Morgunblaðið - 29.05.1996, Side 62
62 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
c
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
Kostuleg rómantísk gamanmynd frá Ben Lewin (The Favor,
The Watch and The Very Big Fish) um sérlega óheppið par
sem lendir í undarlegustu raunum við að ná saman. Lúmsk
áströlsk mynd í anda Strictly Ballroom og Brúðkaups Muriel.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
CLOCKeRS
Sýnd kl. 9.
B.i. 16 ára.
11 KDT'] Tí íl.r{ 0 TJWT) Besta f ranska myndin 1995:
ÍrSDiUÍJÍÖíDAR 3BPP - . kÁ
Tilboð kr. 400
hatup
Sýnd kl. 5. B. i. 14 ára.
Sýningum fer fækkandi
★ Þ,
^★★H.'K.DV
séq mvndin í
Tilboð kr. 400
‘S 1995!
VAMPÍRA f
BROOKLYN ;
Tiiboð kr. 400
Unga fólkið
og tölvurnar
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
TÖLVUREFIR
„HACKERS" ★ ★
Leikstjóri: Iain Softley. Aðalhlut-
verk: Jonny Lee Miller, Angelina
Jolie, Fisher Stevens, Matthew Lill-
ard. United Artists. 1996.
Í GAMAN-, spennu- unglinga-
myndinni Tölvurefir eru tölvur
súpertöff og þú getur ekki orðið
meira töff í lífinu ef þú getur
notað þær til að smeygja þér inní
risastóra tölvubanka fyrirtækja
og stofnana. Aðalpersónur
myndarinnar, tölvurefirnir eða
„hakkararnir“, eru hópur cyber-
pönkara sem fer létt með það og
kemst að því að í stórfyrirtækja-
samsteypu nokkurri eiga sér stað
óeðlilegar tilfæringar á fjármun-
um. Vitneskja þessi getur orðið
hökkurunum stórhættuleg og
brátt hefst mikill eltingarleikur
bæði á götum úti og um glitfagra
tölvuveröld.
Leikstjórinn Iain Softley
(„Backbeat") gerir tölvur og
tölvubúnað og þá sem þekkja best
innviði og starfsemi tölva sérstak-
lega smart í mynd sem höfðar
fyrst og fremst til unglinganna.
Tölvur eru sexí og ef þú kannt
að nota þær rangt hefurðu óend-
anleg völd. Cyberpönk-lífsstíllinn
sem fylgir þeim er líklega mjög
smart en virkar heldur hallæris-
lega hjá Softley. Allir eru á hjóla-
skautum eða ef þú ert verulega
vondur eins og Fisher Stevens,
notarðu hjólabretti. Stelpurnar
eru kjaftforar og þykkmálaðar og
strákarnir svo ofursvalir og bratt-
ir að þeir gætu allir endað sem
bílasalar. Hakkararnir heita ein-
hveijum tölvunöfnum eins og t.d.
Plágan og ef þú ert einstaklega
efnilegur tilheyrirðu elítunni, svo
notaður sé cybertalsmáti myndar-
innar. Og hakkari er jafnstór-
hættulegur og fjöldamorðingi ef
miðað er við stórkostlega um-
fangsmiklar aðgerðir lögreglunn-
ar þegar hún brýst þungvopnuð
inn á heimili þeirra.
Þannig er allt í Tölvurefum
frekar ofkeyrt og ofhlaðið. Softley
hefur gert siguróð til hakkara
heimsins, þeirra sem m.a. eru
ábyrgir fyrir tölvuvírusum, því
það er líka smart að koma þeim
fyrir; siðferðisboðskapur vegur
ekki þungt hér. Krakkarnir sem
leika hakkarana gera sitt besta
svo þeir megi vera hetjulegir.
Jonny Lee Miller og Angelia Jolie
(dóttir Jon Voigts) bera af og
Stevens er skemmtilega sjálfsör-
uggt illmenni. Tölvugrafíkin er fín
og hraðinn í frásögninni og cyber-
stíllinn forða myndinni frá því að
vera leiðinleg. Hún er eftir allt
prýðileg skemmtun, kannski sér-
staklega ungum tölvufríkum sem
dreymir um að eignast hjóla-
skauta.
Arnaldur Indriðason
COMFORT
LC08
REGULAR
LC09
eeCooper ...
nu a
■
Gallabuxur
5.
Þegar þú kaupir LeeCooper gallabuxur
færð þú belti að verðmæti kr.1990
eða bol að verðmæti kr.2490
KRINGLUNNI
SÍMI 568 9995
LAUGAVEGI 67
SÍMI 551 2880
stærðir:
27 - 33
lengdir:
30 - 32
Ævintýrin
gerast enn
► VEL HEFUR verið fylgst með
kvenförunautum leikarans Ric-
hards Gere síðan hann sagði skil-
ið við ofurfyrirsætuna Cindy
Crawford fyrir nokkru. Hérna
sést hann yfirgefa kvikmynda-
hús bakdyramegin ásamt
ónefndri vinkonu sinni.