Morgunblaðið - 08.06.1996, Síða 22

Morgunblaðið - 08.06.1996, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ GOÐSÖGNIN Jón Pedersen með nýja veiðihattinn. Það er að vísu ekki AFRAKSTUR dagsins var heldur rýr. Erling Kristjáns- LEYNDARMÁLIÐ afhjúpað. Það skiptir komin reynsla á hann ennþá. son með tittina tvo, sem hann borðar líklega sjálfur. nefnilega öllu máli hvernig flugu menn nota. EG tek silungsveiði fram yfir laxveiði,“ segir sportveiðimaður- inn Jón Þ. Einarsson á leið- inni upp eftir. „Maður verður að velja og hafna. Það er of mikið að stunda hvora tvegg- ja. Maður gerði þá ekkert annað. Það er auðveldara að komast í silunginn, skreppa kannski í nokkra tíma í einu og veiðileyfip eru mun að- gengilegri og ódýrari." Á tölvuskjá skammt frá af- leggjaranum í Heiðmörk segir að vindátt sé austan 2 og 9 stiga hiti uppi á heiði. Jón segir að það henti ágæt- lega til veiði í Elliðavatni. „Norð-austanáttin er mjög góð en vestanáttin er hins vegar afleit. Það er eins og hann taki bara alls ekki í vestanátt og maður sleppir því að fara hingað upp eftir þegar hann er stífur að vest- an. Sól með mátulegu skýja- fari virkar líka ágætlega hérna.“ Jón segir að staðai-val í vatninu skipti einnig miklu máli. „Það eru nokkrir „heit- ir“ staðir sem maður fer á. Þetta lærist smátt og smátt og maður er alltaf að upp- götva eitthvað nýtt í þessu vatni.“ Makalaust t/atn Hann segir mér að töfrar Elliða- vatns séu fólgnir í því hversu erfitt sé að veiða þar. „Elíiðavatn er alveg makalaust. Ef þú færð fisk þar átt þú að geta veitt alls staðar. Það er svo mikið æti þar og veiðimaðurinn því í harðri samkeppni við gjöfula náttúruná. Það er hætt við að á þessum tíma dags sé hann orðinn svo saddur að hann hreyfi sig ekki,“ segir Jón Þ. og bætir því við að betra hefði verið að fara eldsnemma um morguninn, en ekki eftir hádegi. Máli sínu til stuðnings segist hann hafa farið upp eftir morguninn áður og fengið tuttugu bleikjur á tæpum tveimur tímum. „Bleikjan vill leggj- ast svona um miðjan daginn, svo fer hún aðeins á skrið síðdegis og fram eftir kvöldi. En þetta hefði verið fínt í morgun.“ Sofa silungar?, spyr ég og velti því fyrir mér hvort þessi skýring Jóns sé fólgin í því að lauma flug- unni inn á morgunverð- arborð fisksins í vatn- inu? Hann kemur sér und- an að svara og fer að tína veiðigræjumar út úr bflnum; vöðlur, vesti, stangir, flugubox, háf, kylfu til að rota fiskinn og sólgleraugu, sem hann segir að sé nauð- synleg vöm gegn flug- unni, sem á það til að sveiflast í andíit og augu veiðimannsins. „Það er einstök til- f'inning- að finna hann taka,“ segir Jón þegar við rökræðum eðli veiði- mennskunnar og hvað það sé sem fái menn til að standa tímunum sam- an úti í á eða vatni til þess eins að draga þessi kríli á land. „Það er frumeðlið í manninum SILUNGSVEIÐI MEÐ JÓNI Þ. EINARSSYNI VEIÐIMAÐURINN Jón Þ. Einarsson klár í slaginn við silunginn í Elliðavatni. Morgunblaðið/Sverrii’ Eilífðarstúdent í Elliðavatni Þeim fer fjölgandi sem stunda silungsveiði sér til andlegrar og líkamlegrar upp- lyftingar. Sveini Guðjónssyni lék forvitni á að kynnast töfrum sportveiðinnar og slóst í för með Jóni Þóri Einarssyni á sólbjörtum degi upp að Elliðavatni. 'C?