Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 33

Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 33 MINNINGAR HULDA DORIS MILLER + Hulda Doris Miller var fædd í Reykjavík 30. des- ember 1941. Hún lést á heimili sínu hinn 16. febrúar síðastliðinn. Móðir hennar var Sigríð- ur Svanhvít Sig- urðardóttir og fað- ir hennar var Charles Miller, breskættaður. Hulda var næst- yngst 6 systkina. Árið 1967 kvæntist Hulda Erlendi Helgasyni og eignuðust þau einn son, Sig- urð, sambýliskona hans er Sig- urbjörg Jóhannesdóttir. Ilulda átti eina dóttur fyrir, Erlu Ósk Guðjónsdóttur. Eiginmaður hennar er Sigurður Kristins- son og eiga þau tvö börn, Krist- ínu og Sunnu Sigríði. Utför Huldu fór fram í kyrr- þey 22. febrúar. ENGINN ræður örlögum sínum og oft tekur lífið aðra stefnu en ætlað er og þannig var með lífsskeið Huldu. Segja má að það sem ein- kenndi Huldu sem persónu hafi verið hógværð og feimni. Samt bjó í henni mikil glettni, sem kom ekki síst í ljós ef einhver fjörkipp- ur var í kringum hana. Það var alltaf stutt í hláturinn. Hulda var að upplagi mikil tilfinningavera, sem sýndi sig vel í hennar barn- gæsku, sem bæði börn okkar nutu á ýmsan hátt. Það var alltaf gott að heimsækja Huldu og Ella, það var eitthvað hlýlegt við hennar heimilishald, þar var regla á öllu og þrifnaður í fyrirrúmi. Hjóna- band þeirra einkenndist af mikilli ást og samheldni. Á seinni árum kom svo í ljós, fyrir þá sem ekki vissu, að þessi mjúka tilfinninga- vera bjó yfir ótrúlega miklum styrk. Það kom ekki síst fram þegar Elli veiktist alvarlega fyrir nokkrum árum. Þá var það Hulda sem tvíefldist og annaðist Ella sinn af mikilli alúð og elsku. Það heyrð- ust ekki kvartanir frá Huldu þá frekar en endranær. Svo kom hinn þungi dómur um hennar eigin heilsu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Enn á ný sýndi hún ótrúlegan styrk og dugnað vitandi að hveiju stefndi. Með sinni yfirveguðu ró má segja að hún hafi blekkt okkur sum, á hversu alvarlegu stigi sjúkdómurinn væri. Þrátt fyrir allan sársaukann og áhyggjurnar, sem fyrst og fremst voru vegna Ella og þeirra sem henni þótti svo vænt um en ekki vegna sjálfrar sín, heyrðist hún aldrei barma sér. Þeg- ar litið er til baka er ekki nema von að okk- ur öllum sem þótti vænt um hana sé spurn, hver var hún eiginlega þessi vin- kona okkar, með þennan mikla styrk, þrátt fyrir mótbárur lífsins. Svarið við þeirri spurningu felst fyrst og fremst í þeirri staðreynd að Hulda var góð manneskja, góð fyrirmynd og tryggur vinur. Við biðjum góðan guð að blessa minningu hennar. Elsku Elli, Siggi, Erla og aðrir ástvinir, okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Ruth og Kjartan. Mig langar til að minnast frænku minnar er lést 16. febrúar síðastliðinn. Það eru ljúfar minn- ingar sem fara í gegnum hugann þegar sest er niður og hugsað til Huldu. Huldu stóru eins og dóttir mín kallaði hana. Það var alltaf gaman að koma til Huldu og Ella því hún var oftast í góðu skapi og ég gat alltaf talað við haria. Dætur mínar tóku miklu ást- fóstri við Huldu og var alltaf til- hlökkun hjá þeim þegar þær vissu að Hulda og Elli voru á leiðinni til okkar, bæði á Neskaupstað og síð- ar til Blönduóss. En þær voru ófá- ar ferðimar sem farnar voru frá Reykjavík til Blönduóss frá pásk- um fram á haust, ekki má heldur gleyma öllum veiðiferðunum, sum- arbústaðaferðum, ferðalögum um landið þvert og endilangt. Meðan ég var unglingur og líka eftir að ég eignaðsit fjölskyldu þá var hún tekin með, þetta voru