Morgunblaðið - 29.05.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996 23
STUTT
Herskylda
afnumin
JACQUES Chirac, forseti
Frakklands, tilkynnti í gær í
sjónvarpsávarpi á áætlun sína
um að afnema herskyldu og
koma þess í stað á þegnskyldu-
vinnu fyrir karla. Konum verð-
ur heimilt að gegna henni en
eingöngu sem sjálfboðaliðar.
Þrír mánuðir eru frá því að
Chirac tilkynnti að hann hygð-
ist afnema herskyldu fyrir árið
2002. Segir hann að með því
sparist fjármunir og herinn
verði betur búinn til þess að
sinna skyldum sínum.
9 daga upp-
reisn lokið
FRANSKIR hermenn bundu í
gær endi á uppreisn í Mið-Afr-
íkulýðveldinu er þeir fylgdu
270 þarlendum hermönnum
aftur til herskála sinna. Hafði
franskur herforingi samið um
uppgjöf þeirra gegn sakar-
uppgjöf. Þrátt fyrir misheppn-
aða uppreisnartilraun, segja
stjórnarandstæðingar í lýð-
veldinu að hún hafi skaðað
mjög stjórn Ange-Felix Pat-
asse, forseta þess.
Engar breyt-
ingar á Kýpur
KOMMÚNISTAR juku fylgi
sitt í þingkosningunum sem
fram fóru á gríska hluta Kýp-
ur um helgina en það hefur
þó engin áhrif á stjórn hægri-
mannsins Glafcos Clerides,
sem hélt velli. Einkenndust
kosningarnar sem fyrr af
skiptingu eyjarinnar á milli
Grikkja og Tyrkja og for-
dæmdi leiðtogi Tyrkja úrslitin,
sem hann sagði gera að engu
vonir um að sættir næðust á
milli þjóðanna.
E-vítamín
gegn öldrun
E-VÍTAMÍN-skammtar kunna
að hægja á áhrifum öldrunar
á ónæmis- og taugakerfi
manna og kunna ennfremur
að eiga sinn þátt í því að hægja
á afleiðingum sjúkdóma á borð
við Alzheimer. Þetta kemur
fram í grein bandarískra vís-
indamanna sem birtist í Proce-
edings of the National Aca-
demy of Sciences. Þar kemur
fram að dagsskammturinn
megi þó ekki fara upp fyrir
800 gr. á dag.
Gítörum
bjargað
BRESKU rokkstjörnunni Eric
Clapton tókst með naumindum
að bjarga gítörum sínum er
íbúð hans í Lundúnum brann
um helgina. Er hann varð elds-
ins var, greip hann hljóðfærin
með sér. Enginn slasaðist í
brunanum en íbúðin, sem met-
in er á 100 milljónir ísl. kr.
er hins vegar stórskemmd.
Illa farinn hljóðriti ValuJet-þotunnar fundinn
Skilaboð til flugsljóra
um eld rétt eftir flugtak
Miami. Reuter.
HLJÓÐRITI DC-9 þotu flugfé-
iagsins ValuJet, er fórst á fenja-
svæðum Flórida fyrir tveimur vik-
um fannst á sunnudag. Hljóðritinn
var illa farinn, beyglaður og blaut-
ur, en vonir standa til að upptökur
á samtölum áhafnarinnar muni
gefa skýringu á því hvers vegna
eldur kom upp í vélinni, skömmu
áður en hún brotlenti. Þegar hefur
verið greint frá því að sex mínút-
um eftir flugtak var hurðinni á
flugstjórnarklefanum skellt upp
og einhver heyrist hrópa að eldur
hafi brotist út.
Sérfræðingar hófu rannsókn á
hljóðritanum á mánudag og segj-
ast þeir vongóðir um að upptök-
urnar séu að mestu leyti
óskemmdar. Þeir tóku hins vegar
fram að það væri mjög tímafrekt
að rannsaka hljóðritann og enginn
leið að segja til um hvenær því
starfi yrði lokið.
