Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 39 AÐSENDAR GREINAR Enn við sama heygarðshornið VONUM seinna hefur frumvarp til laga um vörugjöld ver- ið lagt fram á Alþingi. Þessa hefur verið beð- ið lengi af öllum þeim sem bundið höfðu von- ir við aukið viðskipta- frelsi og greiðari markaðsaðgang í kjöl- far EES-samningsins. Þetta gerðist þó ekki átakalaust og niður- staðan veldur von- brigðum. Félag ís- lenskra stórkaup- manna sá sig knúið til að kæra álagningu vörugjalda til ESA, Eftirlitsstofnunar ESA, í ársbyijun 1994. Sú kæra leiddi til þess að ESA sendi málið til EFTA-dóm- stólsins síðastliðinn vetur. Þrátt fyrir mikla vinnu bæði stjórnvalda og hagsmunaaðila hefur enn ekki tekist að finna ásættanlega lausn. Það frumvarp sem nú er lagt fram nýtur ekki stuðnings verslunarinn- ar í landinu. Mismunun á kostnað verslunar Félag íslenskra stórkaupmanna hefur barist fyrir afnámi vöru- gjalda allt frá árinu 1975, þegar þau voru fyrst lögð á tímabundið. Og félagið varaði eindregið við fyrirhugaðri álagningu þeirra við gildistöku EES-samningsins. Þá var meiningin að bæta ríkissjóði tekjutap af niðurfellingu tolla við aðild íslands að EES. Sé litið á innheimtuna fyrir og eftir gildi- stöku EES 1994, verður þó að ætla að tilgangurinn hafi ekki síð- ur verið að styrkja samkeppnis- stöðu innlendra framleiðenda. Frá gildistökunni hafa vörugjöld á inn- lendum framleiðsluvörum lækkað um 14% en hækkað um 62% af vörum erlendra framleiðenda. Og enn er verið við sama hey- garðshornið. í athugasemdum við frumvarpið segir um tilgang þess að hann sé að styrkja samkeppnis- stöðu innlendra framleiðenda. Jafn- framt virðist tilgangurinn vera sá að veija verslunarhagsmuni ís- ' lenska ríkisins sem rekur eina um- svifamestu verslun á íslandi í flug- stöð Leifs Eiríkssonar. Þannig hækka t.d. vörugjöld á snyrtivörur samkvæmt frumvarpinu, en um 35% allra snyrtivara í landinu eru seldar í Leifsstöð. Undanþegið er þó sjampó, enda framleitt innan- lands. Stefán S. Guðjónsson Tollverð er ekki verksmiðjuverð Samkvæmt frum- varpinu er gert ráð fyr- ir að tekjur vegna gjaldtöku af innflutt- um iðnaðarvörum lækki um 4%. Hins vegar er áætlað að sömu gjöld lækki um 30% af innlendum framleiðsluvörum. Og mismununin er á fleiri stigum. Gjaldstofninn er sitt hvor, eftir því hvort um innflutta vöru eða innlenda frap- leiðslu er að ræða. Ár- angurslaust hefur verið leitað að sambærilegum gjaldstofni. Útkom- ari er tollverð innfluttra vara og verksmiðjuverð þeirra innlendu. Allir þeir sem þekkja til innflutn- ings og vörudreifingar vita að toll- verð getur aldrei orðið sambærilegt við innlent innkaupsverð, því vörur eru keyptar á mismunandi sölustigi erlendis. Þessi ójöfnuður hefur margvíslegar afleiðingar og allar innflutningnum í óhag. Verslunin getur aldrei innskattað vörugjalds- Einfaldast væri, segir Stefán S. Guðjónsson, að slá tvær flugur í einu höggi, jafna trygg- ingargjaldið og fella jöfnunargjöldin niður. skyld aðföng líkt og innlendur fram- leiðandi sem aðeins greiðir mismun innskatts og útskatts vörugjald- anna. Hið sama má segja um svig- rúm innflytjenda til að lækka hjá sér verð tímabundið. Eru og verða dulbúnir tollar Önnur gróf mismunun felst í greiðslufresti. Samkvæmt frum- varpinu gjaldfalla vörugjöld við sölu hjá innlendum