Morgunblaðið - 15.03.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 19
ERLENT
Bretar syrgja fórnarlömb fjöldamorðingjans í Dunblane o g flagga í hálfa stöng
Aðkomunni
lýst sem
„algeru víti“
Dunblane, Skotlandi. Reuter.
RON TAYLOR, skólastjóri grunn-
skólans í Dunblane í Skotlandi,
lýsti í gær aðkomunni í leikfimisal
skólans á miðvikudag eftir að
Thomas Hamilton hafði gengið þar
berserksgang og myrt 16 börn og
kennslukonu þeirra sem „algeru
víti“.
„Ég hef orðið fyrir miklu áfalli
og ég á enn bágt með að trúa að
þetta hafi gerst,“ sagði Taylor.
„Ég mun aldrei nokkurn tíma
gleyma þeirri sjón, sem blasti við
mér í leikfimisalnum."
Sorgin réð ríkjum á Bretlandi i
gær og víða var flaggað í hálfa
stöng. I Dunblane voru verslanir
lokaðar og meira að segja var
dregið fyrir glugga og luktar dyr
á pósthúsi bæjarins. Fjöldi fólks
lagði blómvendi fyrir utan inn-
ganginn að skólanum. „Megi Guð
gæta ykkar betur en gert var á
jarðríki,“ sagði á borða á einum
blómvendi.
Rannsókn málsins var haldið
áfram í gær.
„Það er enn verið að gera ræki-
legar eftirgrennslanir í skólanum,“
sagði Louis Munn lögreglustjóri á
blaðamannafundi í gær. Sérfræð-
ingar í skotvopnum og réttarlækn-
ar voru að störfum á skólalóðinni.
Þrjú börn í lífshættu
Hamilton myrti 15 börn og
kennslukonu þeirra er hann réðst
inn í leikfimisalinn klukkan hálf
tíu í gærmorgun og framdi því
næst sjálfsmorð. Eitt barn dó síðar
á sjúkrahúsi. Tólf börn særðust.
29 börn voru í bekknum og var
aðeins eitt barn heilt á húfi eftir
árásina. Fimm börn og tveir full-
orðnir voru enn á sjúkrahúsi í Stirl-
ing, nágrannabæ Dunblane, og
þijú börn voru í lífshættu á sjúkra-
húsi í Glasgow að því er talsmaður
sjúkrahússins í Stirling sagði í
samtali við sjónvarpsstöðina Sky
síðdegis í gær.
Einn drengur var skotinn þrisv-
ar og fór í neyðaraðgerð á mið-
vikudag. Hann var í öndunarvél í
gær. Annar fimm ára drengur
hlaut nokkur sár og. átti að fara
í aðgerð í gær.
Blaðamenn og ljósmyndarar
fengu að fara um skólalóðina í
gær. Einu vísbendingarnar um
blóðbaðið í fyrradag voru kúlnagöt
í veggjum.
Grunnskólinn verður lokaður
fram í næstu viku, en þegar eru
farnar að heyrast kröfur um að
hann verði rifinn.
Börnum, sem urðu vitni að árás-
inni, verður veitt áfallahjálp, en
þeirra vitnisburður er einnig mikil-
vægur fyrir lögreglu til að hægt
sé að draga upp heildarmynd af
því, sem gerðist. Munn lögreglu-
stjóri sagði að hér væri um að
ræða börn, sem orðið hefði fyrir
miklu áfalli og því þyrfti að fara
mjög varlega.
Hryllingur og
reiði í Evrópu
Morðin vöktu hrylling, reiði og
vantrú um alla Evrópu. A forsíðum
dagblaða blöstu við fyrirsagnir á
borð við „Slátrun“,_„Fjöldamorð“
og „Ódæðisverk". í fjölda blaða
voru birtar myndir af syrgjandi
foreldrum.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sendi samúðarkveðjur og á
írska þinginu var mínútu þögn í
minningu fórnarlamba Hamiltons.
