Morgunblaðið - 08.06.1996, Page 19

Morgunblaðið - 08.06.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 19 ERLENT Zeman þing- forseti MILOS Zeman, leiðtogi tékk- neskra jafnaðarmanna, kvaðst í gær mundu taka taka tilnefn- ingu flokks síns til að verða forseti tékkneska þingsins. Þetta er hluti samkomulags um að jafnaðarmenn styðji minni- hlutastjórn Vaclavs Klaus for- sætisráðherra. Lét þyrluna falla EINI maðurinn, sem lifði af þyrluslysið við Dortmund í Þýskalandi á fimmtudag, sagði að flugmaður þyrlunnar hefði látið þyrluna falla og skelli- hlegið. Þyrlan hefði hrapað og 13 látist er hún rakst í trjá- toppa eftir að flugmaðurinn lét hana falla öðru sinni. Viðskipta- deila óleyst LEE Sands, samningamaður Bandaríkjamanna, sagði í gær að tveggja daga viðræðum í Peking til að afstýra viðskipta- stríði milli Kínveija og Banda- ríkjamanna hefði lokið án nið- urstöðu en ákveðið hefði verið að halda þeim áfram í næstu viku. Deila ríkjanna snýst um hugverka- og höfundarrétt- arstuld í Kína. Norðmenn ákveða kjördag NORSKA ríkisstjórnin til- kynnti í gær að gengið yrði til almennra kosninga 13. september 1997. Norð- menn kusu síðast 13. september 1993 o g tryggðu stjórn Gro Harlem Brundtland þá áframhaldandi valdasetu. Húsnæði mannréttindi BANDARÍKJAMENN og ríki þriðja heimsins samþykktu með stuðningi Evrópuríkja á Habitat II, ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um borgir, að það teldist til mannréttinda að hafa þak yfir höfuðið. Ekki var þó gengið það langt að krefj- ast skuldbindingar, sem gerði heímilislausum kleift að leita réttar síns fyrir dómstólum. Segjast hafa eitrað te LÍTT þekktur uppreisnarhópur tamíla kveðst hafa eitrað te, sem flutt var frá Sri Lanka milli 19. apríl og 10. maí. Her- inn og tekaupmenn sögðu þetta útilokað. Erfitt væri að komast að teinu og eiturs hefði orðið vart við smökkun. Vilja aðstoða N-Kóreu B AN DARÍKJAMENN lýstu sig í gær reiðubúna til að verða við ósk Sameinuðu þjóðanna um að senda neyðarsendingar af mat til Norður-Kóreu. And- virði framlags þeirra myndi nema um 400 milljóna króna. Loftmengun mótmælt í Berlín GRÆNFRIÐUNGUR setur gasgrímu á andlit Grænfriðungar vildu þannig minna á loft- frægrar styttu á „Siegessaule“ (Sigursúlunni) mengunina af völdum bíla. Á spjaldinu á mynd- í Berlín til að veija hana á táknrænan hátt inni stendur: „Stöðvið ósonloftmengunina - fyrir ósoni, eitraðri lofttegund. Greenpeace". Todor Zhívkov hvet- ur til þjóðareiningar Sofíu. Reuter. TODOR Zhívkov, kommúnistaleið- toginn sem stjórnaði Búlgaríu í 35 ár, efndi til blaðamannafundar í gær og hvatti þjóðina til að samein- ast til að vinna bug á efnahags- kreppunni. Zhívkov er 84 ára og var einn af nánustu bandamönnum sovét- leiðtogans Leoníds Brezhnevs og Nicolae Ceausescu, fýrrverandi ein- ræðisherra Rúmeníu. „Mér ber skylda til að segja búlgörsku þjóð- inni að aðeins með samstilltu átaki allra Búlgara komumst við úr þeirri hræðilegu kreppu sem við erum S,“ sagði hann í glæsihúsi sínu í út- hverfi Sofíu. Stjóm sósíalista, arftaka komm- únistaflokks Zhívkovs, er nú að knýja fram erfiðar sparnaðarað- gerðir, sem felast m.a. í lokun verk- smiðja og banka, til að afstýra al- gjöru efnahagshruni og fullnægja skilyrðum fyrir erlendum lánum. Zhívkov kvaðst