Morgunblaðið - 29.05.1996, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Kælismiðjan Frost hf. á Akureyri færir út kvíarnar
Hefur framleiðslu á plötu-
frystum hérlendis á ný
Morgunblaðið/Kristján
FYRSTU þrír plötufrystar sem Kælismiðjan Frost hf. framleiðir
hafa verið settir um borð í Frosta ÞH frá Grenivík. Á myndinni
eru Jón Rúnar Þorsteinsson, starfsmaður Slippstöðvarinnar hf.
og Guðmundur Hannesson, starfsmaður Frosts að koma einum
slíkum niður um lestarlúguna á Frosta.
KÆLISMIÐJAN Frost hf. hefur
hafið framleiðslu á plötufrystum
fyrir landvinnslu og frystiskip.
Þessa dagana er verið að setja þijá
fyrstu plötufrystana, sem fram-
leiddir eru hérlendis, um borð í
Frosta ÞH, en skipið er í breyting-
um hjá Slippstöðinni hf.
Plötufrystar hafa ekki verið
framleiddir hérlendis frá því á 6.
áratugnum og þá aðeins fyrir land-
kerfi. Frost hefur í samvinnu ABB
á Ítalíu hannað nýja gerð af plötu-
frysti fyrir íslenskan markað, sem
mætir auknum kröfum um gæði
frystingarinnar, að sögn Elíasar
Þorsteinssonar, deildarstjóra Kæli-
smiðjunnar Frosts á Akureyri.
„Nú eru gerðar kröfur um það í
frystingunni að allar pakkningar
séu sléttar og betri og við höfum
mætt þessum kröfum með sterk-
byggðari tækjum. í því sambandi
má nefna að flatarþrýstingur á plöt-
urnar í hefðbundnum tækjum er
0,25-0,5 kg á cm2 en í þessum
tækjum okkar er þrýstingurinn 0,75
kg á cm2,“ segir Elías.
Erum samkeppnishæfir við
aðra framleiðendur
ABB á Ítalíu hefur framleitt
plötufrysta fyrir Frost í á annað
ár, sem heita Samifi Islandia og
voru hannaðir í samvinnu fyrirtækj-
anna. „Með samvinnu við svona
stórt fyrirtæki eins og ABB höfum
við náð lágmarks framleiðsiukostn-
aði og erum samkeppnishæfir í
verði við aðra framleiðendur, þrátt
fyrir að vera með aukinn styrk í
okkar frystum og um leið afkasta-
meiri tæki. Þessa framleiðslu höfum
við nú tekið heim og erum um leið
nær markaðnum. Það gefur okkur
möguleika á að vera sveigjanlegri
í stærðum á tækjunum, til að mæta
t.d. mismunandi gerðum pakkn-
inga.“
Elías segir að frysting á Islandi
byggist að langmestu leyti á plötu-
frystingu. Stærstu frystamir hafa
verið 16 stöðva en í útfærslu Frosts
er hægt að smíða 21 stöðva tæki,
fyrir loðnu- og síldarfrystingu og
þau tæki afkasta um 20 tonnum á
sólarhring. Auk þess sem plötu-
frystar eru settir um borð í Frosta
ÞH, hefur fyrirtækið selt einn slíkan
um borð í Eyborgina EA, sem er í
breytingum í Noregi.
Kanna möguleika á að nota
nýjan kælimiðil
„Við erum mjög stoltir yfir þess-
ari framleiðslu okkar og teljum að
hún hafi tekist ákaflega vel og í
raun betur en við þorðum að vona.
Það eru þegar famar að berast frek-
ari fyrirspurnir um tækið og við
emm bjartsýnir á framhaldið. Þetta
hefur verið eitt af okkar hugsjóna-
verkefnum og með því að færa
framleiðsluna til landsins erum við
um leið að fjölga störfum og auka
framleiðni í landinu. Ef markaður-
inn tekur tækinu vel þýðir það enn
frekari fjölgun starfa og möguleika
á útflutningi. Við tökum þó eitt
skref í einu,“ segir Elías.
Þá er fyrirtækið einnig að kanna
möguleika á að nota nýjan kælimið-
il í frystikerfi, sem kæmi þá í stað-
inn fyrir ammoníak og aðra hefð-
bundna kælimiðla og er alveg skað-
laust. Málið er á frumstigi og vildi
Elías ekki fara nánar út í þá sálmá
á þessari stundu.
