Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 1
88 SIÐUR B/C/D
68. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússar
vilja full-
vinna fisk
í Noregi
Hyggjast kaupa
gjaldþrota fisk-
vinnslufyrirtæki
Ósló. Morgunblaðið.
RÚSSNESK fiskvinnslufyrirtæki í
Múrmansk, Arkangelsk og í
Moskvu eru á höttunum eftir gjald-
þrota fiskvinnslufyrirtækjum í
Finnmörk í Noregi. Þar vilja þau
hefja fullvinnslu á rússneskum og
norskum fiski og selja síðan afurð-
irnar í Noregi og annars staðar í
Evrópu.
Milligöngu um kaupin hefur
norsk-rússneska fyrirtækið Scann-
autic, sem er aðallega i rússneskri
eigu, og hefur það meðal annars
augastað á fiskvinnslufyrirtækinu
Nordkyn Products í Mehamn, en
það varð gjaldþrota fyrir jól.
Erfitt ástand á mörkuðum Norð-
manna, einkum saltfiskmörkuðun-
um, og aðrar ástæður hafa valdið
því, að mörg fiskvinnslufyrirtæki í
Finnmörk eru ýmist í greiðslustöðv-
un eða gjaldþrota.
Fiskur fyrir tíu milljarða
á síðasta ári
Erik Loken, framkvæmdastjóri
Scannautic, sagði í viðtali við
norska blaðið Aftenposten, að
meiningin væri að stunda full-
vinnslu í Noregi og selja afurðirnar
þar í landi og til annarra Evrópu-
ríkja. Verður tekið við fiski jafnt
af norskum sem rússneskum skip-
um en á síðasta ári seldu Rússar
fisk i Noregi fyrir meira en tíu
milljarða ísl. kr.
í Finnmörk er verulegur áhugi á
þessu máli, jafnt hjá einstökum
sveitarstjórnum og í fiskvinnslunni
sjálfri, og vona margir, að hugsan-
leg fjárfesting Rússanna geti reynst
vítamínssprauta fyrir atvinnulifið á
svæðinu.
Formaður vinnuveitendasamtak-
anna í Finnmörk hefur fagnað tíð-
indunum og einnig fiskimálastjór-
inn þar, en talsmaður hagsmuna-
samtaka sjávarútvegsins kvaðst
ekki sáttur við, að eignaraðild
Rússa að fiskvinnslufyrirtækjum
yrði meiri en 50%.
Kínverjar segjast ánægðir með heræfingarnar á Tævansundi
Reuter
STUÐNINGSMAÐUR Lee Teng-hui, forseta Tævans, veifar fána
á kosningafundi í Taipei. Fyrir ofan hann er mynd af forsetanum
(t.v.) og varaforsetaefni tævanskra þjóðernissinna.
Telja sig full-
færaumað
hertaka Tævan
Peking. Reuter.
KINVERJAR sögðu í gær að heræf-
ingar þeirra á Tævansundi hefðu
gengið mjög vel og þær sýndu að
að kínverski herinn væri fullfær um
að ná Tævan á sitt vald. Haft var
eftir yfirmönnum hersins að Kín-
veijar gætu flutt innrásarlið til
Tævans á fimm eða sex klukku-
stundum en vestrænir sérfræðingar
sögðu þá ýkja hernaðarmátt sinn
tii að hræða Tævani.
Níu daga heræfingum herþotna
og herskipa sunnarlega á Tævan-
sundi lauk í gær samkvæmt áætl-
un. Öðrum heræfingum norðar á
sundinu verður hins vegar haldið
áfram þar til tveimur dögum eftir
forsetakosningarnar á Tævan á
laugardag. Hlé var þó gert á þeim
í gær vegna veðurs.
Kínverska fréttastofan Xinhua
sagði að fyrri æfingarnar væru til
marks um „mikinn hernaðarmátt“
Kínveija. Yfirmenn kínverska hers-
ins væru sammála um að hann
gæti varið Kína og „sameinað Tæv-
an föðurlandinu". Dagblað í Hong
Kong, sem Kínverjar fjármagna,
hafði eftir kínverskum hernaðarsér-
fræðingum að Kínaher gæti sent
innrásarlið til Tævans á fimm eða
sex klukkustundum. „Ef nauðsyn
krefur getur kínverski herinn leitt
deiluna til lykta með hernaðarað-
gerðum og tryggt endursameiningu
landsins," sagði dagblaðið.
