Morgunblaðið - 29.05.1996, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
ÁSDÍS JÓNSDÓTTIR,
Selfossi,
lést þann 17. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Eirikur Björnsson,
Jón Gunnar Eiríksson,
Björn Þór Eiríksson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BJÖRIM S. ÍVARSSON,
Kárastíg 8,
Hofsósi,
lést í Sjúkrahúsi Skagfirðinga, Sauðár-
króki, sunnudaginn 26. maí sl.
Sigrún S. ívarsdóttir,
Kristin S. Björnsdóttir, Skúli Skúlason,
Aðalbjörg J. Björnsdóttir, Valur Júlíusson,
Hafdís Hrönn Björnsdóttir, Valdimar Júlíusson,
Björn Emil Jónsson,
Kolbrún Sif Skúladóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐBJÖRG G. JAKOBSDÓTTIR
frá Súðavík,
lést í Landspítalanum að kvöldi 25. maí.
Jakob Þorsteinsson, Hanna Sigmannsdóttir,
Grétar Kristjánsson, Lára Þorsteinsdóttir,
Kristján Kristjánsson, Helga Sveinbjarnardóttir,
Sveinbjörn Kristjánsson, Sesselja Ingjaldsdóttir,
Samúel Kristjánsson, Rannveig Ragnarsdóttir,
Hálfdán Kristjánsson, Helga Guðjónsdóttir,
Sigurborg Kristjánsdóttir, Sveinn Pétursson,
Ásdís Kristjánsdóttir,
Svandís Kristjánsdóttir,
barnabörn óg barnabarnabörn.
t
Hjartkær sonur minn, faðir okkar og bróðir,
HANNES ÞÓRIR HÁVARÐARSON,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 25. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Dagbjört Hannesdóttir,
Hilmar Þór Hannesson,
Ragnar Þorkell Hannesson,
Hulda Hávarðardóttir,
Agnar Hávarðarson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KNUD SALLING VILHJÁLMSSON,
Mávahlíð 40,
andaðist í Landspítalanum sunnudag-
inn 26. maí.
Steinunn S. Jónsdóttir,
Anita Knútsdóttir, Helen Knútsdóttir,
Þór Steinarsson, Guðni Sigurðsson,
Sonja Steinsson Þórsdóttir, Bergþóra Guðnadóttir,
Stefán Þór Þórsson, Ómar Guðnason,
Óttar Guðnason.
t
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR SKÚLASON
trésmíðameistari,
Túngötu 14,
Keflavík,
andaðist á hjúkrunardeild aldraðra, Víðihlíð, Grindavík, mánudag-
inn 27. maí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elfn Skúladóttir,
Sigríður Skúladóttir.
ÓLAFUR
ÁRNASON
+ Ólafur Árnason
fæddist í Odd-
geirshólum í Flóa
23. maí 1915. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Selfoss 19. maí síð-
astliðinn. Ólafur
var sonur hjónanna
Árna Árnasonar frá
Hörgsholti í Hruna-
mannahreppi og
Elínar Steindórs-
dóttur Briem frá
Hruna í sömu sveit,
dóttur prestslyón-
anna þar, sr. Stein-
dórs Jóhannssonar
Briem og konu hans Kamillu.
Ólafur ólst upp í stórum systk-
inahópi, börnin voru sjö sem
upp komust, fjórir bræður og
þrjár systur. Elstur bræðranna
var Steindór, en hann dó rúm-
lega þrítugur og hafði verið
heilsuveill frá barnæsku. Næst-
elstur var svo Ólafur en ári
yngri Guðmundur og Jóhann
þremur árum
yngri. Systurnar
þijár giftust allar,
Sigríður, sem er
elst, giftist Guð-
mundi Kristjáns-
syni bónda í Arnar-
bæli í Grímsnesi,
Katrín giftist Stein-
ari Pálssyni bónda
í Hlíð í Gnúpveija-
hreppi og Ólöf Jóni
Ólafssyni banka-
sljóra Samvinnu-
bankans í Vík og
síðar á Selfossi.
Ólafur giftist
árið 1960 Guðmundu Jóhanns-
dóttur, sem var ekkja með tvo
litla drengi, og eignuðust þau
siðan eina dóttur, Kristínu, sem
er gift Kristjáni Jónssyni garð-
yrkjubónda í Hveragerði.
Utför Ólafs Árnasonar verð-
ur gerð frá Selfosskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Ólafur ákvað að bregða búi í
Oddgeirshólum árið 1985, þar sem
heilsan var ekki nægilega traust
og einkadóttirin, Kristín, kærði sig
ekki um að taka við jörð og búi.
