Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 53 FRÉTTIR Grænlenskir landbúnaðarnemar í Þistilfirði og Langanesi Dvölin ánægjuleg og enginn með heimþrá Fastur liður í námi í bændaskólanum í Grænlandi er að starfa eitt ár á sauðfjárræktar- búi á íslandi. Fjórir ung- ir nemar skólans stunda sitt nám í nágrenni Þórshafnar. Líney Sig- urðardóttir hitti þetta unga fólk að máli. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir nýfætt lamb í fjárhúsinu á Efra-Lóni. ELONE Tittusen situr í stofunni á Yta-Álandi og gefur litlum hvolpi að borða. BÆNDASKÓLINN á Grænlandi er ekki stór og í árgangi nemendanna hér á íslandi eru aðeins fjórir. Þetta er þriggja ára nám og hefst með bóknámi í Grænlandi í einn vetur, þar næst heilt ár á íslensku fjárbúi og lokaáfanginn er einn vetur á grænlensku búi. Sú sj)urning gæti vaknað af hvetju Island vat’ð fyrir valinu en grænlensku bændanemarnir hafa til fjölda ára hiotið þjálfun á íslenskum sauðij'árbúum. Skýringin er sú að íslenskt sauðfjárkyn er á Græn- landi, en um síðustu aldamót var íslenskt fé flutt þangað, og einnig það að veðurfar á Suður-Grænlandi er mjög líkt því _sem gerist hér á norðausturhluta ísiands. Að sögn Grænlendinganna er veðurfarið jafnvel stöðugra þar og sumur yfir- leitt góð. Landbúnaður er einkum bundinn við suður- og vestur-Græn- land. Grænland er talin stærsta eyja, veraldar, 2,2 millj.ferkílómetra að stærð en þar búa aðeins 50 þúsund manns. Undir- lendi er lítið og rækt- unarskilyrði ekki góð. Það er því nokkrum erf- iðleikum bundið að safna heyi í vetrarforða en sumarbeitar- land er mjög kjarngott. Er Grænlaud fyrirheitna Iandið? I samtali við þessa ungu bænda- nema kom ýmislegt áhugavert í ljós þegar borinn var saman landbúnað- ur á íslandi og á Grænlandi, jafnvel hvarflaði það að spyrjanda hvort Grænland væri fyrirheitna landið fyrir sauðfjárbændur. Þar er enginn kvóti á sauðfjárrækt, hið opinbera, þ.e. landsstjórnin, á allar jarðirnar og styrkir til landbúnaðar miklir. Grænlendingar framleiða enn sem komið er ekki nægilegt magn af kjöti á innlandsmarkað en kaupa það erlendis frá, m.a. frá íslandi. Grænlenskur bóndi, sem hyggst byggja fjárhús fær 95% lánað frá landsstjórninni og þarf því aðeins að greiða út 5% af heildarkostnaðin- um en afganginn á 15-20 árum eft- ir stærð hússins. Svipað form er við kaup á vélum og tækjum. Algeng- ast er að bóndinn greiði út 5 - 10% af verði vélarinnar og eftirstöðvarn- ar á fimm eða tíu árum, sem þykir hæfilegur tími. Engar kýr á Grænlandi Á Ytra-Álandi í Þistilfirði búa hjónin Skúli Ragnarsson og Bjarn- veig Skaftfeld en hjá þeim dvelur við nám tvítug grænlensk stúlka, Elone Tittusen. Elone vinnur við sauðfjárbúið með Skúla og kynnist því að búskapur er stöðug vinna og viðvera. Um 500 fjár eru á Ytra- Alandi og 20 hross að hirða og geng- ur Elone þar til verka á hverjum degi með Skúla. Aðspurð sagði hún að þetta væri töluverð vinna en hún KALISTA Poulsen með ætlaði samt kannski að verða bóndi á Grænlandi. Elone segir margt líkt hér á ís- landi og í hennar heimahögum á sunnanverðu Grænlandi. Engar kýr fyrirfinnast þó þar en mjólk er flutt frá Danmörku og er ekki eins al- geng neysluvara meðal fullorðinna eins og hér á landi. Hún á ekki heima á bóndabæ en faðir hennar er sænskur smiður. Elone kvaðst vera ánægð hjá Bjarnveigu og Skúla og er ekki með heimþrá. Hjónin Skúli og Bjarnveig eru ekki að taka að sér fyrsta græn- lenska nemann heldur er Elone sá tíundi. Fyrsti Grænlendingurinn kom í Ytra-Áland árið 1985 og seg- ist Skúli hafa verið misjafnlega heppinn með fólkið, en aldrei óhepp- inn. Aðspurður sagði Skúli að lífs- viðhorf þessara græn- lensku ungmenna virtust I heildina öðruvísi en okk- ar íslendinga. „Þeir flýta sér hægar og virðast að mestu lausir við stress - einnig eru matarvenjur aðrar," sagði Skúli og virtist ánægður með skjólstæðinga sína í gegnum tíðina. Grænlendingarnir koma oftast í nóvember og ljúka námi í sama mánuði að ári liðnu. Sumarfrí fá þeir í þijár vikur í júlí en í byrjun mánaðarins er mikil bændahátíð í Grænlandi. Hrá selslifur er sælgæti Á Efra-Lóni á Langanesi búa ung hjón, Sverrir Möller og Miijam Blekkenhorst. Þau eru í fyrsta sinn með grænlenskan búfræðinema og er það hinn nítján ára gamli