Morgunblaðið - 29.05.1996, Síða 56

Morgunblaðið - 29.05.1996, Síða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ H Dýraglens Tommi og Jenni þAO em HAU.A-) eeKsruie 'A Ptísr- /NU/u.syo þé"? f MnA AÞ A/tör/J <'BH Uf : F&i/Heek/N e/Nd \Afl/m- S/H/J/ ENN A /NU EFFfcj/MERF/N VG.RO, 8RAGB6ÓÞWHO/ FtíLÍt- SENOA FLBUt/ 8/ttíF 0& WSTVR/NH /nVND/ 6GCÞA MB/R/ PEN/NGA Ferdinand Stundum ligg ég andvaka á næturnar og Þá heyri ég rödd í myrkrinu sem seg- velti því fyrir mér, hvort lífið sé eins og ir: „Reyndu kúluspil." golf eða hvort það líkist meira hornabolta. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Opið bréf til borgarstjóra Frá Sigurði Magnússyni: RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur sendi mér 29. apríl síðastliðinn orð- sendingu Nr. 2/96. Fyrsta máls- grein þessa plaggs, sem fylgir nýrri verðskrá, er á þessa leið: Hinn 1. apríl 1996 var verðskrá Raf- magnsveitu Reykjavíkur hækkuð um 3% og felur breyt- ingin í sér hækk- un á öllum verð- þáttum RR. Það sem þér háttvirtur borgarstjóri vitið ef til vill ekki um, er að hjá RR er óþarft bruðl með fjármuni og vil ég upp- lýsa yður um í hveiju það er fólg- ið. (ég hef ekki náð eyrum for- manns veitunefndar síðastliðna mánuði, þrátt fyrir tilraunir til þess). Ef rafmagnseftirlit RR væri rek- ið á skynsamlegan hátt mætti spara um tuttugu miljónir króna og væri þá þessi hækkun óþörf. Eg hef á undanförnum árum verið að benda á óþarfa eyðslu hjá RR og m.a. talaði ég við Alfreð Þorsteinsson formann veitunefndar í upphafi starfsferils hans sem for- manns í nefndinni. Benti honum á hvernig mætti spara í rekstri varð- andi rafmagnseftirlitsþáttinn og gera þá vinnu um leið margfalt skilvirkari. Fulltrúi markaðsmála RR, Þor- leifur Finnsson, upplýsti á fundi rafmagnseftirlitsmanna, sem hald- inn var fimmtudaginn 9. þessa mánaðar, hér í Reykjavík, að að- keypt vinna frá einkareknum skoð- unarstofum á árinu 1995 hefði numið um þrjátíu miljónum króna. Hann upplýsti ekki hvað fékkst fyrir þessa upphæð eða hve margar veitur voru skoðaðar. Hvað voru veiturnar margar sem kostaði þrjátíu miljónir að skoða og hvaða skoðunarstofur fengu þær greiðslur? Háttvirtur borgarstjóri. Er ekki kominn tími til að endurskoða hvernig þessi deild RR er rekin? Er eðlilegt hvernig fulltrúi mark- aðsmála, herra Þorleifur Finnsson, hefur barist fyrir breyttu fyrir- komulagi rafmagnseftirlits hér á landi og innan Rafmagnsveitu Reykjavíkur, fyrirkomulagi sem hefur hækkað þennan kostnaðarlið um 20.000.000? Þessi stefna er okkur Reykvík- ingum óhagkvæm og kemur m.a. fram í hækkuðu orkuverði og um 90% lakara rafmagnseftirliti. Því til stuðnings bendi ég á þá auknu brunatíðni af völdum raf- magns sem hefur orðið eftir að rafmagnseftirliti var breytt. Ágæti borgarstjóri. Er ekki þörf á endurskoðun þessa rekstrarliðs og að tekið verði upp fyrra fyrir- komulag, sem er um tuttugu mil- jónum ódýrara en það sem notað er í dag? Ég óska svara á sama vettvangi og þessi grein birtist á. Virðingarfyllst SIGURÐUR MAGNÚSSON, fv. rafmagnseftirlitsmaður, Skólavörðustíg 16a, Reykjavík. Sigairilur Magnússon Undirskriftasöfnun Réttur til heilbrigðis- þjónustu verði tryggður í stjómarskrá Morgunblaðinu hefur borist eftirfar- andi frá Húmanistahreyfingunni: HÚMANISTAHREYFINGIN for- dæmir þann anda peningahyggju og þá skerðingu á réttindum sem fram kemur í stjórnarfrumvarpi til laga um réttindi sjúklinga. í 3. grein frumvarpsins segir: „Sjúklingur á rétt á fullkomnustu meðferð sem á hveijum tíma er völ á að veita innan þess fjárhagsramma sem heilbrigðisþjónustunni er snið- inn á hveijum tíma. Sjúklingur á rétt á meðferð og aðbúnaði sem miðast við ástand hans, aldur og horfur á hveijum tíma...“ Þessi grein opnar dymar fyrir skerðingu heilbrigðisþjónustu og mis- munun fólks eftir fjárhag eða aldri. Þar er íjárlögum ríkisins gert hærra undir höfði en heilbrigði þjóðarinnar. Við tökum undir þau viðhorf sem koma fram í yfirlýsingu frá stjórn Sérfræðingafélags íslenskra lækna um þetta mál, sem birtist í Mbl. þ. 16. maí og grein Helga Sigurðssonar og Þórólfs Guðnasonar í sama blaði, þar sem m.a. er bent á hnignun heilbrigðisþjónustu sem leitt getur af þessu. Við teljum að heilbrigðis- og menntamál séu þeir málaflokkar sem eigi að hafa algeran forgang í þjófélaginu. Rétturinn til ókeypis heilbrigðisþjónustu og menntunar er sjálfsögð mannréttindi. Þjóðfélag okkar er bæði tæknilega og efna- hagslega í stakk búið til að tryggja þessi réttindi. Húmanistahreyfingin hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun undir yfírskriftinni “Heilbrigðisþjón- usta fyrir alla“ þar sem krafist er að réttur allra landsmanna til heil- brigðisþjónustu verði tryggður í stjórnarskrá. Við hvetjum einstaklinga og fé- lagasamtök til að leggja þessari söfnun lið, svo lífskjör hér á landi verði ekki skert frekar en orðið er. Allt efni sem birtist ( Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta.jCf ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. i i i i i i i I I I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.