Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
WRITE TO fOUR BROTHER
ON THE DE5ERT..TELL
MIM HE CAN BE MY V06
TELL HIM WEÍL BE PAL5..
HE CAN CHA5E STICRS.AND
PULL ME IN MV WA60N,
AND LEARN TRICK5.AND..
Pear Spike,
This was
not my idea.
Þetta skaltu gera.
Skrifaðu bróður þínum í Segðu honum að við verðum
eyðimörkinni, segðu honum félagar, hann getur elt prik
að hann geti verið hundur- og dregið mig í vagni og lært
inn minn. hundakúnstir, og ...
Kæri Sámur,
þetta er ekki mín
hugmynd.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Dómkirkjan í Reykjavík.
Dagur
fer mingar innar
Frá Jakobi Hjálmarssym:
SUNNUDAGINN 9. júní er Dagur
fermingarinnar í Dómkirkjunni.
Þann dag er 50 ára fermingar-
börnum sérstaklega boðið til kirkju
en einnig þeim sem fermst hafa á
síðustu árum. Til þessa er efnt í
tilefni 200 ára afmælis Dómkirkj-
unnar sem minnst verður með
ýmsum hætti á þessu ári.
Dómkirkjan býður til tveggja
guðsþjónusta þennan dag. Klukk-
an 11 er messa tileinkuð ferm-
ingarbörnum síðustu ára. Þar
mun sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
prédika og sönghópurinn Móðir
Jörð syngja gospelsöngva. Klukk-
an 14 er messa tileinkuð 50 ára
fermingarbörnum. Þar prédikar
sr. Hjalti Guðmundsson og Dóm-
kórinn syngur. Organisti er Mar-
teinn H. Friðriksson. Við báðar
messurnar gefst kostur á því að
fara til altaris.
Með þessu vill Dómkirkjan
minnast þessa þáttar síns í lífi
Reykvíkinga, ungra sem aldinna,
í tvö hundruð ár. Hver árgangur-
inn hefur fylgt öðrum til þessarar
mikilvægu athafnar sem markar
lífsstefnu og sjálfstæða ábyrgð
einstaklinganna og þeim hefur
verið beðið blessunar og veittur
andlegur styrkur til lífsgöngunnar.
JAKOB HJÁLMARSSON,
dómkirkjuprestur.
Til hamingju
með hvað?
Frá Ólafi R. Jónssyni:
ÉG VAR í Kringlunni um síðustu
helgi þegar mér var réttur gulur
bæklingur sem á stóð „til ham-
ingju“. Er nú verið að bjóða mér
utanlandsferð? hugsaði ég. Nei al-
deilis- ekki. Myndirnar í þessum
bæklingi eru af börnum í Laugar-
dalslauginni, sem byggð var á tímum
sjálfstæðismanna í meirihluta borg-
arstjómar, nýju göngubrúnni, sem
Vegagerð ríkisins gerði yfir Kringlu-
mýrarbraut í fyrra og kaffihúsi, sem
einstaklingur hefur rekið í miðbæn-
um, en þarf nú að borga mun hærri
skatta fyrir vegna tilkomu R-listans.
Á útsíðum, bæklingsins er mynd af
Fríkirkjunni og Listasafni íslands,
mynd af borgarfulltrúum R-listans
fyrir framan ráðhúsið sem þau for-
dæmdu og svo borgarstjóranum,
Ingibjörgu Sólrúnu, með yfírskrift-
inni „þetta er bara bytjunin11. Þá
uppgötvaði ég að þetta var bækling-
ur frá R-listanum.
Byijunin á hverju? Allar mynd-
irnar í bæklingnum minna á að
R-listinn er að þakka sér hluti sem
honum ber ekki að þakka sér fyrir
nema síður sé. Líklega er R-listinn
orðinn hræddur við að horfa upp á
hveija skoðanakönnunina á fætur
annarri, sem sýnir að hann hefur
ekki fylgi borgarbúa lengur.
Ég þakka R-listanum ekki fyrir
klúðrið með Miðbæjarskólann,
skattahækkanirnar eða skulda-
aukninguna. Ég þakka R-listanum
ekki fyrir að afnema heimgreiðslur
til foreldra sem kjósa frekar að
vera með börnin sín heima en setja
þau á niðurgreiddar dagvistarstofn-
anir. Það er heldur ekkert stórvirki
fyrir R-listann að halda áfram
gangstígagerð sem var í fullum
gangi í tíð sjálfstæðismanna. í
bæklingnum segir að nú ætli þau
að líta upp frá verkunum og gera
sér glaðan dag. Ég mæli með að
gleðifagnaðurinn standi óslitið það
sem eftir er kjörtímabilsins. Á með-
an taka þau ekki ákvarðanir, því
þær virðast fæstar vera í þágu okk-
ar borgarbúa.
ÓLAFURR. JÓNSSON,
Starrhólum 2, Reykjavík.
Ailt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.