Morgunblaðið - 19.05.1996, Page 52
Hagkvæmur
valkostur
í fjármagnsflutningum
HEtjrogiro
Póstgíró, sími: 550 7497 fax: 568 0121
(B>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
co> NÝHERJI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMl 560 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 19. MAÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Vél Flug-
leiða í
fuglageri
HÓPUR sendlinga flaug í veg fyrir
morgunvél Flugleiða til ísafjarðar
á föstudag. Vélin var í þann mund
að lenda þegar fuglarnir tóku sig
skyndilega upp úr fjörunni skammt
frá flugvellinum og flugu í veg fyr-
ir hana. „Flugvélin lenti eðlilega en
þegar farið var að kanna aðstæður
eftir á kom í ljós að um 70 fuglar
lágu dauðir á brautarendanum,"
segir Sturla Páll Sturluson flug-
radíómaður á ísafjarðarflugvelli.
Sturla segir að vélin hafi verið
ötuð blóði og fiðri, bæði á skrokki
og hjólabúnaði. „Þetta var eins og
á vígvelli og þegar farþegar voru
gengnir frá borði var farið yfir vél-
ina og hún sprautuð með búnaði
slökkviliðsins."
Sturla man ekki til þess að svo
margir fuglar hafi flogið í veg fyrir
vél við flugvöllinn. „Það er alltaf
verið að strauja einn og einn, sér-
staklega kríu eða æðarfugl, því það
er mikið fuglalíf í kringum völlinn.
Brautarstarfsmenn eru í því nánast
allt sumarið að flæma burtu fugla
og hérna hjá okkur fer slökkviliðs-
bíllinn yfir brautina bæði fyrir lend-
ingu og flugtak," segir hann.
Hilmar Baldursson flugstjóri segir
að ský af sendlingum hafi mætt
vélinni. „Við vorum rétt við brautar-
endann og gátum ekki gert annað
en að fljúga í gegn. Þetta er ekki
þægileg tilfinning en þar sem við
vorum alveg að lenda var þetta ekki
hættulegt. Það er helst að maður
vorkenni fuglinum," segir Hilmar.
GUSURNAR ganga yfir ræð-
arana þegar róið er niður flúð-
irnar neðan við Brúarhlöð í
Hvítá í Biskupstungum. Anna
Svavarsdóttir á Drumbodds-
stöðum stjórnar úr sæti sínu,
bæði báti og ræðurum. Hvítár-
Róið niður flúðir
siglingarnar eru hafnar fyrir
nokkru, óvenju snemma vegna
vorblíðunnar, en íshröngl var á
ánni þegar fyrstu ferðimar
voru farnar í vor. Bátafólkið
hefur skipulagt þessar ferðir í
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
tíu ár við stöðugt vaxandi að-
sókn bæði íslenskra og erlendra
ferðamanna og ef að líkum
lætur skipta þeir þúsundum
sem róa niður Hvítá í sumar.
■ Drottningin á Hvítá/8
*
Mikil óvissa er um forsetakjör á 38. þingi Alþýðusambands Islands
er víst að kosið
um forseta ASI
Morgunblaðið/Kristinn
ALÞÝÐUSAMBANDSÞING undirbúið í íþróttahúsi Digranes-
skóla. Einar Long Siguroddsson setur upp myndvarpa.
Borgar-
nesskyr
framleitt
á ísafirði
Borgarnesi. Morgunblaðið.
VERSLUN Jóns og Stefáns í
Borgarnesi hefur nú hafið sölu
á „gamla góða Borgarnesskyr-
inu“ eins segir í auglýsingu frá
versluninni. Skyrið er framleitt
í Mjólkursamlaginu á ísafirði
en þangað fluttist mjólkur-
fræðingurinn Halldór Guðni
Guðlaugsson þegar mjólkur-
vinnslu var hætt hjá MSB í
október 1995 og sér hann um
skyrframleiðsluna á Isafirði.
Sagði Halldór að skyrið á
ísafirði væri framleitt með
gömlu aðferðinni, eins og gert
var í Borgarnesi og skyrið
væri síðan síað í pokum og það
réði miklu um rétta bragðið.
Þegar Mjólkursamlag Borg-
firðinga hætti starfsemi sinni
fluttist megnið af framleiðsl-
unni í Búðardal og þar á með-
al skyrframleiðslan. Að sögn
heimildarmanna náðist ekki
rétta bragðið í Búðardal.
Þetta varð til þess að bræð-
urnir Jón og Stefán Haralds-
synir, eigendur verslunarinn-
ar JS í Borgarnesi, fóru að
leita fyrir sér. Fréttu þeir af
skyri með „rétta Borgarnes-
bragðinu" sem framleitt væri
á ísafirði og fóru að kaupa
það.
verði
FULLKOMIN óvissa er enn um kjör
forseta og 1. og 2. varaforseta Al-
þýðusambands Islands á 38. þingi
sambandsins, sem hefst á morgun
í Kópavogi. Benedikt Davíðsson,
forseti ASI, hefur engin svör gefið
um hvort hann gefur kost á sér til
endurkjörs og óvissa er um hversu
víðtæks stuðnings Hervar Gunnars-
son varaforseti nýtur en samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins nýtur
hann ekki óskipts stuðnings fulltrúa
Verkamannasambandsins.
Heimildarmenn Morgunblaðsins
innan ASI töldu, að héðan af yrði
ekki hjá því komist að kosningar
fari fram á þinginu.
Reynt að ná samkomulagi um
kjörnefnd
Einnig hefur gengið erfiðlega að
ná samkomulagi í nefndanefnd um
skipan 9 manna kjörnefndar þings-
ins sem fær það verkefni eftir helg-
ina að gera tillögur um frambjóð-
endur til forystu. Fundur, sem hald-
inn var á föstudag, reyndist árang-
urslaus en nefndanefnd kemur sam-
an á nýjan leik í dag til að gera
frekari tilraunir til samkomulags.
Nokkrir forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni hafa miklar áhyggjur
af því að yfirvofandi kosningaátök
á þinginu kunni að hafa alvarlegar
afleiðingar fyrir framtíð Alþýðu-
sambandsins. Undanfarna daga
hafa nokkrar árangurslausar til-
raunir verið gerðar til að ná sam-
komulagi milli stærstu landssam-
bandanna um skipan forystunnar á
næsta kjörtímabili.
Fimm starfshópar á vegum mið-
stjórnar hafa á undanförnum mán-
uðum unnið að undirbúningi stefnu
og starfsáætlun sambandsins sem
afgreiða á sem stefnuskrá ASÍ á
þinginu. í tillögum um fjárfesting-
arstefnu sem lagðar verða fram
segir að ASÍ telji sérstaklega mikil-
vægt að felldar verði niður allar
takmarkanir á fjárfestingu erlendra
aðila í sjávarútvegi og fiskveiði- og
atvinnuhagsmunir íslensku þjóðar-
innar tryggðir með því að setja
þeim sem fá heimild til að nýta
auðlindina þrengri skilyrði um ráð-
stöfun afla.
Yfir 500 þingfulltrúar
Þingsetning fer fram kl. 9.30 á
mánudagsmorgun og flytur þá
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ,
setningarræðu sína. Einnig ávarpa
gestir þingið. Yfir 500 þingfulltrúar
eiga rétt til setu á þinginu en með-
a! gesta þingsins eru fulltrúar Evr-
ópusamtaka verkalýðshreyfmga,
Norrænu verkalýðssamtakanna og
systursamtaka ASÍ á Norðurlönd-
unum.
■ Ráðaleysi/10