Morgunblaðið - 06.03.1996, Side 37

Morgunblaðið - 06.03.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 37 I I I I I J 3 I ;t I 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 ________BREF TIL BLAÐSINS____ Þér gátuð þá ekki vakað með mér eina stund? Frá Bárði G. Halldórssyni: ísland, minn draumur, mín þjáning, mín þrá, mitt þróttleysi og viðnám í senn. segir Steinn Steinarr í frægu kvæði sínu „Landsýn". Þessi þján- ing Steins og þrá - þessar and- stæður takast einatt á í íslending- um og kannski er marglyndið eitt helzta einkenni okkar. Oft og ein- att verða grimmileg átök and- stæðra afla í sálarlífi manna - þróttleysi og viðnám í senn. Þessi þjóð getur sýnt á sér góðu hliðina, næsta viðkvæman klökkva á köld- um dögum eins og þeim sem urðu í október á síðasta ári, þegar þetta fámenna byggðarlag norður við heimskaut stóð saman í sorg sinni sem einn maður. En það er líka stundum stutt í annan eðlisþátt íslenzkan - þórðargleðina, mein- fýsnina - hið innansveitarlega slúðurgaman - sem að vísu á líka einstöku sinnum til sína skemmti- legu hlið, en miklu oftar þó hrá- slagalega, jafnvel hrottalega og grimma. íslenzkir fjölmiðlar eru löngu komnir af barnsaldri - eitt helzta barnamein þeirra var rótarskap- ur, hrottafengin bersögli um ná- ungann og illyrði. Eftir aldamótin síðustu dró heldur úr þessu, en í seinni tíð hefur hörð samkeppni fjölmiðla um kaupendur rekið suma fjölmiðlamenn á glapstigu. Þeir hafa ekki sézt fyrir í kapp- hlaupi um athygli lesenda og áhorfenda. Þetta hefur með átak- anlegum hætti mátt horfa upp á undanfarna daga. Lengur eða skemur hafa fáeinar manneskjur gengið um með gróusögur um biskup landsins. Það er ekkert nýtt. Allir biskupar þessa lands, nema kannski Jón helgi, hafa mátt þola slíkt. Það er í íslending- seðlinu að vilja masa misjafnt um heldri menn. Í mestu bók íslend- inga segir af því hvernig förukerl- ingar fara færandi hendi róginn milli bæja og stigmagna atburða- rásina með slúðrinu unz það nær hámarki sínu í dyngju húsfreyj- unnar á Hlíðarenda. Þar sátu verklitlir menn í dyngju spennu- sjúkra kvenna og efldu seið til mannvíga. Það er illt að þurfa að búa við þá skuggahlið frjálsrar samkeppni að stöð sem berst í bökkum og dagblað sem glatað hefur helmingi lesenda sinna og verður að þrífast á hrópyrðum um erlenda þjóðhöfðingja til að treina sér lífdagana skuli nú tekin við hlutverki förukerlinga fyrri daga. Auðvitað skortir þjóðina hvorki hallgerðar né lygamerði nú frekar en áður - en það er nýtt í sög- unni að hafa slíkt slekti í hávegum og illa er komið fyrir okkur ef við veitum því ekki eitthvert viðn- ám. í fijálsri samkeppni ráða menn hvað þeir borga fyrir að fá að lesa. Ríkisútvarpið er hins vegar sameign þjóðarinnar og það er með öllu óafsakanlegt að það skuli bera á brjóstum sér mann sem er þeirrar skoðunar að hann geti krafizt afsagnar biskups landsins nema hann sanni sak- leysi sitt. (Kannski með eldburði eins og tíðkaðist á galdraöld?) Það verður að ætlast til þess að út- varpsstjóri áminni þennan starfs- mann opinberlega og kenni hon- um undirstöðuatriði réttarfars okkar og siðferðis og létti af hlustendum þeirri nauð að þurfa áð borga fyrir mas hans um bisk- up landsins, sem hefur, að dómi einhverra huldukvenna og þessa sérkennilega siðferðispostula út- varpsins, ekki þau grundvall- armannréttindi að mega veija hendur sínar. Ofsóknin gegn Ólafi Skúlasyni, biskupi íslands, er skýrasta dæmi um galdraofsókn úr seinni tíma sögu íslnads og á sér enga hlið- stæðu. Hún hefur öll helztu ein- kenni galdrafársins - dylgjur, róg, mistúlkanir, oftúlkanir, þrengingu utan um fórnarlambið með stig- vaxandi ásökunum, neitun um að njóta vafa, neitun um að mega veija sig, nafnleysi ásækjenda, þokuna, dulúðina sem gefur undir fótinn með að vitneskjan sé svo almenn að sekt sé tvímælalaus - og síðast en ekki sízt kröfuna um að hinn sakfelldi skuli sanna sak- leysi sitt! Sé það álit einhvers fólks, að biskup íslands eigi einn manna að búa við það réttarfar að mega ekki veija sig og þurfa að sanna sakleysi sitt fyrir hlaupastrákum og langbrókum, þá ber brýna nauðsyn til að menn standi upp allir sem einn og segi: Nú er nóg komið. Ég skora á alla íslendinga - ekki aðeins þá sem kristnir teljast og ber skylda til að vaka eina stund með þeim sem ofsóttur er - heldur alla þá sem unna frelsi, réttlæti og siðuðu samferði að þeir segi nú við rógliðið: hingað og ekki lengra! Skríðið nú aftur ofan í holuna ykkar. Verum svo öll minnug lokaorða Steins: Ó,. þú skringláða heimska og skrautklædda smán, mín skömm og min tár og mitt blóð. BÁRÐUR G. HALLDÓRSSON, Litlubæjarvör 7, Álftanesi. AUGL YSINGAR TILKYNNINGAR Húsverndarsjóður í apríl verður úthlutað lánum úr Húsverndar- sjóði Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til viðgerða og endurgerðar á hús- næði í Reykjavík, sem hefur sérstakt varð- veislugildi af sögulegum eða byggingarsögu- legum ástæðum. Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja verklýsingar á fyrirhuguðum framkvæmdum, kostnaðaráætlun, teikningar og umsögn Árbæjarsafns. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 1996 og skal umsóknum, stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavíkur, komið á skrifstofu garðyrkju- stjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. Síðasti skiladagur er 26. mars 1996. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Fundur um CE-merkingar Samtök iðnaðarins auglýsa tvo félagsfundi um framkvæmd tilskipana og reglugerða, sem tengjast CE-merkingum og afnámi tæknilegra viðskiptahindrana dagana 7. og 8. mars nk. Fyrri daginn hefst fundurinn kl. 14.30 og þá verður farið yfir kröfur vélatilskipunar og raf- magnstilskipana Evrópusambandsins, leiðir til að taka upp CE-merkingar og sagt frá reynslu nokkurra fyrirtækja, sem komin eru af stað við þessa vinnu. Seinni daginn hefst fundurinn kl. 9.00 og þá munu fulltrúar frá ESA (Eftirlitsstofnun Evrópska efnahagssvæðisins) og Löggilding- arstofnunni fjalla um framkvæmd samnings- ins varðandi afnám tæknilegra viðskipta- hindrana. Tími: Fimmtudagur 7. mars 1996, kl. 14.30- 17.15. Föstudagur 8. mars 1996, kl. 9.00-12.15. Staður: Hallveigarstíg 1, fundarsal í kjallara. <3) SAMTÖK IÐNAÐARINS Aðalfundur Ferðaþjónustu bænda hf. verður haldinn á Lýsuhóli, Staðarsveit, 16. mars nk. og hefst kl. 13.30 að ioknum aðalfundi Félags ferðaþjónustubænda, sem hefst 15. mars kl. 13.30. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Stjórnin. w Mígrensamtökin Félagsfundur verður haldinn í Bjarkarási, Stjörnugróf 9, Reykjavík í dag, miðvikudaginn 6. mars, kl. 20.30. Fundarefni: Guðrún Óladóttir, reikimeistari, fjallar um bætt líf með breyttu hugarfari. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Aðalfundur Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Alþýðu- bankinn hf. verður haldinn í Setrinu, Grand Hótel Reykjavíkfimmtudaginn 14. mars 1996 og hefst kl. 17.00. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við ákvæði greinar 4.06 í samþykktum félags- ins. 2. Tillaga stjórnar um breytingar á sam- þykktum félagsins þess efnis, að fram- lengja heimild stjórnar til hækkunar á hlutafé með sölu nýrra hluta. 3. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum í félaginu. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í skrifstofu félagsins á Suðurlandsbraut 30, 5. hæð, Reykjavík, dagana 11.-13. mars nk. milli kl. 10-15 og á fundarstað. Ársreikningurfélagsinsfyrirárið 1995, ásamt tillögum þeim, sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað frá 8. mars nk. Reykjavík, 12. janúar 1996. Stjórn Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf. Fundur um Leonardó da Vinci starfsmenntaáætlun ESB Lýst eftir umsóknum Landsskrifstofa Leonardó boðar til fundar í dag, miðvikudaginn 6. mars, um Leonardó starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins, þar sem annarri umsóknahrinu verður ýtt úr vör. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu í Ársal milli kl. 15 og 17. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. DAGSKRÁ: Ágúst H. Ingþórsson, forstöðumaður Lands- skrifstofu Leonardó á íslandi: Leonardó áætlunin á íslandi og árangurfyrstu umsóknahrinu. Kjersti Grindal, starfsmaður framkvæmda- stjórnar ESB: Markmið og ávinningur af Leonardó áætlun- inni og forgangsatriði ársins 1996. Héléne Barry, starfsmaður Technical Assist- ance Office Leonardó áætlunarinnar í Brussel: Hvað ræður vali verkefna í Leonardó áætlun- inni? Sigurður Guðmundsson, verkefnastjóri Landsskrifstofu Leonardó á íslandi. Hvaða aðstoð er veitt við undirbúning verk- efna og umsókna? Almennar umræður um verkefni í Leonardó áætluninni. Fundurinn fer fram á ensku og íslensku. Skráning fer fram hjá Landsskrifstofu Leonardó í síma 525 4900. TIL SÖLU Jörðtil sölu Jörðin Neðra Holt, Torfalækjarhreppi, er til sölu. Á jörðinni er m.a. 183 fermetra steypt íbúðarhús í ágætu ásigkomulagi, hesthús, hlaða og vélaverkstæði í rekstri sem getur selst með. Kvóti er ekki á jörðinni. Tilboð óskast send á Húnabraut 19, 540 Blönduósi, til Stefáns Ólafssonar hdl., sími 452 4030, fax 452 4075, sem jafnframt gefur nánari upplýsingar, fyrir föstudaginn 22. mars 1996. Áskilinn er réttur til að taka hvaða til- boði sem er eða hafna öllum. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.