Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Minnast 150 ára afmælis Menntaskólans í Reykjavík
Ríkið dæmt bótaskylt þar sem læknir hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu
Allir stúd-
entar frá MR
fá afmælisrit
sent heim
SKÓLAFÉLAG Menntaskólans í
Reykjavík hefur gefið út afmæl-
isrit í tilefni 150 ára afmælis
Menntaskólans. Ritið er gefið út
í níuþúsund eintökum og verður
dreift til allra núverandi nem-
enda og stúdenta úr Menntaskól-
anum i Reykjavík.
Ritið var unnið af átta manna
ritnefnd auk þess sem fjöldi
greina eftir fyrrverandi nemend-
ur eru í því. Það var aðallega
fjármagnað með styrkjum og
auglýsingum en kostnaður við
blaðið nemur að sögn ritstjórans,
Davíðs Guðjónssonar, rúmum
fjórum milljónum króna. I ritinu
er fjöldi ljósmynda, gamalla og
nýrra og eru margar þeirra
fengnar úr myndasafni skólans.
Ritið er tæpar 190 síður.
Þórlindur Kjartansson,
Inspector scolae, segir hugmynd-
ina að útgáfu afmælisrits hafa
vaknað á síðasta ári og í byrjun
þessa árs hafi vinnan við það
hafist fyrir alvöru. í ávarpi Þór-
linds í ritinu fer hann nokkrum
orðum um aðstöðu og húsnæðis-
mál skólans sem hann segir
skammarleg. Hann segir merki-
legt að þegar gamlir MR-ingar
heimsæki skólann þá virðist þeir
ánægðir með hversu lítið hafi
breyst. „Þetta er kannski ástæða
þess að þeir fjölmörgu MR-ingar
sem eru í prýðilegri aðstöðu til
að gera úrbætur mögulegar
hreyfa hvorki legg né lið.“
Blaðinu er skipt í þijá hluta.
í fyrsta hiuta eru greinar um
sögu skólans. Þar er saga skóla-
blaðsins rifjuð upp, greinar um
Herranótt, Selið, Menntaskóla-
húsið, íþöku og fleira. Viðfangs-
efni annars hluta eru nemendur
skólans fyrr og síðar. Elsti stúd-
Morgunblaðið/Kristinn
ÞÓRLINDUR Kjartansson, Inspector scolae, og Davíð Guðjóns-
son ritstjóri með afmælisrit Skólafélags Menntaskólans í Reykja-
vík, sem gefið er út í tilefni 150 ára afmælis skólans.
ent MR, Þorsteinn Jóhannesson,
er tekinn tali, þar er Skólasaga,
áður óbirt smásaga eftir Davíð
Oddsson, viðtal við Guðna Guð-
mundsson, fyrrverandi rektor,
smásaga eftir Pétur Gunnarsson
og fleira. Þriðji hluti ritsins er
skólablað MR.
Davíð Guðjónsson segir mikla
vinnu liggja að baki ritinu og
hafi hún aðallega hvílt á ritstjór-
unum þremur, sem allir eru að
ljúka stúdentsprófum nú í vor.
Alagið náði hámarki einmitt á
sama tíma og prófin stóðu yfir
og segir hann vinnuna við ritið
óhjákvæmilega hafa komið niður
á einkunnum. Davíð segir að
kapp verði lagt á að Ijúka dreif-
ingu ritsins á höfuðborgarsvæð-
inu í dag en MR útskrifar stúd-
enta á morgun, fimmtudag.
Hálfs árs
fangelsi
fyrir
manndráp
af gáleysi
HÉRAÐSDÓMUR Austur-
lands hefur dæmt 22 ára
gamlan mann í 6 manaða
fangelsi, þar af 3 mánuði
skilorðsbundið, fyrir mann-
dráp af gáleysi. Hann er
jafnframt sviptur ökurétti í
fimm ár. Maðurinn olli bana-
slysi í umferðinni aðfaranótt
1. október sl, þegar hann
undir áhrifum áfengis ók bíl
út af Norðfjarðarvegi. 21 árs
gömul kona sem var farþegi
í bílnum var látin þegar hún
komst undir læknishendur.
Ók of hratt
í niðurstöðum dómsins
segir að sannað sé að maður-
inn, sem kvaðst hafa verið á
80-90 km/klst hraða, hafi
ekið bifreið sinni of hratt
miðað við aðstæður. Ljóst sé
af framburði vitna að að-
stæður til aksturs hafi verið
mjög slæmar, rigning, rok,
mikið myrkur og ekki lýsing
við veginn.
Óhæfur til að stjórna
ökutæki
Þá sé sannað, m.a. með
niðurstöðu blóðrannsóknar,
að maðurinn hafi verið óhæf-
ur til að stjórna ökutæki
vegna áfengisáhrifa þegar
slysið varð.
