Morgunblaðið - 02.06.1996, Qupperneq 32
32 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐiÐ
MINNIIMGAR
GUÐRUN JONSDOTTIR
+ Guðrún Jóns-
dóttir fæddist í
Hausthúsum á
Hellissandi 4. des-
ember 1912. Hún
lést i Seljahlíð i
Reykjavík 24. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Jón Þorleifur Jó-
hannesson (Jóns-
sonar og- Ingibjarg-
ar Pétursdóttur frá
Malarrifi) f. 25.
mars 1885, og Krist-
ín Pétursdóttir
(Jenssonar og Jó-
hönnu Einarsdóttur
frá Höskuldsey) f. 10.
maí 1889. Guðrún
var elst fjögurra
barna þeirra en þijú
náðu fullorðinsaldri.
Hin eru Jóhannes, f.
15. nóvember 1915,
býr í Ólafsvík, og
Pétrún Kristín, f. 26.
júlí 1929, húsmóðir í
Ólafsvík, gift Guð-
jóni Bjarnasyni bif-
vélavirkja og eiga
þau þrjú börn. Níu
ára gömul fluttist
Guðrún ásamt fjöl-
o
FJÖLBRAUTASKOLINN
VIÐ ÁRMÚLA
Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla
Innritun fyrir haustönn 1996
Innritað verður 3.-5. júní og ber að skila umsóknum á skrif-
stofu skólans sem er opin kl. 8.00-15.00, s. 581 4022. Einnig er
hægt að skila umsóknum í Menntaskólanum við Hamrahlíð 3.
og 4. júní, en þar er sameiginleg innritun framhaldsskólanna í
Reykjavík kl. 9.00-18.00 báða dagana.
Boðið er upp á nám til stúdentsprófs á félags- og sálfræði-
braut, náttúrufræðibraut, nýmálabraut, íþróttabraut, hag-
fræði- og viðskiptabraut og listdansbraut (í samvinnu við List-
dansskóla íslands). Vakin er athygli á þeirri nýjung, að á félags-
fræðibraut geta nemendur valið sér upplýsingatækni- og
tölvusvið, en það er ekki annars staðar í boði.
Á heilbrigðissviði er boðið upp á eftirtalið nám til starfs-
réttinda: Lyfjatæknabraut, læknaritarabraut (stúdentspróf
eða sambærilegt nám er inntökuskilyrði), námsbraut fyrir að-
stoðarfólk tannlækna, námsbraut fyrir nuddara og sjúkra-
liðabraut.
Námsráðgjafi og skólayfirvöld eru til viðtals innritunardagana
kl. 8.00-15.00.
Skólameistari.
FELAGISLENSKRA STORKAUPMANNA
-félag milliríkjaverslunar og vörudreiíingar-
HVAÐ ER AÐ GERAST í SAMNINGAVIÐRÆÐUM
MILLIBAND ARÍKJANNA 0G ESB UM VIÐSKIPTAMÁL?
Félag íslenskra stórkaupmanna boðar til fundar mánudaginn
3. júní nk. kl. 12:00 í Skálanum á Hótel Sögu.
Efni fundarins verður viðskiptabandalög og samningaviðræður
Bandaríkjanna við önnur ríki, NAFTA, APEC og NTA (New Trans-
Atlantic Agenda).
Ræðumaður fundarins verður Donald S. Abelson einn helsti
samningamaður Bandaríkjanna í viðskiptamálum.
Donald Abelson starfar hjá utanríkisviðskiptaskrifstofu forseta
Bandaríkjanna og er þar yfirmaður deildar sem annast
milliríkjasamninga á sviði fjarskipta og upplýsingatækni.. Hann tók
virkan þátt í Uruguay-viðræðunum og var einn helsti ráðgjafi Mickey
Kantors í GATT-samningunum um málefni sem varða verndun
hugverkaréttinda. Hann á um 18 ára starfsferil að baki hjá stofnuninni
sem ráðgjafi og samningamaður og tók sem slíkur þátt í gerð NAFTA
samninganna ásamt fjölda annarra viðskiptasamninga á vegum
Bandaríkjastjórnar.
Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500,-.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu
félagsins í síma 588 8910.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN.
skyldu sinni á bæinn Kjalveg
fyrir utan Hellissand.
Guðrún giftist Sigurði Snæ-
dal Júlíussyni skrifstofustjóra,
f. 26. okt. 1907, frá Hrappsey
á Breiðafirði, d. 29. júní 1972.