Vonast þeir að upptökumar
muni varpa ljósi á hvort og þá
hvaða þátt farmur af viðkvæmum
súrefnistönkum og uppblásnum
flugvéladekkjum áttu þátt í slys-
inu, en farmurinn var geymdur í
birgðarými rétt fyrir aftan flug-
stjórnarklefann. Súrefnistankarnir
voru 119 talsins og hafði ekki
verið leitað eftir tilskildu leyfi til
að flytja þá.
Hitastigið náði
468 gráðum
Talið er að ástæður slyssins
muni ekki liggja ljósar fyrir fyrr
en eftir nokkrar vikur og jafnvel
mánuði en líklegasta kenningin er
talin vera sú að mikill eldur hafi
brotist út í fremra farangursrými
og komist út í farþegarými.
Bráðnað sæti úr áli og hlutar
af brenndum handfarangurs-
geymslum í farþegarými auk sót-
skemmda benda til að farþega-
rýmið hafi fyllst af svörtum reykj-
armekki og eldi skömmu áður en
vélin hrapaði. Sérfræðingar, sem
vinna að rannsókn málsins, segja
að hitastigið hafi orðið að ná 468
gráðum til að valda skemmdum
af þessu tagi.
Robert Francis, aðstoðarfor-
stjóri bandarísku samgönguör-
yggisstofnunarinnar, sagði við
blaðið Miami Herald að eftir
fyrstu hlustun á óljósar upptök-
urnar virðist sem að hurðin að
flugstjórnarklefanum hafi verið
opnuð og einhver lýsi því yfir að
Reuter
HLJÓÐRITINN er illa farinn
eftir að hafa verið í kafi í
tvær vikur í fenjum Flórida
en sérfræðingar vonast samt
sem áður eftir að geta nálg-
ast þær upplýsingar, sem
hann hefur að geyma.
eldur sé í farþegarými. Þá virtist
hafa verið gefið í skyn að erfitt
væri að „fá súrefni“. Hann vildi
ekki velta vöngum yfir því hvort
að með þessu hefði verið átt við
að erfitt væri að ná niður súrefnis-
grímum eða hvort að loftlaust
væri í vélinni.
Súrefnisgrímum er ætlað að
veita súrefni ef loftþrýstingur
fellur skyndilega en þær eru
gagnslausar gegn reyk af völdum
elds.
Talið er að flugfreyja hafí borið
skilaboðin um eld til flugstjóra og
munu sérfræðingar reyna að kom-
ast að því hvers vegna dyr að flug-
stjórnarklefa hafi verið opnaðar í
stað þess að bera skilaboðin í
gegnum talstöðvakerfí vélarinnar
líkt og reglur segja til um.
Erfitt verk
Francis sagði að þetta væru ein-
ungis bráðabirgðaniðurstöður.
Upptökurnar eru þrjátíu mínútur
að lengd, þar af nokkur tími fyrir
flugtak. Fyrsta vísbendingin um
að eitthvað hefði farið úrskeiðis
barst eftir sex mínútna flug. „Það
er mjög, mjög erfitt að rýna í sam-
ræður á spólunum," sagði Francis
og bætti við að líklega myndi það
taka marga daga áður en því verki
væri lokið.
Leit stendur enn yfir í Evergla-
des-fenjunum að 27 ára gömlum
aðalstraumrofa vélarinnar, sem
einnig var staðsettur fyrir aftan
flugstjórnarklefann. Minniháttar
viðgerð var framkvæmd á straum-
rofanum sama dag og slysið átti
sér stað.
110 fórust er vélin hrapaði.
SBALEN O
Ég skipti líka á
og Baleno
Corollunni minni
Bjami Guðjónsson
Komdu sjálfum þérog
fjölskyldu þinni á óvart.
Prufukeyrðu Baleno í dag!