Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Stj órn þjóðernissinn-
aðra hindúa fer frá
Nýju Delhí. Reuter.
ATAL Bihari Vajpayee, leiðtogi Bhar-
atiya Janata, flokks þjóðemissinnaðra
hindúa, sagði af sér sem forsætisráð-
herra Indlands í gær, aðeins tólf dög-
um eftir að hann komst til valda, þar
sem ljóst var orðið að stjóm hans
nyti ekki meirihlutastuðnings á þing-
inu. Stjóm hans er sú skammlífasta
í sögu Indlands frá því landið öðlaðist
sjálfstæði árið 1947.
Shankar Dayal Sharma, forseti
Indlands, féllst á afsagnarbeiðni for-
sætisráðherrans og bað hann um að
gegna embættinu til bráðabirgða þar
til ný stjóm yrði mynduð. Forseti
þingsins aflýsti atkvæðagreiðslu um
traust á stjómina eftir að Vajpayee
tilkynnti um afsögn sína í áhrifamik-
illi ræðu á þinginu. Vajpayee þótti
nýta mælskuhæfíleika sína vel í ræð-
unni, talaði á íjórum tungumálum,
hindí, ensku, tamílsku og sanskrít.
«rx 1 II". s
Reuter
Segir N-
Kóreumenn
undirbúa
skyndiárás
Næstu stjórn spáð skammlífi
Ræðan tók rúma klukkustund og
Vajpayee gagnrýndi einkum Samein-
uðu fylkinguna, bandalag þrettán
vinstri- og miðflokka, sem búist er
við að myndi næstu stjóm með stuðn-
ingi Congressflokks P.V. Narasimha
Rao, fyrrverandi forsætisráðherra.
„Eg held ekki að stjóm ykkar tóri
mjög lengi,“ sagði hann. „Fæðing
hennar hefur gengið mjög illa og
henni mun reynast erfitt að halda
velli.“
Forsetinn tilnefndi Deve Gowda,
leiðtoga Sameinuðu fylkingarinnar,
sem næsta forsætisráðherra. Samein-
aða fylkingin er með 192 þingmenn
af 535 eftir kosningamar í apríl og
maí. Congressflokkurinn galt mesta
kosningaafhroð sitt í sögunni, fékk
136 þingmenn, og hefur lofað að
Rangoon. Reuter.
ÞRIGGJA daga landsfundi Þjóðar-
hreyfíngar lýðræðisins í Burma,
flokks Aung San Suu Kyi, lauk í gær
og er fullvíst talið að stefnuskrá
flokksins muni reita herforingja-
stjórn landsins til reiði. Umdeildasta
atriði hennar er krafa hreyfingarinn-
ar um að fá í hendur umboð til að
semja nýja stjórnarskrá fyrir landið.
Á milli 300 og 400 flokksmenn
Þjóðarhreyfingarinnar sóttu fundinn
og brutust út gífurleg fagnaðarlæti
í lok hans. Þá hafði fundurinn m.a.
samþykkt að fela framkvæmdanefnd
hreyfíngarinnar að semja stjórnar-
skrá fyrir Burma.
styðja stjóm Sameinuðu fylkingarinn-
ar án þess þó að eiga ráðherra í henni.
Bharatiya Janata-flokkurinn varð
stærstur í kosningunum og fékk 194
þingmenn.
Deve Gowda, leiðtogi Sameinuðu
fylkingarinnar, verður að sigla milli
skers og báru, gæta hagsmuna svæð-
isbundinna flokka í bandalaginu og
verða við þeirri kröfu Congressflokks-
ins að standa vörð um efnahagsum-
bætur fyrri stjórnar, sem greiddu fyr-
ir erlendum fjárfestingum.
Stjórnmálaskýrendur segja ólíklegt
að stjórn Sameinuðu fylkingarinnar
haldi velli út kjörtímabilið, sem er
fimm ár. Þeir telja að Vajpayee hafi
tekist á skömmum valdatíma sínum
að milda ímynd Bharatiya Janata sem
flokks þjóðernissinnaðra hindúa og
margir spá því að hann komist aftur
til valda eftir næstu kosningar.
