Morgunblaðið - 08.06.1996, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mosfellsbær 7592
Morgunblaðið/Kristinn
Fábrotið
sniglalíf
ÞESSI snigill barst til landsins
með sendingu af arinsteinum frá
Frakklandi í desember sl. Eigandi
arinsteinanna lagði hann frá sér
í gluggakistu en snigillinn skreið
upp á vegginn við gluggann og
gleymdist þar. í síðustu viku var
farið að huga að sniglinum og kom
þá í ljós að hann var sprelilifandi
eftir Sex mánaða hungurviSt á
veggnum.
Að sögn Erlings Ólafssonar lljá
Náttúrufræðistofnun er þetta
sniglalíf í hnotskurn. Snigillinn er
af tegundinni Helix og algengur
i Evrópu. Ef harðnar í ári límir
hann sig fastan og leggst í dvala.
Þannig getur hann lifað svo mán-
uðum skiptir en ef t.d. kálblaði
er veifað nálægt honum eða vatns-
dropa skvett á hann eins og í þessu
tilfelli, skríður hann hinn hress-
asti úr skelinni.
Skoðanakönnun Frjálsrar verslunar um fylgi forsetaframbjóðenda
SKOÐANAKÖNNUN sem timaritið
Fijáls verslun gerði á fímmtudags-
kvöld leiðir í ljós að Ólafur Ragnar
Grímsson nýtur stuðnings 46% þeirra
sem afstöðu tóku í embætti forseta
íslands, en næstur honum kemur
Pétur Kr. Hafstein með 23% fylgi.
Alls svöruðu 580 manns í könn-
uninni, en miðað við úrtakið í heild
fær Ólafur Ragnar 30% fylgi sem
er um 4% minna en í seinustu könn-
un Frjálsrar verslunar í maí, og
Pétur Kr. Hafstein 15% stuðning.
Aðrir frambjóðendur hlutu mun
minni stuðning, Guðrún Pétursdóttir
15% fylgi af úrtakinu öllu, Guðrún
Agnarsdóttir 8% fylgi og Ástþór
Magnússon 2% fylgi. Ovissir í úrtak-
inu eru 35%, sem er meira en fylgi
Ólafs Ragnars af úrtakinu í heild.
Olafur Ragnar
með 46% fylgi
í skoðanakönnun Stöðvar 2 og
Dagblaðsins Vísis, sem sömuleiðis
var gerð í fyn-akvöld, kemur fram
að tæpur helmingur þeirra sem tóku
afstöðu, eða 49,4%, styður Ólaf
Ragnar Grímsson til embættis for-
seta, rúmur fjórðungur, eða 25,1%,
styður framboð Péturs Kr. Hafstein,
12,3% ætla að kjósa Guðrúnu Agn-
arsdóttur, 10,1% ætla að kjósa Guð-
rúnu Pétursdóttur og 3,2% hyggjast
styðja Ástþór Magnússon til embætt-
is. 600 manns voru í úrtaki fyrir
könnun Stöðvar 2 og DV og neituðu
30% aðspurðra að svara hvernig þau
hygðust ráðstafa atkvæði sínu. Sam-
kvæmt frétt Stöðvar 2 af könnuninni
hafa kvenframbjóðendurnir tveir og
Ástþór sótt í sig veðrið frá seinustu
könnun DV, sem gerð var í seinasta
mánuði. Fylgi Ólafs og Péturs hafi
hins vegar minnkað lítillega.
Sérstaklega var spurt um hvort
menn hefðu fylgst með umræðu-
fundi frambjóðenda á Stöð 2 á mið-
vikudagskvöld og hver hefði staðið
sig best og hver lakast. Niðurstöður
voru helstar þær að 28% töidu Ólaf
Ragnar hafa staðið sig best fram-
bjóðenda, 13% nefndu Guðrúnu Pét-
ursdóttur, 8% nefridu Pétur Kr. Haf-
stein, 7% Guðrúnu Agnarsdóttur og
4% Ástþór Magnússon. Óákveðnir
voru 40% aðspurðra.
14% töldu Pétur Kr. Hafstein hins
vegar hafa staðið sig verst, 13%
nefndu Ástþór Magnússon, 8%
nefndu Ólaf Ragnar Grímsson, 6%
nefndu Guðrúnu Pétursdóttur og 4%
nefndu Guðrúnu Agnarsdóttur, en
55% voru óákveðnir eða gátu engan
nefnt.
Andlát
KRISTINE G.
KRISTO-
FERSSON
KRISTINE Guðrún Kristofersson,
rithöfundur og kennari, lést á heim-
ili sínu í Kanada 5. apríl sl.
Kristine Guðrún fæddist á Gimli
4. desember 1914. Foreldrar hennar
voi-u Ólína Ingveldur Kristjánsdóttir
og Gísli Benediktsson. Maður hennar
var Harold Kristofersson og eignuð-
ust þau fjögur börn.
