Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ OLINA S. BENEDIKTSDOTTIR SR. ÞORSTEINNB. GÍSLASON “j“ Ólína S. Bene- * diktsdóttir fæddist á Hrafna- björgum í Svínadal í Austur-Húna- vatnssýslu 2. nóv- ember 1899. Hún lést á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund 26. febr- úar síðastliðinn. Þorsteinn Björn Gíslason fæddist í Forsæludal í Vatnsdal 26. júní 1897. Hann lést í Reykjavík 8. júní 1980. Foreldrar Ólínu voru Guð- rún Ólafsdóttir frá Guðrúnar- stöðum í Vatnsdal, alsystir Guðmundar Ólafssonar al- þingismanns í Asi í Vatnsdal, og Benedikt Helgason frá Svínavatni í Svínavatnshreppi í Vatnsdal, A-Hún., hálfbróðir sr. Guðmundar Helgasonar frá Bergstöðum í Svartárdal. Ólína ólst upp í Ási í Vatnsdal hjá móðurbróður sínum, Guð- mundi Ólafssyni, og konu hans, Sigurlaugu ólafsdóttur. Ólína og sr. Þorsteinn giftust 13. júlí 1922. Þorsteinn vígðist til prests í Þingeyraklausturs- prestakalli 14. maí 1922 og þjónaði þar til ársins 1967 eða í 45 ár, og var prófastur frá 1951. Hann sat í Steinnesi í Þingi. Ólína var um árabil org- Okkur systumar langar til að minnast ömmu okkar. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til ömmu á Bugðulækinn. Hún var ávallt í góðu skapi og tók okkur opnum örmum. Amma var afar gestrisin og það voru alltaf til kökur með kaffinu. Hún var vön að stijúka okkur um vangann og hafði nægan tíma til að setjast nið- ur og spjalla. Yfirleitt sat hún í anisti við tvær kirkjur, Þing- eyrakirkju og Undirfellskirkju. Á heimili þeirra hjóna var rek- inn unglingaskóli um tveggja áratuga skeið. Börn Ólínu og Þorsteins eru Sigurlaug Ásgerður, fyrrum bankagjaldkeri, f. 3. apríl 1923, Guðmundur Ólafs, dómprófast- ur, f. 23% desember 1930, kvæntur Ástu Bjarnadóttur sjúkraliða og eýja þau fjögur börn, og Gísli Asgeir, læknir, kvæntur Lilju Jónsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo syni. Barnabörn Ólínu og Þorsteins eru sex og barna- barnabörn sex. Útför Ólínu verður gerð frá Dómkirkjunni mánudaginn 18. mars og hefst athöfnin klukkan 13.30. ruggustólnum í miðri stofunni og við ræddum um daginn og veginn. Hún sýndi okkur ætíð mikla um- hyggju og var umhugað um að okkur yrði ekki kalt og við fengjum nóg. Amma var gædd tónlistargáfu. Hún spilaði á orgel og var lagvís. Stundum settist hún við orgelið og spilaði og söng með okkur „Ó Jesú bróðir besti“. Iðulega vorum við svo leystar út með gjöfum þegar við kvöddum. í okkar augum var amma mikil hefðarkona. Hún var alltaf mjög fín og bar sig með reisn. Sérstaklega fannst okkur hún fín þegar hún var í íslenskum þjóðbúningi. Hún var ákaflega félagslynd og naut sín í margmenni. Við þökkum fyrir að hafa notið ömmu svo lengi. Ólína, Elísabet og Sigurlaug. Hvaðan er lífið sem dafnar og deyr, draumur og minning, höfgi og vaka? Hvaðan er ástin, hinn þagnblíði þeyr, þráin til lífeins, hinn angandi reyr, mannslíf sem kemur og hverfur til baka. (S.E.) Mig langar að minnast prófasts- hjónanna frá Steinnesi sem voru kærir vinir okkar hjónanna. Veturinn 1937 var ég þrjá mán- uði í Steinnesi hjá