Morgunblaðið - 15.03.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996 41
.1
1
I
!
1
I
J
i
I
i
I
4
$
4
<
(
(
(
i
(
I
I
i
(
(
(
BRÉF TIL BLAÐSINS
Breyting í 4.
deild karla 1996
Frá Ómari Braga Stefánssyni:
KNATTSPYRNA er fjölmennasta
íþróttagreinin sem stunduð er á
Islandi og er það vel. Margar
íþróttagreinar og félög hafa geng-
ið í gegnum erfiða tíma, á það
jafnt við um sérsambönd sem ein-
stakar deildir innan íþróttafélag-
anna, þrátt fyrir ótrúlega fórnfýsi
og sjálfboðavinnu margra einstak-
linga.
Nú fyrir skömmu barst okkur
bréf frá skrifstofu KSÍ (Knatt-
spyrnusambands íslands) þar sem
breytingar eru boðaðar í 4. deild
í knattspyrnu á komandi sumri.
Ekki hafa fjölmiðlar fjallað um
þetta að því ég best veit, enda
ekki mikið fjallað um 4. deildina
yfirhöfuð. Það er hlutskipti minna
manna í Tindastóli að spila í 4.
deild á komandi keppnistímabili
svo málið varðar mig, jafnt og öll
lið í 4. deild.
Nú bregður svo við að 6 lið af
Vestfjörðum senda lið til keppni
í 4. deild og þarf því að fjölga
riðlunum úr 4 í 5. Vissulega er
það mjög jákvætt fyrir knatt-
spyrnuna að liðum fjölgi og styrk-
ur knattspyrnuhreyfingarinnar
aukist, en framhaldið finnst mér
ekki rétt og ég vona að önnur lið’
í 4. deild séu á sama máli. Það
er erfiðara að komast upp úr 4.
deild en nokkurri annarri deild á
landinu. Fyrst þarf venjulega
deildarkeppni þar sem spilað er
heima og að heiman og síðan
komast tvö efstu liðin í 8 liða
úrslitakeppni þar sem útsláttar-
fyrirkomulag er. Lið getur verið
að spila vel allt sumarið, unnið
riðilinn, en síðan tapað einum leik
í úrslitakeppninni t.d. vegna
meiðsla leikmanna eða af annarri
ástæðu, og þar með er draumur-
inn búinn.
Þær breytingar sem stjórn KSÍ
nú boðar eru að ekki dugar fyrir
alla að vinna sinn riðil til að kom-
ast í úrslitakeppnina, ótrúlegt en
satt. Heldur verða ákveðin lið að
spila um úrslitasæti í keppninni.
Riðlarnir 5 eru:
A-riðill liða á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu
B-riðill liða á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu v
C-riðill liða á Norðurlandi
E-riðill liða á Austurlandi
V-riðill liða á Vesturlandi
Nú byijar ballið:
Tvö efstu liðin í öllum þessum
5 riðlum komast áfram í „úrslita-
keppnina“. Með þeim undantekn-
ingum þó að það. lið sem lendir í
2. sæti í C-riðli þarf að keppa við
það lið sem lendir í 1. sæti í V-riðli.
Einnig þurfa að leika saman lið
sem lendir í 2. sæti í B-riðli og
það sem verður í 2. sæti í V-riðli.
Þetta verður einskonar forkeppni
fyrir úrslitakeppnina.
Þetta er ekki gott mál að mínu
mati, og ég sé ekki hvernig stjórn
KSÍ ákveður hvaða lið keppi við
hvern. Tvö efstu liðin í Vestfjarða-
riðli þurfa bæði að spila um úrslita-
sæti og eitt úr Norðurlandsriðli
og eitt úr Stór-Reykjavíkurriðlin:
um. Ef þetta er leiðin sem KSÍ
sér að aukakeppni þurfi að halda,
þá ættu öll lið sem lenda í 2. sæti
að keppa um sæti í úrslitakeppn-
inni.
Þessi uppstilling þeirra kemur
ekki til mála og gaman væri að
vita hvernig þeir ákveða hverjir
spila við hverja og hvort þeir séu
að ákveða að liðin frá Reykja-
víkursvæðinu og að austan séu
betri en lið frá Norður- og Vestur-
landi. Kannski eiga Austfirðingar
hauk í horni í mótanefnd, ég segi
nú bara svona. Orðrétt segir í til-
kynningu frá KSÍ: „Eðlilegt þykir
að liðin frá Vestfjörðum taki
þátt í henni að þessu sinni, en
val leikja að öðru leyti miðast
við að halda ferðakostnaði félaga
í lágmarki.“
Vissulega er ferðakostnaður
liða í 4. deild ekki ýkja mikill þar
sem spilað er í svæðisbundnum
riðlum en úrslitakeppnin kostar
sitt.
