Morgunblaðið - 08.06.1996, Page 45

Morgunblaðið - 08.06.1996, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1996 45 BRÉF TIL BLAÐSIMS Gagnrýni gagnrýnd Frá Hrannari Baldurssyni: MIÐVIKUDAGINN 5. júní birtist í Morgunblaðinu kvikmyndagagn- rýni eftir hinn ágæta gagnrýnanda Arnald Indriðason um Rumble in the Bronx. Yfirleitt er ég ánægður með gagnrýni hans og yfirleitt tek ég mark á henni. En ljóst er að ef ég hefði séð gagnrýni hans áður en ég fór í bíó til að sjá Rumble in the Bronx, hefði ég orðið af einstakri skemmtun. Gagnrýni Arnalds lýsir myndinni á athyglisverðan hátt: „Myndin er nógu léleg til að hægt sé að hlæja að henni, leikararnir eru dásam- lega vondir í skelfilegum hasar- myndarullum, hasaratriðin eru óspennandi og myndin er vond.“ Ég veit ekki hvort ég get verið ósammála þessum dómi þar sem þessi lýsingarorð segja ósköp fátt nema maður þekki gagnrýnand- ann persónulega og notkun hans á lýsingarorðum eins og lélegt, vont eða óspennandi. Ég fór í Regnbogann til að sjá Rumble in the Bronx, og vissi ekki hveiju ég gæti átt von á, en hafði óljósar hugmyndir um vin- sældir myndarinnar vestanhafs. Þegar ég fór út úr salnum hefði mér eflaust átt að líða mjög illa, þar sem ég sóaði peningum í þessa vitleysu og eyddi tveimur klukku- stundum í kvikmyndasal undir lé- legri Hong-Kong dellu, sam- kvæmd dómi gagnrýnanda. En sú varð ekki raunin. Mér leið vel, ég hafði skemmt mér konunglega, sá ekki eftir pen- ingunum sem fóru í miðann og hugleiddi að sjá myndina aftur. Mér leið ekki ósvipað og eftir stór- myndir eins og Star Wars eða Raiders of the Lost Arc, sem sum- ir hafa þó fullyrt að séu illa leikn- ar og ósköp ómerkilegar í eðli sínu. Ég ætla ekki að rökræða það hér. Rumble in the Bronx býr yfir ákveðinni einlægni sem lýsir sér í göfuglyndi aðalpersónunnar og lífsviðhorfi, að aðstæður þurfi ekki að breyta manni, sama hve slæm- ar þær eru, í staðinn geti maður bætt þær. Þetta er saga um mann sem lendir í vonlausum aðstæðum en í stað þess að gefast upp og leyfa ofbeldi að rúlla yfir sig, bregst hann gegn því af öliu afli. (Kannski það sé ákveðinn sam- hljómur í sögunni við þá ógn sem hér ríkir vegna komandi samfé: lagssviptinga í Hong Kong.) í Raiders of the Lost Arc barðist Indiana Jones við veldi nasista, í Star Wars barðist lítill hópur upp- reisnarmann gegn illu keisara- veldi, í Rumble in the Bronx barst kínverskur nýbúi við mafíu í New York. Það er ákveðinn ævintýra- ljómi yfir þessari hugmynd og þessum ljóma tekst Jackie Chan og leikstjóranum Stanley Tong að koma til skila, og vel það. Hraði Rumble in the Bronx er með ólíkindum. Öll atriðin eru út- færð af mikilli nákvæmni, hver einasta hreyfmg leikaranna er eins og dansspor, jafnvel hvernig tröll- vaxnir morðingjar mafíunnar hreyfa sig til. Þannig að áhersla leikaranna er líkamleg tjáning, ekki tjáning svipbrigða eða orða. Þó að saga Rumble in thé Bronx og hin sögðu orð séu veik í mynd- inni, er handritið í heild meistara- verk. Hvernig hægt er að útfæra sérhveija flókna hreyfingu í kvik- mynd