Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 11
FRETTIR
HERMANN Jónsson t.v. og Walter Lenz með fallega veiði sína
úr Norðurá á dögunum.
Laxveiðihjólin
farin að snúast
LAXVEIÐI hefst í Laxá í Kjós og
Kjarrá í dag og hafa menn orðið
varir við talsverðan lax í báðum ám.
Árnar opna nú hver af annarri og
má nefna Laxá í Aðaldal og Haf-
fjarðará á mánudag, Laxá í Leirár-
sveit miðvikudaginn 12. júní og í
framhaldi af því Langá, Elliðaárnar,
Langá og húnvetnsku árnar Mið:
fjarðará, Vatnsdalsá og Víðidalsá. í
öllum hefur þegar sést fiskur og
sagði Runólfur Ágústsson, einn
leigutaka Langár, í samtali við
Morgunblaðið að strax upp úr hvíta-
sunnu hefðu menn verið farnir að
sjá meira af fiski miðað við árstíma
heldur en í annan tíma. Veiði hefst
þar þó ekki fyrr en laugardaginn
15. júní.
Víða góð silungsveiði
Góðar fregnir af bökkum sil-
ungsáa og -vatna berast víða að.
Menn hafa t.d. verið að gera góða
túra í Hlíðarvatn í Selvogi, eina að
fiskurinn er fremur smár, þ.e.a.s
mikill hluti af þeirri bleikju sem veið-
ist.
Þá hefur verið prýðisveiði á köfl-
um í Brúará og hefur Morgunblaðið
haft spurnir af mönnum sem fóru
til veiða fyrir löndum Sels, Spóa-
staða og Efri Reykja og veiddu vel.
Bleikja er aðalfiskurinn í ánni og
er væn, 2-3 pund. Hefur bleikjan
veiðst best á smáar púpuflugur og
litla kopariitaða „spinnera".
Veiði hefur gengið vel í Laxá í
Þingeyjarsýslu ofan Brúa og í Litluá
í Kelduhverfi. Mikið af fiskinum sem
veiðist er 3-5 punda og enri stærri
fiskar hafa veiðst í Köldukvísl nærri
Sigöldu. Þar eru fjórar stangir á dag
og er algengt að hver stöng sé að
fá 1-4 bleikjur. Allt er þetta stór
fiskur, varla nokkur undir 2-3 pund-
um og þeir stærstu til þessa 7 pund.
Énn stærri silungar hafa verið
dregnir úr Minnivallalæk á þessu
Fundur yfir-
tannlækna
Evrópu
YFIRTANNLÆKNAR í Evrópu,
sem vinna í tengsum við ráðuneyti,
hittast tvisvar á ári hveiju í mismun-
andi löndum. Að þessu sinni verður
vorfundurinn haldinn í Reykjavík
8.-11. júní nk.
Um 26 yfirtannlæknar og fyrirles-
arar sækja fundinn. Fjallað verður
um vandamál sem tengjast tönnum
og umhverfi þeirra og hvaða ráðum
þjóðirnar beita til að reyna að koma
í veg fyrir eða leysa þau.
Fjallað verður um samræmingu á
þeim lágmarkskröfum sem gera þarf
til efna og tækja sem notuð eru í
tannlækningaþjónustunni. Einnig
verður fjallað um hinar ýmsu leiðir
sem farnar hafa verið við að nýta
flúor til varnar tannskemmdum t.d.
töflugjöf, munnskolun, lökkun og
aukið flúor í matarsalti.
sumri, einn 10 punda urriði og ann-
ar 9,5 punda. Fyrir fáum dögum var
búið að bóka um 50 fiska og var
meðalþunginn 4,5 pund. Aðeins er
veitt á flugu í ánni.