Kalista Poulsen. Kalista er lífglaður og hress strákur sem hefur gaman af borðtennis og hestasporti. Þegar íslandsdvöl hans lýkur ætlar hann að kaupa tvo hesta og flytja með sér til Grænlands. Kalista sagði að það væri „góður bisness“ að vera bóndi á Grænlandi og þegar hugsað er um styrki frá því opinbera gæti hann haft nokkuð til síns máls. Jarð- ir eru litlar á Grænlandi, sagði Kal- ista, en allra stærstu bændur eru með um 30 hektara lands. Flestir væru með undir tíu hekturum lands en yngri bændur eru duglegir að stækka ræktað land. Við flest bændabýli í Grænlandi eru diesel- stöðvar en ekki rafmagn því landið er mjög stijálbýlt. Vatnsafl er við bæi þar sem hægt er að koma því við. Það hafði borist að matarvenjur Grænlendinganna væru nokkuð aðr- ar en við íslendingar eigum að venj- ast og ekki var komið að tómum kofanum hjá Kalista. Selur er mikið borðaður í Grænlandi og er lifrin hrá hið mesta sælgæti. Fyrir hefur komið, að Grænlendingar hér á bæjunum hafa veitt sel, opnað hann á staðnum og borðað lifrina hráa á staðnum yfir nýveiddum selnum í fjörunni. Kalista borðar lifrina hráa og segir að ungt fólk geri það al- mennt, þessi siður sé ekki bundinn við eldra fólkið í Grænlandi. og lærir þar vinnubrögð við sauð- fjárbúið og hvernig búrekstur fer fram en þar eru um 370 fjár auk hesta. Hann komst að raun um það að sauðijárbúskapur er mikil vinna - en vill samt verða bóndi. í Laxárdal í Þistilfirði hjá Stefáni bónda Eggertssyni og Hólmfríði Jóhannesdóttur, konu hans, er við nám Adam Jacobsen, 22ja ára gamall en Stef- án hefur ekki áður haft nema. Adam hefur sömu skoðanir á matarvenjum og Kalista kollegi hans. Hann gerði þó betur því hann bauð viðmælanda sínum í mat; hrátt sel- kjöt og selspik sem hann sótti út í skemmu. Hrátt kjötið freistaði alls ekki fréttaritara en spikið mátti þó bragða. Bragðlaukar fréttaritara höfðu þó allt annað mat á gómsæti heldur en hjá Adam svo veislan stóð mjög stutt yfir - og verður örugg- lega ekki endurtekin. Adam er úr stórri fjölskyldu og kemur frá bænum Nanortalik á suð- urodda Grænlands. Enginn úr hans fjölskyldu er bóndi en hans draumur er að verða bóndi . Að sögn Adams er faðir hans forseti veiðimanna í Nanortalik og veiða þeir einkum lax í net og sel en einnig fugl og lítið eitt af þorski. Adam er mikið í fótbolta eins og kollegar hans en hestarnir skipa líka stóran sess í hans áhugamálum. Honum finnst lærdóms- ríkt að vinna á búinu í Laxárdal en þar eru rúm- lega 400 kindur auk hesta. Að Hvanneyri fannst honum gaman að koma en Stefán bóndi tók hann með í bændaferð á vegum Ijárræktarfé- - laganna í Þistilfirði og Öxarfirði. Honum leiðist ekki í Laxárdal og til marks um það sagðist hann að- eins tvisvar hafa skrifað til Græn- lands síðan hann kom. Bóndinn er sinn eigin herra Á Gunnarsstöðum í Þistilfirði er Qórði grænlenski búfræðineminn, hinn tvítugi Malik Fredriksen. Hann er tólfti grænlenski búfræðineminn hjá hjónunum Jóhannesi Sigfússyni og Berghildi Björgvinsdóttur. Á búinu eru um 900 fjár en auk þess hestar, kýr og kálfar svo Malik verð- ur margs vísari við vinnu á búinu. Hann er kominn af bændafjölskyldu og segir að gott sé að vera bóndi - því hann er sinn eigin herra. Malik er forfallinn fótboltaáhuga- maður og þykir efnilegur. Illa gekk að festa hann á filmu því hann var tregur að hætta í fótboltanum nokk- ur augnablik. Malik var áður í ungl- ingalandsliði í Grænlandi og kom þá til íslands í fótboltakeppni. Líkt og hinir landar hans hér þá er hann hestamaður og ætlar með tvo ís- lenska hesta til Grænlands að námi loknu. Sauðburður er genginn í garð og grænlensku nemarnir hafa ærinn starfa, líkt og allir í bændastétt. í samtölum við þessi fjögur ungmenni frá Grænlandi kom fram hjá öllum að þeim þykir ísland gott land. Þau sjá fram á lærdómsríkt og ánægju- legt ár hjá húsbændum sínum og kennurum hér í Þistilfirði og á Langanesi - en heim til Grænlands skal haldið að hausti. Kalista unir sér vel á Efra-Lóni MALIK Fredriksen á Gunnarsstöðum að iðka sína uppáhaldsgrein fótboltann með krökkunum á bænum. Fá rífleg lán við upphaf búskapar Matarvenjur eru íslending- um framandi ADAM Jakobsen borðar hrátt selspik í eldhúsinu í Laxárdal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.