góðir tímar og margt spaugilegt gerðist, en hvað lífið er ótrúlega stutt er mað- ur horfir til baka og lítur yfir far- inn veg! Ég vil þakka Huldu fyrir allar þær ánægjustundir sem við áttum saman. Elli minn og Siggi, megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Svanhvít, Sveinn og dætur. Nú er hún Hulda stóra dáin. Það er skrítið að sjá Ella einan því það vantar eitthvað. Hún Hulda var alltaf með, það verða ekki fleiri heimsóknir í Kassagerðina, eins og það var gaman, eða fleiri sum- arbústaðaferðir í Svignaskarð. Ég vil þakka Huldu stóru þau fáu ár sem hún gaf mér, þau voru góð. Nú er Hulda stóra farin til himna til mömmu sinnar, hennar ömmu á Skúló. Megi Guð gæta hennar. Hulda litla. Fyrirlestur hjá Nýrri Dögun SR. BRAGI Skúlason, sjúkrahús- prestur við Ríkisspítala, flytur fyrir- lestur á morgun, fimmtudaginn 7. mars, á vegum Nýrrar dögunar. Fyr- irlesturinn verður í Gerðubergi og hefst kl. 20. Fjallar fyrirlesturinn um missi við andvana fæðingu og missi nýbura. Bragi Skúlason hefur flutt marga fyrirlestra um sorg og sorgarvið- brögð bæði á vegum Nýrrar dögunar og einnig hefur hann haldið fyrir- lestra í skólum og leikskólum um sorg barna fyrir kennara, fóstrur og foreldra. Næsta opna hús hjá Nýrri dögun verður í Gerðubergi fimmtudaginn 21. mars kl. 20-21. ■ Á KRINGLUKRÁNNI í kvöld, miðvikudaginn 6. mars, leikur Jass- kvintett Ragnheiðar Ólafsdóttur blöndu af þekktum standördum, nor- rænum og íslenskum jasslögum. Jass-kvintett Ragnheiðar Olafs skipa Gunnar Gunnarsson píanó, Gunnar Ringsted gítar, Jón Rafnsson kontrabassi, Matthías M.D. Hemstock trommur og Ragnheiður Ólafs söngur. Þessir tónlistarmenn hafa sterk tengsl við Akureyri og hafa unnið saman undanfarin ár. ■ SAMTÖKIN Vímuiausar konur hafa verið stofnuð. Samtökin eru systrasamtök WFS í Bandaríkjunum. Samtökin eru sjálfshjálparsamtök fyrir konur sem eru fylgjandi lífi án áfengis eða vímuefna. Samtökin eru fyrir allar konur sem vilja lifa lífi sínu án áfengis eða vímuefna. Fund- ir verða haldnir vikulega á fimmtu- dagskvöldum frá kl. 20-21 í Lang- holtskirkju. Upplýsingar í sima 588 7010. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfjn Word og Wordperfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGURBORG EINARSDÓTTIR frá Hornafirði, Fögrubrekku 21, Kópavogi, lést í Landspitalanum 29. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju, Hornafirði, laugardaginn 9. kl. 14.00. Jarðsett verður í Brunnhólskirkjugarði. ingunn Pálsdóttir, Júlíus Guðmundsson, Páll Júliusson, Einar Júlíusson, Sigurbjörg Júlíusdóttir. FRÁ 3. umferð. __ * Enginn Islendingur „þjófstartaði“ SKAK Skákmiöstöðin Faxafcni 12: REYKJAVÍKURSKÁK- MÓTIÐ 2.-10. mars Teflt frá kl. 17 daglega. Aðgangur í dag ókeypis fyrir áhorfendur í boði Flugleiða innanlands. NORÐMENNIRNIR Agdestein og Tisdall og Predrag Nikolic frá Bosníu unnu þrjár fyrstu skákir sínar á Reykjavíkurskákmótinu. Enginn íslendinganna „þjófstart- aði“ með þrennu, en fjórir þeirra eru þó í hópi níu efstu manna. Mest á óvart í þriðju umferðinni kom Sævar Bjarnason. Hann lagði stigaháa rússneska alþjóðameist- arann Alexander Raetsky mjög snaggaralega að velli með svörtu mönnunum. Agdestein mátaði Svíann Jonny Hector og hefndi þar ófara frá svæðamótinu hér í Reykjavík fyrir ári. Norðmaðurinn sterki ætlar sér örugglega að fá uppreisn æru, eftir að hafa aðeins náð 50% vinn- inga þá. Landi hans Tisdall vann varnarsigur á eina enska þátttak- andanum, Stuart Conquest. Pre- drag Nikolic sveið steindautt