Um 55 starfsmenn á Akureyri
og í Reykjavík
Kælismiðjan Frost hf. er með
starfsemi bæði á Akureyri og í
Reykjavík og hjá fyrirtækinu vinna
samtals um 55 manns. Um 20
starfsmenn vinna í framleiðslu og
þjónustu á Akureyri og í Reykjavík
starfa um 20 manns í þjónustu og
um 15 manns á tæknideild og skrif-
stofu. Fyrirtækið flutti í eigið hús-
næði á Akureyri sl. haust, alls um
500 fm að gólffleti og segir Elías
að það hafi reynst of lítið strax
daginn eftir flutninginn. Stærð lóð-
arinnar gefur möguleika á að
byggja við húsnæðið og segir Elías
að þegar sé farið að athuga með
byggingu á sérhönnuðu fram-
leiðsluhúsnæði. Fyrirtækið er hins
vegar í leiguhúsnæði í Reykjavík.
Kælismiðjan hefur nýlega sett
upp frystikerfi hjá rækjuvinnslu
Meleyrar hf. á Hvammstanga og
er þessa dagana að setja upp frysti-
kerfi í nýja frystigeymslu Þormóðs
ramma hf. á Siglufirði. Þá hefur
fyrirtækið nýlega afhent frystikerfi
í togarann Svalbarða SI frá Siglu-
firði, sem keyptur var frá Akureyri
og hét áður Svalbakur EA.
O • ACO • ACO • ACO
Kl
Umhverlisvæn
(jósritun
i gæðaflokki
aca
SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVIK
SÍMI: 562 7333 • FAX: 562 8622
Nýjung í gjaldeyrisviðskiptum íslandsbanka
Hægt að panta gjald-
eyri gegnum tölvu
ÍSLANDSBANKI býður nú fyrir-
tækjum með svonefnda Skjálínu,
sem er tölvutenging við bankann,
að panta erlendan gjaldeyri í gegn-
um töivu. Þetta á við um seðla, ferða-
tékka, ávísanir, bréflegar greiðslur,
símgreiðslur og aðra greiðslumiðla.
Jafnframt er hægt að panta greiðsl-
ur á innheimtum, ábyrgðum og er-
lendum lánum með Skjálínunni, að
því er segir í frétt.
Þessir möguleikar hafa verið not-
aðir í tilraunaskyni hjá völdum fyr-
Víð skiptum við
35
Héðinn Stefánsson
er stöðvarstjón Sogsstöðva hjá Landsvirkjun.
Hann er
Vélfrœðingur...
Starf hans er fólgið í umsjón með daglegum
rekstri þriggja stöðva: Ljósafossstöðvar,
írafossstöðvar og Steingrímsstöðvar.
Hann stjórnar eftirliti með vélbúnaði, viðhaldi
og keyrslu margbrotinna og flókinna tækja.
Nán.iri upplýsiii)>íir vcitir:
AtvinnureHendur! ^
1 Islands
SPARISJOÐ VELSTJORA
Vanti ykkur traustan starfsmann
með víðtæka sérmenntun á tæknisviði,
bæði bóklega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
Borgartúni IS, 105 Rcvkjnvík|
Sími: 562-9062
irtækjum undanfarna mánuði og
gefist vel. Hingað til hafa starfs-
menn fyrirtækja þurft annaðhvort
að koma í bankann til að panta gjald-
eyri eða senda símbréf. Núna þarf
aðeins að skrá pöntunina í Skjálín-
una og berst hún þá til viðkomandi
útibús. Starfsfólk útibúsins afgreiðir
síðan pöntunina, sendir greiðsluna
eða tekur til seðla og sendir skilaboð
með Skjálínunnium að pöntunin
hafi verið afgreidd. Ef um seðla er
að ræða getur fyrirtækið látið fylgja
pöntuninni hver sækir þá og hve-
nær. Eins geta notendur geymt eldri
pantanir og sent síðar með breyttum
upplýsingum, t.d. upphæðum.
Þetta fyrirkomulag er til mikils
hagræðis fyrir fyrirtækin og jafn-
framt eykur það öryggi í viðskiptum,
því hægt er að geyma allar upplýs-
ingar um gjaldeyrispantanir í tölv-
unni, segir ennfremur.
