Morgunblaðið - 06.03.1996, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
f sraelar herða baráttuna gegn hermdarverkum múslimskra heittrúarmanna
Loka húsum
tilræðismanna
og vegum
Nablus, Jerúsalem, Gaza, Washington. Reuter.
ÍSRAELSKIR hermenn lokuðu í gær húsum palestínskra tilræðismanna
með logsuðutækjum og settu upp tálma á helstu vegi á Vesturbakkanum.
Þetta er liður í nýrri herferð ísraelsstjómar gegn múslimskum heittrúar-
mönnum eftir fjögur sprengjutilræði á tíu dögum sem kostuðu 57 manns lífið.
Shimon Peres, for-
sætisráðherra ísraels,
veitti ísraelskum ör-
yggissveitum ftjálsar
hendur í baráttunni
.gegn hermdarverkum
eftir að 14 manns
höfðu beðið bana í
sjálfsmorðsárás við
verslanamiðstöð í Tel
Aviv á mánudag.
ísraelskir hermenn
hófu aðgerðir sínar á
Vesturbakkanum í
dögun í gær, settu upp
vegatálma milli þorpa
og umhverfis borgir á
sj álfstjórnarsvæðum
Palestínumanna.
Meintir liðsmenn pal-
estínsku öfgasamtak-
anna Hamas og ísl-
amsks Jihad voru handteknir.
„ísraelskir hermenn tilkynntu í
hátölurum að við mættum ekki
fara frá þorpunum," sagði íbúi í
þorpinu Rummenah, nálægt Jenín
á Vesturbakkanum. „Svo virðist
sem ísraelar hafi hernumið Vestur-
bakkann að nýju.“
19 menn handteknir
ísraelsher sagði að hermenn
hefðu ráðist inn í sjö byggðir Pal-
estínumanna á Vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu og handtekið að
minnsta kosti 19 Palestínumenn.
Hermenn framfylgdu einnig út-
göngubanni á fimm þorp og flótta-
mannabúðir.
Hermennirnir lokuðu heimilum
átta hermdarverka-
manna Hamas-sam-
takanna. Sex þeirra
höfðu látið lífið í
sprengjutilræðum,
einn gengur laus, og
áttundi maðurinn er
Yahya Ayyash,
sprengjusérfræðingur
Hamas, sem ísraelar
réðu af dögum 5. jan-
úar með því að koma
fyrir sprengju í far-
síma hans. Húsin
verða lögð í rúst nema
íbúar þeirra áfrýi
ákvörðuninni til dóm-
stóla innan sólar-
hrings.
Fjölskyldu Ayyash
var skipað að flytja
eigur sínar úr húsinu.
Járnplötur voru síðan festar á
gluggana og dyrum lokað með log-
suðutækjum. Faðir Ayyash, tveir
bræður hans og tveir frændur, voru
handteknir. Hamas segist hafa
hafið sprengjutilræðin til að hefna
drápsins á Ayyash.
Sjálfstjórnar-
svæðum lokað
Hermennirnir hertu öryggis-
gæsluna við sjálfstjórnarsvæðin og
meinuðu Palestínumönnum að fará
til ísraels eða ferðast á milli svæð-
anna. Yasser Arafat, leiðtogi sjálf-
stjómarsvæðanna, sagði þessar
aðgerðir ganga í berhögg við
friðarsamninga ísraela og Frelsis-
samtaka Palestínumanna. „Ef þær
Reuter
RAYID Sharn obi, 24
ára Palestínumaður
sem er talinn hafa orð-
ið 18 manns að bana.
Reuter
ISRAELSKUR lögreglumaður leitar á Palestínumanni, sem tókst
að lauma sér til Vestur-Jerúsalem í gær þrátt fyrir mikinn
öryggisviðbúnað ísraelska hersins.
eru nauðsynlegar þarf að ræða það
við okkur,“ sagði hann. Palestínu-
menn birgðu sig upp af matvælum
þar sem þeir óttast að svæðunum
verði lokað í langan tim.
150 liðsmenn Hamas
handteknir
Yfirstjórn öryggissveitanna
sagði að 150 meintir liðsmenn
Hamas hefðu verið handteknir á
Vesturbakkanum og 400 á Gaza-
svæðinu frá því sprengjutilræðin
hófust 25. febrúar.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, ákvað f gær að senda ísrael-
um sprengjuleitartæki sem þeir
gætu notað í baráttunni gegn
hermdarverkum. Forsetinn ákvað
einnig að senda sérfræðinga til að
þjálfa og áðstoða öryggissveitir
Israela og sjálfstjórnarsvæða Pal-
estínumanna við að afstýra frekari
hermdarverkum.