framleiðendum en við innflutning til landsins hjá.er- lendum framleiðendum og dreif- ingaraðilum þeirra hér. Munurinn er um tveir mánuðir, sem er meðal- birgðahaldstími innfluttra vara frá því að þær eru leystar úr tolli og þar til þær eru seldar. Ekki þarf flóknar reikningsaðferðir til að sjá að birgðahald leggst mun þyngra á innflytjandann. Vörugjöld eru, og verða áfram samkvæmt frumvarpinu, ekkert annað en dulbúnir tollar. Þær vörur sem einkum bera vörugjöld eru raf- tæki, hljómflutningstæki og heimil- istæki. Allt eru þetta vörur sem eru ekki og verða ekki framleiddar hér á landi. Margir hafa viðurkennt þetta í orði, en útkoman er önnur á borði. Vörugjöld eru neyslustýr- andi og þau rugla verðskyn neyt- enda þar sem þau leggjast handa- hófskennt í sex mismunandi flokk- um á hinar ýmsu vörutegundir. Verðmyndunin verður þannig úr takti við kostnaðargrunn og önnur lögmál um verðmyndun vöru á fijálsum markaði. Vörugjöld eru í eðli sínu veltuskattur og slíkan skatt á aldrei að innheimta nema á síðasta sölustigi. Þannig getur al- menningur séð hver hlutur ríkisins er í vöruverðinu og hvernig verð- myndun er háttað. Forðumst frekari útistöður Það verður aldrei sátt um vöru - gjöldin, ekki frekar en náðst hefur sátt um leiðir til að bæta ríkissjóði tekjutap vegna afnáms þeirra. Upp- haflega lagði t.d. starfshópur fjár- málaráðuneytisins til að endur- greiðslum virðisaukaskatts af vinnu við byggingu íbúðarhúsnæðis yrði hætt. Þær hugmyndir hafa þynnst út í meðförum. Þessa leið studdi fulltrúi Félags íslenskra stórkaup- manna hins vegar eindregið, en skilaði séráliti þegar nefndin skilaði tillögum sínum. FÍS hefur einnig bent á tryggingargjaldið og þá stað- reynd að ESA telur þá mismunun milli atvinnugreina sem fram kemur í álagningu þess stangast á við EES-samninginn. Einfaldast væri að slá tvær flugur í einu höggi, jafna tryggingargjaldið og fella um leið niður vörugjöldin. Þannig mætti forða öllum frá enn meiri vandræða- gangi og útistöðum við samnings- aðila okkar í Evrópu. Höfundur er framkvæmdasíjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Nornaveiðar yfirvalda eða glæfra bragð (stunt) áhugaflugmanna? SEM fýrverandi flugstjóri, hálfbakað- ur flugvélaverkfræð- ingur og með fýrstu farþegaflugmönnum þessa lands tel ég mig knúinn til að leggja orð í belg útaf skrif- um Sigurðar Bene- diktssonar í Morgun- blaðinu 23. maí 1996, um réttmæti snerti- lendinga á vatni í æf- ingaskyni fyrir hugs- anlega nauðlendingu, á litlum einshreyfils flugvélum. Ég er afar hissa á þessum mál- flutningi og skil ekki rökin. Svart er ekki hvítt. Álftin sem er að lenda, á myndinni, er í ofrisi, sem sést greinilega á vængendaíjöðrum, eða á minnsta hraða sem hún getur náð á því augnabliki sem hún snertir vatns- flötinn. Hún notar ekki fætur sem fleytigræjur heldur sem bremsur. Það er auðvelt að halda að t.d. endur „fleyti kerlingar" við lend- ingu á vatni og í logni. Málið er einungis það að ofrishraðinn er hár, þ.e. vænghleðsla er mikil, eða mikill líkamsþungi fyrir lítinn vængflöt. Það hefur alltaf ver- ið kennt og er kórrétt, í neyð, að endanleg snerting við blessaða móður jörð sé með sem minnsta mögulega hraða, hvort sem um er að ræða eins hreyf- ils einkaflugvél eða farþegaflugvél. Þessar „æfingar" hjá um- ræddum