Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 4

Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 4
4 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Finnst þér það góð eða slæm tillaga að veita forseta Islands meiri pólitísk völd? 3 15,4% Mjög góð tillaga 15,4% Fremur góð tillaga 3 5,1% Hlutlaus, hvorki góð né slæm 32,7% Fremur slæm tillaga 31,3% Mjög slæm tillaga Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með hlutverk forseta- embættisins í þjóðlífinu, eins og það hefur mótast á 10,3% Hlutlaus/hvorkiné síðastliðnum áratugum? 10,8% Óánægð(ur) Ánægð(ur) 78,8% Finnst þér að forsetinn eigi í starfi sínu að leggja meiri, svipaða, eða minni áherslu en verið hefur á eftirtalin verkefni? Meiri Svipaða - Minni Efla fjölskyldupa í íslensku samfélagi Veita Alþingi og ríkisstjórn aðhald Efla siðferði meðal þjóðarinnar Afla viðskiptatengsla erlendis Efla menningu innanlands Hafa frumkvæði á vettvangi þjóðmála Kynningu á íslenskri þjóð og menningu erlendis Vera sameiningartákn þjóðarinnar Verndun íslenskrar tungu 59,67 38,4% | || 2,0% 55,0% 39,6% | n 5,4% 51,1% 46,4% | fl 2,5% 44,5% 43,6% n 11,9% 40,6% 56,2% | | | 3,2% 40,1% 50,9% | | 19,0% 31,5í . 64,4% | n 4,1 % 28,1% 71,3% | || 0,6% 26,8% 70,7% | || 2,5% Skógrækt 24,0% 64,9% | p 111,1 % Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Forsetinn sinni fj ölsky ldumálum KJÓSENDUR virðast vera fylgj- andi því að forseti íslands veiti Alþingi og ríkisstjórn meira að- hald en hann hefur gert. Þeir leggja einnig áherslu á að hann leitist við í störfum sínum að efla fjölskylduna í íslensku samfélagi og efli siðferði meðal þjóðarinnar. Þetta kemur fram í nýrri skoðana- könnun sem Félagsvísindakönnun hefur gert fyrir Morgunblaðið. Kjósendur voru beðnir um álit á 10 málum, sem forsetaembættið hefur lagt áherslu á. Spurt var hvort kjósendur vildu að forsetinn legði meiri, svipaða eða minni áherslu á þessi mál. Yfir 50% kjós- enda töldu ástæðu til að forsetinn legði meiri áherslu á að efla fjöl- skylduna 5 íslensku samfélagi, veita Alþingi og ríkisstjóm aðhald og efla siðferði meðal þjóðarinnar en gert hefur verið. 44,5% töldu að forsetinn ætti að leggja meiri áherslu á að afla viðskiptatengsla erlendis, en 11,9% töldu að forset- inn ætti að gera minna af því en gert hefur verið. Minni áhugi á skógrækt og íslenskri tungu Athyglisvert er að fæstir töldu ástæðu til að forsetinn hefði auk- in afskipti af skógrækt og vernd- un íslenskrar tungu. 11,1% vildu að forsetinn legði minni áherslu á skógrækt en gert hefur verið. Um 85% kjósenda telja að for- setaembættið sé mjög eða frekar Telurðu forsetaembættið mjög mikilvægt, frekar mikilvægt eða ekki mikilvægt fyrir íslensku þjóðina? 44,4% Mjög mikilvægt 41,2% Frekar mikilvægt 14,4% Ekki mikilvægt Finnst þér koma til greina að forseti neiti að undirrita lög sem Alþingi hefur samþykkt? Þeir sem svara já voru spurðirfrekar: Finnst þér að forseti ætti að gera slíkt í undantekningartilvikum eða oftar? 21,6% Nei, kemur ekki til greina Já, en í undantekningartilvikum. 59,8% |____________15,5% Já, ekki bara í undantekningartilvikum ] 3,1 % Já, óviss með umfang mikilvægt embætti fyrir íslensku þjóðina. Einungis 14,4% telja það ekki mikilvægt. 78,8% kjósenda eru ánægð með hlutverk forseta- embættisins í þjóðlífinu, eins og það hefur mótast á síðastliðnum áratugum, en einungis 10,8% eru óánægð með það. 21,6% þjóðarinnar telja að það komi ekki til greina að forsetinn neiti að undirrita lög sem Alþingi hefur samþykkt, 59,8% kjósenda telja að slíkt komi til greina í undantekningartilfellum og 18,6% telja að til greina komi að forsetinn beiti neitunarvaldinu oftar en í undantekningartilfell- um. 64% kjósenda telja að tillaga um að veita forseta íslands meiri pólitísk völd sé frekar slæm eða mjög slæm tillága, en 30,8% telja slíka tillögu frekar góða eða mjög góða. Skoðanakönnunin var gerð daganna 30. maí til 5. júní. Stuðgt var við