Morgunblaðið - 08.06.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ Tf I LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 23
í k
Ú11 a ð b o r ð a m e ð S ó L V E l G U LI L J U
GUilMUNDSDOTTUR
fequrðardrb'
+- ■
i n;
n \
MER DETTA í hug ljóðlínurnar
Eg er kominn
og mælist til þess að þið dansið
burt úr þeim stað er þið dveljið
yfir rotnandi svörðinn
þegar ég er kominn á veitingastaðinn, en
stilli mig um að kyrja þær, enda mælist slíkt
sennilega ekki vel fyrir hjá gestum staðarins
og eigendum hans. Þessar ljóðlínur eru byrj-
un texta Rafns Sigurðssonar við lagið Dans
eftir Finn Torfa Stefánsson. Lagið var á tvö-
faldri hljómplötu Oðmanna sem kom út árið
1970.
Ég hef ekki komið áður á þennan stað, en
það vekur athygli mína hversu hlýlegur og
vistlegur hann er. Mér er vísað inn í kon-
íakstofu, þar sem ég bíð eftir við-
mælanda mínum. Það er ekki laust
við að ég sé kvíðinn, enda minnist
ég samtals sem ég átti við Baltasar
Kormák eigi alls fyrir löngu. Þar
lét hann þau orð falla að ugglaust
liði ekki á löngu þar til karlmaður
yrði kjörinn Ungfrú ísland.
En hún er hnna
Ótti minn er þó sannarlega
ástæðulaus og þessar fáránlegu
hugsanir hverfa þegar Sólveig
Lilja kemur í fylgd þjónsins. Við
heilsumst og þjónninn vísar okkur
til borðs.
„Sniglar í sveppahöttum með
hvítlaukssmjöri," segir Sólveig
eftir smástund. „Fyrirgefðu?"
segi ég. „Ég ætla að fá sniglana í
forrétt. Mig hefur alltaf langað að
smakka snigla," útskýrir hún.
Fprrétturinn og Ásdís ljós-
myndari koma á sama tíma. „Lít
ég ekki hræðilega út?“ spyr Sól-
veig Lilja, blaðamanni til furðu, í
miðri myndatöku.
Var Sólveig kölluð „19 ára
Njarðvikíirmær“ í fegurðarsam-
keppninni um daginn?
„Já, ég held það bara. Enda er
það svo sem ekki óeðlilegt, þar
sem ég er úr Njarðvíkum," segir
hún. Þar býr hún ásamt móður
sinni. „Þú mátt alveg kalla þetta
Reykjanesbæ," segir hún- og brosir dulúð-
lega.
Hún fræðir blaðamann um aðhún eigiþrjá
bræður og þrjár systui'. Hún sé yngst sjö
systkina. Hvernig var að alast upp í svo stór-
um systkinahópi?
„Sniglarnir eru mjög góðir,“ segir hún,
hlær og heldur áfram. „Það var alveg ofsa-
lega gaman. Þó kannski ekki þegar ég var
lítil. Þá.var ég svo frek. Það er mjög gaman
JJlJSJ
að eiga svona mörg systkini, enda erum við
líka svo samrýnd. Við spilum oft Trivial
Pursuit saman og þá tapa ég oftast,“ segir
hún brosandi.
„Ég hló mjög mikið þegar ég las ummæli
Baltasars Kormáks í Morgunblaðinu, um að
karlmaður yrði bráðum kjörinn Ungfrú ís-
land. Mér fannst gott það sem hann sagði um
Pamelu Anderson.“
Hvað finnst henni um Pamelu Anderson?
„Eigum við ekki að segja að hún sé „mega-
beib“. Að vísu er varla hægt að kalla fegurð
hennar náttúralega, en það er eitthvað við
hana sem hrífur karlmenn."
MilUréttur
i hnði hús
nns
SÓLVEIG Lilja Guðmundsdóttir er á vel merktum bfl.
iviorgunDiaoio/Asais
Sólveig Lilja Guðmundsdóttir er nýkrýnd fegurðar-
y, ■ : j
drottning Islands. Ljóðaunnandinn Ivar Páll
Jónsson bauð henni út að borða á Argentínu
steikhúsi í vikunni og spjallaði við hana þar til
sólin settist í vestri.
Þjónninn færir okkur þau gleði-
tíðindi að við fáum millirétt í boði
hússins. Þáð reynist vera hörpu-
skel með balsamediki, hreint
ágætur réttur. „Þeir fá plús í
kladdann fyrir þetta,“ segir Sól-
veig. Hún segist hlakka mjög til
þess að fara til Rússlands í haust
til að taka þátt í keppninni um
Ungfrú Evrópu. „Keppnin verður
haldin í Moskvu og það verður
ábyggilega mjög skemmtilegt."
I sumar er hún að hugsa um að
skella sér til Costa del Sol, en með-
al verðlauna Ungfrúar Islands var
ferð þangað. „Ég fæ líka afnot af
Peugoet-bifreið í eitt ár,“ segir hún
þegar talið berst að öðram verð-
launum. „Reyndar er bíllinn ræki-
lega merktur fegurðardrottningu
Islands, þannig að ég á ef til vill
erfitt með að leyna ferðum mínum
og hverfa í fjöldann í umferðinni."
Sólveig hafði pantað sér miðl-
ungssteiktar 200 gramma nauta-
lundir í aðalrétt og nú kemur
þjónninn með þær. „Þetta er alveg
frábær steik sem bráðnar í munni.
Kjötið er svo meyrt. að hnífurinn
er nærri óþarfur. Ég gef þessum
rétti 9,7 í einkunn."
Samkvæmt viðteknum venjum
verður að spyrja Sólveigu um
áhugamál.
„Mér finnst mjög gaman að fara í viðtöl,
sérstaklega ef mér er boðið út að borða um
leið,“ segir hún grafalvarleg, en skellir svo
upp úr. Sjálfsagt finnst henni þessi spurning
leiðinleg, eins og hún kannski er.
Við afþökkum eftirrétt, aðeins vegna þess
að Sólveig er orðin södd. Góðri máltíð er lok-
ið og fegurðardrottningin skutlar blaða-
manni upp í Morgunblaðshús í Peugeot-bíln-
um sem er jafn rækilega merktur og fyrr.
Mdmafl
fyrir
minnavað!
PowerMadntDsh 8500
BowerMadntDsh 7600
fréttir
Góðar
hefur
150 Mhz PPC 604
Orgjorvi: 150 Mhz
Vinnsluminni: 16 Mb
Harðdiskur: 2000 Mb
Örgjörvi: 120 Mhz PPC 604
Vinnsluminni: 16 Mb
Harðdiskur: 1200 Mb
Geisladrif: Fjórhraða
Skjár: Apple Vision 1710
Annað: 256K Level 2 Cache
Video-inntak
Hnappaborð og mús
Vmnsluniinni
50°/
naer
laekkað
um
Gcisladrif:
Skjár:
Annað:
Fjorhraða
AppleVision 1710
512K Level 2 Cache
VideoinntakAittak
Hnappaborð og mús
Gaimverð: 600.900
TitxxÁsvaðánvdc 386.104 kr
Gmnnveið: 462.900
Tilboðsvaðánvdc 296.064 kr
w-Apple-umboöið
Skipholti 21 • Sími 511 5111 • Heimasíðan: http://www. apple. is