Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C 128. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS H eittrú annönnum falin stj ómarmyndun Olíklegl að Erbakan takist að koma saman stjórn Ankara. Reuter. SULEYMAN Demirel, forseti Tyrk- lands, fól í gær Necmettin Erbakan, leiðtoga flokks ísiamskra bókstafs- trúarmanna, umboð til stjórnar- myndunar. Segja stjórnmálaskýr- endur þó afar litlar líkur til þess að honum takist að koma saman starf- hæfri stjórn. Velferðarflokkur Er- bakans er sá fjölmennasti á þingi en aðrir stjórnmálaflokkar hafa reynt að útiloka hann frá stjórnar- þátttöku. Heittrúarmenn fengu stjórnarmyndunarumboð í kjölfar afsagnar ríkisstjórnar Mesuts Yilmaz á fimmtudag. Vel lá á Erbakan er hann hélt af fundi forsetans í gær og sagði hann flokk sinn reiðubúinn til samstarfs við alla flokka sem sæti eiga á þingi en þeir eru fimm að Velferðarflokkn- um frátöldum. Demirel lýsti því yfir í gær, áður en hann kallaði Erbakan á sinn fund, að enginn þeirra flokks- leiðtoga sem hann hefði átt viðræður við hefði getað kynnt starfhæfa stjórnarmöguleika. Ciller vill í stjórn með vinstrimönnum Þrátt fyrir þetta telja stjórnmála- skýrendur litlár líkur á því að heittrú- annönnum takist að mynda stjórn. Tansu Ciller, fyrrverandi forsætisráð- herra og leiðtogi Sannleiksstígsins, hefur hvatt til myndunar flögurra flokka stjórnar til að koma í veg fyr- ir að Velferðarflokkurinn komist til valda. Djúpstæður ágreiningur á milli flokkanna veldur því hins vegar að slík stjórnarmyndun telst ólíkleg. Um er að ræða hægri flokka Ciller og Yilmaz, svo og tvo vinstri flokka, undir stjóm Deniz Baykal, fyrrver- andi utanríkisráðherra, og Bulent Ecevit, fyrrverandi forsætisráðherra. Hafa vinstri flokkarnir oft deilt hart á frjálsa markaðsstefnu hægri flokk- anna, sérstaklega flokks Ciller. Stjórnarfar í Tyrklandi hefur ver- ið óstöðugt frá því í september á síðasta ári, er Ciller sagði af sér, en hún á yfir höfði sér þijár ákærur um fjármálamisferli. Gengið var til kosninga í lok desember, sem Vel- ferðarflokkurinn vann, en eftir lang- ar og strangar stjórnarmyndunar- viðræður tókst erkióvinunum Ciller og Erbakan að mynda stjórn, sem sagði af sér á fimmtudag, eftir þriggja mánaða setu. Schmeichel og Laudrup á Wembley KASPER, sonur Peters Schmeichels, og Nikolai, sonur Brians Laudr- ups, hampa eftirlíkingu af verðlaunabikarnum í Evrópukeppni lands- liða í knattspyrnu, sem hefst á Englandi í dag. Feður piltanna leika báðir í danska landsliðinu, sem er núverandi Evrópumeistari. Kosningabaráttan í Rússlandi Fyrsta alvarlega ofbeldisverkið Reuter Tekist á við lögreglu UM EIN milljón Búlgara lýsti í gær óánægju sinni með efnahagsráð- stafanir ríkisstjórnar sinnar, með því að sækja mótmælafundi og efna til verkfalla. Kröfðust verk- fallsmenn hærri launa til að vega upp á móti verð- og skattahækkun- um og einnig afsagnar ríkisstjórn- arinnar. Ríkisstjórn Zhans Vid- enovs hefur látið loka fjölmörgum verksmiðjum og bönkum til að reyna að draga úr ríkisútgjöldum og ávinna sér á þann hátt traust erlendra lánardrottna. Á myndinni ýta þingmenn úr sljórnarandstöðunni við lögreglu- manni fyrir utan þinghúsið í Sofíu. Lögreglan hefur komið fyrir um- ferðartálmum við þinghúsið til að stöðva mótmæli þar og reyndu þingmennirnir að koma í veg fyrir aðgerðir lögreglunnar. ■ Zhívkovhveturtil/19 Ný lög gegn flokkí Suu Kyi Rangoon. Reutcr. HERSTJORNIN í Burma setti í gær lög sem banna allt andóf gegn breytingum á stjórnarskrá landsins sem nú er unnið að. Eru lögin sett tii höfuðs flokks Aung San Suu Kyi, Þjóðarhreyfingu lýðræðisins, en hann hyggur á fundahöld um helgina. Bijóti menn lögin varðar það allt að 20 ára 'fangelsi. Nýju lögin hindra allar tilraunir til að trufla