Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 15
AKUREYRI
Skátafélagið Klakkur
reisir nýja Valhöll
Morgunblaðið/Kristján
ÚTSÝNIÐ úr Valhöll, nýjum útileguskála Skátafélagsins Klakks
á Akureyri, er fagurt.
SKÁTAR á Akureyri, félagar í
Klakki eru að reisa sér nýjan úti-
leguskála, Valhöll, í landi Veiga-
staða á Svalbarðsströnd gegnt Ak-
ureyri. Klakkur er stærsta skátafé-
lag landsins en í því eru tæplega
400 félagar.
Fyrsta skóflustunga að húsinu
var tekin í nóvember síðastliðnum
og þar var fyrsta fánaathöfnin á
sumardaginn fyrsta. Unnið er að
því þessa dagana að gera húsið
fokhelt og sagði Þorsteinn Péturs-
son foringi Klakks að félagið hefði
átt fyrir framkvæmdum við húsið
fram að þeim áfanga.
Skátarnír áttu skála á svipuðum
slóðum, en höfðu makaskipti á landi
við eigendur Veigastaða, en þeir
hafa nú yfir að ráð um þriggja
hektara landsvæði sem þykir kjörið
til skátastarfs. Útbúið verður tjald-
svæði skammt frá húsinu og þá er
fyrirhugað að heijast þegar í næsta
mánuði handa við að planta tijám
í svæðið, en Jóhannes Halldórsson
á Veigastöðum gaf skátunum nokk-
ur hundruð plöntur við fánahylling-
una á dögunum.
„Við höfum hvarvetna fundið
fyrir velvilja og okkur er alls staðar
vel tekið þar sem við höfum leitað
eftir aðstoð vegna byggingarinnar,"
sagði Þorsteinn.
í beinni útsendingu
Valhöll er skáli á tveimur hæð-
um, 80 fermetrar að flatarmáli. Á
efri hæð er svefnloft og setustofa
en þeirri neðri eldhús, foringjaher-
bergi, snyrting og stofa. Húsið blas-
ir við Akureyriiigum í Vaðlaheið-
inni, „Við verðum með skátastarf í
beinni útsendingu. Fólk getur fylgst
með okkur úr fjarlægð við fánahyll-
ingar og þá á reykur af varðeldi
eflaust oft eftir að sjást liðast hér
upp,“ sagði Þorsteinn.
Skáta vantar nú töluverða fjár-
muni til að ljúka byggingunni og
hefur fjáröflunarnefnd verið sett á
fót til að afla þeirra. Leitað hefur
verið til um 500 skátavina á Akur-
eyri með framlög og þá hyggjast
skátar standa að „stór-kolaporti“ á
flötinni neðan Samkomuhússins 15.
júní næstkomandi til að afla fjár
til byggingarinnar.
Morgunblaðið/
BJÖRG Þórhallsdóttir og
Guðrún A. Kristinsdóttir.
Kveðjutónleik-
ar Bjargar
BJÖRG Þórhallsdóttir, mezzósópran,
og Guðrún Anna Kristinsdóttir,
píanóleikari, halda tónleika í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju sunnu-
daginn 9. júní kl. 20.30.
Á efnisskránni eru ljóð eftir F.
Schubert, H. Wolf og J. Brahms
ásamt íslenskum sönglögum og
óperuaríum. Þetta eru kveðjutónleik-
ar Bjargar, en hún er á förum til
framhaldsnáms við konunglega tón-
listarháskólann í Manchester í Eng-
landi í haust.
Tónleikarnir eru tileinkaðir minn-
ingu sr. Þórhalls Höskuldssonar, föð-
ur Bjargar.
-----» ♦ ♦------
Akureyrarhöfn
Fær bætur
vegna efnis-
galla á stálþili
HAFNARSTJÓRN Akureyrar hefur
náð samkomulagi við breska fyrir-
tækið British Steel um bætur að
upphæð 12.000 pund, eða um 1,2
milljónir króna vegna efnisgalla á
stálþili í Krossanesi. Um var að
ræða vinding í stálþilsskúffum sem
gerði verktakanum erfiðara fyrir við
að reka stálþilið niður.
Hafnarstjórn samdi nýlega við
Kötlu ehf. á Árskógsströnd um
áframhaldandi framkvæmdir í
Krossanesi að viðhöfðu útboði. Katla
sér um að steypa kant og polla við
nýja viðlegukantinn, sem er 80
metra langur. Framkvæmdir við
þennan áfanga eru að heíjast og
skal þeim lokið í lok júií.
Hótel Hjalteyri
opnað um helgina
KAFFIHUSIÐ Hótel Hjalteyri hef-
ur sumarstarfsemi sína á morgun,
sunnudaginn 9. júní og jafnframt
verður opnuð sýning á verkum
Dagnýjar Sifjar Einarsdóttur.
