Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 43
Vestfj arðastiklur
VIÐ skulum hugsa okkur að við
séum að áliðnum degi að taka land
á Brjánslæk á Barðaströnd á fyrsta
degi sex daga skemmtiferðar með
Ferðafélagi Islands um Vestfirði.
Brjánslækur er fornt höfuðból,
þar et' bryggja og viðkomustaður
flóabátsins. Við ökum vestur og
förum framhjá Rauðdalsskörðum
sem eru skörðótt klettabrík. Þar
var Sveinn skotti sonur Axlar-
Björns hengdur árið 1648.
Svefnpokagistingu er hægt að
fá í Krossholti, Orlygshöfn eða
Breiðuvík og bændagistingu er
sjálfsagt víðar hægt að fá á þessum
sióðum.
Næsta dag skulum við koma við
á Rauðasandi og ganga út að eyði-
býlinu Sjöundá og rifja upp þá
válegu atburði sem þar gerðust
árið 1802. Skáldsaga Gunnars
Gunnarssonar, Svartfugl, er byggð
á þeim atburðum og skal fólki ráð-
lagt að lesa þá bók áður en Sjö-
undá er heimsótt.
Frá Sjöundá göngum við út með
Hvammshltð og upp í Söðul og
horfum ofan í Skor þaðan sem
Eggert Ólafsson varalögmaður og
náttúrufræðingur hélt t sina hinstu
för vorið 1768. Eggert hafði ásamt
konu sinni haft vetursetu í Sauð-
lauksdal hjá mági sínum Birni
Halldórssyni en var á leið að Hofs-
stöðum í Miklaholtshreppi þar sem
hann hugðist heíja búskap.
Af Rauðasandi höldum við að
Hnjóti í Orlygshöfn og skoðum hið
merka byggðasafn sem þar er.
Þriðja dag ökum við um Látra-
heiði út á Keflavíkurbjarg með við-
komu á Brunnhæð þar sem við
MARÍUHORN.
skoðum Gvendarbrunn sem er eina
vatnsbólið á hinni löngu leið um
Látraheiði og á þar aldrei að þijóta
vatn. Látrabjarg er um 14 km langt
í heild og er Keflavíkurbjarg aust-
asti hluti þess en þangað hefur
verið lagður vegur. Eftir að við
höfum litast um hér austast á bjarg-
inu höldum við til baka og ef veður
er bjart skulum við yftrgefa bílinn
við urðarhjalla og ganga upp á
Ferðafélag íslands fer
um þessar slóðir, segir
Ólafur Sigurgeirsson,
29. júní til 4. júlí
nú í sumar,
Heiðnukinn þar sem Látrabjarg er
hæst, 441 m y.s. Síðan röltum við
eftir bjarginu niður að Bjargtanga-
vita. Þessi ganga tekur 3-4 tíma.
Þeir sem ekki treysta sér til
göngunnar geta farið með bflnum
niður að vita og gengið upp að
Ritugjá, sem er ákjósanlegur staður
til að virða fyrir sér hið iðandi fugla-
líf í bjarginu.
LÁTRABJARG.
Hjá Brunnum í Látravík er
Kúlureitur sem talinn er vera
Spánverjadys, þar er einnig afl-
raunasteinninn Júdas sem er 130
kg en afsleppur mjög og vont að
ná á honum taki.
Fjórða dag er ferðinni heitið til
ísafjarðar en við leggjum lykkju á
leið okkar og förum út í Selárdal
þar sem við skoðum hin sérstæðu
listaverk Samúels Jónssonar.
í Selárdal bjó séra Páll Björns-
son, einn lærðasti íslendingur á
sautjándu öld, en kunnastur fyrir
trú á galdra og galdraásóknir. Þar
bjó einnig einbúinn Gísli á Uppsöl-
um sem Ómar Ragnarsson gerði
frægan.
Fimmta dag förum við í siglingu
til Grunnavíkur þar sem var síð-
asta byggð í Jökulfjörðum en hún
lagðist í eyði árið 1962. Ef veður
er bjart er upplagt að ganga á
Maríuhorn en þaðan er gott útsýni
yfir Jökulfirðina. Eftir hæfilega
viðdvöl í Grunnavík er ætlunin að '
sigla inn Djúpið og koma í Vigur
og eiga þar nokkra viðdvöl. Sigl-
ingunni lýkur síðan í Ögurvík það-
an sem við ökum að Reykjanes-
skóla, síðasta náttstaðar okkar í
þessari ferð.
Sjötta dag ökum við um Stein-
grímsfjarðarheiði til Hólmavíkur
og þaðan sem leið liggur tii Reykja-
víkur og hugum að ýmsu sem á
leið okkar verður.
