Morgunblaðið - 02.06.1996, Side 56
N.
m
%
<35>
AS/400 er...
...þar sem grafísk
notendaskil eru
í fyrirrúmi
CQ> NÝHERJl
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(S>CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
„Fyrsta
alvöru-
platan“
BJÖRK Guðmundsdóttir er byrjuð á
upptöku þriðju breiðskífu sinnar eftir
að Sykurmolarnir hættu störfum og
hefur hljóðritað átta lög. „Þessar
tvær plötur mínar, sem eru komnar
út, eru nokkurs konar æfíngar,“ seg-
ir Björk. „Nú finnst mér ég vera að
gera fyrstu alvöruplötuna."
Björk leikur með unnusta sínum,
tónlistarmanninum Goldie, á Lista-
hátíð í Reykjavík. Um þau segir hún
í viðtali í blaðinu: „Mig langar ofsa-
lega mikið í hjónaband, en ég er í
hænuskrefabransanum, tek bara eitt
skref í einu [...] Ég hefi nú samt
lúmskan grun um að það endi í hjóna-
bandi,“ segir Björk.
Björk segir slæmt að vera ekki
látin í friði á íslandi og um síðustu
jól hafi hún lent í óskemmtilegri
reynslu hérlendis. Hún hafi meðal
annars orðið fyrir þungbæru aðkasti
og ónæði. „Ég hef aldrei lent í öðru
eins. Island var alltaf mitt skjól, þar
sem ég hvíldist. En ég gafst upp
eftir þessi jól,“ segir hún.
■ Ræð ferðinni sjálf/bl
-----» ♦ ♦---
Umf erðarslys á árinu
Fjórir
sautján ára
unglingar
hafa látist
FJÖGUR banaslys hafa orðið í um-
ferðinni hér á landi það sem af er
árinu. Þrír piltar og ein stúlka hafa
látist, öll 17 ára. Oli H. Þórðarson,
framkvæmdastjóri Umferðarráðs,
segir þessa staðreynd ótrúlega, en
hún undirstriki jafnframt að þessum
aldurshópi sé hættast í umferðinni.
Fyrsta banaslys ársins varð í jan-
úar þegar bifreið skall á járngirðingu
á Miklubraut og lést farþegi í bílnum.
Piltur lést þegar bifreið hans valt í
Eyjafirði, stúlka lést í hörðum
árekstri í Skagafirði og á fimmtudag
lést piltur í árekstri á Reykjanes-
braut.
Óli H. Þórðarson segir að ökupróf
hafi orðið strangari á síðari árum
og kennsla verið aukin verulega, svo
að hann sjá ekki að misbresti þar
sé um að kenna. Óvanir ökumenn
séu hins vegar líklegri til að lenda í
slysum en vanir.
Þrátt fyrir að fjögur banaslys hafi
orðið er það langt undir meðaltali
síðustu ára. Að jafnaði látast 23 á
ári í umferðinni, eða um tveir í mán-
uði. Fækkunina nú rekur Umferðar-
ráð til óvenju góðs tíðarfars.
Morgunblaðið/gg
FRIÐRIK Þ. Stefánsson með 10,5 punda hrygnu sem hann veiddi
á Brotinu í Norðurá þar sem veiði hófst í gær.
Laxveiðin byrjaði
bærilega í Borgarfirðinum
LAXVEIÐI byrjaði með ágætum
í Norðurá og Þverá í Borgarfirði
í gærmorgun. Nokkrir fiskar
veiddust fljótlega í báðum ánum,
en veiðiskapur bar keim af því
að árnar voru orðnar kaldar i
norðanveðrinu. Laxinn tók
grannt og menn misstu fleiri en
þeir lönduðu. 18 punda lax veidd-
ist í Klapparfljóti í Þverá og er
stærsti laxinn til þessa.
„Þetta var stutt og snörp viður-
eign, fimmtán minútur, og laxinn
var feiknafallegur," sagði Jón
Ingvarsson í samtali við Morgun-
blaðið, en hann veiddi 18 punda
hrygnu í Klapparfljóti í Þverá á
stóra rauða Frances túbuflugu.
Jón og félagi hans, Jón Ólafsson,
höfðu að auki frétt af tveimur
löxum til viðbótar, 12 punda fisk-
um, en höfðu ekki haft fréttir
af öllum félögum sínum.
í Norðurá var mikill lax á
Eyrinni og þar veiddi Kristján
Guðjónsson fyrsta lax sumarsins,
u.þ.b. 11 punda fisk. Hann fór
aldrei á vigt, því Kristján sleppti
laxinum. Bæði við Norðurá og
Þverá töldu menn að veiði myndi
glæðast verulega er norðanáttin
gengur niður og hlýnar í veðri á
ný. Veiði hófst einnig í Laxá á
Ásum í gær.
Bundið slitlag
sett á Landveg
Selfossi. Morgunblaðið.
BUNDIÐ slitlag verður í sumar
lagt á Landveg frá Hvammsvegi
að Galtalækjarskógi, samtals 13
kílómetrar. Slæmar aðstæður hafa
skapast vegna vegarins og þá sér-
staklega vegna rykmengunar frá
vikurflutningabílum. íbúar og bíl-
stjórar hafa kvartað undan ástandi
vegarins við yfirvöld.