í ályktun Þjóðarhreyfingarinnar
er sagt að stefna eigi að þingræði
og að kosið verði til þings í almenn-
um kosningum en ekki skipað í sæti
þingfulltrúa eins og herforingja-
stjórnin stefni að. Krafist er lausnar
pólitískra fanga og 261 félaga í
hreyfingunni sem handteknir voru í
síðustu viku.
Er Suu Kyi var spurð að því hvort
að flokksmenn gerðu sér grein fyrir
því að mörg atriði í stefnuskránni
myndu án efa reita stjórnvöld til
reiði, svaraði hún því til að herinn
teldi allar gjörðir sínar og flokksins
vafasamar.
Vilja nýja stjórnar-
skrá fyrir Burma
Reuter
Beinagrind af sæskrímsli?
SJÓMENN í hafnarbænum Ku-
ala Kedah í Malasíu virða fyrir
sér sjö og hálfs metra langa
beinagrind er fannst á 54 metra
dýpi norðan við eyna Langkawi.
Mennirnir sem rákust á beina-
grindina voru hálftíma að ná
henni upp í togbát sinn. Um
10.000 manns söfnuðust saman
við höfnina þegar fréttist um
fundinn er virðist minna helst
á leifar af risaeðlum.
LI CHOL-su, herflugmaður frá
Norður-Kóreu, er nýlega flýði
suður yfír landamærin á Mig-19
þotu sinni, sagði á blaðamanna-
fundi í Seoul í gær að kommún-
istar hygðust efla enn búnað
sinn til að geta gert skyndiárás
á Suður-Kóreu. Vegna elds-
ne^isskorts hefði æfingaflug-
tímum verið fækkað en á hinn
bóginn væri öðrum æfíngum
haldið áfram af meira kappi en
nokkru sinni.
270 flugvélar væru hafðar til
reiðu rétt við landamærin og
við Onchon-flugbækistöðina,
þar sem hann starfaði sjálfur,
væri neðanjarðarvöllur. Við
bækistöðina væru gervi-flug-
brautir og eftirlíkingar af flug-
vélum og þungavopnum. Sam-
kvæmt nýjum áætlunum ætti
að taka Seoul á innan við 24
stundum frá því átök hæfust.
Sérfræðingar í S-Kóreu töldu
rétt að treysta varlega fullyrð-
ingum Lis; stjórnvöld í N-Kóreu
gætu reynt að ala markvisst á
stríðsótta til að beina athygli
frá matarskorti og öðrum inn-
anlandsvanda.
Samkvæmt lögum í S-Kóreu
fær Li rúmar 20 milljónir króna,
að mestu í gullstöngum, að
launum fyrir að flýja en hann
sagðist miður sín af ótta um
fjölskyldu sína. Hætta væri á
að eiginkonu sinni, bömum og
öldruðum föður yrði refsað með
því að senda þau i þrælkunar-
vinnu. „Engum er sama um fjöl-
skyldu sína en ég kom hingað
til að segja ykkur að Kim Yong-
il er stríðsóður. Ég vildi frelsa
þjóð mína undan valdboði
hans“.
Li sagði Kim Yong-i! hafa
öll völd í landinu, þau hefði
hann tryggt sér með því að
vingast við leiðtoga hersins sið-
ustu tvö árin. Víðtæk spiiling
heijaði meðal liðsmanna ráð-
andi stéttar, ekkert væri hægt
að gera án þess að beita mútum.
Reuter
AUNG San Suu Kyi svarar spurningum að loknum landsfundi Þjóðarhreyfingar lýðræðisins í gær.
Skæruliðar |
á brott frá í
Monróvíu
Monróvíu. Reuter.
