Morgunblaðið - 08.06.1996, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
HINN RÉTTI Netanyahu gefi sig fram...
Isafjörður
Funi
lagfærður
Morgunblaðið/Kristinn
SIGURÐUR Már Helgason frá íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur á leið á einn smíðavöllinn með kofafyrirmynd.
Þrettán smíðavellir
A
hjá ITR í sumar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að lagfæra
þær skemmdir sem urðu á sorp-
brennslustöðinni Funa á ísafirði er
snjóflóð féll á stöðina síðastliðið
haust. Síðan hefur stöðin verið lok-
uð og sorpi ísfirðinga brennt á
Skarfaskeri og Þingeyri.
Bæjarstjórn ísafjarðarkaupstað-
ar tók ákvörðun um að auglýsa
útboð á lagfæringum stöðvarinnar,
áður en hún fór frá vegna samein-
ingar sveitarfélaganna í ísafjarð-
arbæ. Gert er ráð fyrir að verkinu
ljúki fyrir haustið. Þorsteinn Jó-
hannesson, forseti bæjarstjórnar,
segir að auk lagfæringa á stöðinni
sjálfri muni verða sett upp snjó-
flóðavörn til að koma í veg fyrir
að snjóflóð falli aftur á stöðina.
Verið er að hanna vamarvirkin.
Áætlað er að heildarkostnaður
við lagfæringar og snjóflóðavörn
verði öðru hvoru megin við 100
milljónir kr. ísafjarðarkaupstaður
fékk um 57 milljónir í bætur vegna
skemmda á stöðinni.
------» ♦ 4------
Þjóðhátíðar-
sjóður úthlutar
styrkjum
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR hefur
lokið úthlutun styrkja fyrir árið
1996 og þar með nítjándu úthlutun
úr sjóðnum. Til úthlutunar í ár
koma allt að 5.000.000 króna. Þar
af rennur fjórðungur, 1.250 þúsund
kr. til Friðlýsingarsjóðs til náttúru-
vemdar á vegum Náttúruverndar-
ráðs og fjórðungur, 1.250 þúsund
kr. ti! varðveislu fornminja, gamalla
bygginga og annarra menningar-
verðmæta á vegum Þjóðminjasafns
skv. ákvæðum skipulagsskrár.
Allt að helmingi úthlutunarfjár á
hveiju ári er varið til styrkja skv.
umsóknum og voru því um kr.
2.500.000 til ráðstöfunar að þessu
sinni sem fóru til nítján umsækj-
enda. Alls bárust 77 umsóknir um
styrki um allt að 35 milljónir króna.
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ
Reykjavíkur starfrækir nú í sumar
13 smíðavelli sem ætlaðir em 8-12
ára börnum víðs vegar um borgina.
Helstu viðfangsefni barnanna em
kofasmíðar og ýmiss konar föndur.
Smíðavellirnir em hjá Skólagörðum
við Árbæjarsafn, Skólagörðum í
Laugardal og Skólagörðum við
Logafold, Austurbæjarskóla,
Breiðagerðisskóla, Breiðholtsskóla,
Hlíðaskóla, Hólabrekkuskóla,
Rimaskóla, Selásskóla, Seljaskóla,
Vesturbæjarskóla og gæsluvellin-
um Hvassaleiti.
Tveir leiðbeinendur em á hverj-
um velli sem aðstoða krakkana og
lána þeim efni og verkfæri til smíð-
innar. Sigurður Már Helgason,
starfsmaður ÍTR, segir að þátttaka
kosti ekkert, börnin þurfí bara að
mæta og þá em þau skráð. Þau fá
þá bækling og mætingarkort og
leiðbeinendur meta dugnað þeirra
og gefa þeim einkunn. Smíðavellim-
ir eru starfrækir frá 5. júní fram í
ágúst og eru opnir frá kl. 8.30 til
16.00 ef næg þátttaka verður. Dug-
legustu börnunum á hveijum velli
er umbunað tvisvar í sumar og fá
þau verðlaun í þremur flokkum,
fyrir dugnað að hreinsa, smíðalagni
og góða mætingu. í verðlaun em
hamar, tommustokkur, spilastokk-
ur og bolur frá Húsasmiðjunni.
Sigurður Már segir að nú fái
krakkarnir vörupalla til að smíða á
og á hveijum velli hafa verið smíð-
aðar fyrirmyndir til að styðjast við.
Tilgangurinn með fyrirmyndunum
er að krakkarnir smíði fallegri kofa
eftir ákveðnum reglum og þannig
læri þau undirstöðu smíðarinnar
betur.
Sigurður Már segir að æskilegt
sé að foreldrar fylgist með smíði
bama sinna og líti til með völlunum
eftir lokun, þar sem síðustu ár hafi
borið á skemmdarverkum á kofum,
einkum um kvöld og helgar. Slíkt
virki niðurdrepandi fyrir börnin.
Ýmis fyrirtæki hafa aðstoðað
ÍTR og gefíð efni, timbur og palla.
Sigurður Már segir að fólk sem
þeir hafa leitað til sé afar liðlegt
að hjálpa og margt kannist við
starfsemina frá því í æsku þegar
það sjálft smíðaði sína fyrstu kofa.
firmaður tannverndarmála í ísrael
Mætti standa
„flúor“ á leg-
steini mínum
FLÚOR er bætt í
drykkjarvatn um
250 milljóna manna
víðs vegar um heim í því
skyni að draga úr tann-
skemmdum. Mikil reynsla
er komin á þessa aðferð,
enda hefur henni verið
beitt í fimm áratugi, að
sögn Moshe Kelman, sem
hefur verið yfir tann-
lækna- ög tannverndar-
málum í ísraelska heil-
brigðisráðuneytinu í þijá
áratugi.