M FASTEIGMAMIÐSTOÐIMf M
SICIPKOLTI 508 • Slffil 62 20 20 - FAX 62 22 90
Morgunblaðið/Golli
Þetta glæsilega 260 fm einbýli/tvíbýli er til sölu. Húsiö
stendur á u.þ.b. 2.500 fm eignarlóð (jaðarlóð ekki í þétt-
býliskjarna) í landi Reykja. Frábært útsýni. Gott útivistar-
svæði. Eign sem gefur mikla mögul. fyrir þá sem vilja vera
í þéttbýli en þó út af fyrir sig. Þeir, sem vilja skoða um
helgina, geta hringt í Eddu í síma 5552737.
Opið hús - sýning - Flétturimi 2
Ný 3ja herb. íbúð til sölu
Ca 90 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Hagstætt verð.
Kars-parket, Alno-innr. og flisalagt.
íbúð sem aldrei hefur verið búið í.
Til sýnis í dag, laugardag og sunnudag
milli kl. 14 og 16.
Upplýsingar gefur Katrín i síma 567 6122.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA"
Borganúni 31,105 Rvik, s. 582 4250.
Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl.
Skipasmiðir
Árnessins
heiðraðir
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Ár-
nes, sem áður var Breiðafjarðar-
ferjan Baldur, kom í Kópavogs-
höfn á Kársnesi í fýrradag og
lagði úr höfn með þátttakendur
á umdæmisþingi Rotary, sem
haldið er í Kópavogi um helgina.
Skipið var smíðað í Stálskipa-
smiðjunni í Kópavogi fyrir 30
árum og af því tilefni tók hafnar-
stjórn Kópavogshafnar á móti
skipinu með athöfn til heiðurs
skipasmiðunum.
m STÖFNSETT 1958 FASTEIGNAMIÐSTODIN H F 1 w 5521150-5521371 1 LÁRUS Þ. VALDIMARSSDN, FRAMKVffMÐASTJORI 1 ÞÓRDUR R. SVEINSSON HDL, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
SKIPHOLTI S0B - Siffll 62 20 30 • FAX 62 22 90
Breiðavík 11 og 13
mJIIBIIIBI ■ II m S 1! iii 1111 1 ■ E a li 1 Im
Q3 DD E S =y b a B s hd a B:
a i
aDD B B BS B a j le B btiHu a B! -~-i
B3 DB B «-1120 o H i o | QO gy B! i
Vorum að fá í sölu þetta glæsilega 16 íbúða fjölbýlishús í grennd viö Korpúlfsstaði.
Skemmtilegar og vel skipulagðar 3ja-4ra herb. íbúðir. Bílskúrar geta fylgt. íbúðirnar
seljast fullbúnar (mögul. tilb. til innr.). íbúðirnar eru óvenju rúmgóðar. Suðursvalir.
Glæsi legt umhverfi m.a. golfvöllur og frábærar gönguleiðir. Hagstætt verð t.d. 3ja
herb. fullb. íbúð 104 fm á 7,2 millj. og er þá miöað við mjög góð greiðslukjör. íbúðirnar
verða til afhendingar í haust. Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofu FM.
Traustur bygginga raðili: Örn ísebarn. (2831/112027).
Nýkomin til sýnis og sölu m.a. eigna:
Fyrir smið eða laghentan
Sólrík samþykkt kjíb. 3ja herb. um 70 fm v. Hjallaveg. Sérhiti. 40 ára
húsnlán kr. 2,6 millj. Vinnupl. um 9 fm. Verð aðeins kr. 4,1 millj.
Innst við Kleppsveg - gott verð
Góð, sólrík 3ja herb. íb. á 1. háeð 80,6 fm. Parket á gólfum. Tvennar
svalir. Rúmg. geymsla í kj. Vinsæll staður. Tilboð óskast.
Ein bestu kaup á markaðnum í dag
Góð 3ja herb. íb. 84,4 fm á 1. hæð v. Leirubakka. Sérþvotta- og vinnu-
herb. Gott herb. í kj. Snyrting i kj. Ágæt sameign. Langtlán kr. 3,7
millj. Verð aðeins kr. 6,1 millj.
Grindavík - góð atvinna - skipti
Gott steinh. ein hæð 130,2 fm. Sólsk. um 30 fm. Góður bílsk. 60 fm.
Lóð 875 fm. Á vins. stað skammt frá höfninni. Skipti mögul. Tilb. óskast.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
Á söluskrá óskast m.a.:
Húseign með tveimur íbúðum í borginni eða nágrenni.
Einbýlishús í Smáíbúðahverfi, Árbæjarhverfi eða Grafarvogi.
Raðhús eða parhús um 120 fm á einni hæð.
íbúðir 2ja-5 herb. miðsvæðis í borginni, í Fossv., Vesturbæ og víöar.
Margir fjársterkir kaupendur. Margs konar eignaskipti. Rétt eign greidd
v. kaupsamning.
• • •
Opiðídag kl. 10-14.
Fjöldi eigna í skiptum.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
ALIWENNA
FASTEIGMASALAN
IIUGIVEGI1BS. 552 1150-55Z 1371