þeim og minnist þess tíma sem besta tíma ævinnar. Við vorum fjórtán ungmenni í námi. Sjö gengu til og frá skóla. Hnausa- kvísl var á ís allan veturinn og nem- endur komu stystu leið frá Brekku- koti, Öxl og Hnausum; einn frá Það var um miðja nótt að hringt var til mín og mér tilkynnt að tengdamóðir mín væri látin. Úti hafði snjóað og greinar tijánna svignuðu undan snjóþunganum. Þingeyrum. Við hin vorum í heima- vist. Það var mikið framtak á þess- um tímum að hafa unglingaskóla á prestssetrinu. Séra Þorsteinn bjó nemendur undir framhaldsnám. Frú Ólína var okkur öllum sem móðir. Hún gekk með yngsta- son sinn, Gísla, þennan vetur en ekki aftraði það henni frá því að taka mig á hné sér og hossa mér og spauga við okkur unglingana. Hún stjórn- aði dansi á laugardagskvöldum við grammófónmúsík niðri í eldhúsi, dreif vinnufólkið með líka. Einnig fóru þau hjón tvisvar með okkur á skemmtanir í Skólahúsinu sem var líka samkomuhús í SVeinsstaða- hreppi. Okkur fannst upphefð í því. Á kvöldin_ lék frú Ólína stundum a orgel en Ágúst Fjeldsted söng ein- söng. Hún hefur eflaust verið þreytt margt kvöldið eftir strangan dag. Þijár vinnukonur voru hjá prests- hjónunum þennan vetur. Ármann, bróðir frú Ólínu, bjó einnig í Stein- nesi og kona hans, Sigurlaug, með Ragnar fósturson sinn. Þau höfðu líka vinnukonu. Ragnar og Mundi (nú séra Guðmundur) voru skemmtilegir fjörkálfar. Sigurlaug, elsta bamið, var ófermd en fylgdi okkur eftir í skólanum, mikil náms- kona. Það var þröngt setinn bekkur- inn á þessu stóra heimili. Mikil rausn í mat og drykk. Á sunnudags- morgnum var okkur fært í rúmið, kakó og kökur. Allur klæðnaður af okkur var þveginn og strokinn, dekrað við okkur á allan hátt. Hún var falleg þessi nótt, þegar við kvöddum hana hinstu kveðju. í hugskoti mínu heyrði ég tengda- móður mína segja: „Mikið er ég lánsöm að fá svona fallegt ferðaveð- ur,“ því Lára var jákvæð og þakk- lát forsjóninni fyrir allt það góða, sem henni hafði hlotnast í lífinu. Lára var gæfusöm, hafði átt gott æskuheimili á Akureyri og alist þar upp í hópi fimm systkina hjá ástríkum foreldrum. Hún lærði ung að leika á píanó og sagði hún mér oft sögur af því hvernig kenn- arinn hennar skar niður kartöflur til að kenna henni gildi nótnanna meðan hún var enn of ung til að kunna reikning. Lára stundaði píanóleik á Akureyri, lék fyrir dansi og annaðist undirleik á tím- um þöglu kvikmyndanna, jafn- framt því að afgreiða í búð. Alla ævi var Lára nátengd Akureyri, fylgdist vel með systkinum sínum og öðrum ættmennum sem þar bjuggu. Lára giftist Jóni Björnssyni 1929 og fluttist með honum til Reykjavíkur þar sem þau stofnuðu heimili, fyrst við Barónsstíg, en byggðu sér síðan húsnæði á Hring- braut 87, en þar bjuggu þau næst- Sími: 533-4040 Fax: 588-8366 Opið rnánd. • fíislud. kl. 9 • 18 og laugard. kl. 11 • 14. sunnudaga kl. 12 - 14. Dan V.S. Wiium hdl. lögg. fasieignasali • Olutur GuÖmundsson. solusijón Birgir Gcorgsson söium.. Höröur llaröarson. sölum. Erkndur Davíösson - siilum. FASTEIGNASALA - Armúla 21 - Revkjavík - Traust og ðrugg þjónusta GRAFARVOGUR Nýleg 4ra herb. íb. á 2. hæð í litlu fjölb. Sérsmíðaðar innr. úr Mahogny. Þvottaherb. í íb. Gott fyrirkomulag. Stærð ca 123 fm. Áhv. 5,9 millj. Útb. ca 500 þús. Eftirst. allt að 14 mán. eða sam- komul. Laus fljótl. 