Hótel Hjalteyri hefur verið gert
upp að hluta en neðri hæð hússins
er notuð fyrir kaffihús. Þetta er
sögufrægt hús sem byggt var af
Thor Jensen í upphafi aldarinnar.
Húsið var byggt sem íbúðarhús en
síðar voru þar skrifstofur Kveldúlf-
ur hf., veitingasala og hótel.
Þegar síldarbræðslan lagðist nið-
ur á Hjalteyri 1966 var allri starf-
semi hætt í húsinu og hafði það
staðið ónotað í hartnær þijá ára-
tugi þegar núverandi eigendur réð-
ust í að gera það upp. Það er Gall-
erí AllraHanda sem rekur starfsemi
í húsinu.
Norðlenskir listamenn sýna verk
sín á Hjalteyri í sumar, fyrst er
Dagný Sif Einarsdóttir, en þeir sem
á eftir fylgja eru Guðmundur Ár-
mann Siguijónsson, Kristinn G.
Jóhannsson, Laufey Pálsdóttir, Sig-
urður Hallmarsson og Þórey Ey-
þórsdóttir.
Brúðkaups-
sýning
SÝNING á ýmsum því sem viðkem-
ur brúðkaupum verður í Blómabúð-
inni Laufás í dag, laugardag frá
kl. 14 til 16. Ef veður leyfir verður
sýningin flutt út í göngugötuna í
Hafnarstræti.
Það er Blómabúðin Laufás sem
sýnir brúðarvendi, skreytingar og
fleira sem snýr að blómum, Hár og
heilsa kynnir hárgreiðslu, snyrtingu
og fleira. Saumakúnst kynnir fatn-
að sem fyrirtækið leigir, brúðar-
kjóla og fleira og Norðurmynd brúð-
kaupsmyndirnar.
Byggingafulltrúi
Akureyrarbæjar
auglýsir breytingu á afgreiðslu ýmissa
erinda sem berast bygginganefnd Akureyrar.
Byggingafullrúinn afgreiðir byggingaleyfisumsóknir, er uppfylla
ákvæði laga og reglugerða, fyrir nýbyggingar, breytingar og við-
bætur, löggildingu iðnmeistara o.fl.
Telji einhver rétti sínum hallað með afgreiðslu byggingafulltrúa eða
byggingafulltrúi synjar að afgreiða erindi, er honum heimilt að skjóta
máli sínu til bygginganefndar innan 14 daga, frá því að honum er
kunnugt um afgreiðslu byggingafulltrúa, og fer um meðferð kæru-
mála skv. byggingalögum nr. 54/1978, með síðari breytingum, og skv.
stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Skulu slík kærumál send til bæjar-
lögmannsins á Akureyri. Ennfremur er hægt að skjóta málinu til
úrskurðar umhverfisráðherra, sbr. 8. mgr. 8. gr. byggingarlaga.
Samþykkt þessi var staðfest af umhverfisráðuneytinu 3. apríl 1996 og
byggir á lögum nr. 82/1994 um reynslusveitarfélög.
Breyting þessi tekur gildi þann 10. júní 1996.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu byggingafulltrúa Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9., 3. hæð.
hAbkólinn
A AKUREYRI
Konur, barneignir
og siðfræði
Dagskrá ráðstefnu heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri (H.A.)
í samvinnu við jafnréttisnefnd Akureyrarbæjar
18. og 19. júní 1996 í Oddfellowhúsinu á Sjafnarstíg 3
-Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir -
'riðjudagur 18. júní.
8.30 - 9.15 Skráning - heitt á könnunni ásamt meðlæti við
harmónikkuundirleik Daníels Þorsteinssonar.
9.15- 9.30 Setning ráðstefnunnar
María Pétursdóttir, verndari ráðstefnunnar, flytur ávarp.
9.30 -10.15 Konur og heilbrigði á heimsvísu
Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og þingkona
10.15- 10.45 Heilsuhlé
10.45 - 11.30 Fóstureyðingar: Untræða í blindgötu?
Dr. Kristján Kristjánsson, heimspekingur, dósent H.A.
11.30 - 13.30 Hádegislilé - Boðið upp á sérstaka heilsurétti á Bing Dao,
Bautanum, Greifanum og Pizza 67
13.30 -14.15 Upplifun kvenna af umhyggju og umhyggjuleysi á meðgöngu.
- Rannsóknarkynning -
Sigfríður Inga Karlsdóttir, hjúkrunarfræðingur B.S. og ljósmóðir
14.15- 14.30 Listahlé - Björg Þórhallsdóttir, mezzósópran, GuðrímAnna
Kristinsdóttir, píanó.
14.30- 15.15 Meðgangabarns-siðfræðilegákvörðun?
