Morgunblaðið - 08.06.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 19
ERLENT
Zeman
þing-
forseti
MILOS Zeman, leiðtogi tékk-
neskra jafnaðarmanna, kvaðst
í gær mundu taka taka tilnefn-
ingu flokks síns til að verða
forseti tékkneska þingsins.
Þetta er hluti samkomulags um
að jafnaðarmenn styðji minni-
hlutastjórn Vaclavs Klaus for-
sætisráðherra.
Lét þyrluna
falla
EINI maðurinn, sem lifði af
þyrluslysið við Dortmund í
Þýskalandi á fimmtudag, sagði
að flugmaður þyrlunnar hefði
látið þyrluna falla og skelli-
hlegið. Þyrlan hefði hrapað og
13 látist er hún rakst í trjá-
toppa eftir að flugmaðurinn lét
hana falla öðru sinni.
Viðskipta-
deila óleyst
LEE Sands, samningamaður
Bandaríkjamanna, sagði í gær
að tveggja daga viðræðum í
Peking til að afstýra viðskipta-
stríði milli Kínveija og Banda-
ríkjamanna hefði lokið án nið-
urstöðu en ákveðið hefði verið
að halda þeim áfram í næstu
viku. Deila ríkjanna snýst um
hugverka- og höfundarrétt-
arstuld í Kína.
Norðmenn
ákveða kjördag
NORSKA ríkisstjórnin til-
kynnti í gær að gengið yrði til
almennra
kosninga 13.
september
1997. Norð-
menn kusu
síðast 13.
september
1993 o g
tryggðu
stjórn Gro
Harlem
Brundtland þá áframhaldandi
valdasetu.
Húsnæði
mannréttindi
BANDARÍKJAMENN og ríki
þriðja heimsins samþykktu
með stuðningi Evrópuríkja á
Habitat II, ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um borgir, að
það teldist til mannréttinda að
hafa þak yfir höfuðið. Ekki var
þó gengið það langt að krefj-
ast skuldbindingar, sem gerði
heímilislausum kleift að leita
réttar síns fyrir dómstólum.
Segjast hafa
eitrað te
LÍTT þekktur uppreisnarhópur
tamíla kveðst hafa eitrað te,
sem flutt var frá Sri Lanka
milli 19. apríl og 10. maí. Her-
inn og tekaupmenn sögðu
þetta útilokað. Erfitt væri að
komast að teinu og eiturs hefði
orðið vart við smökkun.
Vilja aðstoða
N-Kóreu
B AN DARÍKJAMENN lýstu
sig í gær reiðubúna til að verða
við ósk Sameinuðu þjóðanna
um að senda neyðarsendingar
af mat til Norður-Kóreu. And-
virði framlags þeirra myndi
nema um 400 milljóna króna.
Loftmengun mótmælt í Berlín
GRÆNFRIÐUNGUR setur gasgrímu á andlit Grænfriðungar vildu þannig minna á loft-
frægrar styttu á „Siegessaule“ (Sigursúlunni) mengunina af völdum bíla. Á spjaldinu á mynd-
í Berlín til að veija hana á táknrænan hátt inni stendur: „Stöðvið ósonloftmengunina -
fyrir ósoni, eitraðri lofttegund. Greenpeace".
Todor Zhívkov hvet-
ur til þjóðareiningar
Sofíu. Reuter.
TODOR Zhívkov, kommúnistaleið-
toginn sem stjórnaði Búlgaríu í 35
ár, efndi til blaðamannafundar í
gær og hvatti þjóðina til að samein-
ast til að vinna bug á efnahags-
kreppunni.
Zhívkov er 84 ára og var einn
af nánustu bandamönnum sovét-
leiðtogans Leoníds Brezhnevs og
Nicolae Ceausescu, fýrrverandi ein-
ræðisherra Rúmeníu. „Mér ber
skylda til að segja búlgörsku þjóð-
inni að aðeins með samstilltu átaki
allra Búlgara komumst við úr þeirri
hræðilegu kreppu sem við erum S,“
sagði hann í glæsihúsi sínu í út-
hverfi Sofíu.
Stjóm sósíalista, arftaka komm-
únistaflokks Zhívkovs, er nú að
knýja fram erfiðar sparnaðarað-
gerðir, sem felast m.a. í lokun verk-
smiðja og banka, til að afstýra al-
gjöru efnahagshruni og fullnægja
skilyrðum fyrir erlendum lánum.
