Morgunblaðið - 29.05.1996, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
80 ára
afmælis-
hátíð ASÍ
FJÖLMENNI var á afmælishátíð
Alþýðusambands íslands þegar
minnst var 80 ára afmælis sam-
bandsins í Háskólabíói síðastlið-
inn laugardag. Heiðursgestur
samkomunnar var forseti Is-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir.
Afmælisdagskráin var fjölbreytt
og komu margir listamenn úr
ýmsum listgreinum fram á hátíð-
inni. Myndin hér til hliðar var
tekin þegar Grétar Þorsteinsson,
nýkjörinn forseti Alþýðusam-
bands íslands, flutti ávarp á af-
mælishátíðinni.
Samkeppnisráð úrskurðar um kvörtun
Vífilfells yfir ójafnri samkeppnisstöðu
Mj ólkur samsalan
brýtur ekki
samkeppnislög
Fjárhagslegur aðskilnaður er milli
dreifingar á safa og mjólk
SAMKEPPNISRÁÐ hefur úr-
skurðað að samnýting Mjólkurs-
amsölunnar (MS) á sölu- og dreifi-
kerfi fyrirtækisins við sölu og
dreifingu á mjólkurvörum og
ávaxtasafa feli ekki í sér brot á
samkeppnislögum.
Urskurðurinn kemur í kjölfar
kvörtunar Vífilfells hf. þess efnis
að dreifing og sala MS á öðrum
varningi en mjólkurafurðum brjóti
í bága við grein í samkeppnislög-
um um fjárhagslegan aðskilnað
reksturs í skjóli einkaleyfis og
samkeppnisreksturs.
Kvörtun Vífilfells byggir á því
að þrátt fyrir skipulagsbreytingar
hjá MS eigi sér stað veruleg sam-
nýting á sölu- og dreifingarkerfi
fyrirtækisins, ekki síst hvað varðar
framleiðslu á ávaxtasafa, sem
seldur er í beinni samkeppni við
framleiðslu Vífilfells, eins og segir
í erindinu, sem brjóti í bága við
samkeppnislög.
í greinargerð frá MS kemur
fram að Samsöluvörur hf. annist
heildsölu á ávaxtasafa sem þýði
fjárhagslegan aðskilnað milli sölu
á mjólkurafurðum og annarri
framleiðslu. Þá segir að þar sem
um samnýtingu hafi verið að ræða
hafi Samsöluvörur, sem stofnað
var 1994, borið fullan kostnað af.
Greitt fyrir pökkun
og smásölu
Mjólkurbú Flóamanna pakkar
ávaxtasafanum fyrir Samsöluvör-
ur gegn þóknun og MS sér um
söluna, gegn ákveðnu hlutfalli af
heildsöluverði til þess að standa
undir kostnaði af sölu og dreif-
ingu, þar með taldir afslættir til
endurseljanda.
I áliti samkeppnisráðs segir að
könnun hafí Ieitt í ljós hærra verð
á ávaxtasafa framleiddum hjá
Samsöluvörum og því megi draga
þá ályktun að samkeppnisstaða
fyrirtækisins sé ekki betri en ann-
arra framleiðenda og að áhrif
þeirra séu lítil á markaðinum.
Loks segir að samkeppnisráð
telji að fjárhagslegur aðskilnaður
hafi átt sér stað milli sölu og dreif-
ingar á ávaxtasafa og öðrum af-
urðum hjá MS með stofnun Sam-
söluvara, og að gögn bendi ekki
til annars en fyrirtækið greiði
sanngjarna og eðlilega þóknun
fyrir þjónustu MS. Því er það mat
samkeppnisráðs að ekki sé tilefni
til íhlutunar af þess hálfu.
Morgunblaðið/Júlíus
LÖGREGLA, slökkvilið og sjúkralið lögðust á eitt
til að ná ungmennunum út úr bílflakinu.
Guðmund-
ur Rafn
hættir við
framboð
GUÐMUNDUR Rafn Geirdal
nuddari hefur fallið frá fram-
boði til forseta íslands.
Guðmundur Rafn segir í
yfirlýsingu að það hafi verið
sameiginlegt mat hans og Jóns
Thors, skrifstofustjóra í dóms-
málaráðuneytinu, að falla frá
framboðinu þar sem Guð-
mundur Rafn hefði aðeins
fengið 501 meðmælanda.
„Ég votta hér með enn á
ný stuðning minn við hina for-
setaframbjóðenduma sem
hafa allir skilað inn framboðs-
gögnum ásamt nægum fjölda
meðmælenda og vottorðum
yfirkjörstjórna þess efnis. Ég
styð þau öll sem eitt og lít
þannig á að þau hafi boðið sig
fram til þjónustu á æðsta sviði
þjóðfélagsins og séu öll nægi-
lega hæf til að vera forseta-
efni,“ segir Guðmundur Rafn.
Klippa þurfti bifreið utan af fjóru
Sluppu lífs
þegar bíllinn
lagðist saman
FJÖGUR ungmenni á 16. og 18.
aldursári slösuðust þegar bifreið
valt undir Digranesbrú og hafnaði
á brúarstólpa. Þak bifreiðarinnar
lagðist saman og klemmdust ung-
mennin inni í bílnum. 72 mínútur
liðu frá því lögreglan fékk tilkynn-
ingu um slysið og þar til loks tókst
að losa síðasta farþegann úr bíln-
um. Ekkert ungmennanna er í lífs-
hættu, en þrjú glíma við beinbrot.
Að sögn Iögreglunnar í Kópa-
vogi var slysið tilkynnt kl. 16.26
á mánudag. Bifreiðinni var ekið
norður Hafnarfjarðarveg, en undir
Digranesbrúnni missti ökumaður
stjórn á bifreiðinni, sem fór upp á
SELJENDUR - SELJAHVERFI
Við leitum að tveggja íbúða húsi fyrir einn af viðskipta-
vinum okkar. Stærri íbúðin þarf að hafa gott aðgengi
fyrir hjólastól og geta losnað flótlega.
Bein kaup. Önnur hverfi koma einnig tii greina.
/;rl FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
552-6600
Lovísa Kristjánsdóttir, lögg. fasteignasali.
umferðareyju, valt og skall á brú-
arstólpa. Þegar bifreiðin stöðvaðist
þar var hún á vinstri hliðinni upp
við stólpann og hafði þak hennar
lagst saman.
Lögregla, sjúkralið og tækjabif-
reið slökkviliðsins komu fljótt á
vettvang og var þak bifreiðarinnar
klippt af. Fyrst út úr bílnum var
ung stúlka, farþegi í aftursæti, sem
reyndist óbrotin, en í losti. Þá náð-
ist bílstjórinn út úr bílnum og pilt-
ur í aftursæti. Erfiðast reyndist
að ná út stúlku, sem var farþegi
í framsæti og var hún ekki laus
fyrr en kl. 17.38.
Bíllinn í smástykkjum
Lögreglan í Kópavogi sagði að
sjúkra- og slökkvilið hefði staðið
mjög vel að björgun ungmennanna
úr bílflakinu og nánast tínt bílinn
í smástykkjum utan af þeim, til
að tryggja að skaði þeirra yrði
ekki meiri. Það væri mikil mildi
að ekki hefði farið verr, því bíllinn
væri gjörónýtur eftir harðan
áreksturinn.
Lögregla segir óljóst hvað hafi
valdið slysinu, því ekki hafi verið
tekin skýrsla af ökumanni. Þó sé
ljóst af ummerkjum á vettvangi,
að ekki hafi sprungið á bílnum
fyrir veltuna.