Sölumiðstöð veiðileyfa
Veiðivöruverslanir hafa verið að
auka þjónustu sína síðustu árin með
því móti að selja veiðileyfi í ár og
vötn. Engin verslun hefur þó gengið
jafn langt og Vesturröst sem gefur
út sérstakan bækling með lista yfir
þau vötn sem í boði eru. „Það voru
margir sem réðu okkur frá þessu,
sögðu að því fylgdi ekkert nema
fyrirhöfnin. Vissulega fylgir þessu
talsverð fyrirhöfn, en veiðimenn
virðast ánægðir með þetta og því
höldum við okkar striki," sagði Kol-
beinn Ingólfsson, einn Vesturrastar-
manna í samtali við Morgunblaðið.
Þau vötn og ár sem Vesturröst
selur í eru Brynjudalsá, vötn í
Svínadal upp af Hvalfirði, Brennan
í Borgarfirði, Oddastaðavatn við
Heydalsveg, Seltjörn við Grindavík-
urveg, Kleifai'vatn, Hróarslækur á
Rangárvöllum, Hraun í Ölfusi, Þóris-
vatn, Kvíslaveitur, vötn á Fjallabaks-
leið, svæði 4 í Grenlæk, Heiðarvatn
í Mýrdal, Seyðisá á Kjalvegi, Kalda-
kvísl, Varmá-Þorleifslækur og Lang-
holtssvæðið í Hvítá eystri.
Þýskir þingmenn í heimsókn
Ahugi á auknu
samstarfi við Island
SENDINEFND þingmanna úr
þýska alþýðuflokknum, SPD, hefur
verið á ferðalagi um ísland síðustu
viku, ásamt starfsfólki sendiráðsins
í Reykjavík. Hópurinn heimsótti
fyrirtæki og ræddi við fjölmarga
aðila, m.a. um möguleika á enn
frekari samvinnu íslands og Þýska-
lands á ýmsum sviðum. Sjö þing-
menn SPD komu til landsins, Ilse
Janz, þingmaður í Bremerhaven,
hefur farið fyrir hópnum en hún
hefur tvisvar áður heimsótt ísland.
Ilse Janz sagði í samtali við
Morgunblaðið að innan þingflokks-
ins væri mikill áhugi á að stofnaðar
yrðu sérstakar þingmannanefndir
bæði á íslandi og í Þýskalandi, með
þátttöku allra flokka. Markmið
þeirra væri að koma á enn frekari
samvinnu, t.d. varðandi atvinnu-
og efnahagsmál. Janz sagði að hug-
myndin hafi verið rædd við Ólaf
G. Einarsson, forseta Alþingis og
hafi hann sýnt málinu mikinn
áhuga.
Hún sagði jafnframt að Ingi-
mundur Sigfússon, sendiherra ís-
lands í Bonn í Þýskalandi, hafi verið
þessum áhugahópi mjög hjálplegur.
Búið er að stofna þýsk-íslenskt
verslunarráð í Reykjavík.
Vináttusamband er á milli Hafn-
arfjarðar og Cuxhaven og hitti
þingmannanefndin ráðamenn í
Hafnarfirði í vikunni og fræddist
um þróun bæjarfélagsins. Janz seg-
ir ekki síður mikilvægt að kynnast
menningu þjóðarinnar, „til að hægt
sé að skilja land og þjóð er einnig
nauðsynlegt að kynnast menningu
þess“.
Blaðamaður hitti Janz að máli í
höfuðstöðvum Samheija hf. á Akur-
eyri en áður hafði hópurinn heim-
sótt Útgerðarfélag Akureyringa hf.
Bæði þessi fyrirtæki tilheyra ein-
mitt þýsk-íslenska verslunarráðinu.
Janz sagði að móttökurnar hafi
verið mjög góðar hvar sem komið
var og hreifst hún mjög af þeim
atvinnufyrirtækjum sem skoðuð
voru. Sendinefndin heldur af landi
brott í dag.
Umhverfissjóður
verslunarinnar
15 fá 21,7
milljónir
UMHVERFISSJÓÐUR versl-
unarinnar úthlutar styrkjum
til 15 aðila í dag, laugardag,
í landi Fuglaverndarfélags ís-
lands og Eyrarbakkahrepps
við Eyrarbakka.
