Morgunblaðið - 29.05.1996, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Opinber heimsókn frú Mary Robinson forseta Irlands hingað til lands hófst í gær
Dagskránni breytt
vegna veðurútlits
Þriggja daga opinber heimsókn frú Mary
Robinson forseta íriands og Nicholas eigin-
manns hennar hófst í gær. Þau heimsóttu
---------------------------------------
Hæstarétt, Alþingi, Listasafn Islands
og Ámastofnun. Viðmælendum írsku
forsetahjónanna bar saman um að þau
hafí verið ákaflega geðþekk og sýnt heim-
sókninni lifandi áhuga.
Morgunblaðið/Ásdís
BORN úr leikskólum í miðborginni veifuðu íslenskum og írskum
fánum og sungu Öxar við ána á Tjarnarbakkanum.
STEFÁN Karlsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússon-
ar, sýnir forsetahjónunum handrit í stofnuninni.
EINKAFLUGVÉL með frú Mary
Robinson, forseta írlands, hr. Nic-
holas Robinson, eiginmanni hennar,
og frú Eithne Fitzgerald, aðstoðar-
ráðherra í írska forsætisráðuneyt-
inu, og öðru föruneyti forsetans
innanborðs lenti á Reykjavíkurflug-
velli um kl. 10.30 í gærmorgun.
Eftir hádegisverð frú _ Vigdísar
Finnbogadóttur, forseta íslands, ti!
heiðurs írsku forsetahjónunum á
Bessastöðum var haldið í Dómshús-
ið við Lindargötu. Heimsóknin í
Hæstrétt fór fram að sérstakri ósk
frú Mary.
Haraldur Henrysson, forseti
Hæstaréttar, tók á móti írsku gest-
unum og bauð forsetann sérstak-
lega velkominn í stuttu ávarpi í
dómssalnum. Hann sagði að Iitið
væri á heimsókn forsetans í ljósi
mikillar þekkingar hennar og
reynslu af lögfræðistörfum. Forset-
inn vildi með heimsókninni leggja
áherslu á mikilvægi dómskerfisins
sem sjálfstæðs afls í hverju þjóðfé-
lagi.
Fyrsta heimsókn
þjóðhöfðingja
Haraldur rifjaði upp að íslensk
lagahefð hefði hafist á Þingvöllum
á 10. öld. Nú væri aukinn gaumur
gefinn að því að byggja upp réttar-
kerfið svo að hægt væri að tryggja
réttindi einstaklingsins sem best.
Að lokum gat Haraldur um störf
frú Mary á sviði mannréttinda. Eft-
ir að Haraldur hafði lokið máli sínu
gerði Hjörtur Torfason, hæstarétt-
ardómari, grein fyrir uppbyggingu
og störfum Hæstaréttar. Áður en
efnt var til óformlegra viðræðna
fjallaði svo Garðar Gíslason, hæsta-
réttardómari, um uppbyggingu
dómskerfisins. Ekki er vitað til að
þjóðhöfðingi hafi í annað sinn heim-
sótt Hæstarétt.
Frú Mary sýndi í samtali við
Harald mikinn áhuga á málefnum
dómstólsins og spurði hvort komið
hefðu upp mál í tengslum við EES-
samninginn. Hún fékk þau svör að
svo væri ekki. Forsetanum var að
skilnaði fært Lagasafn íslands.
Undir lok heimsóknarinnar veitti
frú Mary því athygli að sólinni hafði
tekist að bijótast gegnum skýin.
Sólin skein enn glatt þegar írsku
gestirnar komu að Alþingishúsinu
við Austurvöll stuttu síðar. Ólafur
G. Einarsson, forseti Alþingis, tók
þar á móti gestunum og greindi
þeim frá störfum þingsins í stórum
dráttum. Frú Mary sýndi því sér-
stakan áhuga að þingið starfaði í
einni deild. Sjálf sat hún í efri deild
írska þingsins í 20 ár. Eftir ávarp
Ólafs lýsti hún yfir virðingu sinni
fyrir þinginu, hinu elsta í heiminum,
og sagðist ætla að fræðast meira
um það þegar heim kæmi.
