Morgunblaðið - 29.05.1996, Síða 47
AUÐVELDUR er hann ekki en óvenju góður á öllum gangi og
fjörviljugur. í annarri atrennu tókst Oði og Hinrik Bragasyni að
sigra í keppni A-flokksgæðinga hjá Fáki.
DAVÍÐ Matthíasson og Pjakkur frá Stóra-Hofi höfðu mikla yfir-
burði í unglingaflokki og sigruðu. Verða þeir að teljast n\jög sigur-
stranglegir fyrir FM í sumar.
Nýja keppnin
gaf góða raun
Á FIMMTA hundrað hross komu
fram á samanspyrtu hvítasunnu-
móti Fáks og kynbótasýningu
Bændasamtakanna í Kjalarnes-
þingi. Dómar kynbótahrossa hófust
á mánudag í síðustu viku en hvíta-
sunnumótið hófst með forvali gæð-
inga á fimmtudag. Kynbótahross
voru dæmd á Víðivöllum, Varmár-
bökkum, Mosfellsbæ og í Glaðheim-
um í Kópavogi. Yfirlitssýning var á
laugardag á Víðivöllum en hápunkt-
urinn var á annan í hvítasunnu
þegar úrslit fóru fram og kynbóta-
hross verðlaunuð.
Hvítasunnumót Fáks hafa hin
síðari ár verið einn af hápunktum
hestamóta hvert ár en óhætt mun
að fullyrða að aldrei hafi keppnin
verið eins spennandi sem nú. Þar
skipti hið nýja fyrirkomulag vissu-
lega máli en mikill fjöldi góðra jafn-
ingja réð þar að sjálfsögðu mestu.
Hið nýja keppnisfyrirkomulag
féll vel í kramið hjá fjölmörgum
áhorfendum. Má telja það líklegt
til að laða að fleiri áhorfendur og
skapa meiri stemmningu í kringum
gæðingakeppnina. Ekki verður séð
af þessari fyrstu tilraun að um tíma-
sparnað sé að ræða nema þá að
um verulega mikla þátttöku sé að
ræða eins og til dæmis á lands- eða
fjórðungsmótum. Þá er ekki hægt
að horfa framhjá því að álagið á
þau hross sem ná alla leið í úrslit
eykst. Svo virðist sem þetta fyrir-
komulag sé komið til að vera.
Hvítasunnumótið gekk vel fyrir
sig að þessu sinni. Allt samkvæmt
timaáætlun á síðasta degi og meira
segja hægt að gera stutt hlé milli
atriða sem er því miður undantekn-
ing á hestamótum. Athygli vakti
hversu vel verðlaunafhendingar
gengu fyrir sig og skipti á dag-
skrárliðum en þar áttu keppendur
góðan hlut að máli. Veðurguðirnir
voru hliðhollir fáksmönnum og
hjálpar slíkt alltaf til að hressa
mótsstemmninguna sem var mjög
góð.
FARSÆLL, í sigursæti í B-flokki, og knapinn Ásgeir Svan Herbertsson fara
hér í breiðfylkingu ásamt öðrum verðlaunahöfum.
Kynbótadómar
Góð útkoma og
metþátttaka
MÖRG góð kynbótahross tryggðu sér farseðil á fjórðungsmótið
og meðal þeirra er Elding frá Víðidal, sem Þorvaldur Þorvalds-
son situr, hún varð efst af hryssum fimm vetra, með 8,14 í einkunn.
KRISTINN Hugason, hrossarækt-
arráðunautur og yfirdómari kyn-
bótadóma, var ágætlega ánægður
með heildarútkomu héraðssýning-
arinnar og sagði þátttökuna, hátt í
200 hross, meiri en áður hefði verið.
„Það er ánægjuefni að minna var
af mjög slökum hrossum en áður,
þrátt fyrir aukna þátttöku. Athygli
vakti hversu mikið af góðum hross-
um kom fram í Mosfellsbæ en þar
munaði kannski mestu að Trausti
Þór Guðmundsson sýndi öll hrossin
sem hann var með undir höndum
þar.