Sigríður Jónsdóttir, hjúktunarfræðingur M.Sc. og ljósmóðir
15.15 -15.45 Heilsuhlé - œjingar og nœring
15.45 - 16.30 Móðurhlutverkið og æxlunartæknin
Arna Ýrr Sigurðardóttir, guðfræðingur
16.30- 17.30 Opinn fyrirlestur:
Kynning áfjantámi til Mastersgráðu í hjúkr tmarfrieði við
Manchester háskóla ísamvinnu við Háskólann á Akur eyri.
Dr. Liz Clark og Bob Price
Miðvikudagur 19. júní.
9.00 -9.15 Kynning á reynslubundinni rannsóknaraðferð (Phenomcnologv)
Sigriður Halldórsdóttir, forstöðumaður heilbrigðisdeildar
9.15 - 9.45 Svelti í von um betra líf: Upplifun á lystarstoli (anorexia nervosa)
- Rannsóknarkynning -
Inga Dagný Eydal, Kristín Sólveig Bjamadóttir og Þorgerður
Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingar B.Sc.
Tónlist
9.45 -10.15 Ljós og skuggar: Upplifun foreldra af því að eignast fyrirbura sem
þarfnast umönnunar á ungbarnagjörgæslu.
- Rannsóknarkynning -
Guðny Friðriksdóttir, Hulda Sædís Bryngeirsdóttir, Lilja Ester
Ágústsdóttir og Þórhildur Þöll Pétursdóttir, hjúkrunar fræðingar B.Sc
10.15- 10.45 Heilsuhlé - œfmgar og næring
10.45 -11.15 Getum við lifað góðu lífi: Uppiifun ungs fóiks annars vegar á því að
greinast með sykursýki á unglingsárum og hins vegar á umhyggju
og umhyggjuieysi í samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk.
- Rannsóknarkynning -
Ásdís H. Arinbjörnsdóttir, Lovísa A. Jónsdóttir, Sigriður M.
Jónsdóttir, Sigríður R. Þóroddsdóttir og Þorgerður Einarsdóttir,
hjúkrunarfræðingar B.Sc.
Tónlist
11.15 -11.45 Gjöf lifsins: Upplifun af því að vera nýrnaþegi
- Rannsóknarkynning -
Linda Hersteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur B.Sc.
11.45 - 13.30 Samciginlegur hádegisverður á KEA, pasta- og
fiskiréttahlaðborð (innifalið í ráðstefnugjaldi). Stutt dagskrá á
meðan á hádegisverði stendur: “I gamni og alvöru” - í tilefni
af 86 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
13.30- 14.30 Umræðuhópar í umsjá viðkomandi fyrirlesara
1. Hvernig er heilbrigði íslenskra kvenna í samanburði við aðrar konur?
2. Hvernig er að vera með lýstarstol?
3. Hvernig getum við aukið upplifiin af umhyggju á meðgöngu?
4. Hvernig er að vera líffæraþegi?
5. Siðferði fóstureyðinga.
6. Hvernig er að eignast fyrirbura?
7. Örlög móðurhlutverksins.
8. Hvernig aðlagast unglingar sykursýki?
9. Áhættumeðganga á tíma tækniframfara.
14.30 - 15.00 Niðurstöður umræðuhópa
15.00 Ráðstefnuslit og móttaka - verður utandyra ef veður leyfir
Skráning á raðstefhuna er á skrifstofu H.A. í s. 463-0501/901 alla virka daga kl. 11.00-12.00
og 13.00-14.00. Ráðstefnugjald er kr. 5000 fyrír báða ráðstefnudagana (allar veitingar og
hádegisverðarhlaðborð síðari dag ráðstefmmnar innifalið) og greiðist það fyrir 12. júni inn á
bankareikning nr. 49542 á ávísanareikning heilbrigðisdeildar í Landsbankanum á Akureyri.
Nemendur við heilbrigðisdeild H.A. greiða kr. 2500 og stundakennarar kr. 3000. Mjög áriðandi
er að nafn og kennitala greiðanda komi fram á kvittuninni. Ráðstefnur heilbrigðisdeildar hafa
ætið verið vel sóttar og er fólk því hvatt til að skrá sig sem fyrst.
Afsláttur af flugferðum: Flugleiðir bjóða raðstefnugestum fargjaldið Ak-Rek-Ak fyrir
kr. 11.130. Mikilvægt er að tilkynnt sé um afsláttarfargjald um leið og bókun i flug fer fram.
Flugfélag Norðurlands býður ráðstefnugestum 25% afslátt af fargjaldi á öllum fiugleiðum
félagsins. Hjá báðum félögunum þarf að framvísa kvittun um greiðslu ráðstefnugjalds.
Ennfremur er fólki bent á aðildarfélagsfargjöldin en í því tilfelli kostar farið Ak-Rek-Ak kr. 5830.