Ólafur fylgdi frú Mary á þing-
palla og gerði Ragnar Arnalds, sem
sat í forsetastól, stutt hlé á störfum
þingsins í tilefni heimsóknar henn-
ar. Þingmenn risu úr sætum frú
Mary til heiðurs. Ekki er vitað til
að þjóðhöfðingi hafi áður heimsótt
alþingi á meðan á þingfundur hefur
staðið. I lok heimsóknarinnar færði
Ólafur frú Mary glerbakka eftir
glerlistakonuna Ingu Elínu.
Hópur leikskólabarna úr leikskól-
um í miðborginni hafði stillt sér upp
á gönguleið frú Mary frá Alþingi
að Listasafni íslands. Börnin veif-
uðu íslenskum og írskum fánum og
sungu Öxar við ána við raust. Þeim
var þakkað fyrir sönginn með lófa-
klappi.
Óskaði Árnastofnun
velfarnaðar
Eftir að hafa skoðað úrval ís-
lenskra málverka í Listasafni ís-
lands undir leiðsögn Aðalsteins Ing-
ólfssonar, listfræðings, og Knúts
Bruun, formanns safnaráðs, var
ferðinni svo heitið í Stofnun Árna
Magnússonar.
Stefán Karlsson, forstöðumaður,
tók á móti forsetahjónunum í stofn-
unni og sýndi þeim nokkur handrit.
Frú Mary sýndi lögbókum hvað
mestan áhuga en af öðrum handrit-
um á sýningu í tilefni heimsóknar
hennar má nefna Landnámu og ís-
lendingabók Ara fróða. „Ég las fyr-
ir hana úr íslendingabók þar sem
Ari segir frá írskum mönnum sem
hér voru þegar fyrstu norrænu
landsnámsmennirnir komu. Þeir
höfðu sig á braut því að þeir vildu
ekki búa innan um heiðið fólk en
skildu eftir sig írskar bækur og
bjöllur og bagla,“ rifjaði Stefán upp
eftir heimsóknina. Eftir að handrit-
in höfðu verið skoðuð sýndi Stefán
forsetahjónunum ljósprentun hand-
rita og bækur um tengsl íslands
og írlands í Málstofu og litið var
inn á lesstofu Árnastofnunar. Á
lesstofunni voru innlendir og er-
lendir fræðimenn við vinnu sína.
Stefán sagði að frú Mary hefði
sýnilega haft grundvallarþekkingu
á íslenskri menningararfleifð. Hún
og eiginmaður hennar hefðu sýnt
handritunum mikinn áhuga. í lok
heimsóknarinnar var frú Mary gefin
ensk útgáfa bókar Jónasar Krist-
jánssonar, fyrrverandi forstöðu-
manns safnsins, Handritaspegils.
Neðan við nafn sitt ritaði hún í
gestabók á írsku „Velfarnaðaróskir
stofnuninni til handa“.
Eftir heimsóknina í Stofnun Árna
Magnússonar var haldið að Hótel
Sögu. Frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, hélt svo frú Mary
Robinsson og hr. Nicholas Robin-
son, eiginmanni hennar, hátíðar-
kvöldverðarboð í Súlnasal hótelsins
í gærkvöldi. Á matseðlinum voru
laxahrögn og gæsalifur í Sauternes-
hlaupi, hunangs- og sinnepsgljáður
lambahryggvöðvi með Madeirasósu
og mangóís. Á eftir var borið fram
kaffi. Við hátíðarkvöldverðinn var
leikin tónlist frá írlandi og íslandi.
Vegna veðurspár var ákveðið að
fresta áætlaðri þyrluferð írska for-
setans og föruneytis í dag, að Gull-
fossi og Geysi og til Þingvalla,
þangað til á morgun. Forsetinn
heimsækir Háskóla íslands og
Kjarvalsstaði fyrir hádegi í dag eins
og ráð var fyrir gert á morgun.