Dole sagð-
ur hagnast
á stuðningi
Gingrich
Washington. Reuter.
TALIÐ var, að stuðningsyfirlýsing
Newts Gingrich, forseta fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, við próf-
kjörsbaráttu Bobs Dole, leiðtoga
þingmeirihlutans í deildinni, gæti
ráið miklu um niðurstöðu prófkjörs
repúblikana, sem fram fór í átta
ríkjum í gær.
Gingrich greiddi atkvæði utan
kjörfundar í heimaríki sínu, Georg-
íu, á mánudag og lýsti að því búnu
yfír stuðningi við Dole. „Hann er
náinn vinur og mikill leiðtogi. Sam-
an tókst okkur að koma í gegnum
þingið halialausu fjárlagafrum-
varpi, skattalækkunum og umbót-
um á velferðarkerfinu, sem verða
að lögum þegar hann tekur við
starfí forseta," sagði Gingrich.
Stjórnmálaskýrendur töldu, að
stuðningur Gingrich myndi bæta
stöðu Dole fyrir forkosningarnar í
gær, sem fram fóru í Georgíu,
Massaehusetts, Rhode Island,
Connecticut, Maine, Vermont,
Maryland og Colorado, en honum
var spáð sigri í þeim öllum. Sömu-
leiðis þykir hann sigurstrangaleg-
astur forsetaefna repúblikana í for-
kosningum, sem fram fara í New
York ríki á morgun, fimmtudag.
Jerúsalem. Reuter.
HERNAÐARARMUR Hamas,
Izz el-Deen al-Qassam, sem hef-
ur staðið fyrir mannskæðum
sprengjutilræðum í Israel, er
aðeins lítill hluti af múslimsku
samtökunum sem hafa fest ræt-
ur á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. Talið er að blossað
hafi upp ágreiningur innan
Hamas milli harðlínumanna,
sem vilja koma friðarsamning-
unum við ísraela fyrir kattarnef
með hermdarverkum, og afla
sem eru hlynnt viðræðum við
Frelsissamtök Palestínumanna
(PLO).
Hamas á rætur að rekja til
Múslimska bræðralagsins, sem
hefur náð fótfestu í mörgum
löndum múslima, t.d. Egypta-
Iandi. Lamaður klerkur, Ahmed
Yassin, stofnaði Hamas á Gaza-
svæðinu árið 1987 og markmið
samtakanna var í fyrstu að berj-
ast gegn hernámi Israela með
mótmælafundum. Samtökin
hófu vopnaða baráttu árið 1989
og Yassin var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi sama ár vegna
dráps á tveimur ísraelskum her-
mönnum, sem samtökin rændu.
Félagsleg þjónusta
Starfsemi samtakanna er
fjármögnuð með gjafafé frá
hreyfingum erlendis, meðal
annars Bandaríkjunum, Bret-
landi og Persaflóaríkjum. Ham-
as rekur íþróttahús, skóla og
heilsugæslustöðvar á Vestur-
bakkanum og Gaza-svæðinu.
Margir af leiðtogum Hamas
Klofn-
ingur
innan
Hamas
búa í ýmsum arabalöndum og
Mousa Abu Marzuk, formaður
framkvæmdaráðsins, hefur ver-
ið handtekinn í Bandaríkjunum.
Forystumenn Hamas á Vestur-
bakkanum og Gaza-svæðinu
stjórna daglegri starfsemi sam-
takanna en hafa samráð við
leiðtogana erlendis þegar mikil-
vægar ákvarðanir eru teknar.
Ekki er vitað hversu margir
Palestínumenn eiga aðild að
Hamas. Skoðanakannanir
benda hins vegar til þess að
allt að 15% tveggja milljóna
Palestínumanna á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu styðji
samtökin.
Morðið á Ayyash vatn
á myllu harðlínuafla
Hernaðararmur Hamas,
Qassam, var stofnaður árið 1990
og talið er að í honum sé frem-
ur fámennur kjarni sem starfar
með mikilli leynd og hefur feng-
ið unga og dygga Hamas-menn
til liðs við sig. Qassam hóf sjálfs-
morðsárásir árið 1994 eftir að
gyðingur drap 29 múslima í
Hebron. Liðsmenn Qassam
drápu hartnær 100 manns, aðal-
lega ísraela, í nokkrum sjálfs-
morðsárásum í ísrael frá apríl
1994 til ágúst í fyrra. Tilræðun-
um var þá hætt eftir að PLO
hóf samningaviðræður við
Harnas.