Ef stjórn KSÍ er að hugsa um
ferðakostnað hjá liðunum þá er
örugglega ódýrast að láta liðin 4
sem verða í 1. og 2. sæti i Stór-
Reykjavíkurriðlunum tveimur
spila saman.
Það væri gaman að fá vitneskju
um af hveiju ekkert lið frá Austur-
landi þarf að fara í þessa „for-
keppni".
Eg vona að Vestfirðingar og öll
lið í 4. deild segi stopp, hingað og
ekki lengra, við þessari ákvörðun
KSÍ. Þarna er verið að gera virki-
lega upp á milli liða og þau sitja
ekki við sama borð. Jafnréttis
verður að gæta í þessu eins og öllu
öðru.
ÓMAR BRAGI STEFÁNSSON,
form. knattspyrnudeildar Tindastóls.
Hrópúr
umferð-
inni
Frá Jórunni Sörensen:
„ÞEGAR fréttir koma af því að
bílar keyri á kyrrstæða lögreglu-
bíla með blá blikkandi ljós aðeins
vegna þess að viðkomandi öku-
maður hafi ekki tekið eftir honum,
verður manni ljóst að hjólreiða-
maður væri líklega betur settur á
jarðsprengjusvæði."
Ofangreind tilvitnun er úr
merku riti sem nú er gefið út í
Reykjavík. Rit þetta heitir Hjól-
hesturinn og er fréttabréf ís-
lenska fjallahjólaklúbbsins. Á
mínu heimili er engin lesning sem
kemur inn um bréfalúguna lesin
eins vandlega. Þeir sem skrifa í
Hjólhestinn nýta síður ritsins til
hins ýtrasta. Greinar eru fjöl-
breyttar en eiga það sameiginlegt
að þær eru skrifaðar af mikilli
ritgleði. í Hjólhestinum er fjallað
tæpitungulaust um þau gífurlegu
vandamál sem bílaumferð og
taumlaus þjónkun stjórnvalda við
hana hefur fyrir alla landsmenn
- ekki bara þá sem ferðast gang-
andi, hjólandi eða með strætó.
En það er með þetta rit eins og
mörg önnur góð rit sem láta ekki
mikið yfir sér - það sjá það færri
en gagn og gaman hefðu af. Þeir
sem vilja stuðla að jákvæðri um-
gengni við land og þjóð ættu að
verða sér úti um áskrift að þessu
riti. Þær fáu krónur eru vel þess
virði.
JÓRUNN SÖRENSEN,
hjólreiðakona.
kr. 3.990
Víraljósasett 3x20 W.
Straumur hf.
(safiröi - s. 456 3321.
Radíóvinnustofan
Akureyri-s. 462 2817.
Siemens-Búöin
Akureyri - s. 462 7788.
Sveinn Guömundsson
Egilsstööum - s. 471 1438.
Verslunin Lóniö
Höfn-s. 478 2125.
Árvirkinn hf.
Seifossi - s. 482 3460.
50w halogen borðlampi
m/tvískipum rofa og
stillanlegri hæð.
HAPPDRÆTTI
Allir sýningargestir geta tekið þátt í
happdrætti og verður dreginn út veg-
legur vinninur í öllum Borgarljós-keðju
verslununum 15. apríl.
Borgarljós hf.
Reykjavík - s. 581 2660.
Magasin - Húsgagnahöllinni
Reykjavík-s. 587 1410.
Rafbúöin Álfaskeiöi
Hafnarfiröi - s. 555 3020.
Rafbúö R.Ó.
Keflavík - s. 421 3337.
Rafþjónusta Sigurdórs
Akranesi-s. 431 2156.
O BORGARLJOS
® K • E • B • J • A • N
Akranes • Akureyri • Egilstaöir • Hafnarfirði
Höfn • íslafiröi • Keflavík • Reykjavík • Selfossi.
SÖLUSÝNING
R
A
M
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut,
Kopavogi, simi
567-1800
Löggild bílasala
Opið laugard. kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-18
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
Toyota Corolla Hatsback XLi '94, grá-
sans., 5 g., ek. 47 þ. km. Vi 990 þús.