4888. VÍKURÁS Rúmg. og björt 3ja herb. íb. á 3. hæð. Stærð 83 fm. Vandaðar innr. og gólfefni. Góðar suðursv. Áhv. 2,5 millj. byggsj. Verð 6,9 millj. 7861. HRAFNHÓLAR 3ja herb. íb. á 1. hæð í góðu fjölbýli. Parket. Stærð 78 fm. Áhv. 2,2 millj. byggsj. Verð 6,2 millj. 6660. URÐARHOLT — MOS. Rúmg. 3ja herb. íb. á 1. hæð í 4ra íb. stigagangi. Mjög nímg. herb. Sérgarður með verönd. Stærð 91 fm. Áhv. 4,2 millj. Verð 7,5 millj. 7840. FURUGRUND — KÓP. Góð 3ja herb. endaíb. á 2. hæð. Stærð 76 fm. Rúmg. stofa með parketi og suðursv. Mjög góð sameign. Laus í maí. Áhv. 4,2 millj. Verð 6,7 millj. 7821. BOGAHLÍÐ Góð 4ra herb. íb. á 3. hæð ásamt íbherb. í kj. 2 stofur, 2 svefnherb. hægt að hafa 3. Stærð 80 fm. Verð 7,5 millj. 6664. VESTURGATA Góð 4ra herb. íb. á 4. hæð í lyftuh. með miklu útsýni. 2 rúmg. stofur með svölum. Stærð 102 fm. Sameign og hús í góðu ástandi. Laus strax. 7825. BÓLSTAÐARHLÍÐ 5 herb. íb. á 3. hæð ásamt bílsk. í góðu fjölb. Stærð 112,4 fm auk bílsk. Skipti óskast á minni eign í austurbænum. 7859. YSTASEL Gott einb. á tveimur hæðum auk bílsk. 7 svefnherb., rúmg. stofur. Góðar innr. og gólfefni. Hægt að hafa séríb. má neðri hæð með sérinng. Stærð 300 fm. Áhv. 2,4 millj. byggsj. Uppl. og teikn. á skrifst. 6365. LARA GUÐMUNDSDÓTTIR + Lára Guð- mundsdóttir fæddist á Akureyri 19. desember 1901. Hún lést á Land- spítalanum 10. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guð- mundur Vigfússon skósmiður og Helga Guðrún Guð- mundsdóttir. Systk- ini Láru eru nú öll látin, en þau voru: Dagný, f. 1. febrúar 1896, d. 17. apríl 1976, Garðar, f. 15. febrúar 1898, d. 18. júní 1932, Fanney, f. 11. ágúst 1904, d. 23. júlí 1994, og Arthur, f. 8. mars 1908, d. 6. desember 1982. 19. október 1929 giftist Lára manni sínum, Jóni G. Björns- syni, f. 18. mars 1901. Foreldr- ar hans voru Björn Einar Þor- láksson á Varmá í Mosfells- sveit, hreppsfjóri og stofnandi Álafoss verksmiðj- anna, f. 23. nóvem- ber 1854, d. 27. febr- úar 1904, og Anna Jónsdóttir frá Eystri- Skógum undir Eyja- fjöllum, f. 10. sept- ember 1872, d. 5. maí 1948. Synir Láru og Jóns eru: 1) Ólafur Rafn, menntaskóla- kennari, f. 8. júlí 1936, fyrri maki, Bergljót María Hall- dórsdóttir, f. 22. apríl 1936, börn þeirra: 1.1 Lára Liv, f. 11. maí 1960, maki, Bárður Guðfinnsson, f. 15. ágúst 1965, 1.2 Halla Kristjana, f. 2. maí 1962, maki, Robert Walter Biglio, f. 12. mars 1956, börn þeirra: 1.2.1 María Liv, f. 22. september 1991, og 1.2.2 óskírður drengur, f. 11. janúar 1996,1.3 Óttar Rafn, f. 19. apríl 1963. Seinni maki Danielle Somers, f. 28. febrúar 1944, börn þeirra: 1.4 Laurent Séra Þorsteinn kenndi okkur við stórt borð í stofunni. Hann var yndis- legur kennari - strangur en ákaf- lega skemmtilegur. Við lærðum ótrúlega mikið á þessum þrem mán- uðum enda reynt að standa sig. Seinna