Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 55 FRÉTTIR 1050 nemar leita til atvinnu- miðlunar FLESTIR námsmenn hafa nú lokið eða eru um það bil að ljúka prófum. Um 1.050 þeirra hafa nú leitað til Atvinnumiðlunar námsmanna í þeirri von að þar fái þeir aðstoð í leit að sumar- vinnu. Rúmlega 200 námsmenn hafa nú annaðhvort fengið starf í gegnum miðlunina eða útveg- að sér starf á eigin vegum. Rúmlega 150 atvinnurekendur hafa leitað til miðlunarinnar eftir starfsfólki og eru þeir nokkru fleiri en um sama leyti fyrir ári. í fréttatilkynningu segir: „Starfsfólk Atvinnumiðlunar námsmanna verður í starfi sínu töluvert vart við að námsmenn eigi erfitt með að fá vinnu. Þetta gildir þó sér í lagi um aldurshópinn 16-20 ára en áberandi er hversu margir at- vinnurekendur kæra sig ekki um starfsmenn undir tvítugu. í þessum hópi eru margir sem óttast að fá ekki starf þetta sumarið þrátt fyrir að nú heyr- ist að færri séu án atvinnu en hafa verið undanfarin ár. Þó að langt sé liðið á maímánuð er ekki öll von úti enn og von- ast er til að atvinnurekendur taki enn betur við sér og leiti til miðlunarinnar þannig að hægt sé að eyða ótta náms- manna.“ Hafnarganga í Grindavík HAFNARGÖNGUHÓPURINN býður vai í miðvikudagskvöld- göngu, 29. maí, annaðhvort að ganga meðfram höfninni út í Örfirisey og með vesturströnd- inni og Vesturgötunni til baka eða fara í rútu í hafnargöngu í Grindavík. Mæting er í báðar ferðirnar kl. 20 við Miðbakkatjaldið (norðan Hafnarhússins). Farið verður frá Hafnarvigtinni í Grindavík kl. 21 og gengið með höfninni í fylgd staðfróðs heimamanns. Litið verður inn á sýningu í grunnskólanum í leið- inni. Hafnargangan í Grindavik er upphaf ferðaraðar sem geng- in verður um hafnarsvæði sveit- arfélaganna í Landnámi Ingólfs á föstudagskvöldum, næsta ferð verður 7. júní. Allir vel- komnir. Leikjanám- skeið TVÖ leikjanámskeið verða haldin á vegum Seltjarnarnes- kirkju í sumar fyrir börn á aldr- inum 6-11 ára. Námskeiðin byija kl. 10 árdegis og lýkur kl. 17 síðdegis. Farið verður í leiki, stuttar ferðir, föndrað og ýmislegt sem gaman er að, eftir því sem veð- ur leyfir. Nauðsynlegt er að börnin hafi með sér hádegis- og kaffinesti. J Tríó Björns < Thoroddsen á Kringlukránni BJÖRN Thoroddsen, Egill Ól- afsson, Gunnar Hrafnsson og Asgeir Óskarsson leika á Kringlukránni í kvöld, miðviku- dagskvöldið 29. maí. Efnisskrá þeirra félaga er j sambland af Ídassískum djass- ’ lögum og frumsömdum opusum ( sem þeir félagar hafa hljóðritað | og gefið út á hljómdiski sem nefnist Híf Opp. Dagbók lögreglunnar í Reykjavík Umferð gekk vel en mannlíf misjafnlega 24. til 28. maí. EIN mesta ferðahelgi ársins er af- staðin. Mikil umferð var út úr höfð- uðborginni síðdegis á föstudag og síðan í gagnstæða átt síðdegis á mánudag. Lögreglumenn í eftirliti töldu hegðun ökumanna almennt hafa verið góða og lítið verið um óhöpp. Afskipti þeirra af ökumönn- um voru aðallega vegna ótímabund- ins framúraksturs. Á þriðja tug öku- manna voru kærðir fyrir of hraðan akstur, bæði utan þéttbýlis og inn- an. En þrátt fyrir að fjölmargir hafi brugðið undir sig betri fætinum um helgina nutu margir veðurblíðunnar í borginni. Nokkuð var um að af- skipti þyrfti að hafa af fólki að kvöld- og næturlagi, eða 72 sinnum, sem er mun meira en gengur og gerist um helgar. Vista þurfti 42 einstakl- inga í fangageymslunum. Mál 20 þeirra þurftu framhaldsmeðferðar við. Tólf voru t.d. vistaðir vegna mála sem rannsaka þurfti hjá RLR. Aðfaranótt laugardags færðu lög- reglumenn 29 unglinga í athvarf ITR í miðborginni þangað sem þeir voru sóttir af foreldrum sínum. Lítið var hins vegar um afskipti af því unga fólki sem venjulega leitar skammt út fyrir borgina á þessum tíma til að tjalda. í dagbók lögreglunnar um