-------» ♦ ♦--------
Stórmynd sum-
arsins slær met
Los Angeles. Reuter.
STÓRMYND sumarsins frá Para-
mount , Mission: Impossible (Hættu-
för), sló met nýlega þegar seldir voru
aðgöngumiðar á fyrstu sýningarnar
fyrir 11.75 milljónir dollara á tveimur
dögum í miðri viku að sögn Viacom.
Paramount segir að fyrra metið
sé frá 1991 þegar seldir voru að-
göngumiðar að sýningum á 2. hluta
Tortímandans fyrir 11.66 milljónir
dollara á þriðjudagi og miðvikudegi.
Minni hag-
vexti spáð í
Danmörku
Kaupmannahöfn. Reuter.
DANSKA efnahagsráðið gerir
ráð fyrir minni hagvexti á Dan-
mörku en áður hefur verið spáð
og telur að stjórnin muni ekki
ná því markmiði að ná jöfnuði
á ríkisfjárlögum 1998.
Spáin gerir ráð fyrir að verg
landframleiðsla aukist um 0,9%
á þessu ári, en fyrri spá gerði
ráð fyrir að framleiðslan mundi
aukast um 2,4%. Ráðið kennir
deyfð sem hafi hafizt í heimin-
um 1995 um lítinn vöxt 1996.
Einkaneyzla og útflutningur
muni því lítið aukast.
Ráðið segir að aukin kostn-
aður vegna ellilífeyris, barns-
burðarleyfa og annarra bóta
velferðarkerfisins muni að
engu gera það yfirlýsta mark-
mið stjórnarinnar að tryggja
jöfnuð á rikisfjárlögum 1988.
Ríkisfjárhalli verði minnst
1,5% af landstekjum allan þann
tíma sem spáin nær til.
Of mikil svartsýni?
Ráðið telur nú að einka-
neyzla aukist um 0,5% 1996
en ekki 2,7% eins og það hafði
áður spáð. Hagfræðingur Jyske
Bank telur ráðið of svartsýnt
þar sem margt bendi til aukinn-
ar einkaneyzlu í Danmörku.
Hann telur einnig að spá ráðs-
ins um landframleiðsluna lýsi
of mikilli varkárni, þótt aukn-
ingin 1996 verði tæpast 2,4%
eins ráðið spáði áður.
Skýrslan er ekki neikvæð að
öllu leyti. Sagt er að landfram-
leiðsla muni aukast á ný í 2,2%
1997 og 2,5% 1998, en neyzla
muni aukast um 2,5% 1997 og
3,9% 1998.
McDonalcPs
o g Walt Disn-
ey í bandalag
Chicago. Reuter.
McDONALD’s og Walt Disney,
tvö af þekktustu fyrirtækjum
heims, hafa ákveðið að taka
höndum saman um gagn-
kvæma kynningu um allan
heim.
Samningur um bandalag til
10 ára tekur gildi í janúar og
samkvæmt honum munu
18.700 veitingahús McDonald’s
í 93 löndum tengjast kvik-
myndum, skemmtigörðum og
myndbandsspólum Walt Disney
fyrirtækisins.
Samningurinn mun hafa
mikinn sparnað í för með sér
hjá báðum fyrirtækjum, meðal
annars vegna vinsælda þeirra
beggja meðal barna. Samvinnu
McDonald’s við BurgerKing
verður hætt.
Toyota með
verulegan
hagnað
Tókýó. Reuter.
TOYOTA, annar helzti bifreiða-
framleiðandi heims, skilaði
verulegum hagnaði á síðasta
fjárhagsári og telur að veikt jen
og frekari ráðstafanir til að
draga úr kostnaði og auka sam-
keppnishæfni muni stuðla að
meiri hagnaði á þessu ári.
Nettóhagnaður nam 256.98
milljörðum jena (2.40 milljörð-
um dollara) 1995/96 þrátt fyr-
ir heldur minni sölu.
Hagnaðurinn jókst um 46%
miðað við heilt ár. Síðan 1994
hefur fjárhagsári Toyota lokið
í marz í stað júní.
Á níu mánuðum til 31. marz
1995 skilaði fyrirtækið nettó-
hagnaði upp á 131.95 milljarða
jena (1.23 milljarða dollara.