Morgunblaðið - 08.06.1996, Síða 12

Morgunblaðið - 08.06.1996, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Miðbær Hafnarfjarðar hf. Bæjarsjóður yfirtekur eignir fyrir 15 milljómr _ Morgunblaðið/Sverrir NÝJU hópferðabílarnir verða formlega afhentir Vestfjarðaleið einhvern næstu daga og verða þeir þá sýndir hjá Scania umboðinu, Heklu hf. í Reykjavík. Hér er Jóhannes Ellertsson við annan nýja bílinn. Tveir nýir hópferðabílar til Vestfjarðaleiðar Kringjim 40 milljóna króna fjárfesting BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur samþykkt með þremur atkvæðum meirihlutans gegn tveimur atkvæð- um minnihluta, tillögu fjármálastjóra um að bæjarsjóður yfirtaki eignar- hluta í Miðbæ Hafnarfjarðar hf., við Fjarðargötu 13-15 fyrir 15 miiljónir króna, sem er áhvílandi skuld á eign- inni. Um er að ræða þann hluta eign- arinnar, sem ætlaður var Almenn- ingsvögnum. I bókun Magnúsar Gunnarssonar Sjálfstæðisflokki segir að hann telji , eðlilegt að gengið hefði verið frá afiéttingu veðskulda af eigninni þeg- ar núverandi meirihluti ákvað að yfirtaka eignina haustið 1995. Lágmarka tjón bæjarsjóðs Meirihluti bæjarráðs, Jóhann G. Bergþórsson Sjálfstæðisflokki, Val- gerður Guðmundsdóttir Alþýðuflokki og Ti-yggvi Harðarson Alþýðuflokki, bókuðu að þegar umræddri eign hafí verið skilað í stjórn fyrrverandi bæj- arstjóra hafí bæjarábyrgð á um- ræddu láni ekki verið aflétt og bæjar- sjóður því jafnskuldbundinn vegna eignahlutans sem fyrr. Eignahiutinn hafi í upphafí verið keyptur með yfír- töku tveggja lána sem bæjarsjóður yrði nú að greiða og því ekki óeðli- legt að hann sé yfírtekinn til að lág- marka tjón bæjarsjóðs. Fram kemur að við gerð samnings um endursölu á eignarhlutanum árið 1994 hefðu þáverandi stjórnendur átt að gánga tryggilega frá að ábyrgð yrði ekki áfram hjá bæjar- sjóði. Það hafi ekki verið gert og þegar samningur um yfirtöku eigna vegna bæjarábyrgðar var gerður árið 1995 hafí staða Miðbæjar Hafnar- fjarðar hf. verið mun lakari og engin leið að aflétta ábyrgðinni. Vonast hafi verið tii að hægt yrði að selja eignina fyrir ábyrgðinni þannig að ekki þyrfti að koma til yfirtöku. Það hafi ekki gengið eftir og því sé þessi aðgerð nauðsynleg. Magnús Jón Árnason Alþýðu- bandaiagi vakti athygli á að hans stjórnartíð hafi einnig verið stjórn artíð Jóhanns G. Bergþórssonar. Umrætt samkomulag frá árinu 1994 hafí verið staðfest í bæjarráði af öll- um fulltrúum. Hann hafi ætíð verið mótfallinn bæjarábyrgð vegna fram- kvæmdanna. Veiting þeirra væri á ábyrgð núverandi meirihluta. í bók- uninni segir ennfremur að löngu sé tímabært að bæjarfélagið hætti að hlaupa til og aðstoða Miðbæ Hafnar- fjarðar hf. Þá segir, „Það er löngu tímabært að sögunni endalausu um Miðbæ Hafnarfjarðar hf., ljúki og leitt verði í ljós hvort fyrirtækið sé fært um að greiða skuldbindingar sínar, jafnvel þó bæjarsjóður beri einhvern kostnað af. Annað eins hef- ur bæjarfélagið þegar borgarð með Miðbæ Hafnarfjayðar hf.“ Gæta hagsmuna bæjarins I annarri bókun meirihluta bæjar- ráðs segir að í sameiginlegri stjórn- artíð Jóhanns G. Bergþórssonar og fyrrverandi bæjarstjóra hafí Magnús Jón Árnason verið framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og sem slíkur ábyrg- ur fyrir að samþykktir yrðu fram- kvæmdar á fullnægjandi hátt. Að- gerðir þær sem gripið var til árið 1995 og nú væru ekki til aðstoðar Miðbæ Hafnarfjarðar hf., heldur til að gæta hagsmuna bæjarsjóðs. TVEIR nýir hópferðabílar eru að bætast í flota Vestfjarðaleiðar um þessar mundir, sem er þá alls 24 bílar. Um er að ræða undirvagna frá Scania bílaverksmiðjunum sænsku en yfírbyggingin er smíðuð af Berkhof í Hollandi. „Þetta er kringum 40 milljóna króna fjárfest- ing og þó að hún sé stór biti