Gestir forsetans
ÞESSIR^gestir sátu kvöldverðarboð
forseta Islands til heiðurs forseta
írlands frú Mary Robinson og hr.
Nicholas Robinson í Súlnasal Hótel
Sögu í gærkvöldi:
Forseti íslands Vigdís Finnboga-
dóttir. Heiðursgestir og fylgdar-
lið: Forseti írlands frú Mary Robin-
son og hr. Nicholas Robinson. Vara-
utanríkisráðherra frú Eithne Fitz-
gerald, T.D. Sendiherra Andrew
O’Rourke og frú Hanne O’Rourke.
Hr. Padraic MacKernan ráðuneytis-
stjóri og hr. Peter Ryan forsetarit-
ari. Fr. Bride Rosney ráðgjafi for-
seta. Hr. John 0. Burke prótokoll-
stjóri. Hr. Pat O’Sullivan deildar-
stjóri. Hr. Conor Barrington sendi-
ráðsritari. Fr. Ann Lane aðstoðar-
maður forseta. Fylgdarmaður ír-
landsforseta frú Guðrún Erlends-
dóttir hæstaréttardómari og hr. Örn
Clausen. Ríkisstjórn: Davíð Odds-
son forsætisráðherra og frú Ástríð-
ur Thorarensen. Frú Rut Ingólfs-
dóttir. Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra og frú Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir. Halldór Blöndal
samgönguráðherra og frú Kristrún
Eymundsdóttir. Finnur Ingólfsson
viðskiptaráðherra og frú Kristín
Vigfúsdóttir. Guðmundur Bjama-
son umhverfísráðherra og frú Vig-
dís Gunnarsdóttir. Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra og hr.
Haraldur Sturlaugsson. Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra og starf-
andi utanríkisráðherra og frú Sig-
rún Magnúsdóttir. Embættismenn
o.fl.: Frú Halldóra Eldjárn, fv. for-
setafrú. Herra Ólafur Skúlason
biskup íslands og frú Ebba Sigurð-
ardóttir. Steingrímur Hermannsson
fv. forsætisráðherra og frú Edda
Guðmundsdóttir. Ragnheiður Haf-
stein fv. forsætisráðherrafrú. Erna
Finnsdóttir frv. forsætisráðherr-
afrú. Vala Ásgeirsdóttir frv. forsæt-
isráðherrafrú. Dr. Jónas Kristjáns-
son formaður orðunefndar og frú
Sigríður Kristjánsdóttir. Salome
Þorkelsdóttir frv. forseti Alþingis.
Jón H. Bergs aðalræðismaður vara-
form. Fél. kjörræðismanna og frú
Gyða Bergs. Guðmundur Bene-
diktsson frv. ráðuneytisstjóri og frú
Kristín Claessen. Þór Magnússon
þjóðminjavörður og frú María
Heiðdal. Ólafur B. Ólafsson formað-
ur VSI og frú Hildur Guðmunds-
dóttir. Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri og frú Ingibjörg Kristinsdótt-
ir. Núverandi og fyrrverandi
sendiherrar íslands í írlandi:
Benedikt Ásgeirsson sendiherra.
Sigurður Bjarnason frv. sendiherra
og frú Ólöf Pálsdóttir. Ólafur Egils-
son sendiherra og frú Ragna Ragn-
ars. Sendiherrar erlendra ríkja:
Sendiherra Rússlands Iouri Rec-
htetov. Formenn stjórnmála-
flokka: Kristín Ástgeirsdóttir þing-
kona Kvennalistans. Jóhanna Sig-
urðardóttir form. Þjóðvaka. Ir-
landstengsl og viðskiptaaðilar:
Aðalræðismaður íslands í Dublin
hr. Patrick J. McCartan og frú
McCartan. Davíð Sch. Thorsteins-
son aðalræðismaður írlands og frú
Stefanía Sch. Thorsteinsson. Sig-
urður A. Magnússon rithöfundur
og frú Sigríður Friðjónsdóttir. Brian
Holt fv. aðalræðismaður og frú
Guðrún Holt'. Thor Vilhjálmsson rit-
höfundur og frú Margrét Indriða-
dóttir. Jónas Árnason rithöfundur.