á jafnfrumlegan, hraðan og nákvæman hátt er erfitt að skilja. Hinn einstaki húmor myndarinnar, sem fékk sal áhorfenda til að skella upp úr oftar en tíu sinnum, byggir á tímasetningu og hug- myndaríkum aðferðum þar sem hver hlutur og hluti sviðsmyndar er nýtt til hins ýtrasta. Mér sýnist Arnaldur hafa mis-- skilið Jackie Chan. Það er einum of þröngt að kalla hann hasar- myndakóng, því hann byggir kvik- myndir sínar ekki eingöngu á tóm- um hasar, heldur á margþættu samspili Kung-Fu listarinnar, kímnigáfu, spennu og siðferðileg- um gildum sem hljóma útá kant og gamaldags, sem er reyndar al- varlegt umhugsunarefni. Og það er kjarni myndarinnar, ekki hasar- myndaumgjörðin eða svipbrigað- leikurinn, heldur hvernig líkaminn getur unnið frumlega, hratt og nákvæmlega í samræmi við að- stæður, eins og hugur sem reiknar flókið stærðfræðidæmi eða uppgöt- var óvænt tengsl i hugtakaheimi. Rumble in the Brox er áhuga- verð mynd og satt er að hún er furðuverk, eins og Arnaldur kallar hana, en er það ekki ágæt þýðing á hugtakinu cult-mynd? HRANNAR BALDURSSON, Álftamýri 18, Reykjavík. áður 420.000 í vögnunum frá ÆGIt stgr. Með fortjaldi, dúk í fortjaldi, gaseldunarhellu og bremsubúnaði. SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 5112203 Súrefni - uppspretta lífsins Geislun húðarinnar, lifskraftur og öldrunarþættir byggjast upp á líffræðilegu vægi og heildarstarfsemi hennar. Húðin þarf að anda, eins og allt annað. Hún andar að sér súrefni og gefur frá sér koltvisýring. Súrefnisinntak húðarinnar skiptir öllu máli í allri liffræðilegri hringrás hennar. Sothys hefur framleitt 24 stunda krem fyrir konur og karla, sem örva súrefnisinntak og úrgangslosun til húðarinnar. Húðin fær íallegan lit og geislar af lifi. Sannkölluð orkubomba. 24 stunda krem fyrir þurra húð og 24 stunda léttíljótandi krem fyrir eðlilega og feita húð. Franskur sérfræðingur frá Sothys gefur persónulegar leiðbeiningar og ráðgjöf um meðferð húðarinnar fyrir viðskiptavini Hagkaups, Kringlunni, laugardaginn 8. júní kl. 10.00-16.00 þeim að kostnaðarlausu, bara þennan eina dag. - Gjafir fylgja kaupum. FORSETAKJOR 1996 ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Hella Fundur með Ólali Ragnai i og Guðrúnu Katrínu í Hellubíói kl. 20:30 íkvöld. \ iOi a Om , ;i\örp o« i> l ii spm i»i*’. Állir velkomnir! Stuðningstólk Ólafs Ragnars Grímssonar Hellu. ~... blessaður ™ vertu, það kostar bara 24 krónur... V Heyrðu, X nú verð ég að fara að hcetta þessu, ég er búinn að tala í tíu K. mínútur... A Nú er allt að helmmgi ódýrara að hringja innanlands Símtal á milli Keflavikur oq Póítur oq st'rm hefur «mfaldaó qj'aldskrá fyrir innanlands- Egílsstaða kostar símtöl. Nu «ru aðems t.vc-ir qjaldflokkar oq nmturta/tírm ) kronur oq á11a hefst klukkan 19.00. Pað jafnqildir 50% Lr;kkuri á iírnt.ol- aura á rninutu eftir um frá kl. 19.00 til 23 00 oq 33% Imkkun á simtölum frá klukkan 19.00. klukkan 23.00 frl 08.00 h þeim simtóíum sem h'ftmyrðu fdflokk POSTUR OG SIMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.