Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 41
Skaðabótalög
númer tvö
Psoriasis — hvað
er til ráða?
Hin þriðju boðuð
NÚ HEFUR Alþingi
samþykkt ný skaða-
bótalög, sem taka gildi
1. júlí 1996. Fyrri lögin
giltu frá 1. júlí 1993,
svo að þijú ár eru á
milli. Jafnframt er nú
ráðherra falið að skipa
nefnd sérfræðinga er
undirbúi þriðju lögin,
og verði frumvarp lagt
fram eigi síðar en í
október 1997.
Skaðabótalög eiga
helst að standa lengi
svo að framkvæmdin
nái að festast í sessi.
Breyting þeirra með
stuttu millibili er hið
mesta klúður. Flas er ekki til fagn-
aðar. Brugðið var á það ráð til að
spara tíma að þýða dönsk lög á ís-
lensku. Málið var ekki kannað eða
rætt að neinu gagni.
Fljótlega þóttust menn sjá agnúa
á lögunum, ekki síst þann að síasað-
ir fengju of lágar bætur, og upp
hófust kröfur um breytingar. Um-
ræðan fór í þann farveg að snúast
aðallega um efni sem hefði átt að
athuga síðar, nefnilega iðgjöld bíla-
trygginga. Aftur var tímahrak og
því voru samþykktar breytingar á
lögunum, en um leið ákveðið að láta
vinna að nýjum breytingum.
Hér má hafa að leiðar-
ljósi, segir Jón Erling’-
ur Þorláksson, samn-
ing Tryggingastofnunar
við Háskóla íslands um
rannsókn bótakerfa.
Tveimur atriðum var breytt með
skaðabótalögum númer tvö. Bóta-
þröskuldur í 8. grein færist niður
úr 15% í 10% og margföldunarstuð-
ull svokallaður hækkar úr 7,5 í 10.
Hér verður rætt í stuttu máli um
breytingarnar.
Fyrst er þess að geta, að í lögun-
um er slösuðum skipað í tvo hópa
með ólíkum bótareglum. í fyrri
hópnum eru börn og unglingar,
námsmenn, húsmæður og aðrir þeir
sem ekki unnu fyrir tekjum árið
fyrir slys. Þessi hópur fær staðlaðar
bætur, þar sem eingöngu er farið
eftir svokölluðu miskamati. í hinum
hópnum eru þeir sem voru í atvinnu-
lífinu. Bætur til síðari hópsins byggj-
ast bæði á miskamati (miskabætur)
og fjárhagslegu örorkumati (bætur
fyrir varanlega örorku), þar sem
taka á tillit til persónulegra atriða
hjá hinum slasaða auk sjálfs áverk-
ans.
Fyrri breytingin, það er lækkun
bótaþröskuldsins úr 15% í 10%,
snertir hina tekjulausu. Rétt er að
skoða hvernig miski er metinn. Þá
tek ég hálsáverka, enda eru þeir
algengastir. Við matið er farið eftir
töflu um miskastig, sem örorkunefnd
gefur út. Þar segir um mat áverka
á hálshrygg
Eymsli og óveruleg hreyfiskerðing,
allt að 5
Miðlungi mikil eymsli, hreyfiskerð-
ing og dofatilfinning 6-10
Mikil eymsli, hreyfiskerðing og rót-
arverkur 11-14
Algjörlega upphafin hreyfing í háls-
hrygg 20-25
Óvenju slæmar afleiðingar mjúk-
vefjaráverka +1-5
Taflan er fyrst og fremst leiðbein-
andi um mat áverka.
Samkvæmt fyrstu skaðabótalög-
unum, sem gilda til 1. júlí nk., þarf
miskastig að ná 15% til þess að
bætur fáist fyrir varanlega örorku.
Mikil eymsli, hreyfiskerðing og rót-
arverkur dugir ekki til. Ef miskastig-
ið er 15% eru bætur kr. 600.000
(miskabætur) +
780.000 (örorkubætur)
eða kr. 1.380.000 sam-
tals. Sé miskastig 14%
eru einungis greiddar
miskabætur kr.
560.000. Það veltur því
á miklu fyrir hinn slas-
aða að matið nái 15%.
Nú breytist þetta með
skaðabótalögum nr. tvö
þannig að markið fær-
ist ofan í 10%. Fyrir
10% miska verða bætur
nú 400.000 + 480.000
= 880.000, en einungis
360.000 kr. ef miska-
stig er 9%. Hér er ekki
tekin með í reikriinginn
lítiis háttar vísitöluhækkun frá 1.
júlí 1993.