Zhívkov kvaðst hafa helgað sig
„velferð Búlgara“ í sex áratugi og
gæti því ekki setið aðgerðalaus hjá
meðan þjóðin liði þjáningar.
„Stór hluti þjóðarinnar, einkum
ellilífeyrisþegar og atvinnulaust
fólk, er á mörkum þess að deyja
úr hungri... Bræður og systur, við
verðum að binda enda á þessa
flokkadrætti og skipuleggja hreyf-
ingu til að bjarga föðurlandinu,"
sagði Zhívkov, en gat þess ekki
hvers konar hreyfingu hann vildi.
Laus úr
stofufangelsi
Zhívkov var dæmdur í stofufang-
elsi árið 1992 fyrir að draga sér fé
úr sjóðum ríkisins til að kaupa dýr-
ar íbúðir og vestræna bíla handa
fjölskyldu sinni og vinum. Hann
fékk að afplána dóminn í glæsihúsi
dóttur sinnar vegna aldursins en
hann hélt alltaf fram sakleysi sínu.
Hæstiréttur Búlgaríu hnekkti
dómnum í febrúar og Zhívkov fékk
að fara fijáls ferða sinna. Þrátt
fyrir dóminn hefur hann notið vin-
sælda meðai margra Búlgara.
Zhívkov sagði að margir hefðu
hvatt hann til að gefa kost á sér í
forsetaembættið en kvaðst vera of
gamall til þess.
Zhivkov var spurður hvort tengsl
kynnu að vera milli 35 ára valda-
tíma hans og efnahagsástandsins
nú og hann játti því. „Jú, það eru
tengsl - um leið og ég fór frá hófst
ránið og ruplið.“
^ Israel
Ihuga til-
slakanir
Jerúsalem. Reuter.
ÞINGMAÐUR Likud-bandalags
Benjamins Netanyahus, verðandi
forsætisráðherra ísraels, gaf í skyn
í gær að ef til vill þyrfti að slaka
á þeirri harðlínustefnu í friðarmál-
um sem var grundvöllurinn að
kosningasigri Netanyahus í síðustu
viku.
„Ég get greint frá því hver
stefna Likud-bandalagsins er ...
og ég minni á að ég tók fram að
málamiðlun yrði að verða. Það á
augljóslega líka við um Likud-
bandalagið og stefnu þess,“ sagði
þingmaðurinn, Michael Eitan, sem
er í fararbroddi nefndar sem leggja
á drög að stefnu nýrrar ríkisstjóm-
ar.
Eitan neitaði því að slík drög
lægju fýrir nú þegar, þrátt fýrir
fregnir fjölmiðla um að svo væri
og að gert væri ráð fyrir að ekki
yrði ráðist í frekara landnám gyð-
inga, né tekið fram að ísraelar
skyldu halda fullum forráðum yfír
Gólanhæðum, sem þeir tóku af
Sýrlendingum 1967.
Netanyahu ræðir nú við flokka
heittrúaðra gyðinga og borgara-
flokka um myndun samsteypu-
stjórnar. Netanyahu náði naumum
sigri í kosningunum, og hét kjós-
endum því að hann gæti náð friði
við Palestínumenn og araba án
þess að láta land af hendi. Hann
sagði ennfremur að hann myndi
létta banni á frekara landnám gyð-
inga á herteknum svæðum.
Kamsky
gaf skákina
Moskvu. Reuter.
STÓRMEISTARINN Gata
Kamsky kaus að tefla ekki
áfram fyrstu skákina af tutt-
ugu í einvígi hans við Anatólí
Karpov um heimsmeistaratitil
Alþjóðaskáksambandsins
(FIDE). Skákin fór í bið á
fimmtudag og að mati skák-
skýrenda hafði Karpov, sem
stýrði hvítu mönnunum, af-
burðastöðu, þrátt fyrir jafnan
mannafla. Gaf Kamsky skák-
ina án þess að tefla áfram.
Einvígið fer fram í Elista,
höfuðborg rússneska sjálf-
stjórnarlýðveldisins Kalmúkíu.
Næsta skák verður tefld í dag,
og hefur Kamsky þá hvítt.
Viö verðum meö opið hús
helaina 8. og 9. júní
kl. 13-1B í Scania salnum
í Hekluhúsinu í tilefni af
komu tvegaja nýrra
Scania Berkhof rútubíla í
eigu Vestfjaröaleiða.
Veriö velkomin, kynnið
ykkur bifreiöarnar og
piggiö léttar veitingar.
í Hekluhúsinu 8. og 9. júní kl.13-16