hvíta- sunnuhelgina eru skráðar 9 líkams- meiðingar, 19 innbrot, 15 þjófnaðir og 26 eignaspjöll. Brunar voru 7 talsins. Afskipti af fólki með eða undir áhrifum fíkniefna voru níu, en lögreglumenn hafa fylgst sérstak- lega með þessum tegundum afbrota að undanförnu. Tíu ökumenn eru grunaðir um ölvunarakstur. Um 40 umferðaróhöpp eru færð til bókar. Þar af voru slys á fólki í 5 tilvikum. Kvartað var yfir hávaða og ónæði í 42 tilvikum og 7 sinnum þurftu lög- reglumenn að fara inn á heimili fólks til að stilla til friðar. Þá þurftu lög- reglumenn 11 sinnum að bregðast við vegna opinna verslana á hvíta- sunnudag, en eins og flestum á að vera kunnugt er verslunum óheimilt að hafa opið fjóra daga á ári skv. samþykkt um afgreiðslutíma versl- ana og ákv. helgidagalöggjafarinn- ar, þ.e. jóladag, föstudaginn langa og páskadaga auk hvítasunnudags. A föstudag féll tólf ára stúlka í sundlaugina að Varmá og skarst við það á höfði. Síðdegis á föstudag varð kona fyrir bifreið í Skeifunni. Þá er talið að kona hafi ökklabrotn- að eftir að hafa stokkið niður úr löndunarrampi í Súðavogi. Harður árekstur tveggja bifreiða varð á gatnamótum Arnarbakka og Dvergabakka. Flytja þurfti ökumenn beggja bifreiðanna á slysadeild. Maður viðbeinsbrotnaði í knatts- pynuleik í Laugardal. Hann var flutt- ur með sjúkrabifreið á slysadeild. Tilkynnt var um eld í íbúð við Leifs- götu. í ljós kom að pottur hafði gleymst á heitri eldavélarhellu. Overulegar skemmdir hlutust af. Um kvöldið var maður laminn á veitinga- stað við Laugaveg. Hann var fluttur með lögreglubifreið á slysadeild. Maður varð fyrir bifreið á Hring- braut við Landspítalann er hann gekk áleiðis yfir götuna á móti rauðu gangbrautarljósi. Aðfaranótt laugardags þurfti að flytja stúlku á slysadeild frá veit- ingahúsi í miðborginni. Hann hafði orðið á milli í slagsmálum. Maður var fluttur á slysadeild eftir óhapp á veitingastað við Hverfisgötu. Mað- ur var sleginn í andlitið á Lækjar- torgi. Hann hlaut áverka á auga- brún. Þá var ráðist á mann og spark- að í hann í Austurstræti við pylsu- vagninn. Hann var fluttur á slysa- deild. Snemma á laugardagsmorgun voru tveir menn handteknir á Snorrabraut eftir að sést hafði til þeirra bera út tölvur og fleira. Þeir höfðu brotist þar inn í íbúð. Kona nefbrotnaði þegar þeir voru að reyna að brjótast inn í veitingastað við Rauðarárstíg. Annar var gómaður þar sem hann hafði farið hálfur inn um gluggann. Þeir voru báðir vistað- ir í fangageymslunum. Eldur kom upp í bifreið í bílskúr við Glaðheima. Talið er að kviknað hafi í út frá fry- stikistu og gasgrilli, sem ekki hafði verið skrúfað nægilega vel fyrir. Skemmdir urðu bæði á bifreiðinni og á skúrnum. Brotist var inn í bif- reið við Hesthamra og úr henni stol- ið geislaspilurum. Þá var brotist inn íbúð við Miðtún. Eftir hádegi á laugardag steig kona niður um niðurfall í Fenjunum og meiddist á fæti. Ristina vantaði á niðurfallið. Stúlka datt af hestbaki við Suðurlandsveg nálægt Rauðhól- um. Hún fékk skurð á höfuðið og var flutt með sjúkrabifreið á slysa- deild. Haglabyssu var stolið úr húsi á Seltjarnarnesi. Hún kom í leitirnar daginn eftir. Síðdegis var tilkynnt um að maður á sjötugsaldri væri að bera á sér kynfærin fyrir framan tvítugar konur í Öskjuhlíð. Þá var golfkylfum stolið í innbroti á golf- völlinn í Grafarholti. Drengur féll niður um þakglugga á húsi við Arnarbakka. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabif- reið. Gaskút var stolið af grilli við Vorsabæ. Aðfaranótt sunnudags var maður barinn í húsi í Seljunum. Hann hlaut bólgna vör og blóðnasir. Vitað er hver þar var að verki. Höggmynd var stolið úr húsi við Skólavörðustíg og hún síðan skemmd. Þjófurinn fannst skömmu síðar. Þrír piltar voru handteknir og fluttir á stöðina eftir að E-pillur höfðu fundist á öðr- um þeirra við leit. Piltarnir höfðu verið stöðvaðir í umferðareftirliti. Snemma á sunnudagsmorgun var tilkynnt um innbrot í félagsheimili við Logafold. Grípa þurfti inn í hóp- slagsmál ungs fólks í Urðarholti. Hluta af hópnum var ekið til Reykja- víkur. Á sunnudag þurftu lögreglu- menn að hafa afskipti af opnum verslunum við Grundarstíg, Mela- braut, Hofsvallagötu, Lækjargötu, Ármúia, Háaleitisbraut, Freyjugötu og Rauðarárstíg. Nokkrar rúður voru brotnar í nýbyggingu við Foss- leynismýri og fjórum 18 gíra fy'all- reiðhjólum var stolið úr bakgarði húss við Lindargötu, Háholt og við Eskihlíð. Aðfaranótt mánudags voru tveir piltar á reiðhjólum handteknir, en á öðrum þeirra fannst ætlað amfetam- ín. Síðar um nóttina voru aðrir tveir handteknir á stolnu reiðhjóli. í fórum þeirra fannst einnig ætlað fíkniefni. Tveir menn voru handteknir á Lækj- artorgi. Amfetamín fannst á öðrum þeirra. Fólk hélst lengi við fram eft- ir mánudagsmorgni í miðborginni, aðallega vegna þess hve veðrið var hagstætt til útiveru. Á mánudagsmorgun var ökumað- ur fluttur á slysadeild eftir árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Reykjanesbrautar og Stekkjar- bakka. Tveir menn voru handteknir á Vatnsmýrarvegi eftir að á öðrum þeirra hafði fundist fíkniefni. Síð- degis kviknaði í gasgrilli við hús í Sefgörðum. Leki hafði komið að kútnum og eldur komist í sólstofu. Talsverður skemmdir urðu á sólstof- unni. Fjórir menn réðust á einn í húsi við Akurgerði. Maðurinn fór sjálfur á slysadeild. Vitað er hveijir árásarmennirnir eru. Rúður voru brotnar í nýbyggingu við Beijarima. Þar voru tveir ungir piltar að verki. Þeim var ekið heim og rætt við for- eldra þeirra. Farþegi var handtekinn í leigubifreið. Á honum fannst lítils- háttar magn af kannabisefnum. Um • kvöldið var tilkynnt um eld í skúr í - bakgarði húss við Hólmgarð. Slökkviliðið réð niðurlögum eldsins. Engar skemmdir hlutust af. Reið- hjóli var stolið frá húsi við Logafold. Þrír piltar voru færðir á lögregiu- < stöðina eftir að hafa verið stöðvaðir í umferðareftirliti og á þeim hafði fundist lítisháttar hass og áhald til í neyslu þess. Aðfaranótt þriðjudags voru þrír ' piltar handteknir þegar þeir voru að stela bensíni af bifreiðum við Há- teigsveg. Loks voru tveir menn handteknir í Bankastræti, en skömmu áður hafði verið tilkynnt um að þeir hefðu brotist inn í sölu- turn við götuna. Þýfi úr versluninni fannst á mönnunum. Lögreglumenn eru þessa dagana að huga að ástandi og búnaði vinnu- véla auk þess sem þeir eru að huga að réttindum stjórnenda þeirra. i \ Aðalfundur Félags um Listaháskóla * Isiands AÐALFUNDUR Félags um Listaháskóla Islands verður haldinn í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, í kvöld, miðviku- dagskvöld, og hefst kl. 20. Á fundinum verður greint frá þeirri undirbúningsvinnu sem fram hefur farið að undanförnu vegna stofnunar Listaháskól- ans. Listamenn eru hvattir til þess að mæta en jafnframt eru allir listunnendur boðnir vel- komnir, segir í kynningu. 3ðan sumir eru að heiman, eru aðrir heima hjá þeim 'mHeimavörn Securitas, fullkomið öryggiskerfi, að láni og þú getur farið áhyggjulaus að heiman. \ Heimavörn Securitas er í senn innbrota- og brunaviðvörunarkerfi. Kerfið er sett á með einu handtaki þegar heimilið er yfirgefið eða þegar gengið er til náða og eftir það er varsla þess i öruggum höndum Securitas. Fyrir kerfið sjálft og uþþsetningu þess þarf ekkert að borga. * Mánaðarlegt þjónustugjald felur í sér útköll, viðhald og þjónustu við kerfið allan sólarhringinn. Heimavömin er samsett af ákveðnum fjölda skynjara. en er statkkanleg eftir þörfum bvers og eins. Síðumúla 23 • 108 Reykjavík Sími: 333 3000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.