Morgunblaðið - 15.03.1996, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Iþróttamaður Sandgerðis
Sandgerði - Val á íþróttamanni
Sandgerðis 1995 fór fram 5. mars
sl. Kaffisamsæti var haldið í boði
bæjarstjórnar í samkomuhúsinu
þar sem börn úr tónlistarskóian-
um léku fyrir gesti og foreldrafé-
lag grunnskólans sá um veitingar.
Bæjarstjórinn, Sigurður Valur
Asbjarnarson, flutti ávarp þar
sem fram kom að þessi dagur
væri sérstaklega valinn vegna
þess að þetta væri afmælisdagur
Magnúsar Þórðarsonar heitins,
en hann var ákafur áhugamaður
um íþróttir og heiðursfélagi
Reynis. Einnig bauð hann Jóhann-
es Eðvaldsson velkominn til bæj-
arins og sagði að það yrði mikill
styrkur fyrir knattspyrnudeildina
að fá hann til starfa.
Að þessu sinni voru aðeins
tveir íþróttamenn tilnefndir, El-
ísa Dögg Helgadóttir frá knatt-
spyrnudeild Reynis og Hlynur
Jóhannesson frá Golfklúbbi
Sandgerðis. Óskar Gunnarsson,
forseti bæjarstjórnar, fór lofsam-
legum orðum um íþróttamennina
en þótti miður að ekki skyldu
fleiri tilnefndir úr öðrum íþrótta-
greinum. Hann afhenti síðan
Hlyni Jóhannessyni bikarinn, en
hann er íþróttamaður Sandgerðis
1995.
Morgunblaðið/Hrefna Björg Óskarsdóttir
ELISA Dögg Helgadóttir og Hlynur Jóhannesson voru tilnefnd
íþróttamenn ársins í Sandgerði 1995.
Nýir eigendur að Fossnesti hf.
Ein öflug umferð-
armiðstöð starf-
rækt á Selfossi
Selfossi. Morgunblaðið.
KÁ Á Selfossi og Sérleyfisbílar
Selfoss hf. hafa keypt hlut í Foss-
nesti hf. við Austurveg á Selfossi.
Eftir þessi kaup eru eigendur Foss-
nestis hf., auk KÁ og SBS, Austur-
leið, Norðurleið, Olíufélagið og
Klakahöllin. Aðaleigandi Fossnest-
is fyrir kaupin var Erlendur Hálf-
dánarson og fjölskylda hans. í
framhaldi af þessum kaupum hefur
SBS ákveðið að flytja afgreiðslu
sína frá Árnesti yfir í Fossnesti frá
14. apríl. Eftir það verður starf-
rækt ein öflug umferðarmiðstöð
áætiunarbifreiða á Selfossi. Stjórn
Fossnestis hf. hefur ákveðið að
leigja KÁ rekstur Fossnestis og tók
KA við rekstrinum í gær, 12. mars.
Sigurður Steinsson hefur verið ráð-
inn rekstrarstjóri KÁ í Fossnesti
en Sigurður starfaði áður hjá
Suðurgarði hf. á Selfossi. Kaup
KÁ á hlut í Fossnesti og leiga á
rekstrinum er í samræmi við yfir-
lýsingar af hálfu fyrirtækisins um
breyttar áherslur í þá veru að auka
umsvif sín á sviði ferðaþjónustunn-
ar.
í Fossnesti hefur undanfarin ár
verið starfræktur veitinga- og
skemmtistaðurinn Inghóll á efri
hæð hússins. Á neðri hæð er al-
mennur veitingastaður með grilli
og ferðamannaverslun. Auk þess
er bensínstöð á svæði Fossnestis
og Austurleið og Norðurleið hafa
haft viðkomu í Fossnesti á áætlun-
arleiðum sínum. SBS var með sína
afgreiðslu í Árnesti, á neðri hæð
Hótel Selfoss. Sú afgreiðsla verður
nú hluti af umferðarmiðstöðinni í
Fossnesti sem fyrirtækið hefur
ákveðið að koma upp en það verður
til mikils hagræðis fyrir alla þá sém
ferðast með áætlunarbifreiðum eða
eiga við þá viðskipti. Frá hinni nýju
umferðarmiðstöð verða áætlunar-
ferðir til allra átta.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
HÓPURINN sem þreytti Guðlaugssundið að þessu sinni.