Samtals verður úthlutað
21,7 milljónum en stærstu ein-
stöku styrkirnir eru að upphæð
5 milljónir. Verkefnin sem
hljóta styrki ná meðal annars
til hreinsunar, uppgræðslu,
skógræktar, fræðslu og fugla-
verndar. Þótt styrkþegar séu
aðeins 15 stendur íjöldi á bak
við þessa aðila, t.d. hefur einn
styrkþeginn um 50.000 félaga
á skrá.
Verslanir sem standa að
Umhverfissjóði verslunarinnar
greiða mánaðarlega hagnað
af sölu plastburðarpoka í sjóð-
inn. 119 verslanir greiða í sjóð-
inn en á næstunni munu allar
verslanir ÁTVR bætast í hóp-
inn.
R-listinn vísaði frá tillögu sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Miðskólanum verði
bættur kostnaður
R-LISTINN vísaði frá tiilögu Sjálf-
stæðismanna um að Miðskólanum
yrði bættur allur kostnaður vegna
uppsagnar Reykjavíkurborgar á að-
stöðu hans í Miðbæjarskólanum og
nýrrar staðsetningar í Skógarhlíð á
fundi sínum sl. fimmtudagskvöld. í
frávísunartillögunni kemur fram að
borgarráð hafi þegar tekið afstöðu
til tillögu frá borgarráðsfulltrúum
D-listans um að veita Miðskólanum
8 milljón króna styrk vegna eiidur-
bóta á húsnæði í Skógarhlíð.
Tillaga sjálfstæðismanna gerði
ráð fyrir greiðslu á leigu húsnæðis,
2,2 milljónum á ári, greiðslu stofn-
kostnaðar vegna flutnings að há-
marki 8,2 milljónir, árlegri greiðslu
vegna hita og rafmagns, um 430
þúsund krónur, og greiðslu vegna
leikfimiaðstöðu hjá Knattspyrnufé-
laginu Val að upphæð 690 þúsund
krónur á ári.
Borgarráð hafði samþykkt að veita
Miðskólanum styrk til greiðslu húsa-
leigu, 187.500 kr. á mánuði, timabil-
ið 1. júlí 1996 til 30. ágúst 1997.
Stofnkostnaður vegna breytinga á
húsnæði í Skógarhlíð hafði verið
áætlaður 8.157.000 kr. og var ákveð-
ið að leggja fram allt að helming
stofnkostnaðar á móti Miðskólanum.
Ekki var talin ástæða til að taka
ákvörðun um frekari rekstrarstyrk
fyrr en í júlí 1997 þegar fyrir lægi
greinargerð um rekstrarstöðu skólans
eftir næsta skólaár og upplýsingar
um umsóknir skólaárið 1997-1998.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram tillögu um að
Reykjavíkurborg ábyrgðist stofn-
kostnað vegna nýs húnæðis Mið-
skólans. ' Breytingartillagan var
felld. Borgarstjórn staðfesti hins
vegar tillögu borgarráðs.
BÓKHALDSKERFI
STÓLPI fyrir Windows er
samhæfður Word og Excel.
Sveigjanleiki í fyrirrúmi.
H KERFISÞRÓUN HF.
^“Fákafeni 11 - Sími 568 8055
Starencri 36-40
Raöhús á eimú hæð með góðu útsýni. Húsin afhendast tilbúin að utan þ.e.a.s. litað slát á þaki, frágengnir
sólpallar, skjólveggir og máluð. Fokhelt að innan, stærðir 144,7 fm
með inhbyggðum 26 fm bílskúr. Lóðin grófjöfnuð.
Traustur byggingaraðili.
Verð frá 7.8 millj. Áhv. 4 millj. húsbréf.
Sölixaðilar:
Fasteigxiamiðstöðiii, sími 562 2030,
Bifröst, sími 533 3344,
Borgir, sími 588 2030.