Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lágt hlutfall kvenna í útvarpsfréttum gagnrýnt af konum á Alþingi Menntamálaráðherra ínun ekki beita sér í málinu MENNTAMÁLARÁÐHERRA var gagnrýndur fyrir það af konum á Alþingi í gær, að vilja ekki beita sér fyrir því að hlutur kvenna í fréttum og umræðuþáttum í Ríkisútvarpinu verði aukinn en ráðherra telur að slíkt væri íhlutun í innri mál stofnun- arinnar. í fyrirspurnartíma á Alþingi spurði Siv Friðleifsdóttir Framsókn- arfiokki Björn Bjamason mennta- málaráðherra hvort hann hefði i hyggju að hvetja Ríkisútvarpið til að auka hlut kvenna í fréttum og umræðuþáttum. Vitnaði Siv m.a. til upplýsinga um rýran hlut kvenna í fréttum, svo sem að konur væru aðeins 18% viðmælenda fréttamanna Ríkissjónvarpsins. Björn sagðist ekki myndu beita sér sérstaklega í þessu máli, sem varðaði innra starf í Ríkisútvarpinu og iyti að sjálfstæði þess. Ríkisút- varpinu bæri sjálfu að gæta þess að jafnrétti væri í heiðri haft innan stofnunarinnar. „Svekkjandi svar“ Töluverð umræða varð um þetta svar Björns og gagnrýndu nokkrar konur í hópi þingmanna afstöðu Björns. Siv sagði að svar Björns hefði verið afar svekkjandi og rislít- ið. Ríkisútvarpið hefði ekki jafnrétti í heiðri og skilaboð ráðherrans væru einfaldlega þau að það ætti að drolla áfram í sömu förum. Siv sagði greinilega afar langt í land í jafnrétt- ismálum þegar svona svör fengjust. Arnþrúður Karlsdóttir Framsókn- arflokki hvatti menntamálaráðherra til að leita leiða, sem mættu verða til að ijölga konum í hópi þátttak- enda í fréttatímum og öðrum dag- skrárliðum Ríkisútvarpsins. Með slíku væri hann ekki að skipta sér af innra starfi stofnunarinnar heldur að vinna sitt verk. Krjstín Ástgeirsdóttir Kvennalista sagðist hafa staðið í þeirri meiningu að það væri hlutverk menntamáia- ráðherra að sjá um að lögum væri framfylgt, ekki síst í stofnunum sem heyrðu undir hann en í gildi væru jafnréttislög og fyrri ríkisstjórn hefði samþykkt sérstaka jafnréttisáætlun. Rannveig Guðmundsdóttir Al- þýðuflokki að mikið ójafnrétti væri í umfjöllun fjölmiðla um þingmál. Konur væru 25% þingmanna en það væri mat þeirra allra að umfjöllun um málefni sem þær stæðu fyrir, væri minni en sem þessu hlutfalli næmi. Út fyrir verksvið Björn sagði fyrirspurnina hafa snúist um hlut kvenna í fréttum og umræðuþáttum. Og ef menntamála- ráðherra ætti að fara að gefa Ríkis- útvarpinu fyrirmæli um að auka bæri hlut kvenna í fréttum og um- ræðuþáttum þá væri hann kominn langt út fyrir verksvið sitt. Björn sagði að ljóst væri af skýrslum, að hlutur kvenna mætti vafalaust vera betri ef fullt jafnrétti ætti að gilda, en erfitt væri að beita jafnréttis- reglu þegar um væri að ræða fréttir og umræðuþætti. Björn sagðist sjálf- ur hafa verið blaðamaður í 12 ár, og ef hann hefði átt að ákveða og skrifa fréttir með hliðsjón af því hvort karl eða kona ætti í hlut, hefði hann lent í miklum vandræðum. Björn sagði að ekki væri hægt að setja í jafnréttislög ákvæði um að skrifa bæri fréttir á grundvelli þeirra. Ríkisútvarpinu bæri að fara að jafn- réttislögum ella gætu ráðherra og Alþingi tekið í taumana en fyrirspurn Sivjar hefði ekki snúist um það. Framkvæmd- um í Austur- stræti frestað BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu um breytta forgangsröðun framkvæmda í miðborginni. Ákvörðunin var tekin í samráði við atvinnurekendur með rekstur í aust- urhluta Austurstrætis og verður framkvæmdum þar frestað til næsta vors. í erindi borgarverkfræðings til borgarráðs kemur fram að atvinnu- rekendur í Austurstræti telja að besti viðskiptatíminn sé í júlí og fram í september og lögðu þeir til að framkvæmdir hæfust snemma vors eða 1. mars. Þá segir að sóknarnefnd Dóm- kirkjunnar hafí ákveðið að fresta viðgerðum og endurbótum á kirkj- unni og því er lagt til að frestað verði endurbyggingu Templara- sunds. Er því lagt til að áætlun við gatnagerð í miðbænum verði breytt þannig að til framkvæmda við Hverfisgötu verði veitt 41 millj., til Skólavörðuholts, 38 millj., til Skipti- stöðvar SVR, 37 millj. til Austur- strætis, 5 millj. og til Templara- sunds 1 millj. Þá er gert ráð fyrir 12 millj. til gönguleiða. Grétar tekinn við Morgunblaðið/Jón Svavarsson GRÉTAR Þorsteinsson nýkjörinn forseti Alþýðusam- bands íslands tók í gær við lyklavöldum í húsnæði sambandsins við Grensásveg. Hér má sjá Grétar við skrifborð sitt og að baki honum standa varaforset- arnir Hervar Gunnarsson og Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir og Benedikt Davíðsson fráfarandi forseti ASÍ. ■ 80 ára afmælishátíð/10 Hallaði í stjór Morgunblaðið/RAX SÓLEY SH-124 tók að halla í dráttarvagni þegar verið var að taka bátinn í slipp Stálsmiðjunn- ar í Reykjavík laust eftir kl 17 í gær. Nokkrir starfsmenn Stál- smiðjunnar voru á dráttarsleðan- um, að minnsta kosti þrír á göngubrú til hliðar við skipið og fjórir fremst á sleðanum. Þegar báturinn tók að hallast sáu þeir á göngubrúnni sitt óvænna og stukku í sjóinn til að forða sér, hinir óðu í land. I óðagotinu hras- aði einn mannanna úr stiga og meiddist við það á hné. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynn- ingar. Dráttarsleðanum var slakað út aftur og báturinn réttist við þegar hann fór á flot á ný. Sóley SH er 144 brúttórúmlesta skip og rúmlega 23 metra langt. Þrennt úrskurðað í gæsluvarðhald Réðust gegn hús- ráðanda, skáru hann og rændu TVEIR karlmenn og ein kona hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 5. júní, vegna árásar á hálfsextugan mann aðfaranótt sunnudags. Mað- urinn leitaði ásjár nágranna um nótt- ina og blæddi þá mjög úr djúpum skurði í andliti hans og á hálsi. Maðurinn býr í kjallaraíbúð í Mosgerði og kom heim til sín ásamt konu um nóttina. Skömmu síðar knúðu tveir menn dyra og voru þar komnir félagar konunnar. Húsráð- andi opnaði dyrnar og ruddust mennirnir tveir þá inn. í átökum, sem á eftir fylgdu, fékk húsráðandi skurð á kjálkabarð, niður á háls og höku og blæddi mjög mik- ið. Mennirnir tveir og konan hurfu á brott og höfðu með sér ýmsa smá- muni í eigu mannsins og lága fjár- hæð, sem þau fundu í íbúðinni. Þegar fólkið var farið leitaði mað- urinn ásjár nágranna, sem kallaði eftir lögreglu og sjúkrabíl. Hann var fluttur á slysadeild, þar sem gert var að áverkum hans. Rannsóknarlögregla ríkisins, sem fer með rannsókn málsins, hafði uppi á öðrum manninum og konunni á sunnudag og voru þau úrskurðuð í gæsluvarðhald til 5. júní. Hinn maðurinn var svo handtekinn á mánudag og er gæsluvarðhald hans til sama tíma. Fólkið hefur „eitthvað komið hér við sögu áður“, að sögn lögreglu. Orkan lækkaði bensínverð Munar sex krónum á lítra VERÐ lækkaði um tvær krónur lítrinn af 95 og 98 oktana bens- íni hjá Orkunni hf. síðastliðinn laugardag. Óskar Magnússon, stjómarformaður Orkunnar, segir að verð á hvern lítra sé sex krónum lægra hjá Orkunni en venjulegt verð er hjá hinum olíufélögunum. „Við höfum lengst af boðið lítrann á 4-5 kr. lægra verði svo þetta er mesta verðbil sem hef- ur sést. Lækkunin er m.a. svar við samkeppni sem kom frá einu olíufélaganna sl. laugardag þar sem boðinn var fimm kr. af- sláttur," sagði Óskar. Hann sagði að hjá Orkunni væri meira farið eftir markaðs- aðstæðum hérlendis við verð- lagningu en hjá öðrum olíufé- lögum. Félagið væri þó ekki fremur en önnur olíuféiög óháð verðbreytingum sem verða á heimsmarkaði. Óskar sagði að til athugunar væri enn frekari lækkun á bensíni hjá Orkunni í takt við lægra heimsmarkaðs- verð. Kona lagði konu hnífi KONA fékk djúpan skurð á handlegg þegar nágrannakona hennar lagði til hennar með hnífi á laugardagskvöld. Nágrannakonan kom í heim- sókn og vildi ræða við húsráð- anda. Konunum sinnaðist og lauk deilum þeirra svo að sú gestkomandi dró upp hníf og lagði til húsráðanda. Særða konan var flutt með sjúkrabíl á slysadeild, þar sem gert var að sárum hennar, en árásarkonan var flutt í fanga- geymslur. Hún var leidd fyrir dómara og úrskurðuð í gæslu- varðhald, sem rennur út í dag, miðvikudag. Málið liggur ljóst fyrir og verður konunni því að líkindum sleppt úr haldi í dag. Atta piltar réðust á einn ÁTTA unglingspiltar réðust á einn á Hverfisgötu við Þjóðleik- húsið aðfaranótt laugardags, en lögregla skarst í leikinn og náði að handtaka sjö þeirra. Þrír piltanna voru vopnaðir lurkum og steypustyrktarj árni. Pilturinn, sem ráðist var á, var barinn í kviðinn, bak og andlit í þessum ójöfnu átökum og var gert að meiðslum hans á slysa- deild. Atvinnu- miðlun fær styrk BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu atvinnu- og ferðamála- stofu Reykjavíkurborgar um að styrkja Atvinnumiðlun náms- manna um 200.000 krónur. í erindi atvinnumiðlunarinn- ar kemur fram að Stúdentaráð hafi rekið miðlunina í sautján ár. Að henni standa, auk Stúd- entaráðs, Bandalag íslenskra sérskólanema, Samband ís- lenskra námsmanna erlendis og Félag framhaldsskólanema. A siðasta ari leituðu tæplega 1.100 námsmenn til miðlunar- innar og tókst að útvega um 500 þeirra atvinnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.