Refsing hans var ákveðin
6 mánaða fangelsi og var
hún skilorðsbundin að hálfu
leyti til tveggja ára. Þá var
maðurinn jafnframt sviptur
ökurétti í fimm ár og dæmd-
ur til að greiða sakarkostnað
allan.
Ríkið borgi kostnað af
bandarískri lýtaaðgerð
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt ís-
lenska ríkið til að greiða konu í Hafnarfirði 230
þúsund krónur með vöxtum. Um er að ræða kostn-
að konunnar af því að leita til bandarísks lýtalækn-
is, eftir að hafa gengist undir tvær lýtaaðgerðir á
nefí hérlendis.
Að mati landlæknís var árangur aðgerðanna
tveggja, sem gerðar voru hér á landi, óviðunandi
og bentí aðgerðarlýsing bandaríska læknisins til
þess að þær hefðu ekki verið rétt gerðar. Dómur-
inn byggist ekki á því að íslenski læknirinn hafi
gert mistök heldur hafí hann ekki sinnt upplýsinga-
skyldu við konuna um þá áhættu sem í aðgerðunum
fólst.
í aðgerðarlýsingu bandaríska læknisins segir
m.a. að bijósk úr nefí hafí verið fjarlægt á ónærfær-
inn hátt, þannig að ekki samræmist tilhlýðilegum
aðgerðum við lýtaaðgerð á nefí og nefbroddurinn
hafí verið skilinn eftir án stuðnings. Konan taldi
að við aðgerðimar á handlækningadeild Landspítal-
ans hafi útlitslýti hennar versnað til muna. Konan
taldi að þótt hún hefði ekki mátt ganga út frá því
að fá bót meina sinna hefði hún mátt ganga út
frá því að lýtin versnuðu ekki við aðgerðimar.
Fyrir fyrri aðgerðina hafi henni ekki verið gerð
grein fyrir því að árangur væri torfenginn.
Treysti sér ekki í þriðju aðgerðina
hjá lækninum
Konan gekkst því á eigin kostnað undir þriðju
aðgerðina hjá lýtalækni í Kalifomíu sem systir
hennar kom henni í samband við. í dómsmálinu
hélt hún því fram að ekki væri hægt að ætlast til
þess að hún gengist í þriðja sinn undir aðgerð hjá
lýtalækninum sem þegar hafði gert tvær aðgerðir
me_ð þem afleiðingum að neflýtið fór versnandi.
I dómsmálinu var deilt um hvort árangur lækn-
isins á íslandi hafí talist saknæm, læknisfræðileg
mistök, eins og konan taldi, eða áfangi að viðun-
andi árangri. Af hálfu íslenska ríkisins kom m.a.
fram að vel þekkt væri að gera þurfi tvær eða fleiri
aðgerðir áður en nefaðgerð beri viðunandi árangur.
Dómurinn taldi ekki að aðgerðarlýsing banda-
ríska læknisins hnekkti þeirri aðgerðarlýsingu í
sjúkraskrám Landspítala að miðnesið hafi ekki
verið fjarlægt heldur hafi verið losað um miðnesið
og það fært til til að lagfæra skekkju á nefinu.
Saknæm mistök
læknisins ósönnuð
Dómurinn taldi ekki í ljós leitt af hvaða orsökum
nefíð afmyndaðist eftir síðari aðgerðina hér á landi
þannig að það fékk á sig mynd páfagauksnefs.
Ósannað sé að um saknæm mistök læknisins, sem
aðgerðina framdi, hafí verið að ræða.
Hins vegar féllst dómurinn á það með konunni
að lækninum hafí borið að skýra henni frá áhættum
sem aðgerðinni fylgdu, einkum í ljósi þess hversu
þekkt það sé í nefaðgerðum að þær takist ekki í
fyrsta og jafnvel ekki í annað skipti.
Þar sem lækninum hafí ekki tekist að sanna að
hann hafí leiðbeint konunni um það beri honum
að bæta henni það tjón sem hún varð fyrir vegna
þess að upplýsingaskyldunni var ekki sinnt, „en
með því að fá ekki umræddar upplýsingar var stefn-
andi svipt þeim möguleika að taka afstöðu til þeirr-
ar áhættu, sem aðgerð fylgdi,“ segir í dóminum.
Konunni verði ekki lagt það til lasts að hafa
ekki treyst sér í þriðju aðgerðina hjá lækninum og
að hafa ekki frekar en hún gerði leitað til annarra
íslenskra lýtalækna enda þótt ótti hennar við frek-
ari aðgerðir hérlendis kunni að vera ástæðulaus.
Kröfur hennar hvað varðar fararkostnað og
ferðatryggingar voru teknar til greina svo og kröf-
ur varðandi lækniskostnað ytra.