Hér hefur verið stiklað á stóru
en margt mun bera fyrir augu í
þessari ferð. Við rifjum upp sögtT *
margra þeirra staða sem á leið
okkar verða. Þegar við eigum leið
um eyðibyggðir þá reynum við að
gera okkur grein fyrir þeirri lífs-
baráttu sem þar var háð og því
mannlífi sem þar var lifað.
Ferðafélag Islands efnir til ferð-
ar um þessar slóðir 29. júní til 4.
júlí nú í sumar.
Höfundur er í Ferðafélagi íslands.
VINKLAR A TRÉ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
EINKAUMBOÐ
?8 Þ.Þ0RGRIMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 553 8640^. .
Sýnum ísraels-
ríki aðhald
ÞAð ER fagnaðar-
efni að kynþáttaað-
skilnaðarstefnan í S-
Afríku er óðum að þoka
fyrir lýðræði þar sem
meirihlutinn hefur loks
fengið pólitísk völd. Það
kostaði áratuga baráttu
róttækra afla um allan
heim og langvinnt við-
skiptabann sem ísland
tók m.a. þátt í.
Aðskilnaðarstefna
Israelsríkis
Að sama skapi er
sorglegt að það skuli
engan bilbug vera að
finna á aðskilnaðarstef-
unni sem Ísraelsríki rekur í Miðaust-
urlöndum. Palestínumenn hafa nú
fengið sjálfstjórnarsvæði, eins konar
„heimalönd" með takmörkuðu sjálf-
stæði, að sumu leyti svipað fyrir-
komulag og var í S-Afríku. Svæði
þessi eru ósamfelld og herskáir gyð-
ingar, svonefndir landnemar, halda
löndum og mannvirkjum á sjálf-
stjórnarsvæðunum. Miklu af eignum
þessum hefur verið rænt frá Palest-
ínumönnum, teknar herskildi eða
með eignarnámi. Reyndar er allt
land Israelsríkis ránsfengur sem
Vesturveldin og Ísraelsríki hafa
rænt í áföngum frá Palestínumönn-
um sem hrökkluðust undan á flótta
eða týndu lífi. Atvinnu- og viðskipta-
frelsi Palestínumanna er heft og
margir íbúar þessara palestínsku
svæða vinna í Israel. Þeir komast
ekki til vinnu mánuðum saman þeg-
ar ráðamenn ísraels eru í vondu
skapi og setja á útgöngubann og
loka leiðum. Nærri má geta hvaða
áhrif það hefur á efnahaginn. Að
einu leyti eru Palestínumenn betur
settir en blökkumenn í S-Afríku á
tíma aðskilnaðarstefnunnar: Þeir
eiga vísi að ríkisvaldi
sem nýtur alþjóðlegrar
viðurkenningar og sýn-
ir töluverðan siðferðis-
styrk við erfiðar að-
stæður.
Taka böðulinn sér
til fyrirmyndar?
Það er dapurleg stað-
reynd að ísrael kúgar
araba á svipaðan hátt
og Evrópumenn kúg-
uðu gyðinga áður. Pa-
lestínuarabar þurfa að
ganga með . sérstök
skírteini og sýna á ótal
stöðum er þeir ferðast
um eigið land og bílar
þeirra eru sérstaklega merktir. Pa-
lestínumenn mega ekki eiga vopn
en flestir Israelsmenn eru þrælvopn-
Hvenær kemur að því
— ______
að Israelsríki verður
settur stóllinn fyrir
dyrnar, spyr Þorvaldur
•• *
Orn Arnason, eða allt
þar til þeir fara að haga
sér eins og siðað fólk?
aðir, ekki síst landnemarnir svo-
nefndu. Undanfarin ár hafa Palest-
ínumenn háð frelsisstríð aðallega
með gijótkasti. Öfgasinnaðir Palest-
ínuarabar grípa stundum til örþrifar-
áða sem bitnar ekki aðeins á ísraels-
her heldur einnig á saklausu fólki
og eru fordæmdir fyrir um allan
heim. En hryðjuverk þeirra eru smá-
munir borin saman við þær hörm-
ungar sem Ísraelsríki lætur ganga
Þorvaldur
Örn Árnason
yfir aisaklaust fólk í Palestínu og í
nálægum ríkjum.
Það er alvarlegt mál þegar heilt
ríki hagar sér eins og verstu hryðju-
verkasamtök og stundar hóprefsing-
ar, sannkölluð fjöldamorð. Nýjasta
dæmið um það er margra vikna
linnulaus skotríð á þorp og flótta-
mannabúðir í Líbanon og er það
ekki í fyrsta skipti sem Líbanir fá
þvílíkar trakteringar frá nágrönnum
sínum.