hafa helgað sig „velferð Búlgara“ í sex áratugi og gæti því ekki setið aðgerðalaus hjá meðan þjóðin liði þjáningar. „Stór hluti þjóðarinnar, einkum ellilífeyrisþegar og atvinnulaust fólk, er á mörkum þess að deyja úr hungri... Bræður og systur, við verðum að binda enda á þessa flokkadrætti og skipuleggja hreyf- ingu til að bjarga föðurlandinu," sagði Zhívkov, en gat þess ekki hvers konar hreyfingu hann vildi. Laus úr stofufangelsi Zhívkov var dæmdur í stofufang- elsi árið 1992 fyrir að draga sér fé úr sjóðum ríkisins til að kaupa dýr- ar íbúðir og vestræna bíla handa fjölskyldu sinni og vinum. Hann fékk að afplána dóminn í glæsihúsi dóttur sinnar vegna aldursins en hann hélt alltaf fram sakleysi sínu. Hæstiréttur Búlgaríu hnekkti dómnum í febrúar og Zhívkov fékk að fara fijáls ferða sinna. Þrátt fyrir dóminn hefur hann notið vin- sælda meðai margra Búlgara. Zhívkov sagði að margir hefðu hvatt hann til að gefa kost á sér í forsetaembættið en kvaðst vera of gamall til þess. Zhivkov var spurður hvort tengsl kynnu að vera milli 35 ára valda- tíma hans og efnahagsástandsins nú og hann játti því. „Jú, það eru tengsl - um leið og ég fór frá hófst ránið og ruplið.“ ^ Israel Ihuga til- slakanir Jerúsalem. Reuter. ÞINGMAÐUR Likud-bandalags Benjamins Netanyahus, verðandi forsætisráðherra ísraels, gaf í skyn í gær að ef til vill þyrfti að slaka á þeirri harðlínustefnu í friðarmál- um sem var grundvöllurinn að kosningasigri Netanyahus í síðustu viku. „Ég get greint frá því hver stefna Likud-bandalagsins er ... og ég minni á að ég tók fram að málamiðlun yrði að verða. Það á augljóslega líka við um Likud- bandalagið og stefnu þess,“ sagði þingmaðurinn, Michael Eitan, sem er í fararbroddi nefndar sem leggja á drög að stefnu nýrrar ríkisstjóm- ar. Eitan neitaði því að slík drög lægju fýrir nú þegar, þrátt fýrir fregnir fjölmiðla um að svo væri og að gert væri ráð fyrir að ekki yrði ráðist í frekara landnám gyð- inga, né tekið fram að ísraelar skyldu halda fullum forráðum yfír Gólanhæðum, sem þeir tóku af Sýrlendingum 1967. Netanyahu ræðir nú við flokka heittrúaðra gyðinga og borgara- flokka um myndun samsteypu- stjórnar. Netanyahu náði naumum sigri í kosningunum, og hét kjós- endum því að hann gæti náð friði við Palestínumenn og araba án þess að láta land af hendi. Hann sagði ennfremur að hann myndi létta banni á frekara landnám gyð- inga á herteknum svæðum. Kamsky gaf skákina Moskvu. Reuter. STÓRMEISTARINN Gata Kamsky kaus að tefla ekki áfram fyrstu skákina af tutt- ugu í einvígi hans við Anatólí Karpov um heimsmeistaratitil Alþjóðaskáksambandsins (FIDE). Skákin fór í bið á fimmtudag og að mati skák- skýrenda hafði Karpov, sem stýrði hvítu mönnunum, af- burðastöðu, þrátt fyrir jafnan mannafla. Gaf Kamsky skák- ina án þess að tefla áfram. Einvígið fer fram í Elista, höfuðborg rússneska sjálf- stjórnarlýðveldisins Kalmúkíu. Næsta skák verður tefld í dag, og hefur Kamsky þá hvítt. Viö verðum meö opið hús helaina 8. og 9. júní kl. 13-1B í Scania salnum í Hekluhúsinu í tilefni af komu tvegaja nýrra Scania Berkhof rútubíla í eigu Vestfjaröaleiða. Veriö velkomin, kynnið ykkur bifreiöarnar og piggiö léttar veitingar. í Hekluhúsinu 8. og 9. júní kl.13-16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.