Ósannað að aðgerð hérlendis
hefði orðið ódýrari
Sjúkrahúskostnaður hennar í Bandaríkjunum
nam 144.744 krónum og að meðtöldum kostnaði
við ferðir og tryggingar lagði hún út rúmlega 230
þúsund krónur vegna aðgerðarinnar vestanhafs.
Dómurinn gerði íslenska ríkinu, vinnuveitanda
íslenska læknisins, að endurgreiða henni þá fjár-
hæð. I dóminum segir að kostnaðurinn þyki ekki
óhóflegur og hafi íslenska ríkið ekki sýnt fram á
að aðgerð hérlendis hefði orðið ódýrari en hvorki
hafi verið upplýst um daggjöld né kostnað við
sambærilegt læknisverk á Landspítalanum. Einnig
var ríkinu gert að greiða konunni 80 þúsund krón-
ur í málskostnað.
Hins vegar var kröfum konunnar um missi at-
vinnutekna og miskabætur hafnað. „Ljóst er að
[konan] fékk á endanum nef, sem hún telur sig
geta unað við, svo ekki er um varanlegan miska
að ræða,“ segir í dóminum, sem Sigríður Ólafsdótt-
ir héraðsdómari kvað upp ásamt meðdómendunum
Jens Kjartanssyni lýtalækni og Friðrik Kr. Guð-
brandssyni háls-, nef- og eyrnalækni.
Þjófnaðir um
helgina
Gaskútar,
golfkylfur
og geisla-
spilarar
NÍTJÁN innbrot og fjórtán þjófn-
aðir voru tilkynnt til lögreglu um
hvítasunnuhelgina. Þýfíð var af
ýmsu tagi, en sem fyrr voru
hljómtæki og slíkur búnaður efst
á vinsældalista afbrotamann-
anna. Geisladiskum var stolið úr
bíl við Dalhús, gaskút úr kjallara
húss við Melbraut og tvær ungl-
ingsstúlkur voru gripnar í Kringl-
unni með jakka sem þær höfðu
hnuplað í verslun. Þá voru geisla-
spilarar teknir úr tveimur bílum
við Hraunbæ, einum við Sveig-
hús og öðrum við Melbæ og golf-
kylfur hurfu í innbroti á golfvöll-
inn í Grafarvogi.
Gaskútur var fjarlægður af
grilli við Vorsabæ, þvottur af
snúrum við Akurgerði, geislaspil-
ari og geisladiskar úr húsi við
Hábæ og farsími og geisladiskar
úr bíl við Tryggvagötu. Auk
þessa hurfu reiðhjól og piltar
voru gripnir við bensínstuld.
Endurbætur á
Skólavörðuholti
Horn Eiríks-
götu o g
Njarðargötu
lagfært
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
fyrsta áfanga framkvæmda á
Skólavörðuholti. Gert er ráð fyr-
ir að í sumar verði lagfært horn
Eiríksgötu og Njarðargötu.
í erindi borgarverkfræðings
segir að ekki þyki rétt að hefja
framkvæmdir innan lóðamarka
kirkjunnar meðan viðræður við
sóknarnefnd og ráðuneyti standa
yfír um þátttöku í verkinu. Lag-
færingar við horn Eiríksgötu og
Njarðargötu hafa í för með sér
að aðkoma að leikskóla og lista-
safni verður bætt og rammi
fenginn um framkvæmdasvæðið
á holtinu. Ljóst er að áfanginn
er að stærstum hluta gatnagerð.
Sluppu lerk-
aðir frá veltu
BIFREIÐ valt á veginum upp
að gömlu öskuhaugum Hafnfírð-
inga á Hamranesi á laugardag.
Fjórir unglingspiltar sluppu
ómeiddir, en lerkaðir og aumir.
Ökumaðurinn ók amen'skum,
kraftmiklum bíl sínum eftir veg-
inum og upp á hæðarbrún, en
varaði sig ekki á að vegurinn
beygði hinum megin við hæðina.
Hann náði ekki beygjunni, bíllinn
skall á stóru gijóti og valt út
fyrir veg. Piltarnir fjórir fóru af
eigin rammleik á slysadeild, til
að láta huga að meiðslum, en
lögregla taldi stolt þeirra særð-
ara en líkamann.
Dómsmála-
ráðuneytið
Nýr yfirlög-
regluþjónn
JÓNMUNDUR Kjartanson yf-
irlögregluþjónn hjá sýslumann-
inum á Selfossi hefur verið skip-
aður í embætti yfírlögregluþjóns
í dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu frá 1. júlí.
Embættið var auglýst laust
til umsóknar fyrr í mánuðinum
og rann umsóknafrestur út hinn
15. maí síðastliðinn. Umsækj-
endur voru sjö.