Grand Cherokee Limited V-8 ’94, ek. 15
þ. km., grænsans., einn með öllu, gullfall-
egur bíll. V. 3.950 þús.
Cherokee Laredo 4.0L '92, ek. 46 þ.
km., grænn, rafm. í ruðum, samlæsingar,
flöskugrænn o.fl. V. 2,190 þús.
Pontiac Trans Sport SE '92, rauður,
sjálfsk., ek. 73 þ. km. Fallegur bíll. V. 1.980
þús.
Fiat Panda 4x4 '91, rauður, 5 g., ek. að-
eins 56 þ. km., 2 dekkjagangar, gott
ástand. Sparneytinn bíll. V. 470 þús.
Honda Áccord EX '91, rauður, sjálfsk.,
ek. 102 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu, álfelg-
ur o.fl. V. 1.090 þús.
MMC Pajero langur V-6 '92, grænn,
sjálfsk., ABS, saml., stuðarar o.fl. V. 2,7
millj.
V.W. Jetta GL '91,5 g., 1800 vél, ek. 120
þ. km., spoiler o.fl. V. 690 þús.
V.W. Golf 1.4 cl station '94, blár, 5 g.,
ek. 32 þ. km., rafm. í rúðum, dráttarkúla
o.fl. V. 1.150 þús.
Toyota Hi Lux Extra Cap '91, ek. 80 þ.
km., plasthús, flækjur, 38" dekk, álfelgur,
5:71 drifhlutföll. No-Spin að aftan, geisl-
asp. o.fl. V. 1.580 þús.
MMC Lancer GLX '90, blár, sjálfsk., ek.
aðeins 68 þ. km., spoiler, rafm. í rúðum
o.fl. Sk. ód. V. 740 þús.
Toyota Corolla GL Special Series '90, 5
dyra, blár, 5 g., ek. 84 þ. km., rafm. í rúð-
um, spoiler o.fl. V. 640 þús.
Toyota Landcruiser GX diesel Turbo '93,
5 dyra, sjálfsk., ek. 77 þ. km., 33" dekk,
brettakantar, álfelgur o.fl. V. 3,9 millj.
Sk. ód.
Honda Accord Si '95, grænsans., sjálfsk.,
ek. 29 þ. km., sóllúga, ABS, spoiler, þjófa-
vörn, rafm. í öllu. V. 2.060 þús.
Toyota Hi-Lux Extra Cab '87, ek. 114 þ.
km., 31“ dekk. Fallegur bíll. V. 680 þús.
Subaru Legacy 1.8 Station 4x4 '90,
sjálfsk., ek. 98 þ. km., rafm. í rúðum,
grjótagrind o.fl. V. 1.080 þús. Sk. ód.
Mercedes Benz 190 '88, blár, 4 g., ek.
134 þ. km. V. 1.080 þús.
Nissan Terrano V-6 '95, 4ra dyra, sjálfsk.,
ek. aðeins 12 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu.
Sem nýr. V. 3,3 millj.
Renault Cllo TR 1.4 5 dyra '94, 5 g., ek.
aðeins 11 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 990 þús.
Bílar á tilboðsverði:
Saab 900i 5 dyra '87, hvítur, ek.
140 þ. km., toppeintak. V. 560 þús.
Tilboðsv. 440 þús.
Mazda 323 GLX 3ja dyra '86, hvít-
ur, 5 g., ek. 100 þ. km. á vél, spoil-
er o.fl.
V. 330 þús. Tilboðsv. 230 þús.
Honda Accord EX '87, sjálfsk.,
sóllúga og rafm. i öllu, hvítur, ek.
123 þ. km. V. 630 þús. Tilboðsv.
530 þús.
Dodge Aries '87, 2ja dyra, sjálfsk.,
ek. 95 þ. km., brúnsans. V. 390
þús. Tilboðsv. 270 þús.
M. Benz 250 '82, blár. V. 390 þús.
Tilboðsv. 250 þús.
MMC Pajero stuttur '83, 32" dekk,
upph. Fallegur og góður bíll. V. 440
þús. Tilboðsv. 360 þús.
Mazda 121 1,3 16 ventla '92, ek.
50 þ. km., 4ra dyra. V. 750 þús.
Tilboðsv. 650 þús.
Nissan Micra '88, 5 g., ek. 122 þ.
km. (langkeyrsla). V. 280 þús. Til-
boðsv. 190 þús.
Lada Samara 1500 '90, 5 g., ek. 80
þ. km. V. 220 þús. Tilboðsv. 150 þús.