George Vaivana, forseti
breskra kennarasamtaka, sagði
Reuter
LÍTILL drengur leggur blómvönd fyrir utan grunnskólann í Dunblane þar sem sextán börn og
kennslukona voru myrt á miðvikudag. Mikil sorg ríkir á Bretlandi eftir þetta ódæðisverk.
blaðamönnum að morðin í Dun-
blane ættu að leiða til þess að
öryggi verði aukið í skólum, en
viðurkenndi að ekkert gæti stöðv-
að þann, sem væri staðráðinn í
að fara sínu fram.
„Maðurinn, sem myrti þessi
börn, hefði ekki þurft að komast
inn í skólann til að fremja þennan
verknað,“ sagði Varvana. „Hann
hefði getað hafið skothríð í gegn-
um girðinguna við leikvöll skól-
ans.“
Reglur um byssueign
undir smásjánni
Reglur um byssueign eru
strangar á Bretlandi, en þær eru
nú undir smásjánni. Hamilton
hafði byssuleyfi þrátt fyrir vafa-
sama hegðun og að honum hefði
verið neitað um inngöngu í samtök
skotvopnaeigenda.
Hamilton var vopnaður ijórum
■hálfsjálfvirkum skammbyssum,
tveimur af gerðinni Beretta og
tveimur af gerðinni Browning,
þegar hann réðst inn í skólann og
var á huldu hvort hann hefði haft
leyfi fyrir þeim öllum.
Breska lögreglan athugar alla,
sem sækja um byssuleyfi, og kann-
ar hvort þeir séu á sakaskrá eða
eigi við geðræn vandamál að
stríða.
Lögin voru hert eftir að Michael
Ryan myrti sextán manns með
skotvopnum í bænum Hungerford
í suðurhluta Englands árið 1987
og bannað var að eiga ákveðnar
gerðir öflugra skotvopna.
Sérfræðingar telja hins vegar
að þijár milljónir ólöglegra skot-
vopna séu í umferð á Bretlandi
og til dæmis sé hægt að kaupa
rússneskan Kalashnikov-riffil fyrir
aðeins 25 pund (um 25 þúsund
krónur) á svörtum markaði.
Lögregla kvaðst ekki vita hvers
vegna Hamilton hefði myrt börnin,
en íbúar Dunblane sögðu að hann
hefði verið úthrópaður fyrir að
vera afbrigðilegur.
Faðir drengs í Dunblane sagði
í viðtali við breska ríkissjónvarpið
(BBC) að hann hefði lagt fram
kvörtun vegna framferðis Hamilt-
ons. „Hann snerti, bókstaflega
snerti hann,“ sagði faðirinn. „Ég
vogaði mér ekki að spyija hvernig
eða hvar hann hefði snert [son
minn], en hann var í uppnámi.“
Ég er faðir
þessa skrímslis
Thomas Watt, faðir Hamiltons,
fór frá móður og syni þegar hann
var aðeins eins og hálfs árs. Faðir-
inn er nú 65 ára gamall og eyði-
lagður maður: „Ég get ekki lifað
með þessu, ég held þetta ekki út.
Ég er faðir þessa skrímslis."
r
NOATUN
Fyrir ferminguna og kalda borðið!
EMa HÓHÓW
BavonnessKinKa
UNN,N0RNVJUSVÍNAKJOTI
Rækjur
frá Oögun hf.
758r 599r
Ungnauta tihe
1.198 r
Verslanir Néatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld
NOATUN
^l
Ferskur
sjöeldislax 1. FL.
pr.kg.
399.
Ungnaut®
innanlæn
(BOAST BEE >
1.198:
NÓATÚN 17 - S. 561 7000, ROFABÆ 39 - S. 567 1200, LAUGAVEG 116 - S. 552 3456, HAMRABORG 14, KÓP. - S. 554 3888, FURUGRUND 3, KÓP. - S. 554 2062,
ÞVERHOLT 6, MOS. - S. 566 6656, JL-HÚSINU VESTUR í BÆ - S. 552 8511, KLEIFARSEL 18 - S. 567 0900, AUSTURVER, HÁALEITISBR 68 - S. 553 6700