LIÐSMENN vopnaðra fylkinga í
Monróvíu, höfuðstað Líberíu, yfirgáfu
í gær borgina og hlýddu þannig skip-
unum bráðabirgðastjómar landsins
sem hefur verið lömuð vegna innbyrð- i
is ágreinings um marga vikna skeið. i
Er síðustu skæruliðarnir hurfu á
brott sáust leigubílar og strætisvagn- |
ar aftur á götunum. Fólk sem verið
hafði í felum um langa hríð hætti sér
nú út og fór að huga að eigum sín-
um, húsum og verslunum sem oft
hafa verið lagðar í rúst.
Sveitir friðargæslumanna frá
nokkrum ríkjum Vestur-Afríku, er
höfðu flestir yfírgefið borgina, tóku
sér á ný stöðu á mikilvægum stöðum |
og fögnuðu íbúarnir þessari þróun
mála. Fáir eru þó svo bjartsýnir að
halda að sex ára borgarastríði sé að I
ljúka.
Bonn, Prag. Reuter.
Fijálsir demókratar og Kristilega sósíalsambandið deila í Þýskalandi
Styðja kröfur
Súdeta-Þjóðverj a
HARÐAR deilur hafa brotist út í
Þýskalandi milli talsmanna Fijálsra
demókrata (FDP) og annars stjómar-
flokks, Kristilega sósíalsambandsins
(CSU), systurflokks Kristilegra demó-
krata Helmuts Kohls kanslara, um
bótakröfur Súdeta-Þjóðverja og af-
komenda þeirra á hendur Tékkum.
Súdeta-Þjóðverjar voru reknir frá
héruðum sínum í þáverandi Tékkósló-
vakíu eftir stríð og kreíjast nú afsök-
unar og skaðabóta af hálfu Tékka.
Nasistar höfðu mikið fylgi meðal
Súdeta-Þjóðveija og voru héruð þeirra
innlimuð í ríki Hitlers, skömmu síðar
lögðu Þjóðveijar allt landið undir sig
og héldu því til stríðsloka. Þýskir
fjölmiðlar bentu á að á fundi samtaka
Súdeta-íjóðveija um helgina hefði
ekkert verið minnst á þjáningar
Tékka undir hernáminu. Theo Waig-
el, fjármálaráðherra Þýskalands,
ávarpaði fundinn og flokksbróðir
hans, Edmund Stoiber, forsætisráð-
herra Bæjaralands, höfuðvígis CSU,
lýsti einig yfir stuðningi um helgina
við kröfurnar.
Samtökin hafa einnig hótað að
reyna að fá væntanlegri aðild Tékk-
lands að Evrópusambandinu, ESB,
frestað ef stjómvöld í Prag verði ekki
við kröfunum. Kosningar verða í
Tékklandi í lok vikunnar og formaður
FDP, Wolfgang Gerhardt, sagði
óskiljanlegt að CSU skyldi nú hreyfa
þessu viðkvæma máli sem verið hefur
til umræðu um langt skeið á fundum
fulltrúa Tékka og Þjóðveija. Leiðtog-
ar helstu flokka í Tékklandi gerðu
með sér samkomulag um að fjalla
ekki um málið í kosningabaráttunni.
Vaclav Klaus forsætisráðherra braut
þann samning er hann heyrði um
afstöðu CSU og er óttast að Súdeta- I
málið verði efniviður í þjóðrembubál j
í kosningabaráttunni.
„Ég furða mig á að nokkur skuli ’
vilja að við ræðum síðari heimsstyij-
öld með iðrun í hjarta," sagði Klaus.
„Ég hef það á tilfínningunni að Þjóð-
veijar ættu að ræða þau mál öll á
mjög lágum nótum“.
Stuðningur við ESB-aðild í Tékk-
landi hefur minnkað að undanförnu,
aðeins 42% eru henni hlynnt. Segja
heimildarmenn að ekki muni áhuginn j
vaxa ef Tékkum fínnist að íjóðveijar j
setji sig nú í dómarasæti yfír þeim
og geri Súdeta-málið að eins konar I
aðgöngumiða 5 sambandið.