Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 37 GUÐRÍÐUR GÍSLADÓTTIR + Guðríður Gísla- dóttir fæddist á Torfastöðum Grafningi 20. nóv- ember 1926. Hún lést i Landspítalan- um 4. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Árný Valgerður Einarsdóttir, f. 28. desember 1885 á Litla-Hálsi í Grafn- ingi, d. 31. ágúst 1966, og Gísli Snorrason, f. 6. október 1883 á Þórustöðum í Ölfusi, d. 2. mars 1958. Guð- ríður var yngst tíu systkina og eru þrjú þeirra á lífi. Guðríður giftist 30. maí 1958 eftirlifandi eiginmanni sinum Haraldi Einarssyni, f. 4. nóvember 1917, frá Hjarðar- nesi á Kjalarnesi. Guðríður bjó allan sinn búskap í Reykjavík. Útför Guðríðar fór fram í kyrrþey að hennar eigin ósk. Guðríður Gísladóttir, eða Gauja eins og nánir vinir og ættingjar kölluðu hana, var ákveðin kona og sjálfstæð. Sumir vilja eflaust meina að hún hafi verið stjórnsöm. Það var henni þó ekki til lasts því hún var sveigjanleg og iðulega tilbúin að meta aðstæður að nýju, en hún vissi hvernig hún vildi hafa hlut- ina. Hún var skipulögð og viðhafði vönduð vinnubrögð þar sem snyrtimennska var í hávegum höfð. Per- sónuleiki hennar var sterkur og skýr fram til þess síðasta. Jóhanna, eiginkona mín, á margar góðar minningar frá því að hún var lítil og Gauja kom í heimsókn til for- eldra hennar. Þá fannst henni mikið til þess koma að eiga svona glæsilega frænku sem átti alltaf svo fína bíla. Þær urðu fljótt góðar vin- konur enda var Gauja heillandi með glaðlegu og hláturmildu viðmóti sínu. Það fór ekki á miili mála að Gauja var mikill barnavinur eins og æskuminningar Jóhönnu bera með sér, en því miður varð hún ekki þeirrar hamingju aðnjótandi að eignast börn. Það hefur örugg- lega valdið henni töluverðri óham- ingju og meiri en maður getur ímyndað sér, þrátt fyrir að aldrei væri hægt að merkja það í fari hennar. Alúð hennar og hlýju í garð barna kynntist ég vel í sam- skiptum hennar við mín börn. Hún ræddi við þau um áform þeirra og drauma. Hún sýndi námi þeirra áhuga og þótti nokkuð skondið þegar í ljós kom að sonur minn t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar Kristjáns AGNARS ÓLAFSSONAR, Eirfksgötu 21, Reykjavík. Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins færum við sérstakar þakkir. Sigríður Eyja Pétursdóttir, Sigurður Guðmundsson, Áslaug Benediktsdóttir, Sigríður B. Guðmundsdóttir, Guðbjartur Vilhelmsson, Bragi og Baldur Kristjánssynir og fjölskyldur. t Þökkum af alhug öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vin- áttu við andlát og útför GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR, Vfghólastíg 9, Kópavogi. Hulda Oanielsdóttir, Sigurður Andrés Guðmundsson, Anna Heiðrún Guðmundsdóttir, Hans Erik Dyrlie. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur- eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfí í númer 5691181. Framvegis verður við það miðað, að um látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd en lengd annarra greina um sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálksenti- metra í blaðinu. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfrétt- ir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. ákvað að fara í Kvennaskólann í Reykjavik. Gauja var listunnandi og hafði sérstaklega gaman af tónlist, eink- um söng. Leikhús voru henni kær. Hún las mikið bæði ljóð og ýmiss konar bókmenntir. Hún var mikill dýravinur og sagði margar sögur af samskiptum sínum við dýrin bæði frá æskuheimilinu og síðar. Þau hjónin höfðu mikla ánægju af ferðalögum bæði til útlanda og ekki síður innanlands. Útivist var snar þáttur í tilveru þeirra. Það var því kærkomið að eignast sumarhús og ekki spillti staðsetningin í Gríms- nesinu í nágrenni Álftavatns sem skipaði stóran sess í æskuminning- unum. Þetta var reiturinn, Kotið, sem þau ætluðu að hafa í ellinni. Þau dvöldu í Kotinu eins oft og tækifæri gafst. Þar leið þeim vel og fullyrti Gauja að veðrið væri alltaf gott þrátt fyrir hið gagnstæða allt í kring. Því miður rættist ekki óskin um mörg ár í unaðsreitnum í Grímsnes- inu. Síðastliðið haust tóku sig upp veikindi sem leiddu hana til dauða. Megi góðar minningar um Guð- ríði Gísladóttur lifa með vinum hennar og ættingjum. Við Jóhanna biðjum góðan Guð að styrkja eftir- lifandi eiginmann hennar, Harald Einarsson, sem nú dvelur á Hjúkr- unarheimilinu Eir í Grafarvogi. Guðjón Skúlason. Föðursystir mín, Guðríður Gísla- dóttir, eða Gauja eins og hún var jafnan kölluð, hafði til að bera mikinn persónuleika. Það sópaði jafnan að henni og hún hafði mikla útgeislun. Samt var hún hógvær í eðli sínu, glaðsinna en einbeitt og hafði sínar skoðanir á mönnum og málefnum. Hún hafði til að bera flesta þá eiginleika, sem prýða mega góða konu. Hvert verk sem Gauja innti af hendi var unnið af vandvirkni og heiðarleika. Hún var einstaklega regluföst og nákvæm með flesta þá hluti sem hún tók sér fyrir hendur. Hið fallega heim- ili hennar bar vott um þá fágun og natni sem hún lagði í alla hluti og í hvert sinn er hún var heim- sótt framkallaði hún hið fínasta veisluborð. Gauja hafði auga fyrir fallegum hlutum, fallegri tónlist og hverri þeirri list, sem giaddi hana sjálfa. Hún var bókhneigð, las mikið og var fróð um marga hluti og voru þær ófáar leikhús- ferðirnar, sem hún fór ásamt manni sínum enda var hún um- ræðugóð um flesta þá menningar- legu viðburði sem bar hæst á hveij- um tíma. Þegar ég var að alast upp var Gauja í mínum augum fallegsta og fínasta frænkan. Alltaf var hún glöð og kát og laðaði að sér börn með sinni hreinskiptu framkomu og umhyggju enda var hún sér- staklega barngóð. Alltaf gat hún leyst úr hinum ýmsu málum, sem upp geta komið meðal barna, með lagni sinni og rökfestu og allir urðu sáttir að lokum. Ekki auðnað- ist þeim hjónum, Gauju og Har- aldi, að eignast börn en tóku að sér tvo drengi og ólu þá upp sem sín eigin börn. Effcir að ég eignað- ist mín börn bað hún stundum um að fá að passa þau og sýnir það hvern hug hún bar til barna. Þau hjónin höfðu yndi af að ferð- ast hvort sem það var innan lands eða utan og í tæpan vetur dvöldu þau í sólarparadís á Mallorca. Oft talaði hún um ströndina og hafið, þá naut hún sín vel enda var Gauja mikill náttúrudýrkandi. Fyrir nokkrum árum festi Gauja kaup á sumarbústað í Þrastaskógi, nálægt bernskuslóðum sínum, og fór hún þangað eins oft og hún gat, í Kot- ið sitt eins og hún nefndi