Viðræðurnar ollu ágreiningi
meðal leiðtoga Hamas um fram-
tíðarstefnu samtakanna og hóf-
söm öfl, sem vildu semja við
PLO, virtust háfa undirtökin í
valdabaráttunni. Morðið á Ya-
hya Ayyash, sprengjusérfræð-
ingi Hamas, 5. janúar virtist
hins vegar styrkja stöðu harð-
línumannanna, sem vildu halda
sjálfsmorðsárásunum áfram.
Hamas sakaði ísraela um morð-
ið og hét að hefna hans.
Samtökin urðu 26 manns að
bana í tveimur sjálfsmorðsárás-
um í ísrael 25. febrúar og
nokkrum dögum síðar buðust
þau til að hætta tilræðunum ef
Israelar slepptu föngum og
hættu tilraunum til að handtaka
Hamas-liða. Hamas veitti ísrael-
um átta daga frest til að svara
tilboðinu en á sunnudag, nokkr-
um dögum áður en fresturinn
rann út, gerðu samtökin aðra
árás í Jerúsalem, sem varð 18
manns að bana. Sama dag til-
kynnti Hamas að tilræðunum
yrði hætt í þrjá mánuði en dag-
inn eftir, á mánudag, voru 13
manns drepnir í sjálfsmorðs-
árás í Tel Aviv.
Bardagar
í Grosní
TSJETSJENSKIR upp-
reisnarmenn skutu þijá rúss-
neska hermenn til bana í
Grosní í gær, að sögn Itar-
Tass-fréttastofunnar. Tveir
félagar mannanna voru hand-
samaðir og fluttir á brott upp
í íjallahéruð á valdi Tsjetsj-
ena. Rússneskar hersveitir
héldu uppi skothríð af fall-
byssum á stöðvar skæruliða í
bænum Sernovodsk, einnig
var beitt herþyrlum. Þúsundir
manna hafa flúið til grannhér-
aðsins Ingúsetíu frá Sern-
ovodsk að undanförnu vegna
átakanna. Pavel Gratsjov,
varnarmálaráðherra Rúss-
lands, heimsótti Tsjetsjníju á
mánudag og sagðist hlynntur
friðsamlegri lausn en bætti við
að sérhverri byssukúlu frá
skæruliðum yrði svarað með
mörg þúsund kúlum af hálfu
Rússa.
Stjórn Rhein-
land-Pfalz
slapp fyrir
horn
SAMSTEYPUSTJÓRN jafn-
aðarmanna og græningja í
þýska sambandsríkinu Rhein-
land-Pfalz slapp naumlega fyr-
ir hom í gær eftir margra
klukkustunda deilur um
stækkun flugvallar í Dort-
mund. Græningjar féllu loks
frá andstöðu sinni við stækkun
og samþykktu fjárlög næsta
árs. Samstarf flokkanna í rík-
inu er oft talið vænleg fyrir-
mynd að stjórnarsamstarfi
þeirra fyrir allt Þýskaland.
Singapore lag-
ar til á alnetinu
STJÓRNVÖLD í Singapore
sögðu í gær að tryggja yrði
að notendur alnetsins hefðu
ekki aðgang að ýmsum sora,
einkum klámi, hatursáróðri og
glæpadýrkun.sem bærist að
utan. Yrðu fyrirtæki er seldu
aðgang að netinu að sjá til
þess og grisja efnið, einn af
ráðherrum landsins sagði að
um „mengunarvarnir" væri
að ræða. A hinn bóginn yrði
ekki reynt að ritskoða með
neinum hætti samskipti ein-
staklinga.
Ebóla í rénun
MALARÍA er á ný orðin ban-
vænasti sjúkdómurinn í bæn-
um Kikwit í Zaire en yfirvöld
óttast þó að ebóla-veiran geti
á ný náð sér á strik. Alls lét-
ust 244 í ebólu-faraldri í
Kikwit í fyrra. Læknum og
hjúkrunarliði tókst að ein-
angra sýkina og fá fólk til að
beita varúðarráðstöfunum en
nú mun varkárnin vera á und-
anhaldi.
Hj’álpargögn
f öst í tolli
MILLJÓNIR manna í Norður-
Kóreu þjást enn af hungri og
kulda og bíða þess að hjálpar-
gögn berist frá útlöndum, að
sögn fulltrúa Rauða krossins.
Hann sagði að birgðum frá
Suður-Kóreu, 100.000 pökk-
um af núðlum, fötuin og tepp-
um, hefði ekki verið dreift
vegna tafa síðustu vikurnar
af hálfu n-kóreskra toll- og
heilbrigðisyfirvalda.