Morgunblaðið - 08.06.1996, Page 14
14 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Fuglahræð-
ur með
einfaldan
smekk
Flateyri - Tvær fuglahræður
vekja athygli þeirra sem leið eiga
um Holt í Önundarfirði. I sjálfu
sér ekkert merkilegt fyrir þær
sakir, en þegar betur var að gáð
kom í ljós að hér var um að ræða
vel klæddar fuglahræður sem
hefðu eflaust sómt sér vel á
mannamótum. Eina hræðuna var
að vísu frekar spurning um sökum
höfuðklúts sem hún bar, þareð
hann átti ættir að rekja til skæru-
liða.
Þegar fréttaritari grennslaðist
frekar fyrir um skapara þessara
hræða þá kom í ljós að það var
enginn annar en sjálfur prestur-
inn sr. Gunnar Björnsson í Holti
í Önundarfirði sem hafði bæði ljáð
þeim líf og klæðnað á nytjalandi
sóknarinnar. Rebbi einn var nýbú-
inn að gera mikinn usla i hreiðrum
í slagtogi við kríuna sem sveimaði
Morgunblaðið/Egill Egilsson
SR. GUNNAR Björnsson
við skæruliðann sinn.
yfir eins og njósnahnöttur. Þegar
sr. Gunnar var inntur frekar eftir
þessum einfalda smekk sem hræð-
urnar höfðu kvað hann þetta vera
föt frá sinum velmektardögum
þegar hann var í góðum málum.
Nú væri það liðin tíð og því vel
við hæfi að fæla kríur og aðra
vágesti með smekkvísi herra-
mannsins.
Söfnunarkassar
fyrir pappír
Selfossi - Skipuleg söfnun pappírs
til endurvinnslu hófst formlega með
athöfn framan við verslunarmið-
stöðina Kjarnann á Selfossi.
Söfnunin er liður í átakinu Hreint
Suðurland og byggist á því að litlir
söfnunarkassar eru sendir inn á
hvert heimili og fólk safnar endur-
vinnanlegum pappír í þá. Síðan
getur fólk losað úr þessum heimilis-
kössum í sérstaka söfnunargáma
sem staðsettir eru í alfaraleið fólks
í þéttbýli.
Það eru Sorpstöð Suðurlands,
Gámaþjónustan, Samtök sunn-
lenskra sveitarfélaga og KÁ á Suð-
urlandi sem standa að þessu söfn-
unarátaki.
Strax o g Þorsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri KÁ, hafði afhent
fyrsta söfnunarkassann settu nokk-
ur leikskólabörn pappír, sem þau
höfðu safnað, í söfnunargáminn.
Líf og fjör framan við Kjarann,
gríllað var í góða veðrinu og leik-
tæki voru þar fyrir börnin.
LEIKSKÓLABÖRNIN biðu í
röð með blöð og annan pappír
til að setja í gáminn.
Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
NEMENDUR 10. bekkjar með leiðbeinendum sinum í stígagerð.
Nemendur í stígagerð
Kirkjubæjarklaustri - Á síðustu
dögum skólanna á þessu starfsári
er mikill fjölbreytileiki í starfi nem-
enda. Margir fara í ferðalög en
nemendurnir í 10. bekk í Kirkjubæj-
arskóla unnu að stígagerð undir
góðri stjóm Jóhönnu B. Magnús-
dóttur ferðamálafulltrúa og Guð-
jóns Ólafssonar, fræðslufulltrúa
Landgræðslunnar.
Tilgangurinn með þessum starfs-
degi var fyrst og fremst að kenna
unglingunum hvernig leggja á stíg
í grónu brattlendi en jafnframt
lögðu þau sitt af mörkum til land-
vemdar í nágrenni skólans síns. í
sumar njóta göngumenn góðs af
ef farið er í gönguferð á Kirkjubæj-
arklaustri upp að Systravatni.
Daginn áður hafði þessi sami
hópur ásamt fleirum verið í vett-
vangsferð í Eldhrauni þar sem skoð-
uð voru ummerki eftir ágang Skaft-
ár eftir svonefnd Skaftárhlaup um
leið og athugað var hvernig tekist
hefur til við að græða landið. Þar
lögðu nemendur líka sitt á vogar-
skálina í baráttunni við náttúruöflin
með því að sá melfræi og bera áburð
á örfoka svæði.