Þessi lækkun bótamarksins er
greinilega til hins betra. En áfram
hlýtur það að vekja efasemdir hvort
stökk í bótum eigi rétt á sér. Við
blasir að mat miskastigs getur ekki
verið mjög nákvæmt, og því verður
það oft undir hælinn lagt hvoru
megin þröskuldar hinn slasaði lend-
ir. Um þetta hefur varla nokkuð
verið rætt hvað þá að byggt sé á
rannsóknum.
Breyting margföldunarstuðulsins
snertir síðari hópinn. Þar er gert ráð
fyrir að fundið sé árlegt tap, í tveim-
ur áföngúm. Fyrst metur örorku-
nefnd tap í hundraðshlutum af tekj-
um (örorkuprósentu), en síðan koma
málsaðilar sér saman um viðmiðun-
artekjur, nema notaðar verði tekjur
árið fyrir slys. Bætur fást svo með
því að margfalda árlegt tap með
margföldunarstuðlinum. Reyndar
kemur aldursstuðull til lækkunar ef
hinn slasaði er eldri en 25 ára.
Þá er spurningin: Er stuðullinn
10 hæfilegur? Þennan stuðul verður
að skoða sem nokkurs konar meðal-
tal. Tekjur sem við er miðað eru
brúttótekjur, þ.e. tekjur áður en
skattur hefur verið dreginn frá. En
bætur eru skattfríar. Ekki er tekið
tillit til bóta frá öðrum aðilum, t.d.
örorkubóta frá lífeyrissjóðum. Það
má því ætla að margföldunarstuðull-
inn þyrfti að vera mishár eftir að-
stæðum, hærri að öðru jöfnu ef tekj-
ur eru lágar og skattar litlir. Einn
stuðull ætti samkvæmt því að vera
hagstæður þeim sem hafa háar tekj-
ur. Ég held að ekki hafi verið kann-
að nægilega hver meðalstuðullinn
ætti að vera. Við endurskoðun lag-
anna fór vit og orka í deilur um ið-
gjöld bílatrygginganna, eins og fyrr
var nefnt, en ekki í leit að reglum
er veita þeim sem slasast hæfilegar
bætur. Eg hef áður haldið því fram
að ekki eigi að beita margföldunarst-
uðli, heldur slá hinum tveimur flokk-
um saman og nota staðalaðferðina
fyrir alla, þó þannig að hægt sé að
gera undantekningar.
Nú kem ég loks að kjarna þessa
máls: í raun og veru veit enginn
hvaða áhrif algengir áverkar hafa á
tekjur manna. Það hefur ekkert ver-
ið rannsakað. Örorkunefnd, sem á
að meta tekjutap einstaklinga í
hundraðshlutum, er skilin eftir í erf-
iðri stöðu, því að hún hefur fá eða
engin gögn að byggja á.
Hér þarf að spyrna við fótum og
hætta flaustrinu. Einfalt er að
breyta ákvæði hinna nýju skaðabóta-
laga um tímamörk nýrra breytinga.
Það sem nú þarf að gera er að rann-
saka málið í næði. Kanna hvernig
fólki farnast sem orðið hefur fyrir
slysum og hvernig helst megi meta
tekjutap þess. Þá fæst vonandi um
leið vísbending um hvernig bótaregl-
ur ættu að vera. Hér má hafa að
leiðarljósi samning sem Trygginga-
stofnun ríkisins gerði nýlega við
Háskóla íslands um rannsókn bóta-
kerfa. Þetta mál ætti að fara í sama
farveg.
Höfundur er tryggingafræðingur.
Jón Erlingur
Þorláksson
PSORIASIS er
ólæknandi sjúkdómur
sem um 6-8.000 íslend-
ingar hafa. Hann kem-
ur fram í hinum ýmsu
myndum, allt frá því
að einstaklingar eru
óvinnufærir og öryrkjar
yfir í að hafa enga eða
örfáa bletti. Psoriasis
er oft nefndur sjúkdóm-
ur hinna heilbrigðu, því
oftast stundar fólk sína
vinnu og við erum snill-
ingar í að fela sjúkdóm-
inn með því að ganga
í fötum sem hylja psor-
iasisflekkina. Sennilega
eru flestir psoriasis-
Inga J.
Arnardóttir
sjúklingar meira og minna í ljósa-
og lyfjameðferð, frá því þeir grein-
ast með sjúkdóminn. Það er ótrúlega
þreytandi að geta aldrei gleymt því
að maður er með sjúkdóm, sem víða
Ég skora á Trygginga-
ráð, segir Inga J.
