til sögunnar og axla samféiagslega ábyrgð sína. Delors var tíðrætt um gildi umhverfisstefnu,'sem gæti örvað atvinnu. Sökum ofsköttunar væri mannafl vannýtt, meðan náttúru- auðæfi væru ofnýtt sökum van- sköttunar. Delors benti í lokin á að takast þyrfti á við styttan vinnutíma, þannig að þeir sem í vinnu væru skiptu vinnunni með þeim sem enga atvinnu hefðu. Auka þyrfti möguleika á hluta- vinnu og fríum til að rýma fyrir atvinnulausum. Áskorun dagsins í dag væri nýtt þjóðfélagskerfi í Evrópu, sem tæki tillit til núver- andi aðstæðna. Mikilvægt væri að niðurstaða ríkjaráðstefnunnar bæri með sér stjórnmálavilja til atvinnusköpunar. Nýtt tímarit frá Fróða Séð og heyrt tvisvar í mánuði SÉÐ og heyrt heitir nýtt tíma: rit, sem Fróði gefur út. í fréttatilkynningu segir að tímaritið muni koma út tvisvar í mánuði og verði á mannlegu nótunum. „Texti í Séð og heyrt er yfirleitt stuttur og notkun myndefnis mikil og markviss. Og þótt blaðið fjalli um þjóð- málin frá hinum ýmsu hliðum er markmiðið það að lífga upp á lífið og tilveruna," segir út- gefandi í fréttatilkynningu. Þá segir að ritstjórn Séð og heyrt leggi mikla áherslu á náið samband við lesendur sína. Þeim sé gert kleift að veita ábendingar um efni gegn þóknun með því að hringja inn fréttaskot. Ennfremur geti les- endur tekið þátt í leikjum, getraunum og myndaþætti. Þá er í blaðinu ítarlega fjall- að um sjónvarpsdagskrána. Ritstjórar Séð og heyrt eru Kristján Þorvaldsson og Bjarni Brynjólfsson. í 1. tölublaði er meðal efnis viðtal við eigin- konu biskups íslands. Borgarráð Vesturbæj- arhátíðin 60% fram úr áætlun BEINN kostnaður Reykjavík- urborgar vegna Vesturbæjar- hátíðarinnar fer 60% fram úr áætlun samkvæmt upplýsing- um til borgarráðs. í bókun borgarráðsfulltrúa sjálfstæðismanna segir að kostnaðurinn hafi verið 4 millj- ónir í stað 2,5 milljóna, sem áætlað hafí verið. Þá segir að viðamikil aðstoð hafí verið veitt vegna verksins frá öðrum borgarstofnunum án þess að reikningar væru gerðir. Óskað er eftir mati á þeim kostnaði. Tekinn við línuveiðar á kapalsvæði VARÐSKIPIÐ Týr stóð í gær- morgun línubátinn Lilju VE 7 að meintum ólöglegum veiðutn á svokölluðu kapalsvæði milli Vestmannaeyja og Bakka- fjöru. Varðskipið færði bátinn, sem hafði aflað um 600 kíló, aðallega af steinbít til hafnat' í Vestmannaeyjum þar sem skýrslur voru teknar. Veiðar eru bannaðar á kapalsvæðinu, að sögn Land- heígisgæslu, vegna þess að þat' liggja sæstrengir og vatns- leiðslur milli lands og Eyja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.