slembiúrtak úr þjóðskrá sem náði til 1.500 manna á aldrin- um 18-75 ára af öllu landinu. Nettósvörun var 72,5%. Dagskráin næstu daga Laugardagur 8. júní: Á ferð um Snæfellsnes: Heimsókn til Hellisands kl. 9:30 Fundir: Ölafsvík, Gistiheimili Ölafsvíkur kl. 13:00 Grundarfjörður Ásakaffi kl. 15:00 Stykkishólmur, Hótel Stykkishólmur kl. 17:30 Mánudagur 10. júni: Heimsókn til Suðurnesja Hverfafundur: Breiðholt, Gerðuberg ki. 20:30 Upplýsingar um forsetakosningarnar eru gefnar á kosningaskrifstofunni í Borgartúni 20 og i sima 588 6688 Upplýsingar um atkvceða- greiðslu utan kjörfundar eru gefnar í sítna 553 3209 Morgunblaðið/Þorkell TUTTUGU viðartegundir eru þegar til á lager Viðarmiðlunar Skógræktar ríkisins en starfsemi hennar hófst í gær í hús- næði Landgræðslu rikisins við Suðurhlíð. f slenskur smíðavið- ur í Viðarmiðlun SKÓGRÆKT ríkisins hóf í gær starfsemi Viðarmiðlunar í hús- næði Landgræðslusjóðs við Suðurhlíð í Reykjavík. Þar geta handverksmenn og fyrirtæki nálgast íslenskan við auk þess sem gefnar verða upplýsingar um þann efnivið sem fellur til á skógræktarsvæðum. Þegar eru um 20 viðartegundir komn- ar í hús, sumt af því verðmætur smíðaviður. Ólafur Oddsson, kynningar- fulltrúi Skógræktar rikisins, sagði við opnun Viðarmiðlunar að mikið timbur myndi falla til á næstu árum á skógræktar- reitum víða um land, auk þess sem verðmæt tré séu felld í görðum sem smíða megi úr. Þessi efniviður hafi hingað til dreifst víða eða lent á haugun- um. Nú verði hægt að ganga að honum eða upplýsingum um hann á einum stað. Ólafur segir mikið þróunar- starf fara fram meðal hand- verksmanna um þessar mundir. Stofnuð séu félög ýmissa hand- verkshópa og tilraunir gerðar með vinnslu á ýmsum viðarteg- undum. Hann sagði að sum ís- lensku tijánna yxu hægt og væru því mun þéttari og harð- ari en hraðvaxta tré erlendis og þar af leiðandi verðmætari siníðaviður. Til að vekja athygli á verð- mæti íslenska viðarins var efnt til hugmyndasamkeppni um gerð skógarhnifs sem skyldi vera unninn sem mest úr ís- lensku efni. 60 hnífar bárust dómnefnd og mun hún birta niðurstöður sínar um næstu helgi. Brynjólfur Helgason gagnrýnir fjármagnstekjuskatt Innheimta af gjaldeyris- reikningum mjög flókin BRYNJÓLFUR Helgason aðstoðar- bankastjóri Landsbankans segir innheimtu 10% fjármagnstekju- skatts af innlendum gjaldeyris- reikningum og verðbréfum flókna. Snorri Olsen ríkisskattstjóri segir að ekki komi til útborgunar banka- og fjármálastofnana til skattyfir- valda fyrr en í ársbyijun 1998. Brynjólfur segir að framkvæmd skattlagningarinnar sé tiltölulega einföld hvað varðar almenna spari- fjáreign, en þegar komi að innlend- um gjaldeyrisreikningum ogýmsum verðbréfum sé hún „flókin eða mjög flókin". „Er það virkilega ætlun stjórnvalda að einstaklingur sem skiptir sparifé sínu milli Bandaríkja- dals og þýskra marka borgi skatt jafnt af þeim hiuta sem gengis- hagnaður er á og gengistap, í stað þess að horfa á heildarstöðu?" seg- ir hann. Brynjólfur segir ekki langt síðan afnumin voru nokkurra ára gömul lög um húsnæðissparnaðarreikn- inga þar sem boðið var upp á skatta- legt hagræði. „Hringlandaháttur og ósamræmi af þessu tagi er ekki til þess fallið að auka trú sparifjáreig- enda á auknum sparnaði." Hann ítrekar ennfremur hugsan- legar vaxtahækkanir. „Kostnaður við innheimtuna virðist eiga að leggjast á banka og önnur fjármála- fyrirtæki. Menn verða með ein- hveiju móti að innheimta þau gjöld af viðskiptavinum.“ Undir þetta tekur Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbankans, og segir að varað hafi verið við því að leggja kostnað vegna innheimtunnar á bankakerf- ið. Snorri Olsen ríkisskattstjóri segir að reiknað hafí verið með að kostnaður við skattlagningu fyrsta árið næmi 34 milljónum. Uppgjör verði einu sinni á ári, í fyrsta sinn 1998 og útreikningar á jöfnunar- verðmæti hlutafélaga gangi yfir á 2-3 árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.