Arnardóttir, að endur-
skoða afstöðu sína til
meðferða við psoriasis.
er varla viðurkenndur sem sjúkdóm-
ur. Viðhorf tiyggingayfirlæknis lýsir
þessu vel, þar sem hann í grein sinni
í Tímanum í sl. mánuði talar um
hópferðir til sólarlanda, í stað þess
að tala um loftslagsmeðferð (sjá síð-
ar). Við eigum sama rétt á meðferð
við okkar sjúkdómi og aðrir, þó svo
sú meðferð fari fram á heilsustöð í
sólarlandi! Draumur hvers psorias-
issjúklings er að vera laus við með-
ferð og lyf í einhvern tíma. Að vera
laus við kláðann og pirringinn í húð-
inni og geta gengið áhyggjulaus í
stuttbuxum og ermalausum bol í
sólinni án þess að glápt sé á mann,
er yndisleg tilfinning og svo mikill
léttir að ekki er hægt að útskýra
það með orðum!
En hvaða meðferðarúrræði eru til
við psoriasis?
Göngudeildir
Ljósaböð á göngudeildum er
sennilega sú meðferð sem er mest
notuð. Þar eru notaðir svokallaðir
UVB-geislar (ekki sama og solar-
ium) með eða án lyfja (smyrsl/
krem). Algengt er að psoriasissjúkl-
ingar séu í þessum ljósum þrisvar í
viku í 3-9 mánuði í senn og jafnvel
lengur. Mörgum okkar finnst ljósin
ágæt, þau hafa vissulega áhrif og
ná að halda sjúkdómnun niðri þann-
ig að ástandið versni ekki, en það
virðist erfitt að fá húðina vel gróna
og heila eins og heilbrigðu fólki.
Sjúkrahúsdvöl
Á Vífilsstöðum er legudeild sem
sinnir öllum húðsjúkdómum á land-
inu. Á deildinni eru í dag aðeins 9
legurúm og er hún svokölluð 5 daga
deild, þ.e. hún er lokuð allar helg-
ar, frídaga og stórhátíðir fyrir utan
miklar sumarlokanir. Á Vífilsstöð-
um eru tjöruböð mikið notuð, ásamt
öðrum lyijum og ljósaböðum.
Loftslagsmeðferð
Frá því 1979 hefur TR greitt fyr-
ir 40 psoriasissjúklinga á ári í loft-
slagsmeðferð á norræna heilsustöð
á Kanaríeyjum. Ég er ein af þeim
sem fóru í slíka ferð í mars sl. Nor-
ræna heilsustöðin Valle Marina er
mjög faglega rekin og þar vinnur
læknir, hjúkrunarfræðingar og leik-
fimiskennari. Lögð er mikil áhersla
á að sólin og sjórinn séu „lyfin“ sem
notuð eru í þessari meðferð ásamt
góðri hvíld og heilbrigðu líferni.
Flestir ef ekki allir psoriasissjúkling-
ar sem hafa reynt þessa meðferð eru
sammála um að hún sé sú öflugasta
sem þeir þekkja. Batinn kemur fyrr,
er betri og varir þar af
leiðandi í flestum tilfell-
um lengur.
Bláa lónið
Psoriasissjúklingar
baða sig í lóninu og
fara samhliða í ljósa-
meðferð. Þar eru aðal-
lega notuð rakakrem til
að næra hina þurru
húð. Þessi meðferð hef-
ur gefist mörgum vel,
en þó alls ekki öllum.
Gallinn við hana er sá,
að flestir eiga um lang-
an veg að fara. Þeir
sem búa úti á landi
gera ekki sótt hana
nema með ærnum tilkostnaði. Þeir
sem búa nær, en þó í u.þ.b. klukku-
stundar akstursfjarlægð (stór-
Reykjavíkursvæðið) eiga líka erfitt
með að stunda lónið. Til að eitthvert
gagn sé af meðferðinni þarf að
stunda hana a.m.k. þrisvar í viku.
Hver ferð tekur um 3 klst. og með
fullri vinnu, fjölskyldu o.fl. vantar
einfaldlega fleiri tíma í sólarhring-
inn! Þannig fylgir þessu stress og
álag, sem er einn versti óvinur psor-
iasissjúklinga og veldur oft útbrot-
um. Mín skoðun er sú, að ef Bláa
lónið á að vera raunhæfur með-
ferðarmöguleiki, þarf TR að taka
meiri þátt í greiðslum þeirrar með-
ferðar. Hægt er að hugsa sér að
sjúklingar dveljist á hóteli við Bláa
lónið meðan á meðferð stendur svo
þeir geti hvílst um leið, eða að hægt
væri að sjúkraskrifa fólk þrjá eft-
irmiðdaga í viku til að stunda lónið.
í dag er meðferð í Bláa lóninu ekki
aðgengileg nema fyrir örfáa og í
raun varla meira en göngudeildar-
meðferð fyrir Suðurnesjamenn.
Hvað verður í framtíðinni?