bústað- inn, og naut fegurðar og náttúr- unnar þar. Það var sannkallaður unaðsreitur, alltaf var gott veður í Kotinu hennar hvernig sem viðr- aði annars staðar. Gauja var mikill dýravinur og til marks um það gaf hún meira að segja músunum að borða, sem tóku sér bólfestu í bílskúrnum hennar, þegar aðrir reyndu að útrýma þeim. Hún bar iðulega blak af þeim sem minna máttu sín og var alltaf tilbú- in að rétta hjálparhönd og veita aðstoð ef með þurfti, einnig eftir að hún veiktist af þeim sjúkdómi, sem leiddi hana til dauða. Barátta hennar við sjúkdóminn einkenndist af sama styrk og viljafestu sem einkenndi hennar líf. Hún hélt næsta fullri reisn allt fram í andlát- ið og með miklum viljastyrk hélt hún heimili þar til örfáum vikum fyrir andlát sitt. Nú er þessi góða frænka horfin til annars heims þar sem hún vonandi fær að njóta þeirr- ar uppskeru, sem hún sáði til hér á jörðu. Minningarnar um Gauju frænku eru margar og bjartar sem ávallt munu geymast í hugskoti mínu. Ég og fjölskylda mín vottum eftirlif- andi eiginmanni hennar dýpstu samúð okkar. Blessuð sé minning hennar. Svanhildur Edda Þórðardóttir. Símatími í dag, sunnud. kl. 12-14 Sendift okkur fyrirspurnir á netfangið okkar cignainidlun@itn. is og viö sendum upplýsingar til baka. EIGNIR Óí HÚS Óskast - skipti. Gottsér- býli á verðbilinu 11-14 millj. á höfuðborgar- svæðinu, óskast í skiptum fyrir tvær ca. 100 fm 4ra herb. íbúðir með hagstæðum áhv. lánum. Uppl. veitir Björn Þorri. EIGMMIÐIIMN % - Abyrg þjónusta í áratugi. Sími: 588 9090 Síðmnúla 21 Vagnhöfði. Vorum að fá í einkasölu glæsil. verslunar-. skrifstofu- og lagerhúsnæöi á mjög góðum staö við Vagnhöfða. Eignin skiptist í 230 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði, 330 fm skrifstofuhæð, 960 fm lager- og iðnaðarhúsnæði á götuhæð með mikilli lofthæð og 441 fm lag- erhúsnæði f kj. með góðri lofthæð og innkeyrsludyrum. Mjög góð malbikuð lóð og gott athafna- svæði viö húsið. Mjög vönduð og góð eign sem hentar vel undir ýmiskonar atvinnurekstur. Allar nánari uppl. veita Sverrir og Stefán Hrafn. 5297 VíðítGÍCJUf- Einlyft fallegt 3ja herb. um 82 fm fallegt raðhús. Parket. Möguleiki á sólstofu. Áhv. 4 m. V. 8,3 m. 6114 Seljabraut. Ákafl. vandað og fallegt u.þ.b. 190 fm endaraðh. ásamt stæði í bílag. Vandaðar innr. Suðurlóö. V. 10,9 m. 3710 Lóð á Arnarnesi. 1680 fm eignarlóð fyrir einbýlishús á sunnanverðu Arnarnesi. V. 1,9 m. 4344 Sunnuflöt - Gbæ. Mjög vandað um 250 fm einb. með sér íb. í kj. og tvöf. 50 fm bílskúr. Húsið stendur neðan við götuna og er fallegt útsýni yfir hraunið og lækinn. V. 20,7 m. 6134 Smárarimi - einb./tvíb. ( smlð- um mjög fallegt tvílyft húseign með 2 samþ. íb., 5-6 herb. 156 fm íb. ásamt 30 fm bilsk. og 2ja herb. 67 fm íb. á jarðh. meö sér inng. íb. afh. tilb. að utan en fokh. að innan. V. 8,9 og 4,2 m. 6110 Hrauntunga. Vorum að fá þetta glæsil. 190 fm parh. í einkasölu. Á efri hæö eru stórar stofur, vandað eldh., snyrting, forstofa, innb. bílskúr og fráb. útsýni. Á neðri hæö eru 3 herb., sjónvarpshol, baðh. o.fl. Garðurinn er mjög fal- legur og bæði með sólverönd til vesturs og suðurs. V. 15,3 m. 6164 Parhúsalóðir - Kópavogur. Vorum að fá I sölu parhúsalóöir í nýju hverfi í Suðurhlíðum ekki fjarri Digraneskirkju. Allar nánari uppl. veitir Magnea. 