Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 49 Ólafs í Oddgeirshólum úr okkar augsýn. Mér finnst þó, að nú sé rík ástæða til fyrir alla vini og venslamenn Ólafs í Oddgeirshólum, að kveðja hann með stolti yfir hans glæsilega lífsstarfi og óska þess jafnframt, að í uppvaxandi kynslóðum sé fólk að ná þroska, sem muni halda áfram þeim merku störfum, þar sem Ólaf- ur varð að láta staðar numið. Blessuð veri minningin um hann Ólaf í Oddgeirshólum. Hjalti Gestsson. Móðurbróður minn og nafni var mikill sóma- og heiðursmaður. Við, sem vorum svo lánsöm að fá að dveljast á heimili hans og eftirlif- andi eiginkonu, Guðmundu Jó- hannsdóttur, sem börn og ungling- ar, fengum meiri og betri undirbún- ing til að takast á við verkefni lífs- ins en sumir okkar jafnaldra. Odd- geirshólaheimilin voru og eru þekkt fyrir fyrirmyndarbúskap og gest- risni eins og best þekkist í sveitum þessa lands. Nafni minn var greind- ur maður og fróður um margt. Hann var hreinlyndur, hreinskipt- inn og einstaklega hjálpsamur og greiðvikinn maður. Hann var rækt- unarmaður í víðtækustu merkingu þess orðs. Grámosi varð að grænum túnum. Skepnur umgekkst hann af alúð og nærgætni. Hann var ein- staklega barngóður og hlýr og sam- band hans við frændur og vini var einlægt og náið. Ég var í Oddgeirshólum um mán- aðartíma á vorin þegar sauðburður stóð sem hæst frá því ég man eftir mér og til 16 ára aldurs. Sama dag og síðasta prófi lauk var ég kominn að Oddgeirshólum. Eftirvæntingin og tilhlökkunin var slík að ég var aldrei við skólaslit í barna- og ungl- ingaskóla. Þegar ég hafði fundið borna á sem ég þekkti með nafni reyndi ég af bestu getu að gefa greinargóða lýsingu á skepnunni því þeim Olafi og Guðmundi nægðu ekki upplýs- ingar um hvort lömbin voru hrútar eðá gimbrar, stór eða smá. Allt var skráð í ættbækur. Ekki var natnin minni við kúabú- skapinn sem var að mestu í umsjá Ólafs. Nafni minn hafði gaman af að spila brids. Ég minnist þess þegar ég sem unglingur fékk að fara með að Oddgeirshólum þegar afi minn, Ólafur í Fagradal, var í heimsókn. Komið var við á Litlu-Reykjum og Páll Árnason tekinn með. Þau Munda og Óli töluðu oft um þá miklu gleði sem ríkti þegar gömlu mennirnir komu í heimsókn. Þá var mikið lagt á spilin. Með þessum fáu orðum vil ég kveðja nafna minn og frænda. Við Guðrún vottum þér, Munda mín, sonum þínum, Herði og Heiðari, Kristínu, dóttur ykkar, tengdabörn- unum og barnabörnum okkar dýpstu samúð. _ Ólafur Jónsson. Ólafi Árnasyni kynntist ég er hann flutti á Selfoss á vordögum 1985 ásamt konu sinni, Guðmundu Jóhannsdóttur. Þau höfðu þá rekið farsælan búskap í Oddgeirshólum í Hraungerðishreppi um árabil í félagi við bræður Olafs þá Guðmund og Jóhann. Af miklum dugnaði og með sam- stilltu átaki tókst þeim bræðrum að byggja upp og gera Oddgeirshóla að fengsælli bújörð með reisulegum byggingum sem skarta fagurlega með Bæjar- og Stangarklett í bak- gi'unn. Af sömu elju tókst þeim að koma sér upp afurðasælum bú- stofni. Sauðfjárræktunin í Oddgeirs- hólum er löngu landskunn. Úr þeim stofni hafa bændur víða að fengið kostagripi til kynbóta. Þótt Ólafur hafi hætt búskap var hugur hans heill og óskiptur við Oddgeirshóla og búskapinn þar. Hann hafði yndi af því að heimsækja sitt forna býli og virða fýrir sér þá glæstu hjörð, sem hann átti dijúgan þátt í að skapa. Honum var mikið í mun að frændum sínum, sem nú hafa tekið við ðbúskapnum þar, farnist vel. Er Ólafur Árnason fluttist að Suðurengi 14, sem er í nágrenni við mig, var það mér sönn ánægja. Á milli okkar bundust vináttubönd, sem aldrei féll skuggi á. Það kom fljótlega í ljós, að við áttum sameig- inleg áhugamál, sem við gátum í félagi sinnt. Margar stundir sátum við saman yfir kaffibolla og skegg- ræddum. Oftar en ekki var gripið í spil, en