Tryggingaráð tók þá ákvörðun í
vetur að hópurinn sem fór í loftslags-
meðferð í mars sl. sé sá síðasti sem
TR muni greiða fyrir. Ef fer sem
horfir, eru í raun bara tveir meðferð-
armöguleikar fyrir flesta psoriasis-
sjúklinga á íslandi, þ.e. göngudeildir
með ljósaböðum og lyfjanotkun og
sjúkrahúsdvöl. Forsvarsmönnum TR
ásamt heilbrigðisráðherra hefur ver-
ið tíðrætt um „miklu fleiri og betri
meðferðarmöguleika í dag og öflugri
lyf,“ þess vegna hafí verið ákveðið
að hætta að greiða fyrir loftslags-
meðferðir. Hvað hefur bæst við á
síðustu árum? Jú, Bláa lónið og nýtt
lyf, Daivonex, er komið á markað.
Daivonex virkar mjög vel á marga,
en það eru líka margir sem ekki
geta notað það vegna aukaverkana.
Það eru engar rannsóknir til sem
Beatrix Potter
prjónafígúrur!
Hœð 38 cm. Pakkinn inniheldur
prjónagamib og leiðbeiningar á
ensku og íslensku.
Verð aðeins 1.190 kr.
Sendum í póstkröfu.
MIÐBÆ VIÐ HAALEITISBRAUT
SÍMI 553 7010
Opið í sumar frá kl. 13-18, virka daga.
bera saman áðurnefndar meðferðir,
þess vegna finnst psoriasissjúkling-
um ófaglegt að tala bara um meiri
og betri meðferðir. Kristján Guðjóns-
son deildarstjóri hjá TR segist „geta
veitt fleiri manns lausn fýrir sama
fé, en þeir örfáu sem voru sendir
utan“. Þetta er fullyrðing sem eng-
inn psoriasissjúklingur skilur. Hvað
vita þeir sem við vitum ekki? Þessir.
örfáu sem hann talar um eru þó 40
manns á ári, sem í flestum tilfellum
eru mjög slæmir og/eða hafa ekki
fengið lausn með þeim meðferðum
sem bjóðast. Ég get t.d. nefnt að í
síðustu ferð voru tveir sjúklingar
sem voru búnir að vera í ljósum nær
samfleytt í 2 ár, án verulegs bata.
Á þremur vikum náðu þeir mjög
góðum bata, aðrir tveir höfðu stund-
að Bláa lónið í nokkra mánuði, með
litlum árangri, þeir fengu líka mjög
góðan bata í ferðinni. Á þessu sést
hvað þessi sjúkdómur er einstakl-
ingsbundinn og dyntóttur.
Ég skora á Tryggingaráð að end-
urskoða afstöðu sína til meðferða
við psoriasis. Hvernig getur pólitískty
skipuð nefnd tekið ákvörðun um
hvaða meðferð er best við tilteknum
sjúkdómi, án þess að leita álits við-
komandi sérfræðinga? Það var ekki
leitað álits húðsjúkdómalækna þegar
þessi ákvörðun var tekin! Það er
nauðsynlegt að skoða allar meðferð-
ir sem í boði eru við psoriasis, þ.m.t.
loftslagmeðferð og meta hvernig
þær nýtast best, sjúklingum og þjóð-
félaginu í heild. Inn í það dæmi
ætti að sjálfsögðu að reikna lyfja-
kostnað, sjúkrahúsdvöl, örorku, frá-
veru frá vinnu, kostnað vegná
göngudeilda og lífsgæði sjúklinga,
svo eitthvað sé nefnt.
Þar sem sjúkdómurinn er mjög
einstaklingsbundinn og dyntóttur er
þörf á sem flestum meðferðarmögu-
leikum. Hvernig ætli standi á því
að á Norðurlöndum, í Þýskalandi,
Bandaríkjunum og víðar er loftslag-
meðferð álitin nauðsynlegur og ódýr
valmöguleiki í meðferð? Þetta er
„heilbrigðasta" meðferðin sem völ
er á og það er skrítið að hún sé lögð
niður án þess að málið sé metið á
faglegan hátt áður. Það má geta
þess í lokin, vegna ummæla í blöðum
um að margir sjúklingahópar vilji
fara til sólarlanda í meðferð. Það
er rétt að mörgum sjúklingahópum
líður mun betur í sól og hita og má
þar t.d. nefna gigtarsjúklinga, en
það er nú samt svo að psoriasis er
eini sjúkdómurinn þar sem sólin og
sjórinn eru beinlínis lyfin við sjúk-
dómnum.
Höfundur er lyfjafræðingur með
psoriasis.
POR HF
Reykjavík - Akureyri
Reykjavik: Ármúla 11 -Simi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070