Framkvæmdum við veginn verð-
ur flýtt og hefur Holta- og Land-
hreppur ásamt Jarðefnaiðnaði,
Landsvirkjun og fleiri aðilum að-
stoðað við að fjármagna fram-
kvæmdirnar við veginn en kostnað-
ur við þær nemur um 90 milljónum
kr. Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri sagði undirbúning verksins
hefjast nú þegar og síðan réðist
framhaldið af því hvernig honum
miðaði.
Af hálfu yfirvalda var lögð á
það áhersla að koma veginum í
viðunandi horf til að koma í veg
fyrir þá rykmengun sem íbúarnir
verða fyrir og til að tryggja fram-
gang vikurflutninganna sem eru
tekjuskapandi fyrir þjóðarbúið.
Einnig kemur þessi vegarbót sér
vel fyrir ferðaþjónustuna sem er
vaxandi á svæðinu.
Þorsteinn Pálsson, dómsmála-
ráðherra og fyrsti þingmaður
Suðurlands, sagði það ánægjulegt
að málið væri í höfn og hve allir
hefðu lagt sig fram um að finna
lausn á þessum vegarvanda.
Tvisvar sinnum
riða á 18 bæjum
RIÐUVEIKI hefur komið upp í
annað sinn á 18 bæjum af þeim
450 sem tekið hafa fé aftur eftir
niðurskurð í kjölfar riðuveikismits.
Þetta kom fram í samantekt sem
Guðmundur Bjarnason landbúnað-
arráðherra lagði fyrir ríkisstjórn-
ina á föstudag.
í samantektinni kemur fram að
frá 1978 hafi fé verið skorið á 780
bæjum vegna riðuveiki. Af þeim
hafa 450 bæir tekið fé aftur og
af þeim hefur þurft að skera í
annað sinn á 18 bæjum.
„Þetta bendir til þess að okkur
hafi gengið býsna vel í baráttunni
gegn veikinni," sagði Guðmundur.
„Við höfum því miður ekki komist
fyrir riðuna, hún er enn grasser-
andi. En það, að hún skuli ekki
hafa komið upp á nema 18 bæjum
af 450 endurtekið, sýnir okkur að
við gerum það sem hægt er í þessu
efni. Þó hefur dýralæknir lagt til
að gengið verði enn betur í að
hreinsa í kringum ijárhús og allt
það sem gæti valdið smiti, t.d.
gamalt hey og jarðveg, og hugsan-
lega lengja þann tíma sem bændur
eru fjárlausir. Það eru núna tvö
ár en hann hefur verið með tillög-
ur um að sá tími verði lengdur í
þijú ár,“ sagði Guðmundur.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Þijú skip á Reykjaneshrygg
I mynni
Mjóafjarðar
HJÓNIN Jón Ásgeir Stefáns-
son og Karen Alda Gunnars-
fióttir frá Sæbóli í Mjóafirði,
ásamt tíkinni Söru, draga þor-
skanet fyrir mynni Mjóafjarð-
ará á trillurmi Rún SU-I4.
Veðrið lék við þau og þótt
þorskarnir reyndust fáir voru
þeir sæmilega stórir. Þau hjón-
in voru búin að fá um 150 kíló
í róðrinum og ennþá átti eftir
að draga nokkur net úr sjó.
SAMKVÆMT upplýsingum Til-
kynningaskyldunnar voru flest
skip komin til hafnar kl. 10 í gær-
morgun, en skip eiga að vera kom-
in að á hádegi daginn fyrir sjó-
mannadag. Fimmtíu skip áttu enn
eftir að melda sig en þeir Tilkynn-
ingaskyldumenn efuðust ekki um
að þau hefðu öll þegar skilað sér
eða væru rétt að leggja að.
Þrjú skip virtust ætla að hunsa
ákvæði samninga og laga um
skyldu til að halda í land. Það
voru togararnir Freri og Vigri í
eigu Ögurvíkur hf. og Þerney í
eigu Granda hf. Þessi skip til-
kynntu öll í gærmorgun að þau
væru að karfaveiðum á Reykjanes-
hrygg.
„Hér eru allir komnir inn nema
Guðbjörgin og Guðmundur Péturs,
sem eru á Flæmska hattinum og
mega vera úti. Menn skila sér
snemma inn og taka flestir laug-
ardaginn heilan. Hátíðarhöldin
hafa líka mikið til færst yfir á
þann dag, allt nema sjómanna-
messan,“ sagði Gísli Skarphéðins-
son, skipstjóri á Framnesinu á
ísafirði, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann á hádegi í gær.
Unga kynslóðin
um borð
Framnesið, sem stundar rækju-
veiðar, var á rólegri skemmtisigl-
ingu um Djúpið á hádegi í gær og
um borð voru ísfirðingar, flestir í
yngri kantinum. Togarinn Páll
Pálsson var einnig í slíkri siglingu,
sem og eitt varðskip. „Við vorum
komnir inn kl. átta í morgun, en
fórum aftur út um hálf ellefu með
krakka,“ sagði Gísli skipstjóri
Skarphéðinsson.
Skip halda aftur á miðin á mánu-
dag, en löndun bíður í flestum til-
vikum fram á þann dag. „Það er
allt kælt eða fryst um borð, svo
það fer ekkert verr um aflann hér
en inni í húsum,“ sagði Gísli Skarp-
héðinsson.