Helgi Jóhannsson forstjóri Sam-
vinnuferða/Landsýn og frú Hjördís
Bjarnason. Jón Asbergsson fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs og
frú María Dagsdóttir. Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða og frú
Peggy Helgason. Magnús Magnús-
son rithöfundur. Fjölmiðlar: Kári
Jónasson fréttastjóri hljóðvarps og
frú Ragnhildur Valdimarsdóttir.
Jón Kristjánsson ritstjóri Tímans
og frú Margrét Einarsdóttir. Katr-
ín Pálsdóttir fréttamaður og hr.
Ágúst Ragnarsson. Árni Snævarr
fréttamaður Stöð 2-Bylgjan. Jón
Baldvin Halldórsson fréttamaður
RUV og frú Svanhildur Á. Árna-
dóttir. Gréta Ingþórsdóttir frétta-
maður Mbl. og hr. Gísli Hjartar-
son. Undirbúningsaðilar. Skrif-
stofa forseta íslands: Kornelíus
Sigmundsson forsetaritari og frú
Inga Hersteinsdóttir. Vigdís
Bjarnadóttir deildarstjóri og hr.
Guðlaugur T. Karlsson. Vilborg
Kristjánsdóttir deildarstjóri og hr.
Hrafn Pálsson. Sigríður H. Jóns-
dóttir deildarstjóri. Steinunn
Tryggvadóttir aðstoðarm. og hr.
Kristján S. Bjarnason. Forsætis-
ráðuneytið: Ólafur Davíðsson
ráðuneytisstjóri og frú Helga Ein-
arsdóttir. Aðalsteinn Maack eftir-
litsmaður. Kristján Andri Stefáns-
son deildarstjóri. Utanríkisráðu-
neyti:. Helgi Ágústsson ráðu-
neytisstjóri og frú Hervör Jónas-
dóttir. Sigríður Snævarr prótokoll-
stjóri og hr. Kjartan Gunnarsson.
Hjördís Gunnarsdóttir deildarstjóri
og hr. Tómas Á. Tómasson. Bjarni
Sigtryggsson upplýsingafulltrúi.
Sveinn Björnsson sendiherra, fv.
forsetaritari. Heilbrigðisráðu-
neytið. Davíð Á. Gunnarsson ráðu-
neytisstjóri og frú Elín Hjartar.
Alþingi: Ólafur G. Einarsson for-
seti Alþingis. Helgi Bernódusson
deildarstjóri og frú Gerður Guð-
mundsdóttir. Hæstiréttur: Har-
aldur Henrýsson forseti hæstarétt-
ar og frú Elísabet H. Kristinsdótt-
ir. Reykjavíkurborg: Forseti
borgarstjórnar Guðrún Ágústs-
dóttir. Kjarvalsstaðir: Gunnar
Kvaran forstöðumaður. Stofnun
Árna Magnússonar: Stefán Karls-
son forstöðumaður. Háskóli ís-
lands: Dr. Sveinbjörn Björnsson
rektor Háskóla íslands og frú Guð-
laug Einarsdóttir. Prófessor Jónat-
an Þórmundsson og frú Solveig
Ólafsdóttir. Þingvellir: Sigurður
Líndal prófessor og frú María Jó-
hannsdóttir. Andrés Valdimarsson
sýslumaður og frú Katrín Helga
Karlsdóttir. Landhelgisgæslan:
Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri.
Flugvöllur: Þorgeir Þorsteinsson
sýslumaður. Pétur Guðmundsson
flugvallarstjóri og frú Hrafnhildur
Héðinsdóttir. Þorgeir Pálsson flug-
málastjóri og frú Anna Haralds-
dóttir. Lögreglan: Böðvar Braga-
son lögreglustjóri og frú Gígja
Björk Haralsdóttir. Vinaskógur:
Hulda Valtýsdóttir form. Skóg-
ræktarfélags íslands.