einkaflug- mönnum, að snerta vatnsflöt á miklum hraða sem undanfari þess að stöðvast í vatn- inu er, að mér sýnist, ekkert annað en glæfrabragð (stunt). Hreyfilbilun á einshreyfils flugvél er i flestum tilfellum orsaka- valdur nauðlendingar. Hvaða til- gangi það þjónar, eftir hreyfilbilun, að dýfa vélinni á talsverðum hraða til að fleyta kerlingar á vatnsfletin- um, á undan ofrisi, með þeim hætti sem sýnt er á meðfýlgjandi mynd, er mér fyrirmunað að skilja. Endir- inn verður að vera ofris, eða því sem næst, þegar þyngd vélarinnar yfirvinnur lyftikraft vængjanna til Albert Tómasson Agaleysi er, segir Albert Tómasson, eitt mesta böl flugsins. að minnka högg sem mest, þegar vélin stingst fram mjög snöggt og stoppar, eftir fýrstu og einu snert- ingu við vatnsflötinn. Þama eru engar töfralausnir til. Móðir jörð tekur þig í faðm sinn allyfirþyrmi- lega ef enginn harður og sléttur flötur er framundan. Hvort sem þú biðst fyrir eða flýgur hratt áður en endasnerting fer fram hjálpar það ekkert. Hæfni umræddra „fleyti- kerlinga" einkaflugmanna til að framkvæma þetta glæfrabragð dreg ég ekki í efa. Agaleysi er eitt mesta böl flugsins og hef ég sjálfur drukkið af þeim beiska drykk. Góð- ir kunningjar mínir hafa týnt eigin lífi og stundum einnig annarra með því að vanvirða þetta fyrsta og mikilvægasta boðorð flugsins. Eins dásamlegt og fiugið er getur það einnig verið dauðans alvara, ef agi og skýr hugsun er vanrækt. Þegar sjónvarp allra landsmanna er búið að mynda snertilendingaratvikið í bak og fyrir, útskýra það sem hugs- anlega þjálfun fyrir nauðlendingar á vatni og senda út í fréttum, er hætt við að líkt fari fyrir byijendum í flugi eins og áhrif sjónvarpsofbeld- is hefur á unglinga - til hins verra. Ef Loftferðaeftirlitið og Flug- málastjórn tækju ekki á þessu máli af fullri hörku, sem í raun er verndun til almannaheilla, má búast við auknum slysum og agaleysi. Hvað segðu þá tryggingarfélögin, almenna tryggingarkerfið, vinir og vandamenn? Alþjóðaflugreglur og lög eru fyrir alla. Hæfir en sérvitr- ir einstaklingar eru ekki undan- skildir. Ef menn þurftu endilega að gera eitthvað misviturt í „den“ var það leyst með því að fara ofan skýja, þar sem enginn sá til nema kannski guð manns. Að vísu eru þar engir pollar en nægjanlegt loftrými fyrir mistök. Og áður fyrr höfðu margir áð einkunnarorðum: Það eru til gamlir flugmenn og djarfir flug- menn, en fáir gamlir, djarfir flug- Höfundur erfyrrv. flugstjóri. Ellefu byssur Meðal annarra orða „Þetta var haglega gerður grípur og mjög líkur alvöru- byssu. Njörður P. Njarðvík segir: Stutt getur veríð úr sakleysislegum leik í dauðans alvöru.“ í LIÐINNI viku þurfti ég að bregða mér í banka til að greiða reikninga. Fyrir aftan mig í röðinni fyrir framan gjaldkerastúkuna var ungleg kona ásamt syni sinum á að giska fimm ára. Hann var vopnaður stórri skamm- byssu, svo stórri að höndin litla gat ekki meira en svo valdið henni. Þetta var haglega gerður gripur og mjög líkur alvörubyssu. Og þar sem hún var drengnum stór og þung, þá brá hann á það ráð að halda henni tveim höndum eins og æfður byssumaður í sjón- varpi, miðaði á fólk í bankanum og hleypti af í gríð og erg. Það heyrðist ofurlítll smellur í hvert sinn. Ég get ekki lesið hugsanir og veit því ekki, hvort það olli piltinum vonbrigð- um