HIV-mótefnamæling endurtekin vegna galla í prófefni
Um hundrað manns
eftir að koma
MÓTEFNAMÆLINGAR gegn
eyðniveiru hafa verið gerðar hjá
um fjögur hundruð blóðgjöfum við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
en um mánaðamótin mars-apríl
kom í ljós að prófefni við skimpróf
fyrir eyðni sem notað var á sjúkra-
húsinu reyndist gallað.
Umrætt prófefni var notað á
tímabilinu frá október í fyrra þar
til í mars síðastliðnum. Þar sem
ekki er hægt að treysta niðurstöð-
um úr skimprófinu á þessu tíma-
bili var ákveðið að endurrannsaka
þá blóðgjafa sem gáfu blóð á þessu
tímabili, en það eru um fimm
hundruð manns.
Mikið að gera
„Það hefur verið mjög mikið að
gera á deildinni og mikið álag á
starfsfólkinu,“ sagði Vigfús Þor-
steinsson, en hann átti von á að
verkinu yrði lokið eftir um það bil
mánuð. Hann sagði að þeim sem
í hópnum eru og hafa ekki enn
komið í blóðsýnatöku fyrir eyðni-
skimun í blóðbanka FSA hefði
verið sent bréf og fólk beðið um
að mæta sem fyrst, en um eitt
hundrað manns eiga eftir að koma
í endurtekna mótefnamælingu.
Vigfús sagði að í þeim endur-
rannsóknum sem þegar hefðu ver-
ið gerðar hefði ekkert komið í ljós.
Líkur til að HlV-smitað blóð hafi
fundist á umræddu tímabili eru
hverfandi. Einungis einn smitaður
blóðgjafi hefur greinst á tíu ára
tímabili, en um 120 þúsund próf
hafa verið gerð á meðal blóðgjafa.
Morgunblaðið/Trausti
BJÖRGVIN Jónsson, fyrrverandi togaraskipstjóri og fram-
kvæmdastjóri ÚD, við líkan af „tappatogaranum“ Björgvin EA 311.
Sjávarhættir fyrr
og nú á Dalvík
Dalvík. Morgunblaðið.
Vinnuslys í
Kjörmarkaði KEA
Klemmdist
með fót í
lyftuopi
RÚMLEGA sextugur rafvirki
hlaut slæmt fótbrot í vinnuslysi í
Kjörmarkaði KEA við Hrísalund í
fyrrakvöld.
Vörulyfta sem gengur milli
kjallara hússins og jarðhæðar fest-
ist í lyftugöngunum við jarðhæð-
ina og var viðgerðarmaður kallað-
ur til. Þegar hann var að stíga inn
í lyftuna steyptist hún skyndilega
ofan í kjallarann. Vinstri fótur
mannsins klemmdist við það í
lyftuopinu, milli loftsins á lyftunni
og þröskuldarins á lyftugólfinu.
Maðurinn var fastur í lyftunni
í um hálftíma, en kallaðir voru á
vettvang tveir læknar, tækjabíll
slökkviliðs, lögregla og sjúkrabíll.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglu fór betur en á
horfðist.
Maðurinn fór í aðgerð á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri í
gærmorgun og var líðan hans eft-
ir atvikum samkvæmt upplýsing-
um læknis á gjörgæsludeild, en
hann hlaut slæmt fótbrot.
Messur
AKUREYRARPRESTA-
KALL: Messað verður í Ak-
ureyrarkirkju á morgun,
sunnudag kl. 11. Ferming-
arguðsþjónusta í Miðgarða-
kirkju í Grímsey á morgun,
sunnudag, kl. 11.
GLERÁRKIRKJA: Guðs-
þjónusta á morgun, s.unnu-
dag kl. 11.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sameiginleg samkoma kl.
20.30 á sunnudag með
KFUM og K. Nemendur frá
biblíuskólanum „Troens
Beins" í Noregi taka þátt.