Staðhæfingarnar
vefengdar
Vestrænn stjórnarerindreki í
Peking sagði þessar staðhæfingar
rangar og kvað markmiðið með
þeim að skjóta almenningi á Tævan
skelk í bringu fyrir forsetakosning-
arnar. William Perry, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, og ýmsir
bandarískir sérfræðingar hafa sagt
að Kínveijar geti ekki.tekið Tævan
með hervaldi.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti með 369 atkvæðum
gegn 14 í fyrrakvöld ályktun þess
efnis að Bandaríkjaher ætti að
koma Tævan til aðstoðar ef Kínveij-
ar réðust á landið.
Bandarískir embættismenn
skýrðu frá því í gær að Bandaríkja-
stjórn hefði samþykkt að selja Tæv-
önum háþróuð vopn, meðal annars
Stinger-eldflaugar, og viðbúið er
að Kínveijar bregðist harkalega við
sölunni.
Róm. Reuter, The Daily Telegraph.
TENÓR-söngvarinn Luciano
Pavarotti, sem hefur játað að
hafa verið í þingum við unga
konu, hefur samið við eiginkonu
sína um skilnað að borði og sæng
eftir 35 ára hjónaband.
Hjónin tilkynntu þetta í stuttri
yfirlýsingu sem lögmaður eigin-
konunnar gaf út. „Þau undirrituðu
skilnaðarsamkomulagið án að-
stoðar lögfræðinga," sagði lög-
maðurinn en bætti við að þau
kynnu að ná sáttum síðar og hefðu
ekki sótt um lögskilnað. „Vera
má að á morgun, eða eftir mánuð
eða ár, snúist þeim hugur og þau
hefji sambúð aftur.“
Orðrómur hafði lengi verið á
kreiki um að Pavarotti, sem er
Pavarotti skilur
við eig’inkonuna
sextugur, ætti í ástar-
sambandi við einkaritara
sinn, 26 ára konu, Nico-
letta Mantovani. Þau
neituðu þessu þar til í
febrúar þegar ítalskt
tímarit birti myndir af
þeim kyssast og kjassa
á strönd Barbadoseyju.
„Við Nicoletta erum
Pavarotti
mjög hamingjusöm. Að
leyna því eða neita væri
glæpur,“ hafði tímaritið
eftir Pavarotti.
Eiginkonan æf
Eiginkona söngvar-
ans, Adua, varð ókvæða
við þessum tíðindum og
sendi itölskum dagblöð-
um opið bréf þar sem hún varaði
Pavarotti við því að með því að
fórna 35 ára farsælu hjónabandi
fyrir unga konu kallaði hann yfir
sig einmanalegt líf og hugarvíl í
ellinni.
Pavarotti og ástkona hans fóru
saman til Uruguay fyrir nokkrum
dögum í boði forseta landsins.
Hún var ráðin ritari söngvarans
árið 1993.
Eiginkonan hefur annast fjár-
mál Pavarottis í mörg ár og hún
verður áfram einn af umboðs-
mönnum hans. Hún er sögð næst-
um því jafn auðug og söngvar-
inn, en tekjur hans eru taldar
nema jafnvirði 1,4 milljarða
króna á ári.
Reuter
Bandidos-for-
ingi kvaddur
150 LEÐURKLÆDDIR liðsmenn
bifhjólasamtakanna „Bandidos"
voru í gær viðstaddir útför Uffe
Larsens, foringja í Bandidos-
gengi sem var drepinn í Kaup-
mannahöfn 10. mars. Larsen var
jarðsunginn frá kirkju í Stenlose,
bæ nálægt Kaupmannahöfn.
Bandidos-félagar frá Evrópu,
Bandaríkjunum og Astralíu, sem
fylgdu Larsen til grafar, sóru að
hefna hans. Þeir sögðu „Vítis-
engla“ hafa staðið fyrir drápinu
þar sem þeim stæði ógn af upp-
gangi Bandidos á Norðurlöndum.