meir, þegar ég eignaðist heimili og tók við af frú Guðbjörgu Kolka að hugsa um kirkjuna og var nokkur ár í sóknarnefnd, kynntumst við enn betur. Hann skírði og fermdi drengina mína og svo skemmtilega vildi til að sonur hans, séra Guð- mundur, fermdi sonarson minn. Séra Þorsteinn kom ævinlega til okkar er hann messaði hér. Frú Ólína kom oft með honum. Þau voru bæði létt- lynd og kímin og við áttum skemmti- legar stundir saman. Við heimsótt- um hvert annað og dvöldumst dag- langt einu sinni á ári. Þessa daga var spilað á spil milli máltíða og skrafað og skemmt sér. Við sáum mikið eftir þessum skemmtilegu hjónum er þau fluttust suður. Við minnumst þeirra oft. Við þökkum þeim tryggð og vin- áttu liðinna ára. Alltaf skrifuðu þau og sendu gjafir fyrir hver jól. Við Helgi sendum börnum, tengdabörnum og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þessara góðu hjóna. Mjúk skal sængin lífs við ystu ósa, unaðs njótið bjartra meðal rósa. (Ók. höf.) Helga E. Guðmundsdóttir. Arthur Friðrik, f. 8. mars 1972, 1.5 Ólafur Rafn, f. 19. apríl 1974, 1.6 Max Emil, f. 9. febr- úar 1976, 1.7 Hendrik Nicolai, 9. ágúst 1978, 1.8 Jón Ivan, f. 10. nóvember 1980. 2) Gylfi, flugstjóri, f. 25. mars 1938, maki, Guðrún Lára Bergsveins- dóttir, f. 15. apríl 1940, börn þeirra: 2.1 Bergsveinn Þór Gylfason, f. 31. desember 1961, maki Steinunn Steingrimsdótt- ir, f. 24. apríl 1961, börn þeirra: 2.1.1 Gylfi Þór, f. 19. september 1984, og Guðrún Lára, f. 29. janúar 1992, 2.2 Elín, f. 14. jan- úar 1965, og 2.3 Lára Fanney, f. 7. nóvember 1973. Lára og Jón giftust á Akureyri og flutt- ust skömmu seinna til Reykja- víkur þar sem þau bjuggu alla sína tíð, fyrst á Barónsstíg en síðar í húsi því er þau reistu sér á Hringbraut 87. Að manni sinum látnum fluttist Lára á þjónustumiðstöð aldraðra á Dalbraut 27, þar sem hún naut hlýlegrar umönnunar alls starfsfólksins til æviloka. Útför Láru fer fram frá Foss- vogskapellu á morgun, mánu- daginn 18. mars, og hefst at- höfnin klukkan 15. um óslitið allan sinn búskap utan tveggja ára, sem þau áttu heima í New York. Jón ferðaðist mikið í tengslum við vinnu sína og var oft langtímum saman að heiman, Lára var þá heima og ól önn fyrir sonun- um tveim, Ólafi og Gylfa. Undi hún þá oft löngum stundum við píanóið og spilaði svo allt húsið ómaði. Eftir að synirnir kvæntust og barnabömin komu til sögunnar gladdist Lára yfir þeim, fylgdist með vexti þeirra og þroska og hló oft dátt að uppátækjum þeirra. Eftir 48 ára hjónaband lést Jón. Upp frá því reyndist einveran Láru erfíð og fluttist hún því að Dal- braut 27, en þar naut hún einstakr- ar umönnunar og elsku alls starfs- fólksins. Aldrei þreyttist hún á að segja frá hversu lánsöm hún væri að fá að dvelja síðustu ár ævi sinn- ar hjá svo góðu fólki. Lára var löngu ferðbúin enda hafði hún með lífi sínu búið sér gott ferðanesti. Við kveðjum hana að leiðarlokum, þakklát fyrir allt sem hún var okkur, fullviss þess, að hún var hvíldinni fegin að loknu löngu ævistarfí. Far þú í friði. Guðrún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.