Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 44

Morgunblaðið - 08.06.1996, Side 44
44 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ WRITE TO fOUR BROTHER ON THE DE5ERT..TELL MIM HE CAN BE MY V06 TELL HIM WEÍL BE PAL5.. HE CAN CHA5E STICRS.AND PULL ME IN MV WA60N, AND LEARN TRICK5.AND.. Pear Spike, This was not my idea. Þetta skaltu gera. Skrifaðu bróður þínum í Segðu honum að við verðum eyðimörkinni, segðu honum félagar, hann getur elt prik að hann geti verið hundur- og dregið mig í vagni og lært inn minn. hundakúnstir, og ... Kæri Sámur, þetta er ekki mín hugmynd. BREF TTL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Dómkirkjan í Reykjavík. Dagur fer mingar innar Frá Jakobi Hjálmarssym: SUNNUDAGINN 9. júní er Dagur fermingarinnar í Dómkirkjunni. Þann dag er 50 ára fermingar- börnum sérstaklega boðið til kirkju en einnig þeim sem fermst hafa á síðustu árum. Til þessa er efnt í tilefni 200 ára afmælis Dómkirkj- unnar sem minnst verður með ýmsum hætti á þessu ári. Dómkirkjan býður til tveggja guðsþjónusta þennan dag. Klukk- an 11 er messa tileinkuð ferm- ingarbörnum síðustu ára. Þar mun sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédika og sönghópurinn Móðir Jörð syngja gospelsöngva. Klukk- an 14 er messa tileinkuð 50 ára fermingarbörnum. Þar prédikar sr. Hjalti Guðmundsson og Dóm- kórinn syngur. Organisti er Mar- teinn H. Friðriksson. Við báðar messurnar gefst kostur á því að fara til altaris. Með þessu vill Dómkirkjan minnast þessa þáttar síns í lífi Reykvíkinga, ungra sem aldinna, í tvö hundruð ár. Hver árgangur- inn hefur fylgt öðrum til þessarar mikilvægu athafnar sem markar lífsstefnu og sjálfstæða ábyrgð einstaklinganna og þeim hefur verið beðið blessunar og veittur andlegur styrkur til lífsgöngunnar. JAKOB HJÁLMARSSON, dómkirkjuprestur. Til hamingju með hvað? Frá Ólafi R. Jónssyni: ÉG VAR í Kringlunni um síðustu helgi þegar mér var réttur gulur bæklingur sem á stóð „til ham- ingju“. Er nú verið að bjóða mér utanlandsferð? hugsaði ég. Nei al- deilis- ekki. Myndirnar í þessum bæklingi eru af börnum í Laugar- dalslauginni, sem byggð var á tímum sjálfstæðismanna í meirihluta borg- arstjómar, nýju göngubrúnni, sem Vegagerð ríkisins gerði yfir Kringlu- mýrarbraut í fyrra og kaffihúsi, sem einstaklingur hefur rekið í miðbæn- um, en þarf nú að borga mun hærri skatta fyrir vegna tilkomu R-listans. Á útsíðum, bæklingsins er mynd af Fríkirkjunni og Listasafni íslands, mynd af borgarfulltrúum R-listans fyrir framan ráðhúsið sem þau for- dæmdu og svo borgarstjóranum, Ingibjörgu Sólrúnu, með yfírskrift- inni „þetta er bara bytjunin11. Þá uppgötvaði ég að þetta var bækling- ur frá R-listanum. Byijunin á hverju? Allar mynd- irnar í bæklingnum minna á að R-listinn er að þakka sér hluti sem honum ber ekki að þakka sér fyrir nema síður sé. Líklega er R-listinn orðinn hræddur við að horfa upp á hveija skoðanakönnunina á fætur annarri, sem sýnir að hann hefur ekki fylgi borgarbúa lengur. Ég þakka R-listanum ekki fyrir klúðrið með Miðbæjarskólann, skattahækkanirnar eða skulda- aukninguna. Ég þakka R-listanum ekki fyrir að afnema heimgreiðslur til foreldra sem kjósa frekar að vera með börnin sín heima en setja þau á niðurgreiddar dagvistarstofn- anir. Það er heldur ekkert stórvirki fyrir R-listann að halda áfram gangstígagerð sem var í fullum gangi í tíð sjálfstæðismanna. í bæklingnum segir að nú ætli þau að líta upp frá verkunum og gera sér glaðan dag. Ég mæli með að gleðifagnaðurinn standi óslitið það sem eftir er kjörtímabilsins. Á með- an taka þau ekki ákvarðanir, því þær virðast fæstar vera í þágu okk- ar borgarbúa. ÓLAFURR. JÓNSSON, Starrhólum 2, Reykjavík. Ailt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.