Fyrir tíu árum fékk
Kelman yfirvöld til að
samþykkja að bæta flúor
í drykkjarvatn, fyrst í ein-
um bæ en nú neyta um
40% ísraela flúorbætts
vatns. „Þetta er mesti
árangur sem ég hef náð
í starfí mínu og það sem
ég er stoltastur af. Á leg-
steini mínum gæti sem best stað-
ið nafnið mitt og svo „flúor“.“
- Hvers vegna hefur þú svona
mikinn áhuga á að bæta flúor í
drykkjarvatn?
„Ég held að engin þjóð hafi
efni á því að setja ekki flúor í
vatn. Þetta er tiltölulega ódýr
leið til að varna tannskemmdum
og á þeim fimmtíu árum sem lið-
in eru frá því að Bandaríkjamenn
og Kanadamenn hófu að blanda
flúor í drykkjarvatn, hafa ekki
komið fram neinar sannanir þess
að hann sé mönnum eða um-
hverfi hættulegur.' Umhverfis-
verndarsinnar og aðrir hafa tínt
til alls kyns sjúkdóma sem flúor
á að valda en ekki hefur neitt
verið sannað í þessum efnum.
Menn predika gegn viðbótarefn-
um eins og þau séu öll af því illa
en allt náttúrulegt af hinu góða.
Málið er ekki svona einfalt, menn
verða að átta sig á því að viðbót-
arefni hafa gert mönnum lífið svo
miklu léttara. Þá má ekki gleyma
því að flúor finnst mjög víða í
náttúrunni. Menn verða að geta
stutt mál sitt rökum.“
- Hver hefur reynslan verið í
ísrael?
„Þar neyta nú um 2,5 milljónir
manna flúorbætts vatns og bæta
má hálfri milljón við sem nýtur
góðs af, borðar mat og neytir
drykkja sem framleiddir eru á
svæðum þar sem flúor er bætt í
vatn. Dregið hefur úr tann-
skemmdum um helming á þessum
tíu árum.“
Ég vil taka það fram að flúor
leysir ekki öll vandamál en það
er miklu auðveldara að setja flúor
í drykkjarvatn en að fá fólk til
að hætta að drekka gos og borða
sætindi. Sykur er versti óvinur
tannanna og besta vörnin gegn
tannskemmdum er að hætta að
borða sykur. Hún er hins vegar
ekki raunhæf nema fyrir örfáa.“
— Gekk það átaka-
laust fyrir sig að fá
stjórnvöld til að sam-
þykkja að bæta flúor í
drykkjarvatn?
„Það kom ekki til
mótmæla umhverfis-
verndarsamtaka, þau eiga sér
ekki djúpar rætur í ísrael. Sjálfur
er ég vissulega hlynntur mörgum
baráttumálum þessara samtaka
en mér fínnst að í þessu máli
hafi þau farið offari og að mál-
flutningur þeirra sé órökstuddur.
ísraelsk yfirvöld tóku málaleitan
minni vel, töldu þetta skynsam-
Moshe Kelman er fæddur í
London árið 1933. Hann var
rússneskur túlkur í Konung-
lega breska flughernum í sex
ár en hóf að því loknu nám í
tannlækningum í Birmingham.
Hann lauk því árið 1963 og
gráðu í heilsugæslu árið 1969.
Kelman starfaði sem tann-
iæknir í einkageiranum og í
skólum í Bretlandi á sjötta ára-
tugnum en fráárinu 1970 hef-
ur hann verið yfirmaður tann-
verndarmála í ísrael. Hann
hefur verið kennari og fyrir-
lesari við tannlæknaskólann í
Jerúsalem í aldarfjórðung og
skrifað fjölda greina um tann-
vernd í blöð og tímarit í heima-
landi sínu og erlendis. Kelman
er kvæntur og á þrjú uppkom-
in börn.
lega leið til að spara ríkinu millj-
arða dala á hveiju ári. Kostnaður
við að blanda flúor í vatn er rúm-
ar 30 kr. ísl. á mann á ári. Kostn-
aður við tannviðgerðir er líklega
um hundrað sinnum hærri.“
- Hversu miklum flúor er
bætt í drykkjarvatnið?
„Einu milligrammi í hvern
lítra, sem er einn hluti flúors á
móti milljón hlutum vatns. Það
er ekkert bragð af svo daufri
lausn en hún dugar til að varna
tannskemmdum. Flúor kemur
ekki algerlega í veg fyrir þær,
það má líkja flúor við járnklæðn-
ingu utan um timburhús. Hún ver
timbrið en getur jekki algerlega
komið í veg fyrir skemmdir.“
- Hvar er flúor bætt í
drykkjarvatn?
„Flúor finnst í nær öllu drykkj-
arvatni, en í minna magni í köld-
um löndum en heitum. Af nokkr-
um löndum get ég nefnt að allir
íbúar Hong Kong neyta flúors í
drykkjarvatni, 63% íra, um 53%
Bándaríkjamanna og
um 40% ísraela. Evr-
ópubúar standa ekki
framarlega í þessu og
ég tel ástæðuna fyrst
og fremst vera baráttu
umhverfisverndarsam-
taka. En ég ítreka að ekkert styð-
ur fullyrðingar þeirra og Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin segir í árs-
gamalli skýrslu að flúorblöndun
sé örugg og ódýr aðferð til að
hindra tannskemmdir og að hana
ætti að nota sem víðast. En það
er auðvitað spurning um for-
gangsröðun."
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Moshe Kelman
Fæst lönd
hafa efni á því
að bæta ekki
flúor ívatn