Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ að legið hefði við skilnaði eftir kosn- ingamar 1960. Þjónustufólk úr Hvíta húsinu hefur sagt að máls- verðir hjónanna hafi verið kvöl og pína því þögnin var svo óbærileg. Þjónarnir prísuðu sig sæla ef mál- tíðin stóð stutt yfir. Sagt er að Nixon hafi forðast Pat og því oft borðað inni á skrifstofu." Pat Nixon var kölluð Mona Lisa bandarískra stjórnmála eða „Plastic Pat“. Joan Allen, sem leikur for- setafrúna, er best þekkt fyrir leik sinn á Broadway í New York. Flestir samstarfsmanna Nixons eru enn á lífi. Hvaða viðbrögð hefur þú fengið frá þeim? „Henry Kissin- ger, dætur Nixons, Alexander Haig og Charles Colson segja mig vera fjandsamlegan hagsmunum Banda- ríkjanna. En auðvitað vilja þau öll líta vel út á spjöldum sögunnar. Paul Sorvino, sem fer með hlutverk Kissingers, átti við hann áhugavert samtal en nú neitar Kissinger að það hafi átt sér stað. Hvað varðar Kissinger, held ég að ekki séu öll kurl komin til grafar. Honum hefur alltaf verið lýst sem hetju. Nixon bar mikla virðingu fyrir honum. Segja má að hann hafi átt upphafið að Watergate-málinu því hann kom með hugmyndina um að njósna um starfsfólkið og kom fyrir hlerunar- búnaði í því skyni.“ Nánari söguskoðun er nauðsynleg Stone segir skoðanir sagnfræð- inga um Nixon vera ólíkar. „Enn eru menn að skiptast í fylkingar með og á móti honum. Því miður er það svo að ekki hefur farið fram nein almennileg rökræða í Banda- ríkjunum um þetta tímabil í sög- unni. Til er urmull bóka en sú vitn- eskja hefur ekki komist til skila. Það sem nemendur lesa í skólum er mikil einföldun og til háborinnar skammar. Á tímabilinu 1963-1973, gerðust afdrifaríkir atburðir í bandarískum stjórnmálum, Viet- namstríðið, morðin á Kennedy- bræðunum og Martin L. King, Kúbudeilan og fleira., Nixon mótaði stefnuna, fyrst sem varaforseti Eis- enhowers þegar til dæmis fjölda- morð voru framin í Iran og Guate- mala. Alla þessa atburði þyrfti að skoða í samhengi en það hefur ekki verið gert. Enn er heimildum haldið leyndum fyrir almenningi, þar á meðal skjölum CIA,“ segir Stone. Hopkins var hræddur við hlutverkið Af livetju valdir þú Englending- inn Sir Anthony Hopkins til að fara með hlutverk Nixons? „Einfaldlega af því að hann er besti leikarinn sem við eigum. Hann hefur mikla reynslu og er á réttum aldri fyrir hlutverkið. Framburður hans er ekkert vandamál í mínum eyrum. Hann náði Nixon svo vel að fólk verður hálfhissa þegar það sér hinn rétta Nixon í lok myndarinnar." En Stone segir það hafa tekið tíma að fá hann til liðs við sig. „Handritið er um 170 síður og byggir á löngum samtölum, svo löngum að Hopkins, sem kallar ekki allt ömmu sína, hikaði þegar honum var boðið aðalhlutverkið. Tom Hanks og Jack Nicholsons komu einnig til greina af minni hálfu en þeir virtust ekki hafa áhuga. Ég fór því til London, bauð Tony í morgunmat og ræddi við hann um hlutverkið. Hann sagðist ætla að hugsa málið í nokkra daga. Ég flaug aftur til Los Angeles, klukkan þrjú um nóttina hringdi hann í mig og þáði hlutverkið. Þeg- ar Tony er annars vegar er allt mögulegt. Maðurinn er stórkostleg- ur leikari." Oliver Stone er þreyttur og ætlar að hvílast vel áður en hann gerir næstu mynd. Hver hún verður er enn óljóst. „Ég er búinn að gera tíu myndir á tíu árum. Verra gæti það nú verið. Ég verð fimmtugur bráðum og stend því á hálfgerðum krossgötum." Höfundur er stjórnmála- fræðingur. SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 19 SIEMENS — Innbyggðir ofnar - þeir gerast ekki betri. Örbylgjuofnar - mikið úrval og gott verð. Helluborð - treystu Siemens. Mikið úrval af eldavélum, bakstursofnum, helluborðum, gufugleypum og örbylgjuofnum. Gæða-eldunartæki til að.prýða eldhúsið þitt. Þúáttþaðskilið. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 511 3000 „, Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Q£ Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur: Blómsturvellir ^ Grundarfjörðun Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Ju Skipavík Búðardalur: Ásubúð O ísafjörðun Póllinn Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókur: z Rafsiá Siglufjörður: Torgio z Akureyri: Ljósgjafinn Húsavík: Lil Öryggi Þórshöfn: Norðurraf ú* Neskaupstaðun Rafalda Reyðarfjörður: Rafvélaverkst. Árna E. Egilsstaöir: Sveinn Guðmundsson Q Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson Höfn i Hornafirði: O Króm og hvítt . Vestmannaeyjan Tréverk £0 Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvirkinn Grindavík: Rafborg 3 Garðun Raftækjav. Sig. Ingvarss. Keflavík: Ljósboginn Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði ■ 8; Viljirðu endingu og gœði -j * Staðgreitt á mann. Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá flugv. erl., íslensk fararstjórn og skattar Þú greiðir elclcert fyrir börn yngri en 2 ára í leicjuflugi SLi . Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Símbréf 562 2460 Hafnarfjöröur: Bæjarlirauni 14 • S. 565 1155 • Simbréf 565 5355 Keflavik: Hatnargötu 35 • S. 421 3400 Akureyri: Háðhústórgi t • S. 462 7200 • Símbréf 461 1035 Vestmannaeyiar: Vestmannabraut 38 • S 481 1271 • Simbréf 481 2792 Einnig umboösmenn um land allt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.