Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 31

Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ1996 31 AÐSENDAR GREINAR Svavar Gestsson sögu. Þess vegna ráku nefndirnar málin áfram eins og lýst var og oft voru málin aug- Ijóslega illa unnin. Dæmin um þau eru mörg. Ég nefni frum- varpið um náttúru- vernd sem Hjörleifur Guttormsson afhjúpaði sem hreina hrákasmíð á lokadegi þingsins, óþingtækt í raun. Nefndir þingsins eru að afgreiða mál allt til síðasta dags. Þing- mönnum gefst enginn tími til að ljúka málum með eðlilegum hætti og allt er í uppnámi. Klukkan gengur. Loka- dagur er áætlaður 15. maí og klukk- an tifar og það er 25. maí og 5. júní og 15. júní og svo framvegis. Vandinn er sá að ríkisstjórnin lítur á þingmenn stjórnarflokkanna sem eign sína og að þeir ráði öllu. Enda er það svo að enginn þingmað- ur Framsóknarflokksins lyftir litla fingri þegar hans hátign Halldór Ásgrímsson hefur talað. í Sjálf- stæðisfiokknum hefur Davíð núorð- ið yfirfært hið gamla ráðhúsvald yfir á þingflokk Sjálfstæðisflokks- ins. Dæmi um að þingið reyndi að sýna sjálfstæði er frumvarpið um fjárreiður ríkisins. Það var afgreitt í sérnefnd í þinginu. Það hafði ver- ið afgreitt eftir aðra umræðu. -Um málið ríkti fullt samkomulag. En þá stöðvaði ijármálaráðherra málið. Rétt sisona og þingið hlýddi þrátt fyrir andmæli okkar Ágústs Einars- sonar. Þessi niðurstaða var niður- lægjandi fyrir alþingi. Aðalvandi þingsins er því of mikl- ir möguleikar ríkisstjórnarinnar til að hafa sitt fram. Andspænis þessu stendur stjórnarandstaðan og hún á litla möguleika til að veijast aðra en þá að tala. Þar með lengist þing- ið og ræðutíminn verður' aðalum- ræðuefnið i fjölmiðlunum. Það er neikvætt fyrir stjórnarandstöðuna. Stundum. Sérstaklega þegar vænt- anleg heimsókn forseta Islands er dregin inn í málið eins og forseti gerði úr ræðustóli alþingis á loka- degi þingsins. Það þarf að tryggja. þrennt En þegar ég talaði fyrir hönd þingmanna í lok þingsins lagði ég áherslu á að vinnubrögð þingsins yrðu að tryggja þrennt: 1. Eðlilegan og sanngjarnan rétt meirihluta þingsins hverju sinni til að koma fram málum sem meiri- hlutinn hefur sammælst um. Við þetta atriði er sá fyrirvari af minni hálfu að í meirihlutanum verða ein- stakir þingmenn að vera frjálsir en það voru þeir ekki í vetur. Vandinn hefur alltaf verið sá að ríkisstjórnin TANAKA 422 vélorf fyrir bæjarfélög- og verktaka 2,3 hö. kr. 45.790 stgr. TANAKA 355 vélorf fyrir sumarbústaði 2,0 hö. kr 43.605 stgr. TANAKA 4000 vélorf fyrir heimili og sumar- bústaði 0,8 hö. kr.19.760 stgr. TANAKA 2800 heimilisvélorf 0,9 hö. kr.17.670 stgr. VETRARSOL Hamraborg 1-3, norðanmegin Kópavogi. 564 18 64 býr til skotgrafirnar, hún rekur sitt lið ofan í þær og ef einhver dirf- ist að líta upp úr gröf- unni hefur það um- svifalaust alkunnar af- leiðingar. 2. Eðlilegan rétt stjórnarandstöðu til að gagnrýna, frelsi hennar til að hafa áhrif á gang mála bg eðlilega mögu- leika þingmanna henn- ar til að fylgja sannfær- ingu sinni. Eitt af því sem stjórnarandstöðu- þingmennirnir þurfa að gæta sín á er að falla ekki í skotgrafir þær sem ríkis- stjórnin grefur. 3. Og síðast en ekki síst: Það verður að tryggja betur að þjóðin fái vandaða löggjöf. Það er ekki tryggt samkvæmt gildandi þing- sköpum. Áður fékk hvert mál tvær nefndarumferðir í tveimur nefndum efri deildar og neðri deilar. En í nefndunum voru að sjálfsögðu ekki sömu mennirnir. Nú fær mái nær alltaf aðeins eina nefndarumferð. Og þegar mál fer tvisvar til nefnd- ar eru það sömu mennirnir. Þessu kerfi þarf að mínu mati að breyta til að tryggja þjóðinni vandaðri lög- gjöf. Ekkert þeirra markmiða sem hér hafa verið rakin næst eins og þing- ið vinnur núna. Þetta þarf að gera 1. Ríkistjórninni verður að setja skorður um framlagningu mála. Þær skorður geta verið þær að mál verði að koma fram fyrr til að fá afgreiðslu og þar sé um að ræða óundanþægar reglur. 2. Nefndum verður að setja skorður um meðferð mála sem séu í nefndum í lágmarkstima og fái tiltekna lágmarksmeðferð. 3. Nefndarálit verði ekki tekin fyrir nema þau berist tveimur eða þemur vikum fyrir áætluð þinglok. 4. Hverju máli verði tryggð tvö- föld nefndarmeðferð. Þannig er það til dæmis í danska þinginu sem að öðru leyti er skipulagt eins og ís- lenska þingið. 5. Breytingar á ræðutíma verða ekki gerðar og má ekki gera nema tryggt sér að stjórnarandstaða fái aðra og virkari möguleika til að hafa áhrif á gang þingmála en nú er. Ræðutími verður ekki styttur án þess að ríkisstjórn _séu einnig settar skorður um leið. Árásirnar á stjórnarandstöðu fyrir mikil ræðu- höld hitta enga fyrir nema þá sem ráða ferðinni á þinginu. Þeir hafa vanrækt að gera þær breytingar á skipulagi þingsins sem tryggir öll- um, líka stjórnarandstæðingum og einstökum þingmönnum stjórnarl- iðsins, fullan rétt til þess að hafa áhrif á gang mála með öðrum hætti. Það þarf að breyta reglunúm og það þarf að vera jafnvægi í þeim ákvörðunum. Alþingi er ekki flæði- lína fyrir frumvörp ríkisstjórnarinn- ar heldur æðsta stofnun þjóðarinnar sem tekur á öllum málum og þorir að standa upprétt andspænis fram- kvæmdavaldinu. Það veit ég að er vilji núverandi forystu þingsins. Höfundur er formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.