jafn- teflisendatafl af Einari Gausel, Noregi, eins og honuVn einum er lagið. Enn einn Norðmaðurinn, Rune Djurhuus hélt jöfnu við Hannes Hlífar, eftir að hafa stað- ið höllum fæti. Bandaríkjamaður- inn Boris Gulko sveið Helga Ólafs- son í löngu og erfiðu endatafli. Helgi Áss Grétarsson mætti vel undirbúinn til leiks gegn Rosental- is, sterkasta skákmanni Litháa og einum stigahæsta keppandanum á mótinu. Litháinn beitti uppáhalds- afbrigði sínu, uppskiptaafbrigðinu í spánska leiknum, en kom ekki að tómum kofunum. Helgi Áss jafnaði taflið léttilega, hafnaði svo jafnteflisboði andstæðingsins og fór sjálfur að reyna að svíða enda- taflið með svörtu, en yfirleitt er hlutverkum þveröfugt skipað í þessari litlausu og rólegu byijun. Rosentalis mátti hafa sig allan við að hanga á jafntefli. Helstu úrslit 3. umferðar: Gausel-Nikolic 0-1 Hector-Agdestein 0-1 Conquest-Tisdall 0-1 Guiko-Helgi Ól. 1-0 Djurhuus-Hannes 'A-'A Margeir-Jón Garðar 1-0 Rosentalis-Helgi Áss 'A-'A Yoos-Jóhann 0-1 Raetsky-Sævar 0-1 Heini Olsen-Bronstein 'A-'A V.d. Sterren-Borge ‘A- 'A V.d. Werf-Curt Hansen 'A-'A Þröstur-Kristján 1-0 Staða efstu manna: Sævar Bjarnason 1.-3. Jonathan Tisdall og Simen Agde- stein, Noregi, og Predrag Nikolic, Bosn- íu, 3 v. 4.-9. Boris Gulko, Bandaríkjunum, Hannes Hlífar Stefánsson, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson, Sævar Bjarnason og Rune Djurhuus, Noregi, 2 'A v. 10.-28. Einar Gausel, Noregi, Curt Hansen og Nikolaj Borge, báðir Dan- mörku, Jonny Hector og Emanuel Berg, Svíþjóð, Eduardas Rosentalis, Litháen, Van der Werf, Van der Sterren og Esther de Kleuver, öll Hollandi, Stuart Conquest, Englandi, Davíð Bronstein, Rússlandi, Heini Olsen, Færeyjum, Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson, Bragi Halldórsson, Magnús Örn Úlfarsson, Andri Áss Grét- arsson og Benedikt Jónasson 2 v. 29.-39. Heimir Ásgeirsson, Bergsteinn Einarsson, Páll Agnar Þórarinsson, Björn Freyr Björnsson, Jón Garðar Við- arsson, Áskell Öm Kárason, Jón Viktor Gunnarsson, Per Andreassen, Dan- mörku, Patrick Lyrberg, Svíþjóð, John C. Yoos, Bandaríkjunum, og Hanneke Van Parreren, Hollandi, 1 'A v. o.s.frv. Sævar tefldi léttleikandi Sævar Bjarnason, alþjóðlegur meistari, er mistækur og það skýr- ir hversu miklum stigum hann hefur tapað á undanförnum árum. Á Guðmundar Arasonar mótinu í Hafnarfirði í desember tefldi hann langt undir styrkleika, en fram að þessu hefur hann teflt eins og herfor- ingi á Reykjavíkur- skákmótinu. Rússinn Raetsky gerði þau mistök að leyfa peðaframrásina d5-d4 og þurfti svo að veikja stöðu sína til að bijóta upp mið- borðsstöðu svarts. Eftir það héldu Sæv- ari engin bönd. Stöðuskilningurinn hefur löngum verið hans sterkasta hlið og ekki oft sem hann sést halda frum- kvæðinu jafn styrkri hendi og í þessari skák. Rússinn sá aldrei til sólar, þrátt fyrir mikl- ar tilraunir: Hvítt: Alexander Raetsky, Rússl. Svart: Sævar Bjarnason Bogoindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. g3 - Bb4+ 4. Rd2 - c5 5. dxc5 - Bxc5 6. Bg2 - d5 7. Rgf3 - Rc6 8. 0-0 - 0-0 9. a3 - a5 10. Dc2 - Bb6 11. b3 - De7 12. Bb2 - d4! 13. Hael - e5 14. e3 - dxe3 15. fxe3 - Rg4 16. Dc3 - f5 17. Khl - Dc5! 18. Rxe5!? - Rcxe5 19. Bd5+ - Kh8 20. h3 - De7 21. hxg4 - Rxg4 22. Rf3 - Bc7 23. Kg2 - Ha6! 24. Hhl - Hg6 25. e4 - f4 26 e5 - Rh6! 27. Hxh6 - Hxh6 28 e6 - Hg6 29. Hhl - Hxg3+ 30 Kfl - Bxe6 31. Bxe6 — Dxe6 32. Hh5 — Dg4 og hvítur gafst UPP- Margeir Pétursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.