teljum við hana færa fyrirtækinu meiri verkefni og það er stefna okkar að endurnýja ört og gera það með nýjum bílum fremur en 8 til 10 ára bílum frá Þýskalandi eða öðrum löndum," segir Jóhannes Ellertsson aðaleigandi Vestfjarðaleiðar í sam- tali við Morgunblaðið. Bílarnir tveir eru eins, taka 51 farþega en 49 ef salerni bílsins eru notuð, hafa 380 hestafla vél, raf- magnsskiptan gírkassa og er annar með vökvaknúnum mótorhemli en hinn með rafmagnsknúnum. Þeir eru með læst drif, burðargetan er 7,5 tonn á framöxul og 12 tonn á afturöxul og eru búnir loftfjöðrun. Yfírbyggingin frá Berkhof heitir Axial og var þessi nýja lína í yfir- byggingum kynnt á sýningu á liðnu hausti og kveðst Jóhannes Ellerts- son þá hafa afráðið að panta tvo bíla með þessu húsi. Hann lýsir helsta búnaði þess þannig: „Sætin eru hallandi og hægt að færa sætin nær ganginum aðeins frá gluggasætunum sem þýðir að farþegar fá meira rými, hattahilla er ofan við sætin og þar er loftræst- ing sem hver og einn getur stillt eftir sínu höfði, ljós og hátalari. Öryggisbeltin eru miðuð við Evr- ópustaðla sem þýðir að tveggja punkta belti eru í fremstu sætunum, sætunum aftan við aftari hurðina og miðjusætinu í aftasta bekknum,“ segir Jóhannes og telur að rannsaka þurfi betur hvort hópferðabílar skuli almennt búnir beltum. „Það er ekki nóg að hafa beltin því það verður til dæmis að vera tryggt að yfirbyggingin sé nógu ÞAK-0G VEGGKLÆONINGAR ÍSVAL-BORGA EHr. HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751 sterk til að þola þunga bílsins og farþega ef bílnum hvolfir. Á meðan menn eru ekki á eitt sáttir um þessi mál verður að bíða með að lögbjóða bílbelti í öllum sætum hópferða- bíla.“ Þyrftum að njóta sömu kjara og aðrir En er þetta ekki dálítill handlegg- ur að endurnýja alltaf með nýjum bílum? „Þetta er mikið átak og væri létt- ara ef við nytum sömu kjara og þeir sem fjárfesta í flugvélum eða feijum og við erum í ákveðinni sam- keppni við. Það þarf ekki að greiða aðflutningsgjöld eða virðisauka- skatt af flugvélum og ég myndi þiggja að losna undan samtals 30% gjöldum, 12 milljónum, sem greiða þarf til ríkisins af þessari fjárfest- ingu. Sumum hefur þótt aldur hóp- ferðabíla nokkuð hár hérlendis en það er eingöngu vegna þess hversu erfitt er fyrir okkur að kaupa nýja bíla.“ Hann bætir við í tilefni af umræð- um um innheimtu þungaskatts hjá eigendum stórra ökutækja að eðli- legast væri að skatturinn færi sem fyrst inn í olíuverðið til þess að eig- endur þessara tækja þyrftu ekki að liggja undir grun um að sleppa vel frá uppgjöri eða taka mæla úr sambandi, þetta kæmi óorði á þess- ar atvinnugreinar. Að lokum er Jóhannes Ellertsson spurður hvort hann sé bjartsýnn á góða nýtingu á flotanum á næst- unni: „Þar sem sérleyfisakstur er nán- ast að líða undir lok vegna sam- keppni við einkabílinn höfum við snúið okkur æ meira að innflutn- ingi ferðamanna og fengum ferða- skrifstofuleyfí árið 1993. Þetta hefur gefið okkur dijúg verkefni og við fáum marga hópa frá Þýskalandi og Austurríki og höldum áfram markaðssetningu ís- lands þar og lengingu ferðamanna- tímans, en þessi starfsemi er um helmingur af umsetningu fyrirtæk- isins. Síðan þjónum við fjölmörgum aðilum með hópferðir, t.d. Ferðafé- laginu, Útivist, ÍSAL, skólum, starfsmannafélögum og fleirum og ég er því ekki hræddur um verk- efnaleysi. En nýtingin mætti vera betri því að af 24 bíla flota er kring- um helmingnum lagt yfir vetrar- mánuðina.“ ■ immmm viLfíS! vandaður vindþéttur þægilegur vatnsvarinn, útöndunar- efnið ENTRANT G II 15% afsláttur af útivistarfatnaði frá VANGO SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavlk S. 511 2200 Þar sem ferðalagið byrjar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.