Aðspurður um aukna reynslu af
nýjum vinnuaðferðum kynbótadóm-
ara sagði hann það á tvo vegu.
Jákvætt væri að einkunnir væru
nú með fleiri aukastöfum þannig
að nú sé hægt að fara milliveginn
þegar um áhorfsatriði væri að ræða,
til dæmis hvort ætti að gefa 7,5
eða 8,0. Neikvætt væri að að nú
væri ekki um neitt samráð dómara
að ræða, sem er tvímælalaust slæm-
ur galli á þessu fyrirkomulagi, og
bagalegt að ekki hafi náðst sam-
staða í hrossaræktarnefnd um að
hafa þann möguleika með. Þá sagði
Kristinn ljóst að talsvert meiri tími
færi í dómsstörf nú, afköst minnkuð
um 20%. Hver dómari verður að
vera með fulla athygli á hrossunum
allan tímann sem þýðir að þeir ráða
ekki eins vel við langar vinnulotur.
Þessum annmarka muni fylgja
verulegur kostnaðarauki þegar allt
er samatekið. „Þrátt fyrir þetta er
ég jákvæður með þessar breytingar
og hvarflar ekki að mér að mæla
með að horfið verði óbreytt yfir í
gamla kerfið. Það þarf að slípa
þetta nýja kerfi til í ljósi reynslunn-
ar sem fæst, með það að leiðarljósi
að tryggja sem mest öryggi í dóm-
um og halda kostnaði við þessa
þjónustu í viðráðanlegu horfi. Það
má öllum ljóst vera að ef kostnaður-
inn fer úr böndum leiðir það til stór-
hækkunar sýningargjalda sem er
slæmur kostur fyrir meginþorra
hrossaræktenda og gæti latt menn
til að mæta með hross til dóms,“
sagði Kristinn.
Hafin eru dómstörf á Gaddstaða-
flötum þar sem eru skráð hátt í 600
hross sem er meira en nokkru sinni
fyrr og munu dómstörf taka um
hálfan mánuð. Sagðist Kristinn
gera ráð fyrir metþátttöku í kyn-
bótasýningum þetta árið.
nsmnB
SÉRVERSLUN
HESTAMANNSINS
Háaleitisbraut 68 - ; Austurver
Simi 568 4240 ssg.
GR 1400
• H: 85 B: 51 D: 56 cm
• Kælir: 140 I.
GR 1860
• H:117 B: 50 D: 60 cm
• Kælir: 140 Itr.
• Frystir: 45 Itr.
GR 2260
• H:140 B: 50 D: 60 cm
• Kælir:180 Itr.
• Frystir: 45 Itr.
GR 2600
• H:152 B: 55 D: 60 cm
• Kælir: 187 Itr.
• Frystir: 67 Itr.
GR 3300
• H:170 B: 60 D: 60 cm
• Kælir: 225 Itr.
• Frystir: 75 Itr.
Lógmúla 8 • Sími 553 8820
Umboösmenn um land allt
VoBturland: Mélnlngarþ|ónustan Akranesl, Kl. Borgllrðlnga. Borgarnesl.Blómsturvollir, Hellissandl. Guðni Hallgrlmsson, Grundarflrðl. Ásubúð.Búðardal Veatflrðlr: Gelrseyrarbúðin, Palrekslirðl. Ratverk.Bolungarvlk.Straúmur.lsatlrði. Norðurland: Kt.Stelngrlmstiarðar.Hðlmavik.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Siglufiröi.Ólafsfiröi og Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum.
Kf.Vopnfiröinga.Vopnafiröi. Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vlk, Neskaupsstaö. Kf.Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösflröi. KASK, Höfn Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirklnn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell.Keflavík. Rafborg, Grindavfk. ^