Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 68
33YUNDA1 Hátækni til framfara BS Tækniyal SkeKunni 17 • Slml 568-1665 MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 8040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Fjöldi fylgdist með blöðrusel í Eyjum Gengið hefur verið frá skiptingu Columbia Aluminum Corp. Hugað að nýju að staðsetningu álvers GENGIÐ hefur verið frá skiptingu bandaríska álfyrirtækisins Columb- ia Aluminum Corporation, þannig að nú á ekkert að vera því til fyrir- stöðu að tekinn verði upp þráðurinn þar sem frá var horfið varðandi staðsetningu á nýju álveri fyrirtæk- isins sem keypt var í Þýskalandi. Kenneth D. Peterson, eigandi og forstjóri fyrirtækisins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gærkveldi að málið hefði verið í biðstöðu í hálft ár, en nú yrði hafist handa á nýjan leik að finna álverinu stað. Fundur forsvarsmanna fyrirtækis- ins og fulltrúa Landsvirkjunar og íslenskra stjórnvalda hefur verið ákveðinn snemma í júnímánuði og verður fundurinn haldinn erlendis. Fyrirtækinu er skipt milli aðaleig- anda þess, Kenneth Petersons, ann- ars vegar og hins vegar starfs- manna sem áttu talsverðan hluta í fyrirtækinu. Starfsmennirnir fá Goldendale álbræðslufyrirtækið í sinn hlut og hafnaraðstöðu í Port- land í Oregon, en Peterson fær full yfirráð yfir Columbia fyrirtækinu sem heitir eftir breytinguna Col- umbia Ventures Corporation. Það fær í sinn hlut ýmis fyrirtæki í úr- vinnslu á áli og endurvinnslu, auk álbræðslunnar sem keypt var í Þýskalandi og eftir á að finna stað, og auk mikilla fjármuna, samkvæmt fréttatilkynningu um skiptinguna. Kenneth Peterson sagði að málið hefði verið í biðstöðu meðan á endurskipulagningu fyrirtækisins hefði staðið og þráðurinn yrði nú tekinn upp þar sem frá var horfið. Hann sagði að svo stutt væri liðið frá lokum endurskipulagningarinn- ar að hann gæti ekkert fullyrt um hvenær ákvörðun gæti legið fyrir varðandi staðsetningu á álverinu, en ákvörðun yrði hraðað eins og kostur væri. Upphaflega komu fjórir staðir til greina undir nýja álverið, en þeim fækkaði fljótlega í tvo, ísland og Venezúela. Kenneth Peterson kom ásamt samstarfsmönnum sínum hingað til lands í haust til að skoða aðstæður á Grundartanga fyrir ál- verið. Vestmannaejjura. Morgunblaðið. BLÖÐRU SELUR tók land í fjör- unni í Brimurðinni í Vestmanna- eyjum um helgina og Iét fara vel um sig þar. Krislján Egilsson, forstöðumað- ur Náttúrugripasafnsins, sagðist hafa farið strax í Brimurðina eftir að hann var látinn vita af selnum og hafi hann þá legið í fjörunni. Fljótlega hafi borið að fjölda fólks ásamt hundi og hafi selurinn þá orðið mjög illilegur og urrað mik- ið áður en hann kom sér í sjóinn og hvarf. Kristján sagðist siðan hafa séð hann aftur á sama stað á sunnudaginn. Kristján sagði að hægt hefði verið að fara alveg að selnum áður en hann fór að ókyrr- ast, en hann hefði blásið upp blöðruna og hvæst illilega þegar honum fannst sér ógnað. Selurinn var mikill bolti og sagðist Kristján telja að hann hefði verið um þrír metrar að lengd og örugglega vegið um hálft tonn. Kristján sagð- ist ekki vita til þess að fullvaxinn blöðruselur hefði áður sést á landi í Eyjum en nokkrum sinnum hefðu blöðruselskópar sést þar í fjörum. Hann sagði heimkynni selsins á isnum milli íslands og Grænlands og væri talið að um 500 þúsund selir væru þar. Forseti írlands í heimsókn FRÚ Mary Robinson, forseti ír- lands, og Nicholas eiginmaður hennar komu í opinbera heimsókn hingað til lands í gærmorgun. Hjónin heimsóttu í gær Hæsta- rétt, Alþingi, Listasafn Islands og Árnastofnun. I dag munu þau heimsækja Háskóla Islands