*. ■ - ÞURRFLUGA Odds Ólafssonar virkaði í þetta skipti. sem þai'na lætur á sér kræla,“ segir Jón. „Gamli veiðimaðurinn kemur upp í okkur." Eraðallega bleikja í Elliðavatni? „Já, en það er urriði hérna líka og honum fjölgar í vatninu. Hann tekur mjög skemmtilega, stekkur með lát- um. Hann er stundum svo kát- ur að það er eins og maður sé með lax á línunni. Bleikjan leitar hins vegar niður á við og þumbast, en getur þó tekið ansi skemmtilega líka. En það er meira fjör í umðanum. Bleikjan er hins vegar betri matfiskur." Fastir punktar í tHverunni „Þarna er einn sem er orð- inn hálfgerð goðsögn hérna, Jón Pedersen. Hann er fastur punktur í tilverunni hér í vatn- inu,“ segir Jón Þ. þegar við komum að brúnni sem liggur á milli Elliðavatns og Hellu- vatns. „Og þarna er annar álíka garpur, Erling Kristjánsson," segir hann og bendir á annan veiði- mann, sem stendur einnig hálfur á kafi úti í vatninu og sveiflar stöng- inni. „Hér eru menn oft öxl í öxl,“ segir Jón Þ. og veður út í við hlið nafna síns Pedersen. Sá síðamefndi er með nýjan veiðihatt. Hefur hatturinn eitthvað að „Ég veit það ekki. Það er ekki kominn reynsla á hann ennþá. Sumir halda því fram að ákveðnar flíkur, og þá sér- staklega höfuðföt, færi þeim veiðilukku. Ég er nú ekki viss um það, en hins vegar er alltaf gaman að setja upp fall- egan hatt.“ Jón Pedersen er sammála nafna sínum Einarssyni um að menn séu alltaf að upp- götva eitthvað nýtt í Elliða- vatni. „Maður er eilífðarstúd- ent hérna. Þetta er svoleiðis vatn að vanir veiðimenn era ekkert öruggir um að fá fisk hérna. Málið er bara að hafa gaman af þessu. Annars gaf Skarphéðinn klæðskeri lítið út á hvort menn væru vanir eða óvanir. „Bleikjan ræður hvort hún bítur á,“ sagði hann og það eru orð að sönnu.“ Erling Kristjánsson er bú- inn að fá tvo og næsti maður við hliðina, Oddur Olafsson, fær tvo á meðan við stöldrum þarna við. Hann.er með þurr- flugu, en Jón Þ. er með vot- flugu og fær ekkert. Munur- inn er sá að þurrflugan liggur í yfirborði vatnsins og Oddi finnst skemmtilegra að sjá hann taka. Þegar Oddur land- ar seinni silungnum hefur Jón Þ. á orði að líklega verði hann að skipta yfir í þurrflugu. Staðreyndin er sú að það skiptir miklu máli hvernig flugu menn nota. Sportveiðimenn nota drjúgan tíma á veturna til að hnýta flugur og Jón Þ. segir að það stytti biðina eftir að veiðitímabilið hefjist: „Menn eru þá að þróa alls kyns afbrigði út frá reynslu sinni og hugmyndaflugi. Hér í Elliðavatni hefur ákveðið afbrigði, sem ég þró- aði út frá Tailor-flugunni, reynst mér best, en upphaflega Tailor-flug- an er kennd við Skarphéðin klæð- skera.“ Þeir Erling og Oddur segjast borða silunga sína sjálfir, Jón Þ. sel- ur hann hins vegar í verslun sinni Sunnukjöri. Þannig er allur gangur á því hvað verður um aflann. Svo tekur blaðamaður prufukast. Eftir tvær tilraunir grípur Jón Þórir segja' AFLI Jóns Þ. frá því morguninn áður: Tuttugu stykki á tveimur tímum. í taumana með skelfingarsvip: „Þetta gengur ekki. Þú verður að fara á námskeið..." Ætlarðu að segja mér að ég þurfi að fara á heilt námskeið til að læra aðkasta? „Já, mér sýnist ekki vanþörf á því.“ Hann tekur af mér stöngina og þar með er draumurinn búinn í bili. Þetta gengur bara betur næst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.