6166 HÆÐIR §901 Kvisthagi - skipti. Glæsileg 111 fm 4ra herb. sérhæð (1. hæð) I 4-býli. íb. hefur öll verið standsett frá grunni. Vandaðar innr. Tvennar svalir. Hæðin fæst einungis I skiptum fyrir stærri eign í vesturborginni. Nánari uppl. veitir Magnea. V. 10,9 m. 6157 Flókagata. Vorum að fá I sölu vand- aða 155 fm sérhæð við efsta hluta Flóka- götu. Ib. skiptist m.a. í tvær stofur og 4 svefnh. Þvottah. og geymslur í íbúö. 20 fm flísalagðar suðursv. Auk þess fylgir 17 fm innb. bílskúr. V. 11,3 m. 6162 Þinghólsbraut - 73 fm bíl- skúr. 4ra herb. 122 fm neðri sérhaað sem skiptist í 2 saml. stofur og 2 svefnherb. Tvöf. góður bílskúr. Ákv. sala. V. 9,5 m. 6165 Sæbólsbraut. Mjög falleg og björt um 100 fm íb. í litlu og fallegu fjölbýlish. Sérþvottah. Góðar innr. Suðursv. Mjög gott ástand á húsi og sameign. V. 7,9 m. 6155 Laugarnesvegur. Mjög stór umþ 125 fm 5 herb. íbúð á 4. hæð (efstu) í góðu fjöl- býlishúsi. Aðeins ein íbúð á hæðinni. Suðursv. Áhv. um 5,7 millj. V. 7,9 m. 3478 Asparfell. 4ra herb. um 90 fm íb. á 6. hæð í lyftuhúsi. Glæsil. útsýni til suðurs. v. að- eins 5,8 m. 6118 Hvassaleiti. Mjög falleg og snyrtileg 95 fm 4ra herb. íb. á 3. hæð. Nýlegt parket. Blokk- in hefur veriö standsett. 21 fm bílskúr. V. 8,2 m. 6068 Laufásvegur. Mjög falleg og björt um 110 fm 4ra herb. íb. á góðum stað í Þingholtun- um. íb. var mikið endurn. fyrir 7 árum m.a. öll gólfefni og eldhúsinnr. V. 8,7 m. 6063 Hamraborg. Stórglæsileg 181 fm 7 herb. „penthouseíb.” á einni hæð. Vandaðar innr. Parket. Um 50 fm svalir og einstætt útsýni nánast allan fjallahringinn. Eign í sérflokki. V. 12,5 m. 4341 Ljósheimar. 4ra herb. góð um 95 fm íb. á 2. hasð. Sér inng. Nýtt parket. V. 7,5 m. 6136 Eyjabakki. 4ra herb. góð og vel stað- sett Ib. á 2. hæð. Sérþvh. Einstakl. góð að- staða f. böm. Áhv. 4,2 millj. V. 6,9 m. 3701 Dunhagi. Góð 108 fm íb. á 3. hæð i góðu fjölbýli. Endurnýjað eldh., baðh., þak o.fl. Góð- ar geymslur. V. 7,7 m. 6066 Háaleitisbraut. Vorum að fá í sölu bjarta og fallega 88 fm 3ja herb. íb. i kj. Parket og flísar á gólfum. íbúð og sameign eru mjög snyrtileg. V. 6,8 m. 6152 Við Fossvog - Álfatún. Vorum að fá í sölu 106 fm 3ja herb. íb. á gullfallegum stað við Fossvog. Um er að ræða 2-býli byggt 1984. Sér inng. og sér þvottah. Glæsil. útsýni yfir Fossvoginn. V. 8,5 m. 6156 Hraunbær. 3ja herb. falleg I87 fm íb. á 3. hæð ásamt aukaherb. í kj. Ákv. sala. Laus fljót- lega. Áhv. 4,1 m. V. 6,9 m. 6137 Suðurgata - Hf. 59 fm íb. á jarðh. í tvíbýlish. Laus fljótlega. V. 4,7 m. 4569 Furugrund. Rúmg. og björt um 60 fm íb. á 2. hæð í húsi staðsettu neðst í Fossvogs- dal. Suðursv. Lyklar á skrifst. V. 5,1 m. 6007 Bergþórugata. 65 fm 2ja herb. Ib. í kjallara í 4-býli. íb. fylgja tvær geymslur og hlut- deild I þvottah. Áhv. 660 þús. byggsj. V. 4,3 m. 6158 Hagamelur. Góð 2ja herb. 70 fm lítiö niðurgrafin íb. á eftirsóttum stað. V. 5,5 m. 6153 Hátún. Vorum áð fá I sölu snyrtilega 55 fm 2ja herb. íb. í 2-býli. Nýleg innr. I eldh. Nýl. parket. Áhv. 2,7 m. byggsj. V. 5,2 m. 6061
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.