Ólafur fékk þá bróðurson sinn,
Steinþór Guðmundsson, til þess að
hafa makaskipti við sig, Steinþór
fengi jörð og bú í Oddgeirshólum,
en Olafur nýlegt íbúðarhús við Suð-
urengi 14 á Selfossi. Þetta reyndist
öllum hið besta heillaráð, búið í
Oddgeirshólum fékk endurnýjaða
öfluga forystu, en Ólafur kær-
komna hvíld eftir 50 ára linnulítið
starf við stórt bú og þau bæði hjón-
ip hvfld eftir þrotlaust starf við stórt
og mannmargt rausnarheimili.
Þessi rúmlega 10 ár, sem þau
hjónin hafa búið á Selfossi, hafa
veitt þeim verðskuldaða hvíld, þó
að þau hafi unnið ýmis tímabundin
störf þegar slíkt bauðst eða hentaði.
Síðastliðið vor, þegar Ólafur átti
áttræðisafmæli, skrifaði sá sem
þetta ritar nokkuð ýtarlega afmæl-
isgrein um Ólaf, um hans víðtæka
bóndastarf, bæði hans merku afrek
sem íýrirmyndarbónda og ræktun-
armanns og hans merka heimili,
sem var alla tíð eitt hið glaðasta
og hollasta menningarheimili sem
hefur verið starfrækt á þessari öld
hér um slóðir og sennilega er nú
ekkert í þjóðlífinu sem brýnna er
að varðveita en slík heimili. Það sem
lengst af einkenndi Oddgeirshóla-
heimilið var hve þar var jafnan
mikið af börnum og unglingum og
þar átti einnig margt gamalt vinnu-
fólk, ættingjar og venslafólk skjól
eða athvarf í lengri eða skemmri
tíma. Þessi stóri hópur fólks, sem
átti ekki heimtingu á neinu en var
þakklátt öllu sem fyrir það var gert,
vann oft heimilinu verulegt gagn
og fann þá minna fyrir þeirri þakk-
lætisskuld, sem oft gat verið erfitt
að eiga en geta aldrei goldið.
Ég veit að alla búskapartíð Ólafs
í Oddgeirshólum voru mörg börn
og unglingar tii hjálpar í Oddgeirs-
hólum, einkum á sumrin, og hollari
kennslu var vart að fá en ganga
með Ólafi við verkin í fjósi og við
heyskapinn og ég veit að Ólafur tók
engan félagsskap fram yfir þeirra
fylgd við bústörfin. Enginn vafi er
á því, að bóndastarfið verður þeim
sem stunda það af alúð og kærleika
við skepnurnar og gróður jarðarinn-
ar einstaklega gjöfult og þrosk-
andi. Þeim bræðrunum í Oddgeirs-
hólum tókst að ná óvenjulegum
árangri í ræktun búfjárins og sér-
stæðast var að áhöld voru um það
hvar ræktunarárangurinn var mest-
ur, í fjárhjörðinni, í fjósinu eða hjá
reiðhestunum. Hér mun hafa stutt
mest að hinum mikla ræktunar-
árangri hve bræðurnir allir og svo
yngri kynslóðin, synir Guðmundar,
sem nú hafa tekið við búsforráðum
í Oddgeirshólum, voru allir sam-
hentir í ræktunarmálunum. Þó að
Ólafur starfaði mest við nautgrip-
ina, þá var hann harðglöggur og
hafði bæði gott vit á kindum og
mikinn áhuga á ræktun sauðfjár.
Það er skemmtilegt að fá það
staðfest nú, þegar nýjar hendur eru
að taka við þústörfunum, að marg-
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
RANNVEIG JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Víðihlíð,
Grindavík,
(áður Vallarbraut 2, Ytri-Njarðvík),
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Víðihlíð sunnudaginn 26. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Dætur, tengdasynir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HRAFNHILDUR SVEINSDÓTTIR
(Stella)
áðurtil heimilis
á Réttarholtsvegi 79,
lést á Spáni á hvítasunnudag.
Kristín Eyþórsdóttir, Hartmann Guðmundsson,
Lilja Dóra Eyþórsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Margrét Óskarsdóttir, Björn H. Einarsson,
Hrafnhildur Eyþórsdóttir, Sævar Ástráðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ir telja að í Oddgeirshólum sé nú
einhver best ræktaði sauðfjárstofn
í landinu, bæði með tilliti til afurða-
semi og kjötgæða.