Foreldrar Sigurðar voru Júlíus
Sigurðsson og Guðrún Skúla-
dóttir. Börn Guðrúnar og Sig-
urðar eru þijú: 1) Atli Snædal
Sigurðsson, prentari, f. 28.
mars 1945, kvæntur Stefaníu
Baldursdóttur læknaritara, f.
1947 og eru þeirra börn: Svein-
laug hjúkrunarfr., f. 1967, í
sambúð með Sigurði Sigurðs-
syni húsasmið, f. 1964. Þeirra
börn Atli Snædal, f. 1990, og
Stefán Fannar, f. 1994; Sigurð-
ur Jóhannes, iðnrekstrarfr., f.
5. des. 1970; Baldur Leví, stúd-
ent, f. 13. des. 1975. 2) Júlíus
Snædal verslunarstjóri, f. 8.
ágúst 1946, kvæntur Laufeyju
Valdimarsdóttur ritara, f. 1947.
Þeirra börn: Valdimar bílasali,
f. 1965, í sambúð með Hafdísi
Björnsdóttur, f. 1971. Hans
barn Laufey Rós, f. 1984; Valur
atvinnurekandi, í sambúð með
Aðalbjörgu Björnsdóttur, f.
1969, hennar barn Björn Emil,
f. 1988; Sigurður Snædal stúd-
ent, f. 1975. 3) Jón Hallgrímur
verktaki, f. 26. febrúar 1956, í
sambúð með Maríönnu Einars-
dóttur leikskólasljóra, f. 1956.
Hennar barn Ingi Þór Einars-
son nemi, f. 1974. Börn Jóns:
Þórhildur Ýr, f. 1974, Jóhanna
Guðrún, f. 1976, Sigþór, f. 1979,
Björn Ævar, f. 1982.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Hallgrímskirkju á morgun,
mánudaginn 3. júní, og hefst
athöfnin klukkan 15. Jarðsett
verður í Fossvogskirkjugarði.
Mig langar að minnast Guðrún-
ar tengdamóður minnar með
nokkrum orðum. Hún ólst upp á
Kjalvegi, í nágrenni við Ingjalds-
hólskirkju þar sem faðir hennar
var meðhjálpari um árabil. Þar
ólst hún upp við trúrækni og
manngæsku sem átti eftir að
fylgja henni á lífsleiðinni. Þar lagði
einnig hönd á plóginn móðuramma
hennar, Jóhanna, sem bjó alla tíð
á heimili foreldra hennar og var
Guðrúnu mjög kær. Eftir einn
vetur á Staðarfelli lá leiðin til
Reykjavíkur þar sem hún var í
vist hjá Knud Zimsen borgar-
stjóra. Um það leyti kynntist hún
eiginmanni sínum, Sigurði, og
byijuðu þau búskap á Hellissandi,
þar sem Sigurður starfaði við
Kaupfélagið. Þau fluttu síðan til
Reykjavíkur og bjuggu á Óðins-
götu 19. Á þessum árum veiktist
Sigurður af berklum og dvaldi um
tíma á Vífilsstöðum en Guðrún
vann þá í Veiðarfæragerðinni.
Árið 1947 flutti fjölskyldan í
Litla Hvamm, þar sem nú er
Heimahverfið. Litli Hvammur var
lítill byggðarkjarni með sveitabæj-
um í kring og átti fjölskyldan góð
ár þar. Um 1956 var komið að
því að skipuleggja þetta svæði og
þurfti Litli Hvammur að víkja, og
fluttu þau þá í Goðheima 14. Þau
festu kaup á Akurgerði 20 árið
1966 og bjuggu þar, þar til Sigurð-
ur lést 1972, en hann hafði þá
verið heilsulaus í nokkur ár.
Um 1970 fór Guðrún að vinna í
Tösku- og hanskagerðinni og lík-
aði henni það mjög vel. Er hún
seldi Akurgerðið flutti hún á Háa-
leitisbraut og vann þá um tíma
hjá Dráttarvélum við kaffiumsjón.
Þegar heilsan fór að bila flutti hún
í nálægð við syni sína í Arahólum
og var þá sjúkdómur hennar farinn
að gera meira vart við sig. Árið
Háskólanám í
hugbúnaðargerð
Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands er skóli á háskóla-
stigi, sem veitir tveggja ára nám í kerfisfræði og útskrifar
nemendur með námstitilinn kerfisfræðingur TVÍ.