Ólafur var snjall spilamað- ur og erfiður viðureignar í þeim efnum. Það voru hlýir straumar, sem streymdu frá Ólafi Árnasyni. Hann var hafsjór af fróðleik, víðlesinn og bjó yfir góðu minni, sem sjaldan brást. Ég veitti því athygli hversu málfar hans var auðugt og frjótt. Orðaval er hann beitti oft svo skemmtilega í samræðum er ekki á hvers manns vörum nú til dag. Þegar ég innti hann eftir því hvar hann hefði numið sitt fijóa mál, þá sótt hann stafla af bréfum sem móðir hans, Elín Briem, hafði skrif- að. í þessum bréfum var mikinn fróðleik að finna á fögru og skýru máli. Ekki þurfti ég lengi að lesa ritgerðir Elínar Briem til þess að fá sönnur á hvaðan tungutak sonar- ins var komið. Ólafur var eftirsóknarverður og góður félagi, þáð fylgdi honum ávallt glaðværð og þægileg glettni. Hann var víðlesinn og kunni frá mörgu að segja og var bókin sá sjóður er hann sótti mest í. Hann viðaði að sér ýmsu efni, sem fengur var í, og varðveitti. Að eðlisfari var hann hógvær og lítillátur og sannur vinur vina sinna. Hann gat verið fastur fyrir ef svo bar undir og ákveðinn talsmaður þeirra er minna máttu sín í þjóðfélaginu og þoldi illa ranglæti og misskiptingu á lífs- ins gæðum. Umhyggja hans og hlýja gagn- vart börnum og unglingum var ein- stök. Þeir sem nutu góðvildar hans á æskuárum sínum hugsa hlýtt til velgjörðarmannsins á kveðjustund. Nú þegar ég kveð Ólaf Árnason í hinsta sinn er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa verið þess aðnjótandi að deila með honum ógleymanlegum stundum á liðnum árum. Aðstandendum öllum flytjum við hjónin okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Guðni B. Guðnason. Ólafur Árnason, bóndi, frá Odd- geirshólum í Flóa er fallinn frá eft- ir langan og strangan en farsælan starfsdag. Hann var valmenni í þess orðs fyllstu merkingu, traustur, trygg- lyndur og alvörugefinn maður, sem átti þó auðvelt með að sjá skoplegu hliðarnar á tilverunni. Hann var sjálfmenntaður gáfumaður og fylgdist grannt með á öllum sviðum þjóðlífsins. Börn og unglingar löð- uðust að honum og segir það sína sögu um, hvern mann hann hafði að geyma. Oddgeirshólaheimilið var annál- að rausnar- og menningarheimili, þar sem bræðurnir þrír ráku í sam- einingu fyrirmyndarbúskap eftir fráfall föður þeirra. Ólafur var elst- ur bræðranna og bar því hita og þunga af búskapnum að minnsta kosti til að byija með. Síðan urðu heimilin tvö, en áfram héldu þeir búrekstrinum í einni heild. Þar réðu vitsmunir ferðinni. Verkaskipting var hnitmiðuð og skýr og allt gekk þetta upp í sátt og samlyndi og búið blómstraði, svo að sómi var að. Það gerðu líka börnin og ungl- ingarnir, sem áttu því láni að fagna að dvelja þar sumar eftir sumar og njóta þess að þroskast í því and- rúmslofti sem þar ríkti. Oft furðaði maður sig á, hvað þeir bræður, Óli og Jói, voru viljugir að bregða á leik með krökkunum, þegar mjölt- um var lokið eftir annasaman dag. Enda var ásóknin mikil að komast austur. Fyrir það veganesti sem mín börn hlutu frá þessu góða heimili, er ég ævarandi þakklát. Ólafur var fæddur og uppalinn í Oddgeirshólum og helgaði búskapn- um þar alla sína starfskrafta. En svo þegar heilsan tók að bila, iét hann skynsemina ráða, eins og ævinlega, og bar gæfu til að gera þær ráðstafanir í tíma, að ævistarf- inu var borgið í höndum bróðurson- ar hans. Hann sá Oddgeirshóla halda áfram að vera það höfðings- býli sem þeir höfðu verið frá byijun aldarinnar, þegar foreldrar hans hófu þar búskap. Að leiðarlokum þakka ég Ólafi fyrir góð kynni og alla hans velvild mér og mínum til handa frá fyrstu tíð og óska honum velfarnaðar á nýju tilverustigi. Eiginkonu hans, dóttur og ást- vinum öllum votta ég innilega sam- úð mína og bið þeim guðs blessunar. Sigríður G. Jóhannsdóttir. Tíminn sem maður vonar