Það var erfið ákvörðun á sinni
tíð fyrir foreldra Ólafs, þau Árna
og Elínu, að flytja úr Hrunamanna-
hreppi að Oddgeirshólum í Flóa,
sem þá var langt í burtu og fólki
í nýju sveitinni í fyrstu allt ókunn-
ugt. En fljótt lærðist fjölskyldunni
að meta landkostina í Óddgeirshól-
um og margt af því góða í átthögun-
um tóku þau með sér. Enginn vafi
er á því að í Hruna, í tíð þeirra sr.
Jóhanns og sr. Steindórs Briem, var
eitt merkasta menningarheimili
héraðsins og þar var skáldafákinum
óspart hleypt og vitað er að börn
sr. Jóhanns Briem, bæði frú Ólöf,
kona sr. Valdimars Briem á Stóra-
Núpi, og sr. Steindór í Hruna, voru
fljúgandi hagmælt. Ekki veit ég
hvort Elín í Oddgeirshólum gerði
vísur eða kvæði, en flest börnin
hennar og systkini Ólafs Árnasonar
eru_ ágætlega hagmælt.
Ólafur gaf sér ekki tíma til að
fara í skóla, en hann gat lært mik-
ið af foreldrum sínum, því að þau
voru bæði _vel að sér á þeirra tíma
vísu. En Ólafur var eins og áður
er getið í nokkur ár til sjós og jók
hann verulega víðsýni sitt í hinum
ýmsu verstöðvum sem hann reri
frá. Ólafur var bókelskur og ein-
staklega minnugur og honum tókst
að menntast mjög vel í íslenskri
tungu og íslenskum bókmenntum
með lestri fornbókmenntanna, sem
eru einstakur fróðleiksbrunnur, sem
lengi má ausa úr og aldrei þrýtur.
Ólafur var einnig mjög Ijóðelskur
og las öll ljóð, sem gefin voru út
og voru í stuðluðu formi, og þau
voru honum ómetanlegur fjársjóð-
ur, sem hann hafði mjög mörg jafn-
an á takteinum, því að hans minni
var með afbrigðum traust. Hann las
oft þær bækur, sem hann hafði
mætur á, og ég hygg að hann hafi
kunnað orðrétt ýmsa kafla í forn-
bókmenntunum og bók eins og
Sturlungu hafði hann kynnt sér svo
vel að hið flókna orsakasamhengi
og átök höfðingjaættanna voru hon-
um jafnljós og eijur heima fyrir í
sveitarmálum og frárekstrum. Ólaf-
ur var einstaklega skemmtilegur
maður og hann var vitur maður,
enda hafði hann drukkið í sig jafnt
fróðleik úr fornbókmenntum okkar
og þá sérstaklega Eddunum og
einnig úr Biblíunni, sem hann var
vel kunnugur og vitnaði oft í. Hann
var ekki mikill kirkjunnar maður
en hann var gegnsýrður af hinni
kristilegu mannúðarstefnu, að lifa
í sátt við sína granna og styðja þá
sem standa höllum fæti í lífsbarátt-
unni. Ólafur lét aldrei dragast að
vinna þau verk, sem hann taldi
brýnt að vinna, heldur gekk strax
til verks og unni sér ekki hvíldar
fyrr en verkinu var að fullu lokið.
Nú þegar Ólafur kveður sína
kæru byggð, samstarfsmenn og
fjölskyldu, þá er ljóst að hér verður
skarð fyrir skildi og allir sem hann
þekktu hafa misst mikið. Mönnum
er því mörgum þungt um andar-
dráttinn, þegar Ijóst verður að Ólaf-
ur er horfinn sjónum okkar og nú
gefst ekki lengur kostur á að blanda
geði við hann og margir því haldn-
ir sárum trega og vildu nú fá að
bera fram einhver kveðju- og þakk-
arorð.
Ég og fjölskylda mín eigum Ól-
afi mikið að þakka, fyrst fyrir
dygga vináttu, sem aldrei hefur
kulnað síðan við kynntumst fyrst
fyrir rúmum fimmtíu árum. Ég vil
þakka honum hans bóndastarf og
samstarf að ræktunarmálum allan
þennan tíma og við þau störf veiga-
mikla aðstoð og aðvaranir, þegar
tæpt var stigið.
Ég votta sveitinni hans samúð,
nú þegar einn helsti afreksmaður
óyggðarlagsins kveður og sá sem
hefur borið hróður þess víðast fyrir
búskaparafrek og rausnarbúskap á
einu mesta höfuðbóli sveitarinnar.
Ég votta eftirlifandi eiginkonu og
dóttur og bróðurnum Jóhanni og
öðrum systkinum hans og fjölskyldu
allri innilega samúð við brottför