eða koma í veg fyrir ráðstefnu fulltrúa stjórnarinnar um breytingar á stjórnarskránni. Þá banna lögin mönnum og samtökum að tala gegn stjórninni, telji hún að það trufli starf hennar á nokk- urn hátt. Lagasetningin fylgir í kjölfar við- varana stjórnvalda til Þjóðarhreyf- ingarinnar um að flokkurinn verði lýstur ólöglegur haldi hann til streitu yfirlýsingu sem samþykkt var á landsþingi hans í síðasta mánuði um að semja eigin stjórnar- skrá fyrir Burma. Um helgina hyggst Þjóðarhreyf- ingin halda fund þar sem Suu Kyi og fleiri frammámenn í flokknum halda ræður. Fjölmargir slíkir fund- ir hafa verið haldnir að undanförnu og hafa allt að 10.000 manns sótt þá. Stjórnvöld hafa amast við þeim umferðartruflunum’ sem þau segja að fundirnir valdi og hafa sett það skilyrði að þeir verði haldnir innan dyra. Orðrómur hefur verið á kreiki um að fundirnir verði bannaðir en Suu Kyi lýsti því yfir í gær að helg- arfundurinn yrði haldinn. Moskvu. Reuter. VALERÍ Shantsev, einn frambjóð- endanna í borgarstjórnarkosningun- um í Moskvu, slapp lífs en særðist illa þegar sprengja’ sprakk við heim- ili hans í gær. Er þetta fyrsta alvar- lega ofbeldisverkið í kosningahríðinni í Rússlandi en landsmenn munu ganga að kjörborðinu um aðra helgi. Shantsev, sem er meðframbjóð- andi Júrí Lúzhkovs, borgarstjóra í Moskvu, í borgarstjórnarkosningun- um 16. júní, er alvarlega særður en þó ekki lífshættulega að ,sögn en sprengjan sprakk í anddyri ijölbýlis- húss, sem hann býr í. Lúzhkov borg- arstjóri er mikill stuðningsmaður Borís Jeltsíns forseta og nýtur mik- illa vinsælda i Moskvu. Samkvæmt rússneskum kosningalögum verður hann að bjóða sig fram ásamt næst- ráðanda og hefði Shantsev látist, hefði hugsanlega orðið að fresta kosningunum. Gennadí Zjúganov, frambjóðandi kommúnista í forsetakosningunúm, sagði í gær, að hann væri tilbúinn til að senda 200.000 manns til að fylgjast með kosningunum á öllum kjörstöðum í landinu, 90.000 alls. Kvaðst hann þó búast við heiðarleg- um kosningum öfugt við það, sem hann sagði fyrir nokkrum dögum. Þjóðernissinninn Vladímír Zhír- ínovskí hélt mikla æsingaræðu í gær í bæ skammt frá Moskvu og sagði, að Bandaríkin og Vesturlönd al- mennt væru erkióvinurinn og vildu steypa Rússlandi í glötun. Mætti hann til fundarins á Mercedes Benz og skýldi sér fyrir sólinni með Evr- ópusambandsregnhlíf. ■ Mestu meðaljónai718 Dregur mik- ið úr nevslu nautakjöts Bonn. Reuter. FJÓRÐUNGUR Þjóðveija hefur hætt að borða nautakjöt um stundarsakir, vegna umræðunnar um kúariðu. Þá hefur um helmingur þjóðarinnar dregið úr nautakjötsneyslu og snúið sér í vaxandi mæii að öðrum tegund- um af kjöti. Þetta kemur fram í könnun sem markaðsskrifstofa þýska landbúnað- arins, ZMF, stóð fyrir. Segir talsmað- ur hennar að margir neytendur hafi taiið sig fá svo ólík og óljós svör við spurningum um hvort óhætt væri að borða nautakjöt, að þeir hafi ákveðið að draga úr neyslunni eða hætta henni aiveg. ZMF kannaði einnig hvaða kjöt fólk kaupir fremur og reyndist það vera fugiakjöt og svínakjöt. Tónlist bönnuð innan átián . Sydney. Reuter. UNGLINGUM yngri en 18 ára verður bannað að kaupa geisladiska og hljóðsnældur með tónlist sem telst innihalda ofbeldisfulla texta, samkvæmt lögum sem sett hafa verið í Ástralíu. Utgáfufyrirtækjum hefur verið fyrirskipað að fram- fylgja þessum reglum en þær ná yfir texta sem teljast „afar ofbeldisfullir eða djarfir" og fjalla m.a. um kynferðislega misnotkun á börnun, ónáttúru ýmiskonar, sifjaspell og „leið- beiningar í ofbeldisglæpum“. Samtök hljóinplötuverslana hafa mótmælt lagasetningunni harðlega, segja um „grófa rit- skoðun" að ræða og að verslanirnar muni ekki gegna lilutverki „tónlistarlögreglu“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.