að aldr- ei komi en kemur samt án þess að maður geti neitt að því gert er núna kominn. Það er kominn tími til að kveðja þig í síðasta sinn, elsku Óli minn. Ég mun ávallt sakna þin. Missirinn við andlát þitt er mikill fyrir þá sem eftir eru, en ég trúi því að þú hafir loksins fengið þá hvíld sem þú áttir skilið. Allt þitt líf hefur þú helgað vinnu og því að gera eitthvað fyrir aðra. Þú kvart- aðir aldrei yfir því að þurfa að gera eitthvað fyrir aðra, sama hvað það var. Á hveiju ári er sumarfríið nálg- aðist var alltaf eitt sem ég hlakk- aði til, og það var að komast í heim- sókn til þín og ömmu á Selfossi. Það var sama hversu oft og hvenær ég kom í heimsókn, ykkur tókst alltaf í hvert einasta sinn að fá mig til að líða vel og vera velkomin. Ég veit að ég er ekk ein um að líða þannig. Það var alltaf tekið vel á móti öllum gestum og allir voru velkomnir í heimsókn til ykkar. Það má vera að þú sért ekki líf- fræðilega séð afi minn. En í þessi tæp 19 ár sem ég hef lifað hefði ég ekki getað hugsað mér neinn betri afa en þig, Óli minn, og mun ávallt sakna þín. Ég elska þig, og allar þær góðu minningar sem ég hef um þig og þér mun ég aldrei gleyma. Guð veri með þér og þeim sem eftir lifa. Drífa. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN GÍSLADÓTTIR, Snælandi 7, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi, aðfaranótt 27. maí. Guðmundur Pálsson, Arnbjörg Handeland, Dag Handeland, Páll Guðmundsson, Steinunn Hákonardóttir, Anna Guðmundsdóttir, Óskar Þór Þráinsson, Þórhalla Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, MARGRÉT JÓSEFSDÓTTIR, Kleppsvegi 30, andaðist í Landspítalanum 26. maí. Fyrir hönd aðstandenda, synir hinnar látnu, Jón Ingi, Einar Þórir, Magnús. t Móðir mín, STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR frá Hvoli í Fljótshverfi, andaðist laugardaginn 25. maí. Fyrir hönd aðstandenda, Örn Steinar Sigurðsson. t Ástkær móðir okkar, VALGERÐUR SIGURVINSDÓTTIR frá Hlíðarhaga, til heimilis á Hríseyjargötu 21, Akureyri, lést á heimili sínu föstudaginn 24. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Borghildur Jóhannesdóttir, Jón Bjarni Jóhannesson, Sigurvin Guðlaugur Þór Jóhannesson, Sigríður Heiðbjört Sigtryggsdóttir. Elsku Óli, nú skrifa ég þér í síð- asta sinn og í þetta skipti á ég ekki von á svari. Síðan ég varð hluti af þinni fjölskyldu hef ég búið að miklu leyti í útlöndum og samband- ið því byggst á bréfaskriftum. Þrátt fyrir fjarlægð hafa börnin mín, afa- bömin þín, alltaf haft þig í hjarta sínu. Fyrir þeim var það stór eign að eiga Óla afa og ég hef ekki séð ástæðu til að flækja hug þeirra með þvílíku smáatriði að þú varst ekki blóðskyldur þeim. Þeir eru vafa- laust margir sem þekktu þig bæði lengur og betur en ég og þó finnst mér ég hafa sterka tilfinningu fyrir því hver þú varst. Að mér snéri traustur maður og barngóður, er þá einhveiju við að bæta? Þú varst hreinn og beinn og blátt áfram og því þurftu börn eða aðrir ekki að velkjast í vafa um hug þinn. Ég dáist að þér og yrði glöð ef ég gæti komist með tærnar þar sem þú hafðir hælana. Guðrún. + Móðir okkar og fósturmóðir, BENEDIKTA E. HAUKDAL, sem lést 22. maí sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 31. maí kl. 13.30. Sigurður Haukdal, Eggert Haukdal, Ásta Valdimarsdóttir. + Móðir mín og tilvonandi eiginkona, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Káratanga, verður jarðsungin frá Stóradalskirkju föstudaginn 31. maí kl. 14.00. Þöll og Valdimar. Sérlræðingar i blóniaskrcTtiiiguni við öll ta'kilæri lliblómaverkstæði WNNAfel Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 Opiö kl. 13-18 alla virka daga og laugardaga kl. 13-17. Nýbýlavegi 30, Dalbrekkumegin, Kópavogi, sími 564 3555.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.