Þeir þurfa aðhald!
Þrátt fyrir sífelld hryðjuverk og
grimmilega aðskilnaðarstefnu sem
grundvallast á trúarofstæki, nýtur
Israel viðurkenningar og stuðnings
vestrænna ríkja. Það þarf stjarn-
fræðilegar tölur til að lýsa efna-
hagsstuðningnum frá Bandaríkjun-
um. Það var tómahljóð í mótmælum
þessarra ríkja þegar eldflaugum
rigndi á flóttamannabúðir Sameinuð
þjóðanna í Líbanon og mátti skilja
sem svo að það væri í lagi að skjóta
á óbreytta borgara (undir því yftrsk-
ini að á meðal þeirra leyndust
hryðjuverkamenn) bara ef skotin
hæfðu ekki stöðvar SÞ. Á sama tíma
kom ísraelsk skáksveit hingað til að
tefla við íslendinga. ísraelsmenn láta
máttlaus mótmæli sem vind um eyru
þjóta og vita sem er að þeir fá áfram
það sem skiptir máli: milljarða frá
Bandaríkjunum og vinsamleg sam-
skipti við vestrænar þjóðir, m.a.
okkur íslendinga.
Hvenær kemur að því að ísraels-
ríki verður settur stóllinn fyrir dyrn-
ar og beitt þvingunum líkt og S-Afr-
íka áður, allt þar til þeir láta af
kúgun og aðskilnaðarstefnu og fara
að haga sér eins og siðað fólk? Stein-
grímur Hermannsson sýndi kjark og
hafði ófornflegt samband við Yasser
Arafat meðan hann var enn bann-
færður af Bandaríkjamönnum. Það
er vonandi að flokksbróðir hans,
Halldór Ásgrímsson, þori að víkja
út af stefnu Bandaríkjanna í málefn-
(um Palestínu og ísraels og fordæma
áþreifanlega ríki sem haga sér eins
og verstu hryðjuverkasamtök.
Höfundur er kennari og
líffræðingur og í stjórn fclagsins
Island Palestína.
Grand Cherokee 4.0 L Sport ’93, sjálfsk., ek.
26 þ. mílur. Toppeintak. V. 2,9 millj.
Toyota Corolla GTi Liftback '88, 5 g., ek. 132
þ. km., rafm. í rúöum, sóllúga, spoil er, ný
tímareim o.fl. V. 670 þús.
Toyota Corolla 4x4 GTi Touring '91, grár, 5 g., ek.
91 þ.km. rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 1.130 þ.
MMC Lancer GLX hlaðbakur '91, sjálfsk., ek. 86
þ.km., rafm. í rúðum o.fl. V. 780 þús. Tilboð 650 þ.
Grand Cherokee V-6 Limited '94, rauður,
sjálfsk., ek. aðeins 27 þ. km., leðurinnr., rafm. í
öllu, ABS, þjófavörn o.fl. V. 3.790 þús.
Toyota Corolla XL Sedan '92, vinrauður, 5 g.,
ek. aðeins 34 þ. km. Bein sala. V. 870 þús.
M. Benz 230E '86, sjálfsk., ABS, sóllúga o.fl.,
ek. 40 þ. km. á vél, Ijósblár. V. 1.390 þús.
MMC Pajero stuttur bensín '89, ek. að eins 54
þ. km., steingrár, 5 g. V. 960 þús.
Nissan Patrol GR langur '94, diesel, turbo,
steingrár, 31" dekk, rafd. rúöur o.fl. Ek. 98 þ.
km. V. 3.280 þús.
Nissan Sunny Sedan SLX '95, rafd. rúður o.fl.,
grænsans., ek. 12 þ. km. V. 1.250 þús.
Opel Astra 1.4i '96, 4ra dyra, ek. 3 þ. km.,
rauður, sjálfsk. V. 1.350 þús.
MMC L-300 Minibus 4x4 Turbo Diesel ‘88,
Grásans., 8 manna, ek. 114 þ.km. V. 960 þús.
MMC Pajero V-6 '91, blár, 5 g., ek. 90 þ. km.,
rafm. í rúðum o.fl. Fallegur jeppi. V. 1.430 þús.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
567-1800
Volvo 760 GLE '90, blár, sjálfsk., ek. 115 þ- km.,
sóllúga, álfelgur, rafm. í ölu, ABS o.fl. V. 1.490 þ.