Einnig samkoma á miðviku-
dag kl. 20.30 með nemend-
um biblíuskólans.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Miðnætursamkoma í kvöld,
laugardag, kl. 23.00. Vakn-
ingasamkoma kl. 20. á
sunnudagskvöld. Ræðu-
maður Lilja Óskarsdóttir frá
Vestmannaeyjum.
KAÞÓLSKA Kirkjan, við
Eyrarlandsveg: Messa kl.
18 í dag, laugardag og kl.
11 á morgun, sunnudag.
A SJOMANNADAGINN var
opnuð sýningin Sjávarhættir
fyrr og nú, á vegum Byggða-
safnins Hvols á Dalvík. Til sýnis
eru yfir 50 skipslíkön, smíðuð
af Grími Karlssyni skipstjóra,
auk ýmissa muna og verkfæra
er tengjast sjávarútvegi fyrr og
nú. Þá eru einnig ljósmyndir af
gömlum og nýjum fiskiskipum
Islendinga og starfsháttúm í
sjávarútvegi á fyrri tíð.
Við opnun sýningarinnar
flutti Rögnvaldur Skíði Frið-
björnsson bæjarstjóri ávarp,
ásamt Grími Karlssyni, sem gat
um tilurð sýningarinnar. Að
ávörpum loknum opnaði hinn
aldni togaraskipsljóri og fyrrum
framkvæmdasljóri Útgerðarfé-
lags Dalvíkinga hf., Björgvin
Kvennakórinn
Lissy heldur
tónleika
KVENNAKÓRINN Lissý heldur tón-
leika í Breiðumýri Reykjadal annað
kvöld, sunnudagskvöldið 9. júní og
hefjst þeir kl.' 21. Þá heldur kórinn
tónleikar í íþróttahúsi Valsárskóla á
Svalbarðsströnd þriðjudagskvöldið
11. júní kl. 21.
Á efnisskránni eru eingöngu ís-
lensk lög, en hápunktur tónleikanna
er frumflutningur á Bóthildarkvæði
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur tón-
skáld sem hún samdi sérstaklega
fyrir kórinn. Útibú Landsbanka Is-
lands og íslandsbanka á Húsavík
styrktu kórinn vegna þessarar tón-
smíðar. Verkið er fyrir fimm ein-
söngvara, kvennakór og píanó.
Stjórnandi kórsins er Hólmfríður
Benediktsdóttir og undirleikari
Helga Bryndís Magnúsdóttir.
Jónsson, sýninguna en nafn hans
er tengt útgerðarsögu á Dalvík
órjúfandi böndum.
Meðal sýningargripa eru bát-
ar sem hann stýrði og gerði út
til margra ára þar á meðal
Björgvin EA 311, sem var einn
af hinum svonefndu „tappatog-
urum“, síðutogari smíðaður í
Austur-Þýskalandi og kom til
Dalvíkur árið 1958. Með hverju
Iíkani er saga skipsins rakin,
hvar það var smíðað, stærð og
gerð og fleiri atriði er þeim
þykir athygliverð er áhuga hafa
á sjávarútvegi.
Sýningin er í íþróttahúsinu á
Dalvík en þar er góð aðstaða til
sýningarhaldsins. Verður hún
opin til 6. ágúst alla daga nema
mánudaga milli kl. 13 og 17.
Listasafnið á Akureyri
Ljósmynda-
og vídeóverk
SÝNING á verkum Karolu Schleg-
elmilch undir yfirskriftinni
„Displacement,“ verður opnuð í
Listasafninu á Akureyri á morgun,
laugardaginn 8. júní kl. 16. Karola
sýnir verk sem eru gerð með ljós-
mynda- og vídeótækni.
Karola er fædd 1964 í Berlín og
hefur numið við Listaakademíuna í
Berlín og lauk mastersnámi 1993.
Hún hefur bæði dvalið á íslandi við
myndlistariðkun og sýnt myndir
sínar í Reykjavík.
„Verkin fjalla um hv.ernig þrár,
væntingar og stemmning móta
skynjun okkar á hlutum í landslag-
inu, svo sem steinum, tijám og
grasi. Myndirnar eru gamansamar
þó þær láti lítið yfir sér.