Kerfisfræðingar TVÍ hafa þekkingu og þjálfun til þess að
geta unnið við öll stig hugbúnaðargerðar, haft umsjón með
rekstri tölvukerfa og annast notendaþjónustu. Þekking þeirra
nýtist einnig við skipulagningu og umsjón tölvuvæðingar
hjá fyrirtækjum, við kennslu og þjálfun starfsfólks og við
markaðs- og sölustörf í hugbúnaðariðnaði.
TVÍ kappkostar að bjóða fram nám og vinnuaðstöðu í takt
við hina hröðu þróun í tölvuheiminum: Megináherslan í
náminu er á forritun í ýmsum forritunarmálum og öðrum
greinum sem snúa að hugbúnaðargerð og tölvufræði.
Þeir, sem hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi,
geta sótt um inngöngu í kerfisfræðinám TVÍ. Námið er
krefjandi og góður undirbúningur, sérstaklega í stærðfræði,
íslensku, ensku og tölvugreinum, kemur nemendum til
góða. Reynslan hefur sýnt að konur og karlar eiga jafnmikið
erindi í námið og atvinnutækifæri fyrir bæði kynin eru
margvísleg.
Tekið er við umsóknum á tímabilínu 2. maí til 14. júní.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrifstofu
Verzlunarskólans.
Umsóknum skal fylgja afrit af prófskírteini og innritunar-
gjald kr. 4000.
Heimasíða TVÍ er http:/www.tvi.is
TVI
Tölvuháskóli VÍ
Qfanleiti 1, 103 Rvík,
sími 568 8400.
1990 flutti hún í Seljahlíð og lést
þar.
Við Guðrún áttum saman marg-
ar góðar stundir en það eru um
þijátíu ár síðan við kynntumst.
Ég leit á hana sem vinkonu mína
og gátum við talað saman um
hvað sem var. Hún var glæsileg
kona með fallega framkomu, hlý-
leg og glaðsinna. Hún hafði góða
söngrödd og var það henni mikil
ánægja er hún fór að syngja með
kór eldri borgara í Gerðubergi.
Fjölskyldan var henni allt og var
hún vakin og sofin yfir velferð
barna sinna og barnabarna.
Elsku Guðrún hafðu þökk fyrir
allt og hvíl í friði.
Þú elskaðir lffið og lærdóminn,
þig langaði að skilja tilganginn
með tilveru ijóssins og lífsins.
Veizt hefur þér nú víðsýnið bezt
og vængimir, sem þú þráðir mest;
þér fannst hér of þröngt til flugsins.
Þú starfaðir jafnan með umhyggju og ást,
elju og þreki, er sjaldan brást,
þér nýttist jafnvel nóttin.
Þú vannst fyrir bezta vininn þinn,
þú vinnur nú með honum annað sinn
með efldan og yngdan þróttinn.
Af alhuga færum þér ástarþökk,
á auða sætið þitt horfum klökk.
Heilsaðu föður og frændum.
Að sjá þig aftur í annað sinn
enn að komast í faðminn þinn,
við eigum eftir í vændum.
(G. Björnsson)
Stefanía.
Mig langar með örfáum línum
að minnast elskulegrar systur
minnar Guðrúnar. Hún var 17
árum eldri en ég og fluttist að
heiman um svipað leyti og ég fór
að muna eftir mér. Hún giftist
manni sínum Sigurði Snædal Júl-
íussyni frá Hrappsey á Breiðafirði
og fluttist fljótlega eftir það til
Reykjavjkur og bjó þar alla tíð
síðan. Ég man af þeim sökum
mest og best eftir henni þegar þau
hjónin komu í heimsókn heim á
Kjalveg á sumrin og hlakkaði ég
mikið til þess þegar stóra systir
var að koma. Alltaf komu þau
með eitthvað til að gefa mér.
Þegar ég stækkaði fékk ég að
fara til þeirra suður og var það
mikið ævintýri fyrir mig sveitat-
elpuna að koma í höfuðborgina og
sjá alla dýrðina þar.
Eftir að ég fermdist var ég svo
hjá þeim hjónum í þijá vetur með-
an ég var þar í skóla og voru það
ánægjuleg ár, sem ég mun ávajlt
minnast með þakklæti í huga. Ég
og fjölskylda mín kveðjum elsku
systur mína með kærri þökk fyrir
allt sem hún gerði fyrir okkur og
vottum fjölskyldu hennar innilega
samúð.
Kristín Jónsdóttir.
#101*101* o
„____
O c&r '- -.^
^fDaCía
bara bíómabú^
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifœri
#
0
H
O
#
0
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fáíiafeni I I, sími 568 9120
*
0
I
0
I
0
0
Oi*iO«*IOI0