Hyundai Pony GLSi Sedan '93, blár, 5 g., ek.
aðeins 27 þ. km. V. 770 þús.
Ford Ranger V-6 4x4 PUP '91, blár, 5 g., ek.
85 þ. km., álfelgur o.fl. Tilboðsverð 870 þús.
Daihatsu Charade Limited '92, 3 dyra, rauður,
5 g., ek. 62 þ. V. 640 þús.
Subaru Justy J-10 4x4 '85, 5 dyra, nýskoð
aður. v. 195 þ.
Daihatsu Charade CS ‘88, 5 dyra, rauð ur, ek.
96 þ. V. 300 þ.
Cherokee Limited 4.0 L '90, svartur, sjálfsk.,
ek. 93 þ. km., leðurklæddur o.fl. Tilboðsverö
1.790 þús.
Cherokee Pioneer 4.0 L '87, 5 dyra, sjálfsk.,
ek. aðeins 64 þ. km., óvenju gott eintak. V.
1.190 þús.
Ford Explorer XLT '93, sjálfsk., ek. 27 þ. km.,
sóllúga, rafm. í öllu, þjófavörn o.fl. V. 2,9 millj.
MMC Pajero langur (bensín) '88, 5 g., ek. 109
þ. km., mikið endurn., nýryðvarinn o.fl.
Toppeintak. V. 1.150 þús.
MMC Pajero V-6 langur '93, sjálfsk., ek. 39 þ.
km., sóllúga o.fl. V. 3 millj.
Subaru Justy J-12 4x4 '91, 5 dyra, ek. 69 þ.
km. V. 620 þús.
Toyota Corolla XLi '94,-3ja dyra, hvitur, ek. 39
þ. km., 5 g. V. 990 þús.
Grand Cherokee V-8 Limited ‘93, græns ans.,
sjálfsk., ek. aðeins 42 þ. km., rafm. í öllu,
leðurinnr. o.fl. V. 3.350 þús.
Nissan Sunny SLX 1.6 Sedan '92, sjálfsk., ek.
aðeins 54 þ. km., rafm. í rúðum, spoil er, 2
dekkjagangar o.fl. V. 930 þús.
Grand Cherokee Ltd. Orvis V-8 '95, sjálfsk.,
ek. aðeins 3 þ. km., leðurklæddur m/öllu. V.
4.450 þús.
Subaru Legacy 1.8 station '91, 5 g„ ek. 79 þ.
km., rafm. i rúðum o.fl. V. 1.150 þús. Sk. ód. <
Isuzu Sport Cap 2.4 (bensin) '91, grás ans, 5
g„ ek. 69 þ.km., álfelgur, veltigrind o.fl. V. 1.100
þús.
MMC Pajero V-6 langur '91, 5 g„ ek. 75 þ.
km„ góður jeppi. V. 1.890 þús.
Toyota Corolla GL Special series'91,5 g., ek
93 þ. km„ 5 dyra, rafm. i rúðum, samlæsingar,
blár. V. 690 þús.
Toyota Tercel 4x4 station '88, rauður, ek. 147
þ. km. V. 490 þús. Sk. ód.
Toyota Landcruiser diesel ‘87, 5 g„ ek. 190 þ.
km„ drif og gírkassar ný uppt., loftræstur aftan
og framan. Nýl. 38" dekk. Toppeintak. V. 1.870
þús.
Subaru Legacy 2.0 Station '93, grár, 5 g„ ek.
aðeins 49 þ. km. V. 1.490 þús.
Toyota Carina E '93, 5 dyra, rauður, 5 g„ ek.
55 þ. km. V. 1.450 þús.
MMC Colt GLXi '92, rauður, 5 g„ ek. 85 þ. km„
álfelgur, spoiler, rafm. í öllu o.fl. V. 860 þús.
Nissan Patrol diesel turbo Hi Roof (lang ur)
'86, 5 g„ ek. 220 þ. km., 36" dekk, spil o.fl.
Mikið endurn. V. 1.550 þús.
Hyundai Accent GS Sedan '95, ek. aðeins 4 þ.
km. V. 960 þús.
Toyota Landcruiser GX diesel Túrbo '93, 5
dyra, sjálfsk., ek. 77 þ. km„ 33" dekk, bret-
takantar, álfelgur o.fl. V. 3,9 millj. Sk. ód.
Nissan Terrano V-6 '95, 4ra dyra, sjálfsk., ek.
aðeins 12 þ. km„ sóllúga, rafm. í öllu. Sem nýr.
V. 3,3 millj.
Fjörug bílaviðskipti!
Vantar nýlega bíla
á sýningarsvæðið.