Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ1996 21 NEYTENDUR má frysta tilbúna baunarétti en eins og aðrir réttir missa þeir aðeins kryddbragð við frystingu. Frystar baunir eru annað hvort látnar þiðna áður en þær eru notaðar eða t.d. settar frosnar út í pottrétti og súp- ur. „Baunir geymast vel í frysti eða allt að 3-5 mánuði og því er tilvalið að leggja stóra skammta í bleyti og sjóða. — Bjóðið þið upp á baunarétti á ríkisspítölum? „Já, í hverri viku. Við erum með grænmetisfæði daglega og yfirleitt eru það um 30 sjúklingar sem nýta sér þann kost. Nokkra daga í viku bjóðum við uppá grænmetisfæði í starfsmannamatsalnum og þar eru það yfirleitt á bilinu 80-150 manns sem kjósa slíkt fæði. Það eru þá t.d. grænmetispottréttir, baunarétt- ir og buff sem stendur fólki til boða.“ Valgerður segist finna fyrir auknum áhuga fólks á grænmetis- fæði og hún segir það sína framtíð- arsýn að hægt verði að bjóða sjúkl- ingum almerint að velja milli þess að fá grænmetisfæði og kjöt eða fisk. Látið baunirnar spíra Eflaust kannast margir við baunaspírur sem hægt er að kaupa í grænmetisborðum verslana. Val- gerður segir það iítið mál fyrir fólk að láta baunirnar spíra heima hjá sér. „Það eru sérstaklega alfalfa fræ, mung baunir og linsur sem fólk ætti að byija á að láta spíra. Valgerður segir börn hafa gaman af spíruninni því þau geti næstum horft á spírurnar vaxa. „Við höfum búið til baunaspírur hér á Landspítalanum. Þær eru skol- aðar vel og lagðar í bleyti í 2-3 tíma. Þá eru þær settar í krukku, net þar yfir sem fest er með teygju og þær settar á dimman stað. Spírurnar eru síðan skolaðar í vatni 1-2 á dag og það látið síðan leka vel af þeim. Eftir 3-5 daga eru spírurnar tilbún- ar. — Eru mismunandi baunir stund- um notaðar saman í rétti? „Já það er algengt að með t.d. smjörbaunum séu notaðar litaðar baunir á við grænar eða pintó baun- ir í blandaða baunapottrétti og rauð- ar og svartar nýrnabaunir með hvít- um baunum. Þær þurfa allar sam- bærilega suðu og að lokum eru lins- urnar oft settar út í. — Suinir eru hræddir við aukna gasmyndun borði þeir baunir! „Það er staðreynd að til að byija með verður meiri gasmyndun en ella. En það er bara eins og með aðra trefjaríka fæðu á meðan líkam- inn er að aðlagast henni. Ef fólk er sérstaklega viðkvæmt er ráð að skipta um suðuvatn á miðjum suðu- tíma. Valgerður á í bókum sínum ýms- ar baunauppskriftir og næsta fimmtudag birtum við frá henni nokkrar hér á neytendasíðu. Alain Mikli á Islandi FRANSKI gleraugnahönnuðurinn Alain Mikli er staddur hér á landi um þessar mundir en hann hefur komið reglulega til landsins á und- anförnum árum til að kynna hönnun sína. Hann verður í dag, laugardag- inn 8. júní, í gleraugnaversluninni Linsunni í Aðalstræti þar sem hann kynnir nýja hönnun og línu í um- gjörðum. Hann mun einnig aðstoða viðskiptavini við val á umgjörðum og veita þeim ráðgjöf sem vilja. - kjarni málsins! Heitt í kolunum Á LAUGARDÖGUM eru matreiðslumenn- imir Óskar Finnsson, Ingvar Sigurðsson og Ámi Þór Amórsson með þætti á Bylgjunni þar sem þeir fjalla um grillrétti og meðlæti. Hér á neytendasíðu birtast uppskriftir þeirra. Meðlæti með grillmat getur verið marg- víslegt og þeir félagar segja að gott sé að grilla hinar ýmsu tegundir af grænmeti. Sumar tegundir em betur til þess fallnar en aðrar. Mjög gott er að grilla t.d. blóm- kál, sveppi, tómata og kúrbít." Blómkál: Blómkál er skorið í bita og skellt beint á grillið. Gott er að pensla það með hvítlauksolíu. Sveppir: Sveppi skal kaupa stóra til grill- unar og setja þá heila á grillið. Einnig er hægt að fýlla þá. Stöngullinn er þá skorinn af, sveppurinn fyrst grillaður með toppinn upp, honum snúið við og í hann settur gráð- ostur. Tómatar: Tómatar eru mjög auðveldir viðureignar. Þeir eru settir beint á grillið og þeim snúið stöku sinnum. Kúrbítur: Kúrbítur er skorinn í um 1 '/2 sm sneiðar, þær settar á grillið og smurðar með góðri kryddolíu. Matarsalat lceberg salat tómatar agúrkur rauólaukur melónur jarðarber paprika Þvoið og skerið niður í mátulega bita. Það getur síðan bætt salatið að skvetta aðeins á það ólífuolíu, krydda með nýmöluðum svörtum pipar og strá yfir það beikon flögum. Kotasæludressing 1 lítil dós kotasæla 1 dl majones ______________V; dl súrmjólk____________ 2 hvítlauksgeirar (pressaðir) 1 msk. saxaður graslaukur 1 tsk. sítrónupipar 1 tsk. basil __________________salt__________________ nýmulinn svartur pipar Majones og súrmjólk er hrært saman. Hvítlauk, graslauk og kryddi bætt í. Smakk- að til með salti og svörtum pipar. ■ 10 flauelsblóm (tveir litir) Hansarós stjupur Stjúp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.