Morgunblaðið - 15.03.1996, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
c
HASKOLABIO
- SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
ÓPUS HERRA HOLLANDS
RICHARD DREYFUSS
FRUMSYNING: DAUÐAMAÐUR NALGAST
Þaö snýst.ekki um
leiöina sem þú velur.
'*«Þaö snýst um leiöina
sem þú visar.
OSKARSTI]
M R
Holland's
vus
gENINGAR
^Pikkonan
m SARANDON
ésti leikarinn
SEAN PENN
Besti leikstjórinn
PTIM ROBBINS
Besta lagið
BRUCE springsteen
Einstaka sinnum koma myndir sem almenningur
hreinlega gerir að sinni eign. Ópus herra Hollands er
einstök mynd sem hefur sannarlega slegið í gegn
vestanhafs og Richard Dreyfuss er tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir magnaðan leik sinn.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Fylgstu með HAPP í HENDI
leiknum á Rás 2 alla virka
daga milli kl. 11 og 12 í þætti
Lísu Páls. Nældu þér í miða á
góða mynd í Háskólabíói,
myndband, út að borða eða
Lundúnaferð frá
Samvinnuferðum Landsýn.
55 A i i
jpzm
tóOHáÍlíiS*
im
JjvJGi
Hann er ilimenni sem á að deyða. Hún er óbugandi
baráttukona sem reynir að bjarga honum, en þarf að
spyrja sig hvort forsvaranlegt sé að bjarga slíkunn
manni. Stórkostleg mynd sem enginn má missa af.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. B.i. 16.
LOKASTUNDIH
Hrikalega spennandi mynd í kjölfar Næturvarðarins!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára
Robert
DENIHO
*** 1'2 SA
★★★ ó.J Byj
Sharon
STONE
/ ÓSIU«SVHOUUN». \
Lf nntnam \
/ BESTA LEIKKONAN \
I SIGURVEGARI
v V GOLDEN GLOBÍ '• J
***■ \SHAR0N STONtj^
. , „velLeikin,sterkog\
.*,'V.....„ Mte(tK“ N
★★★ Ó.H.T. Rás2.
Sýnd kl. 5 og 9. B.i. 16 ára.
ANTHONY TH
Úr smiðju Óskarsverðlaunahafans
Oliver Stone kemur saga um mann
semvissiallt umvöld,
en ekki um afleiðingarnar!
Kvikmynd Oliver Stone
4 tilnefningar til óskarsverðlauna
Besti leikari í aðalhlutverki.
Besta leikkona í aukahlutverki.
Besta frumsamda handritið.
Besta tónlistin.
Joan Allen Powers Boothe
Bob Hoskins Mary Steenburgen
Ecf Harris
James Wo
Nýtt í kvikmyndahúsunum
SUSAN Sarandon og Sean Penn í hlutverkum sínum.
Háskólabíó frumsýnir
Dauðamaður nálgast
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýningar
á kvikmyndinni Dauðamaður nálg-
ast eða „Dead Man Walking“._Mynd-
in er tilnefnd til fjögurra Óskars-
verðlauna, Tim Robbins er tilnefndur
sem besti leikstjórinn, eiginkona
hans Susan Sarandon sem besta
leikkonan, Sean Penn sem besti leik-
arinn og rokkarinn Bruce Springste-
en fyrir besta lagið en hann samdi
titillag myndarinnar.. Myndin hefur
þegar hlotið fjölmörg verðlaun, á
kvikmyndahátíðinni í Berlín á dög-
unum var Sean Penn valinn besti
leikarinn og Susan Sarandon var
valin leikkona ársins af félagi kvik-
myndaleikara í Bandaríkjunum.
Myndin er byggð á sögu nunn-
unnar Helen Prejean og fer Susan
Sarandon með hlutverk hennar.
Systir Helen var eindreginn and-
stæðingur dauðarefsinga og tók að
sér mál manns, sem allir fyrirlitu,
hins miskunnarlausa morðingja
Matthew Poncelet, sem bíður
dauðadóms í fangelsi. Poncelet
framdi viðurstyggileg morð en er
fullkomlega ófær um að horfast í
augu við afleiðingar verka sinna
og reynir að koma ábyrgðinni á
aðra. Systir Helen reynir allt sem
hún getur til að bjarga lífi hans og
ekki síður að bjarga sálu hans og
fá hann til að takast á við gjörðir
sínar. Nafn myndarinnar er dregið
af kalli sem fangaverðir hrópa þeg-
ar dauðadæmdur fangi gengur frá
klefa sínum að aftökustað, þeir
kalla þá „Dead Man Walking“ eða
Dauðamaður nálgast. Dauðamaður
er gamalt íslenskt orð yfir mann
sem á skilið, eða á að deyja.
Dauðamaður nálgast er gríðarlega
áhrifarík kvikmynd þar sem leitast
er við að vekja fólk til umhugsunar
um dauðarefsingar án þess að taka
eindregna afstöðu með eða á móti
dauðarefsingum, það er látið áhorf-
endum eftir. Myndin er þó fyrst og
fremst um mannleg samskipti og
þær miklu tilfinningar sem brjótast
um í öllum þeim sem þurfa að tak-
ast á við ákvarðanir er varða líf og
dauða, segir í fréttatilkynningu.