og Kjarvalsstaði og sitja hádegisverðarboð Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra í Höfða. Til stóð að fara í dag með þyrlu Landhelg- isgæzlunnar að Gullfossi, Geysi og til Þingvalla, en veðurútlit var óhagstætt og var förinni frestað þangað til á morgun. í gærkvöldi sátu forsetahjónin kvöldverðar- boð frú Vigdísar Finnbogadóttur á Hótel Sögu, og var myndin tek- in við upphaf þess. ■ Dagskránni breytt/12 Jón Steinar Gunnlaugsson formaður yfirkjörstjórnar víkur sæti Nálgast hneisu fyrir þjóð- 'ina að kjósa Olaf Ragnar Umboðsmadur Ólafs Ragnars gagn- rýnir ummæli Jóns Steinars harðlega JÓN Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík, hefur ákveðið að víkja sæti úr yfirkjör- stjórninni vegna framboðs Ólafs Ragnars Grímssonar til kjörs for- seta íslands. í greinargerð sem Jón Steinar hefur sent frá sér segist hann oft hafa fjallað opinberlega og fyrir dómi um óverjandi fram- k'omu Ólafs Ragnars í opinberum stöðum. Hann geti því ekki gætt hlutleysis gagnvart framboði Olafs Ragnars og Ólafi væri óréttur gerður ef hann þyrfti að una því að Jón Steinar starfaði í yfirkjör- stjórn í forsetakosningunum. Jón Steinar rekur þrjú dómsmál í þessu sambandi; málefni Haf- skips, brottvikningu Magnúsar Thoroddsen, fyrrv. forseta Hæsta- réttar, og mál Þýsk-íslenska hf., og segir að Ólafur Ragnar hafi þar komið við sögu sem alþingismaður eða ráðherra með hætti sem teljist bæði siðlaus og á köflum löglaus. „Svo mikið er víst að ég tel það nálgast hneisu fyrir þjóðina að kjósa hann í embættið, þar sem störf hans á opinberum vettvangi undanfarin ár sýni að hann sé fjarri því að uppfylla þau skilyrði sem ég tel sæma þessu virðulegasta embætti þjóðarinnar,“ segir í greinargerð Jóns Steinars. Ólafur Ragnar vildi ekki tjá sig í gær um ákvörðun Jóns Steinars eða um þá gagnrýni sem fram kemur í greinargerð hans. Sigurð- ur G. Guðjónsson, hæstaréttarlög- maður og umboðsmaður Óiafs Ragnars gagnvart yfirkjörstjórn, gagnrýnir harðlega ákvörðun Jóns Steinars og segir að aldrei hafi komið fram hjá Jóni Steinari í sam- skiptum þeirra vegna undirbúnings að framboði Ólafs Ragnars að hann kynni að vera vanhæfur. „Niðurstaða mín af öllu þessu er sú, að núna þegar það liggur fyrir hveijir eru frambjóðendur og það liggur líka fyrir að Ólafur Ragnar hefur haft ákveðið forskot á keppinautana í skoðanakönnun- um, kjósi Jón Steinar að víkja úr sæti yfirkjörstjórnar til þess að geta beitt sér í þágu einhvers fram- bjóðanda, sem ég veit ekki hver er,“ sagði Sigurður. „Ef hann er að tala um þetta út frá stjórnsýslulögum, þá er það ekki í anda stjórnsýslunnar að sá embættismaður sem kýs að víkja sæti skuli nota tækifærið og sví- virða og lítillækka þann sem hann telur sig vera vanhæfan gagnvart." ■ Oft fjallað/14 ■ Ummælin/14 Þyrla sótti slasaðan mann ÞYRLA Landheigisgæslunnar sótti slasaðan mann til Neskaupstaðar síð- degis í gær. Maðurinn hafði verið einn á ferð úti í Barðsnesi og er tal- ið að hann hafi dottið. Að sögn lögreglu er ekki ljóst hvernig slysið vildi til. Mannsins var saknað að kvöldi mánudags og hófst leit í gærmorgun og fannst hann fijótlega. Var hann fluttur á sjúkra- húsið á Neskaupstað og þaðan með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Að sögn lögreglu er hann rifbeinsbrotinn auk þess sem annað lungað hafði fallið saman. ----------» ♦ »----- Göngubrú yfir Miklubraut BORGARRÁÐ hefur samþykkt að göngubrúin yfir Miklubraut á móts við Borgargerði verði byggð. Samþykktin er gerð með fyrirvara um að umhverfismálaráð samþykki göngutengsl. Lagt er til að gerð brú- arinnar verði samþykkt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.