að enginn skyldi falla blóðugur í gólfið. Ég veit ekki heldur hvort móðirin fann ör- yggi í þessum vopnaða lífverði sínum. Ég leyfi mér þó að efast. um það. Karlmennskan var ekki meiri en svo, að þegar hann mis- steig sig á vappi sínu og féll á hnén, þá fór hann að háskæla og móðirin huggaði hann ástúðlega. En byssunni sleppti hann ekki þrátt fyrir sársaukann og orgið. Úr leik í alvöru Mér er vel Ijóst að hér var einungis lítill drengur með „leikfang" - ef byssa telst leik- fang. En ég er dálítið fyrir táknfræði og hún kennir mönnum að sjá veruleika og merkingu á bak við tákn. Og banki er ekki beinlínis hentugur vettvangur fyrir svona byssusport. Eru menn búnir að gleyma nýlegu banka- ráni, sem enn er óupplýst? Ég hef líka orðið fyrir því tvisvar sinnum á ævinni að þurfa að ganga á undan hermanni með handvél- byssu. Alvörubyssu. í fyrra sinnið í Algeirs- borg þegar ég neitaði að afhenda embættis- manni vegabréf mitt til daglangrar geymslu og hið síðara á flugvellinum í Budapest, þar sem ég var handtekinn fyrir að hafa ekki gert grein fyrir dvalarstað í vegabréfsáritun. Mér þótti þetta óþægileg reynsla og síðan er mér ekki um það gefið að miðað sé á mig byssu. Ekki heldur þykjustubyssu. Litli drengurinn skotglaði hefði þó sennilega hoi’fíð úr huga mér, ef ekki hefði annað kom- ið til. Daginn eftir datt nefnilega inn um bréfa- lúguna átta blaðsíðna litprentaður bæklingur frá leikfangaverslun. Og þar gat að líta ellefu mismunandi tegundir af byssum. Sumar að vísu einungis vatnsbyssur og ekki líkar vopn- um. En aðrar áttu að líkjast byssum — og duga eflaust vel fýrir ímyndunaraflið. En jafnvel það hefði ekki orðið efni í þennan pistil, ef ekki hefði enn fleira komið til. Nýlega var skýrt frá því í fréttum, að unglingur hefði slasast alvarlega þegar hann var að fikta við byssu með félögum sínum. Þar á heimilinu var sem sé hlaðin byssa. Og væntanlega er þeim drengjum nú ljóst að byssur eru ekki leikföng — og að stutt getur verið úr sakleysislegum leik í dauðans alvöru. Það er að vísu ekki mikil ástæða til að áfellast litla drenginn í bankanum fyrir til- tæki hans. Hann er svo ungur að hann telst óviti í svona máli — ennþá. En foreldrar sem gefa börnum sínum skotvopn til leikja, þeir eiga ekki að vera óvitar. Ég get ekki lesið hugsanir, en ég hefði gjarnan viljað geta lesið í hug móðurinnar, sem fór með dreng- inn í bankann svona vopnaðan. Hvað var hún að hugsa? Svo var að sjá sem henni þætti það bara sjálfsagt og eðlilegt að drengurinn miðaði byssu sinni á fólk og þættist vera að drepa það. Hugsum við ef til vill svona almennt: Að það sé eðlilegt. að börn séu að ímynda sér að þau séu að drepa fólk? Er dráp leik- ur? Er þetta okkar menningarviðhorf? Er eðlilegt og sjálfsagt að drepa? Við heyrum núorðið vikulega fregnir af því að fólk sé barið, því misþyrmt og það rænt — ekki í fjarlægum stöðum (það er ekki fréttnæmt) heldur hér, kannski bara í götunni okkar. Nýlega var greint frá skelfilegum fjöldamorð- um á Tasmaníu og ekki löngu áður var fjöldi skólabama myrtur í Skotlandi. Menn yppta kannski bara öxlum og segja sem svo, að þarna hafi verið að verki geðveikir menn. Má vera. En hvað á að segja um foreldra sem gefa börnum sínum skotvopn? Höfundur er prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.