*
Arlegt Guðlaugssund
í Vestmannaevj um
Guðlaugur Friðþórsson afhenti sigurvegurunum í boðsundinu,
2. stigi Stýrimannaskólans, bikarinn.
Vestmannaeyjum - Stýri-
mannaskólanemar í Eyjum
þreyttu árlegt Guðlaugssund sitt
12. mars si. en þann dag ár hvert
synda þeir Guðlaugssund til að
minnast . sundafreks Guðlaugs
Friðþórssonar er hann synti til
lands eftir að Hellisey VE sökk
um 3 mílur austur af Eyjum árið
1984.
Friðrik Ásmundsson, skóla-
stjóri Stýrimannaskólans, sagði
að þegar ákveðið hefði verið að
minnast afreks Guðlaugs með
árlegu sundi hefði Guðlaugur
óskað eftir því að synt yrði í
þeim tilgangi að minna á örygg-
ismál sjómanna. Friðrik sagði að
nemendur 1. og 2. stigs Stýri-
mannaskólans hafi synt að þessu
sinni ásamt gömlum nemendum
úr skólanum og fjórum strákum
úr 10. bekk sem væru í námi til
30 tonna réttinda. Hann sagði
að yfirleitt hefðu stýrimanna-
skólanemar einir þreytt sundið
en sökum mikilla veikinda í skól-
anum hefðu fleiri verið fengnir
til liðs nú. Sundið hófst klukkan
átta um morguninn og var synt
sleitulaust í sex klukkustundir
en það er sá tími sem Guðlaugur
var á sundi.
Að loknu Guðlaugssundinu
var boðsundskeppni milli 1. og
2. stigs Stýrimannaskólans eins
og alltaf að loknu sundinu þar
sem keppt er um bikar sem
Guðlaugur Friðþórsson gaf.
Synt er boðsund þar sem klifra
þarf upp í gúmmíbát á miðri
leið. Að þessu sinni sigraði 2.
stig skólans boðsundið og hlaut
því bikarinn.
Friðrik sagði að þegar Guð-
laugssundið hófst hafi hjónin
Þorsteinn og Anna frá Biátindi
gefið forláta bók sem þau létu
útbúa sérstaklega og í hana
væri allt sem tengdist Guðlaugs-
sundinu hveiju sinni skráð.
Yfír tíu prósent íbú-
anna á dansnámskeiði
Vaðbrekku, Jökuldal - Dansnám-
skeið fyrir alla fjölskylduna var
háldið á dögunum í Brúarási und-
ir yfirskriftinni Komið og dansið.
Leiðbeinendur voru Iðunn Kröyer
og Eymundur Hannesson, en þau
ieiðbcina fólki á öllum aidri að
læra létta danssveiflu á tveim
dögum. Að þeirra sögn er þessi
danssveifla upprunnin í Noregi
og upphaflega ætluð sem dans
gegn vímu fyrir ungt fólk.
Síðan hefur komið í ljós að þetta
er mjög vinsæll dans hjá „ungu“
fólki á öllum aldri, enda dansaður
eftir léttu taktföstu rokki í anda
Geirmundar Valtýssonar. Iðunn
og Eymunur kynntust þessari
sveifíu fyrir þremur árum og hafa
verið að læra hana síðan, en byij-
uðu að leiðbeina á síðasta hausti
og hafa haldið fjögur námskeið í
vetur. Að þeirra sögn er þetta
langfjölmennasta námskeiðið til
þessa, en það mættu þrjátíu og
fimm manns í Brúarás, sem eru
yfir tíu prósent íbúa sem búa á
svæðinu sem námskeiðið var aug-
lýst á, en það nær yfir Jökuldals-,
Hlíðar- og Tunguhreppa, með
rúmlegaa þrjú hundruð íbúa.
Fólkið sem kom á námskciðið
hafði mjög gaman af að læra
sveifluna og góð stemmning
myndaðist í hópnum, en fólkið er
misjafnlega langt komið í dans-
menntinni. Það virtist ekki koma
að sök og allir skemmtu sér kon-
unglega. Enda alltaf betri
stemmning þegar námskeiðin eru
svo fjölmenn, sögðu Iðunn og
Eymundur að endiugu.